Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2000, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2000, Qupperneq 3
16 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 17 Sport Martha Ernstsdóttir viö æfingar í sundlaug í Sydney. Martha keppir i maraþonhiaupinu á sunnudagsmorgun að áströlskum tíma, á laugardags- kvöld aö íslenskum tíma. DV-mynd Pjetur Martha Ernstsdóttir maraþonhlaupari: Hrein forréttindi - að fá að taka þátt í Ólympíuleikum Martha Ernstsdóttir keppir á sunnudag í sínu fyrsta maraþon- hlaupi á stórmóti þar sem hún keppir á Ólympíuleikunum í Sydney. Martha hefur átt við meiðsli að stríða síðast- liðið ár sem hún hefur þó, að eigin sögn, að öllum líkindum komist yfir. Martha segist spennt að taka þátt í þeirri veislu sem leikar af þessu tagi er en hvar stendur hún fyrir þessa keppni? „Ég tel að ef ég heíði getaö hagað mínum undirbúningi með þeim hætti sem ég helst vildi og sloppið við öll meiðsli þá ætti ég að geta orðið í 20.-25. sæti. Þegar litið er hins vegar á aðstæður þá er markmið mitt að kom- ast sómasamlega frá þessu og allt ann- að er bara bónus. Ég kem að sjálf- sögðu til leiks með það hugarfar að hafa gaman af þessu og ég vil taka það skýrt fram að það'er eru hrein forrétt- indi að fá að taka þátt í Ólympíuleik- um.“ Martha segir að í heilt ár hafi hún verið að hlaupa meidd á læri. Hún hafi alltaf verið með verki og því hafi hún ekki getað beitt sér að fullu og ekki æft eins og hún vildi. „Þetta heyrir hins vegar sögunni til og nú hugsa ég ekki um það meir. Nú er bara að standa sig í maraþoninu og reyna að gera sitt allra besta. Ég er al- veg klár á því að þetta hlaup verður algjört ævintýri og það verða alveg ör- ugglega hundruð þúsund manna á göt- um úti að hvetja og þetta verður alveg örugglega ofsalega skemmtilegt." Martha hefur keppt í hlaupum í um 15 ár en segist nú rétt vera að hefja maraþonferilinn og ekkert að hugsa um að hætta. „Þetta er bara byrjunin á honum og þetta er fyrsta stórmótið þar sem ég tek þátt í maraþoninu og þetta er alls ekki mitt síðasta. Ég er unglingur í maraþoni." Martha segir það tvennt ólíkt aö hlaupa maraþon eða styttri vega- lengdir, s.s. hálft maraþon og þaðan af styttri hlaup. „Maður er í raun í eigin heimi. Þetta er erfiðara á allan hátt. Það eru gríðarlega margir þættir sem þarf að hugsa um á leiðinni, s.s. nær- ing, vatn, og að rekast ekki á þennan fræga vegg sem maraþonhlauparar þekkja margir hverjir of vel. Þetta er gríðarleg áskorun fyrir einstakling- inn. Mér fmnst gaman að keppa, ferð- ast og hitta nýtt fólk og það eru kannski þessir hlutir sem reka mann áfram í þessu.“ -PS Örn Arnarson sundmaöur: Frábær árangur Öm Amarson náði glæsilegum árangri í fyrrinótt á Ólympíuleikunum og DV hitti hann að máli í gær. „Ég er mjög ánægður eftir þetta sund og fjórða sæti á Ólympíuleikum er náttúrlega frábær árangur. Ég gaf allt sem ég átti í þetta sund en átti í raun ekki möguleika á sæti ofar en því fjórða. Það er náttúrlega ekki á hverjum degi sem íslendingur lendir í íjórða sæti á Ólympíuleikum. Fyrstu 150 metrana synti ég í raun hraðar en ég hafði gert fýrri sundin tvö en síðan fór mjólkursýran að segja til sín á síðustu 50 metrunum. Ég hélt samt mínu sæti þó tæpt hafi staðið. Að vissu leyti er ég feginn að þetta er búið en ég hefði þó ekki haft neitt á móti því að synda einu sinni enn því þetta hefur gengið svo vel nú. Það var gríðarleg til- hlökkun fyrir þetta sund og ég lét utanaðkomandi pressu og væntingar ekki trufla mig. Það var talsvert mikilvægt fyrir mig að fá að synda ann- að sund í keppninni áður en ég fór í baksundið og því hjálpaði skriðsundið mér mikið. Ég geri þetta gjaman þar sem baksundið er oft mjög seint í stórmótum. Með þessum hætti næ ég aðeins tilfmningu fyrir lauginni sem er mjög gott. Nú tekur við frí svona meira og minna næstu tvær vik- ur, nema maður skokkar kannski svona sér til heilsubót- ar. Æfingar byrja svo á fullu þegar heim er komið en um miðjan desember fer fram Evrópumeistaramót í 25 metra laug. Síðan tek ég aftur stutt frí eftir það,“ sagði Örn, þreyttur en ánægður að loknu góðu móti. -PS Elín Siguröardóttir sundkona: Andlega hliðin klikkaði Elín Sigurðardóttir keppti síðastliðna nótt í undanrásum 50 m skriðsundsins á Ólympiuleikunum og var alllangt frá sínu besta. Hún synti á 27,58 sek., en íslandsmet hennar er 26,79 sek., sett árið 1996. „Ég var dálítið frá mínu besta og er ekki alveg nógu ánægð, sérstaklega miðað við það að ég er í mjög góðu líkamlegu formi. Það hefur gengið mjög vel á æfingum og mér hefði átt að geta gengiö miklu bet- ur en þetta. Þó að maður búi orð- ið yfir mikilli reynslu og sé búinn að vera í þessu svona lengi þá þarf miklu meira. Það var tví- mælalaust andlega hliöin sem ekki var sem skyldi í dag. Ég byrj- aði sundið ágætlega, viðbragðiö var gott, en eins og ég segi þá hefði ég átt að geta gert betur og er ekki nógu sátt með þetta sund,“ sagði Elín í samtali við DV í nótt. „Framhaldið er nokkuð óljóst hjá mér. Ég hef ekki alveg ákveð- ið það en þó er víst að ég mun synda á Evrópumótinu í Valencia í desember, en eftir það mun ég sjá til hvað ég geri. Njóti ég þess hins vegar aö synda þá held ég áfram eftir það,“ bætti Elín við. -PS Bandaríkin og Litháen mættust i gær: Naumur sigur Bandaríkjanna „Þeir hafa sjálfsagt búist við meira en 20 stiga sigri, þeir banda- rísku," sagði leikmaður Litháens, Kestutis Marcilionis, eftir að landar hans höfðu veitt Bandaríkjamönn- um verðuga keppni á ÓL í Sydney. Meistaramir höfðu þetta þó: 85-76 voru lokatölur leiksins. Bandarikjamenn tóku strax for- ystu í leiknum og áður en fyrri hálf- leik lauk var hún orðin 14 stig, 47-33. Þegar tvær mínútur voru liðnar af síðari hálfleik höfðu Lit- háar náð að minnka muninn í 50-49 en Bandaríkjamenn juku forskotiö fljótt aftur. Þegar skammt var til leiksloka geröu þeir litháensku sig líklega til að stela sigrinum og minnkuðu for- skotið í fimm stig þegar tvær minút- ur voru enn óleiknar, þökk sé tveimur mikilvægum körfum frá Tomas Masiulis. Þeir gátu minnkað muninn í þrjú stig rúmri mínútu síðar en Eurelijus Zukauskas mis- notaði bæði vítaköstin og eftir það var sigur þeirra bandarísku örugg- ur. Allir 15 leikmenn bandaríska liðs- ins komu við sögu í leiknum og var enginn einn leikmaður áberandi á vellinum. Stigahæstur var Gary Payton með 14 stig og hann tók einnig 4 fráköst. Vince Carter var með 12 stig og 6 fráköst en Kevin Barnett tók 11 slík ásamt 8 stigum skoruðum. Hjá Litháen var Darius Songaila öðrum betri með 16 stig og 8 fráköst. Mindaugas Timinskas kom næstur með 15 stig. Ástralar unnu mikilvægan sigur á Rússum eftir að leikar stóðu jafn- ir og tæpar tvær mínútur voru til leiksloka. Fyrirliði Ástralanna, Andrew Gaze, átti þó mikilvæga þriggja stiga körfu undir lokin og tryggði sínum mönnum sigurinn. -esá 1 Bandaríkin # S • I Þórey Edda Elísdottir stekkur á æfingu í Sydney og Vala Flosadóttir fylgist með. Á innfelldu myndinni sést Vala síðan stökkva sjálf en stúlkurnar hefja keppni I undankeppni stangarstökksins á laugardagsmorguninn að íslenskum tíma og verður sýnt frá keppninni f sjónvarpinu. DV-myndir Pjetur 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Kína Ástralía Frakkland ítalía Holland Rússland Kórea Japan Rúmenía Staða 10 efstu eftir 99 greinar^Q Vala Flosadóttir og Þórey Edda Elísdóttir um stangarstökkskeppnina: Komið að uppskerunni íslensku stúlkumar Þórey Edda El- ísdóttir og Vala Flosadóttir hefja keppni í stangarstökki kvenna á laug- ardag en þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í greininni á Ólympiuleikum og eru allar sterkustu stangarstökks- konur heims mættar til leiks og því á brattann að sækja fyrir þær Þóreyju Eddu og Völu. Stúlkurnar hafa að undanfomu dvalið með íslenska frjálsíþróttalið- inu við æfingar í Sydney og var nokk- uð gott í þeim hljóðið þegar blaðamað- ur DV hitti þær þar sem þær dvelja í Ólympíuþorpinu. Dagsformið ræður úrslitum „Maður stefnir að sjálfsögðu á að gera sitt besta því það er mikill heið- ur að fá að taka þátt í leikunum fyrir hönd íslands,“ segir Vala fyrir stóru stundina. Auðvitað hafi hún sett sér eitthvert takmark með sjálfri sér en hún kjósi að hafa það þar. Vala segir að keppinautar hennar hafi verið að stökkva eilítið hærra en hún sjálf að undanfomu en segist í sjálfu sér ekki velta sér upp úr því hvað þær hafi verið að gera heldur sé það mikilvægt að einbeita sér að sjálfri sér. Það sem skipti máli er hvað gerist á laugardag og dagsformið muni skera úr um hver úrslitin verða. „Allar aðstæður á vellinum eru æð- islegar og völlurinn frábær og það er örugglega gaman að keppa á honum, sérstaklega ef áhorfendum eru margir. Ég hef ekki áhyggjur af áhorf- endum því mér finnst það vinna með mér ef það er góð stemning," segir Vala. Stundin aö renna upp Þórey Edda segist bjartsýn fyrir keppnina en biðin sé búin að vera löng og nú loks sé stundin að renna upp. „Æfingar hafa gengið ágætlega, ég er i ágætu formi og virðist vera á réttum tíma hvað það varðar. Þetta er búin að vera mikil vinna og nú er komið að uppskerunni,“ segir Þórey Edda. Hún tekur undir það markmið Völu að gera fyrst og fremst sitt besta, auk þess sem hún stefni að því að hafa sem mest gaman af keppninni og alls ekki svekkja sig á því ef ekki gengur allt upp. „Auðvitað setur maður sér einhver markmið og gerir vissar kröfur til sjálfrar sin, en maður er ekki að gefa þær ailtof mikið upp ef maður getur ekki staðið við þær að öllu leyti. Mann hefur alltaf dreymt um að kom- ast á Ólympíuleika og nú, þegar kom- ið er hingað, gerir maður sér ekki grein fyrir því út í hvað maöur er kominn. Má búast viö miklum fólks- fjölda Þetta er hins vegar gríðarlega spennandi verkefni. Við keppum að kvöldi til og á sama tíma eru úrslit í öðrum greinum og því má búast við miklum fólksfjölda. Maður verður að einbeita sér að því að hafa gaman af þessari stund og láta umgjörðina ekki slá sig út af laginu,“ sagði Þórey Edda að lokum. -PS Sport1 Úrslit: Handbolti karla, A-riðill: Egyptaland-Suður-Kórea.28-21 Kúba-Júgóslavia.........26-33 Handbolti kvenna, A-riðill: Rúmenía-Angóla.............35-22 Suður-Kórea-Ungverjaland . . . 41-33 Staðan: Suður-Kórea 3 3 0 0 100-76 6 Ungverjal. 3 2 0 1 98-65 4 Rúmenía 2 1 0 1 60-59 2 Frakkland 2 0 0 2 40-48 0 Angóla 2 0 0 2 47-77 0 Handbolti kvenna, B-riðiU: Austurríki-BrasUía..........45-26 Danmörk-Ástralía ...........38-12 Staðan: Danmörk 3 2 0 1 85-57 Noregur 2 2 0 0 47-35 Austurríki 2 10 1 71-56 Brasilía 2 10 1 58-64 Ástralía 3 0 0 3 49-98 4 4 2 2 0 Körfubolti karla, A-riðiU: Kína-Frakkland ..............70-82 Bandaríkin-Litháen ..........85-76 Staðan: Bandaríkin 3 3 0 297-209 6 Frakkland 3 2 1 221-201 5 ítalia 3 2 1 189-207 5 Litháen 3 1 2 205-198 4 Kína 3 1 2 217-261 4 Nýja-Sjáland 3 0 3 176-229 3 Körfubolti karla, B-riðiU: Júgóslavía-Angóla ...........73-64 Ástralía-Rússland............75-71 Staöan: Kanada 3 3 0 297-221 6 Júgóslavía 3 3 0 219-190 6 Rússland 3 1 2 202-204 4 Spánn 3 1 2 204-207 4 Ástralía 3 1 2 231-252 4 Angóla 3 0 3 163-236 3 Körfubolti kvenna, A-riðiU: Slóvakia-Kanada ............68-56 Körfúbolti kvexma, B-riðiU: Rússland-Suður-Kórea .......73-75 200 m bringusund kvenna: 1. Agnes Kovacs, Ungverjal. 2:24.35 2. Kristy Kowal, BNA......2:24.56 3. Amanda Beard, BNA . . . 2:25.35 200 m baksund karla: 1. Lenny Krayzelburg, BNA . 1:56.76 2. Aaron Peirsol, BNA.....1:57.35 3. Matthew Welsh, Ástr. . . . 1:57.59 4. Örn Arnarson, íslandi .. . 1:59.00 100 m skriðsund kvenna: 1. Inge de Bruijn, Hollandi .. 53.83 2. Therese Alshammar, Svíþj. 54.33 3. Dara Torres, BNA .......54.43 3. Jenny Thompson, BNA . . . 54.43 200 m Qórsund karla: 1. M. Rosolino, ítaliu....1:58.98 2. Tom Doland, BNA........1:59.77 3. Tom Wilkens, BNA.......2:00.87 20 km ganga karla: 1. R. Korzeniowski, Pól. 1:18,59 klst. 2. N. Hemandez, Mex. . 1:19,03 klst. 3. V. Andreyev, Rússl. . . .2:00.87 klst. Ólympíumet eru skáletruó. Inge De Brujin fagnar öðrum gullverðlaununum sinum í Sydney ásamt kærasta sínum sem jafnframt er þjálfari hennar. reuters Fimm verðlaun 1 höfn - ítalinn Rosolino hefur unnið eitt gull, silfur og þrenn bronsverðlaun Það var stór dagur hjá ftalska sundmanninum Massimiliano Rosolino þegar hann vann gullverö- laun í 200 metra fjórsundi á Ólymp- íuleikunum í Sydney. Hann synti á 1:58,98 mínútum sem er Ólympíu- met. Rosolino hafði fyrir sundiö i gær unnið eitt silfur og þrenn brons- verðlaun og hann átti þann draum að fara með gull heim til Ítalíu. Með þessum árangri hefur ítalinn skráð nafn sitt á spjald leikanna. Heimsmethafmn, Finninn Jani Sievinen, varð að gera sér áttunda sætið að góðu í úrslitasundinu. Met hans er 1:58,16 mínútur og sett í Róm fyrir sex árum. Inge de Bruijn sigraði í 100 metra skriðsundi, synti á 53,83 sekúndum, og voru þetta önnur gullverðlaun hennar. Svíar kættust mjög þegar Theresa Alshammar vann silfur- verðlaun í sundinu og er þetta besti árangur Svía í sundinu á leikunum til þessa. Ungverjar komust í fyrsta sinn á verðlaunapall í sundinu þegar hin geysisterka Agnes Kovacs kom fyrst í mark í 200 metra bringu- sundi, synti á 2:24,35 mínútum. Komið hefur í ljós að Ian Thorpe, sem unnið hefur til þrennra gull- verðlauna og einna silfurverð- launa, hefur átt við öndunarfæra- sýkingu aö stríða alla leikana. Hann lætur það ekki á sig fá og ætl- ar að bæta við fjórða gullinu með boðsundssveit Ástrala. -JKS Handbolti kvenna: Markasúpa Það var nóg skorað í handbolta- keppni kvenna á Ólympíuleikun- um í Sydney i gær. Austurríki skoraði 45 mörk gegn Brasilíu en ekkert lið hefur skoraö fleiri mörk í einum leik í keppninni. Þá gerði leikmaður Suður-Kóreu, Sang-Eun Lee, 18 mörk í mikilvægum sigri þeirra suður-kóresku á Ungverjum. Bæði löndin eru búin að tryggja sér sæti i fjórðungsúrslit- um keppninnar ásamt Danmörku og Noregi. Þá er nánast öruggt að Austurríki, Brasilía og Rúmenía komist áfram á næsta stig. -esá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.