Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2000, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2000, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000 18 Jankovic hættur Stefán Milan Jankovic, sem þjálfað hefur úr- valsdeildarlið Grindvíkinga tvö sl. ár, hefur ákveð- ið að láta af störf- um með liðið. „Hann vildi ekki framlengja samning sinn. Þetta fer fram allt í hróðerni og ákvörðunin er al- farið hans sjálfs en því er ekki að leyna að við hefðum viljað halda honum áfram. Við eru rétt famir að átta okkur á þessu og emm þegar farnir að líta í kringum okkur eftir þjálf- ara. Það er ljóst að flóran í þeim efn- um er ekki mikil hér innan lands,“ sagði Jónas Þór- hallsson, formað- ur knattspymu- deildar Grindavík- ur, við blaðið í gærkvöld. -JKS 5,ÍÍMÍ: Bikarmolar Eyjamenn koma saman í dag og munu gista á Hótel Loftleið- um fram að leik. Hópurinn hef- ur verið tvískiptur frá því í byrj- un september og þvi mikilvægt fyrir þá að hrista hann saman á ný. Skagamenn verða með opna æfingu á laugardaginn kl. 13.30. Þar er stuðningsmönnum boðið að koma og fylgjast með leik- mönnum ÍAundirbúa sig fyrir átökin á sunnudag. Eftir æfingu fer liðið á Hótel Örk í Hvera- gerði þar sem það mun dvelja fram að leik. ÍA og ÍBV hafa tvisvar áður mæst í úrslitaleik bikarkeppn- innar og hafa Skagamenn farið með sigur af hólmi í bæði skipt- in, árin 1983 og 1996. Báðir leik- irnir enduðu með sigri ÍA, 2-1. Skagamenn og Eyjamenn fögnuðu mjög eftir aö hafa tryggt sér sæti í bikarúrslitaleiknum. Þessi lið mætast á sunnudaginn á Laugardalsvellinum og verður fróðlegt að sjá hvort liðiö fer með sigur af hólmi og fagnar í leikslok. DV-myndir E.ÓI Úrslitaleikur Coca-Cola-bikars karla á Laugardalsvelli á sunnudaginn: Svipuð að getu - segir Bjarni Jóhannsson, þjálfari Fylkis, um bikarúrslitalið ÍA og ÍBV „Mér líst mjög vel á þennan leik. Þessi lið, ÍBV og ÍA, eru mjög svipuð að getu og þau hafa hvorugt staðið undir þeim miklu væntingum sem tO þeirra voru gerðar í sumar. Það er því kærkomið tækifæri fyrir þau bæði að komast í bikarúrslitin og sýna sitt rétta andlit. Það er þegar ljóst að annað liðið verður að sitja eftir heima þegar Evrópukeppnin verður á næsta ári og það gerir leik- inn enn meira spennandi. Bæði þessi lið þekkja ekkert annað en að taka þátt í Evrópukeppni á hverju ári og því er mikið lagt undir á sunnudag- inn og ætti það að skila sér í enn meiri stemningu innan leikmanna- hópanna og meðal stuðningsmanna liðanna," sagði Bjami Jóhannsson, þjálfari Fylkis, í samtali við DV- Sport. Leikmannahóparnir áþekkir „Liðin eru meö mjög svipaða leik- Hlynur Stefánsson: Leggst vel í mig „Leikurinn leggst mjög vel í mig. Hópurinn hefur verið tvískiptur að undanfomu en við munum koma saman í bænum í dag og gista á Hótel Loftleiðum fram að leik. Stemningin 1 hópnum er mjög góð. Það voru reyndar nokkrir sem hafa verið tæpir en þeir verða flestir klárir á sunnudaginn. Sum- arið hjá okkur var ekki nógu gott. Það segir sig sjálft að fjórða sætið er niðurstaða sem við sættum okk- ur ekki við og við emm staðráðnir í því að klára sumarið almennilega með sigri í bikamum. Leikimir á móti ÍAí sumar hafa verið mjög jafnir og ég tel að liðin séu mjög svipuð að styrkleika og eigi álika möguleika á að sigra í leiknum," sagði Hlynur Stefánsson, fyrirliði Eyjamanna. aðferð og með áþekka leikmanna- hópa. Vestmannaeyingar eru heldur marksæknari heldur en Skagamenn og bæði þessi lið hafa sterkum vörn- um á að skipa. ÍA og ÍBV sýndu mik- inn styrk í undanúrslitunum þegar liðin tryggðu sér sæti í úrslitaleikn- um eftir að hafa verið undir nánast allan leikinn. Það sýnir að stemning- in er mikil í báðum liðum. Þau hafa bæði sterka hefð, þekkja sigurtiifmn- inguna og stuðningsmannahóparnir eru mjög litríkir og skemmtilegir. Það má því búast við miklum fjölda áhorfenda á leikinn og stemningin á áhorfendapöllunum verður áreiðan- lega ekki síðri en inni á vellinum. Það er hins vegar, eins og ég sagði, ótrúlega margt í fari þessara liða sem er líkt og það gerir leikinn á sunnudaginn svo áhugaverðan. Viljinn vinnur leikinn Skagamenn verða að sækja af meiri krafti heldur en þeir hafa gert í sumar því að það hefur verið held- ur meiri hraði í sóknaraðgerðum Vestmannaeyinga og þeir hafa verið ferskari á köflum í sumar. Þetta er fyrst og fremst spurning um dags- formið. Það lið, sem tekst að undir- búa þennan leik betur, koma betur stemmt í leikinn og vera hungrað í það að vinna titilinn til að komast í Evrópukeppnina á næsta ári, verður bikarmeistari," sagði Bjami. Pétur Pétursson, þjálfari KR: „Þetta verður mjög spennandi leikur. Skagamenn verða hreinlega að sýna betri knattspymu heldur en þeir hafa spilað í sumar og það er töluverð pressa á þeim. Vestmanna- eyingar áttu möguleika á' íslands- meistaratitlinum en misstu af hon- um og koma væntanlega brjálaðir í leikinn. Bæði liðin eru líkamlega sterk. Afram, IBV Eyjamenn eru fjörugt fólk og þeir ætla sér að skapa mikla stemningu sunnudaginn. Það þegar orðið fullt í allar ferðir með Herjólfi á sunnudaginn og ljóst að leikmenn ÍBV fá góðan stuðn- ing frá stuðningsmönnum sínum. Eyjamenn ætla að byija á laug- ardaginn. Þá verður Reykjavík tekin með trompi. Á laugardags- kvöldið verður stórdansleikur á Hótel íslandi ásamt því sem veit- ingastaðimir Pasta Basta og Ein- ar Ben verða með Eyjastemningu innan sinna veggja. Á sunnudags- morguninn er síðan stefnt að því að allir Eyjamenn hittist í andyri Laugardalshallar þar sem boðið verður upp á veitingar auk þess sem tónlist verður leikin og reynt að mynda hina einu sönnu Eyja- stemningu. Aliir Eyjamenn eru hvattir til að mæta og drekka í sig þessa einu sönnu „Eyja- stemningu". Gunnlaugur Jónsson: Ætlum okkur sigur „Það er mikil eftirvænting í hópnum að spila þennan leik og vonandi verður gott veöur og fjöl- mennt á vellinum. Við mætum til leiks með sterkasta lið okkar fyrir utan Andra Karvelsson sem verður í banni. Siggi Jóns kemur aftur inn í liðið og það er mikiil styrkur. Leikimir við ÍBV í sumar hafa ver- ið hörkuleikir og mjög jafnir. Þótt við töpuðum í Eyjum fengum við okkar færi sem okkur tókst ekki að nýta. Þessi lið em jöfn og leik- urinn á sunnudaginn verður ef- laust mjög spennandi en við ætlum okkur sigur f leiknum. Það er ljóst að Evrópusæti er í húfi og við Skagamenn fáum kærkomið tæki- færi til þess að bjarga sumrinu," sagði Gunnlaugur Jónsson. -ÓHÞ Vestmannaeyingar hafa frábæra ein- staklinga eins og Goran Aleksic og Momir Mileta sem geta breytt leikn- um en það hefur gengið frekar erfið- lega fyrir Skagamenn að fá sóknar- leikinn til að virka hingað tO í sum- ar en það er spuming hvað gerist á sunnudaginn. Þrátt fyrir að Skaga- menn hafi ekki náð sér á strik í sum- ar tel ég að þessi lið séu nokkuð jöfn að getu. Miklu máli skiptir fyrir ÍA hvort Sigurður Jónsson verður með þeim í leiknum. Hann hefur gífur- lega reynslu í þessum leikjum. Það er hins vegar mikil pressa á báðum liðum. Þau þurfa að vinna til þess að komast í Evrópukeppnina og þess vegna held ég að það lið vinni leikinn sem hefur meiri sigurvilja," sagði Pétur Pétursson, þjálfari íslandsmeistara KR, um bikar- úrslitaleikinn á milli ÍBV og ÍA. -ÓHÞ Afram, IA Skagamenn verða með þéttskipaða dagskrá fyrir stuðningsmenn sína fyrir bikarúr- slitaleikinn á sunnu- daginn með það fyrir augum að skapa sem mesta stemningu. Stuðningsmannafélagið, Gulir og glaðir verða með sölu á ÍA- vörum í Kringlunni bæði föstu- dag og laugardag. Knattspyimu- félagið mun bjóða upp á sæta- ferðir frá Jaðarsbökkum á sunnudaginn og fara rúturnar kl. 9 og kl. 11. Allir sannir stuðn- ingsmenn ÍAhittast síðan i Öl- veri kl. 10 á sunnudagsmorgun- inn. Þar verða ýmsar uppákom- ur og andlitsmálning fyrir yngstu kynslóðina. Þegar líða fer að leik ætla stuðningsmenn Skagamanna síðan að ganga fylktu liði undir trumbuslætti til Laugardalsvaliar þar sem þeir ætla að taka völdin í stúkunni þar til að leik lýkur. Fyrir áriö i ár hafði ÍA tvisvar sinnum þurft að taka þátt í vítaspyrnukeppni til að út- kljá bikarleiki. Mótherjarnir voru í bæði skiptin Breiðablik, árið 1984 og 1986. Skagamenn unnu bikarinn bæði árin sem eru ekki góðar fréttir fyrir Eyja- menn þvi Skagamenn hafa kom- ist í gegnum tvær vítaspyrnu- keppnir á leið sinni í úrslitin nú. Ólafur Þóröar- son, þjálfari Skaga- manna, varð fimm sinnum bikar- meistari sem leik- maður, fyrst árið 1983 og síðast árið 1996 en þá voru andstæðingamir ÍBV og skoraði Ólafur annað mark Skagamanna í 2-1 sigri. Ólafur Þóröarson og Siguröur Jónsson eru nú að leika sjötta tímabil sitt saman í Akranesliðinu. í hin fimm skiptin hefur ávallt stór titill komið upp á Skaga og þar af tvöfaldir sigrar 1983, 1984, 1993 og 1996. Knattspyrnu- þjálfarafélag ís- lands mun, i sam- vinnu við Kenn- araháskóla íslands og Knattspyrnu- samband íslands, halda þjálfararáð- stefnu í tengslum við úrsltaleik bikarkeppni KSÍ laugardaginn 23. september í Þróttarheimilinu í Laugardal. Margir mœtir menn munu halda fyrirlestra á ráðstefnunni, þ. á m. Atli Eðvaidsson, Logi Ólafsson, Bjarni Jóhannsson og Guðni Kjartansson. Auk þess munu þjálfarar ÍAog ÍBV, þeir Ólafur Þórðarson og Kristinn R. Jónsson, koma og fara yfir und- irbúning liða sinna fyrir bikar- úrslitaleikinn. Eyjamenn eru búnir að afla sér mikillar reynslu í bikarúrslitaleikjum á síðustu árum en úrslitaleikurinn á sunnudaginn verður fimmti bikarúrslitaleikur ÍBV frá 1996. Liðið hefur komist alla leið í fjórum af síðustu fimm keppnum og það þurfti tvo leiki ÍBV við Keflavík 1997 til að útkljá hver yrði bikarmeistari þá. -ÓHÞ/ÓÓJ -ÓHÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.