Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2000, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2000, Qupperneq 11
11 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2000 !OV Jón Hjaltalín gefur út þriðja bindi af Sögu Akureyrar: Sálir Akureyringa Þriöja bindi af Sögu Akureyrar nœr yfir tólf ár, 1906-1918, og œtlar þessi saga aö veröa bitastœö höfundi sínum, Jóni Hjaltalín sagnfræöingi. Bindiö er stórt, tœpar 400 síður í stóru broti, smekklega skreytt miklum fjölda Ijósmynda. Mynd- irnar eru skýrar og vel unnar og haföi Jón orö á því aö ef myndirnar kæmu illa út í bókinni vœru frummyndirnar ónýt- ar! Flestar eru myndirnar frá árunum sem bindið nœr yjfir, nokkrar eru yngri og tvœr eldri eöa frá því um 1880, báðar neöan af Oddeyri. „Ég varð aö setja þær í þessa bók úr því ég fékk þær ekki fyrr, “ segir Jón. Á árunum sem bókin nœr yfir uröu miklar breytingar á Akureyri, byggöin þéttist og bæjarbragurinn batnaöi. Und- irtitill þriöja bindis er Fœöing nútíma- mannsins og Jón var beöinn aö rökstyöja hann. „Fæðingarhríðirnar stóðu alveg frá byrjun 20. aldar til 1918 þegar landið varð fullvalda," segir Jón. „Þá var nútímamaðurinn orðinn til á ís- landi, bæði í verklegum efnum og ekki síður and- legum. Ef við lítum á verkleg efni þá eru vélar að taka yfir af handafli og breyta nánast öllu á sjó og landi. En hugarfarið breytist líka um leið: Við fórum að trúa þvi að við getum breytt um- hverfi okkar. Áður bjuggu bændur bara við þúfnakollana, eins og einhver vís maður sagði, slógu ofan af þeim og í kringum þá og datt ekki í hug að það gæti orðið öðruvísi. Nú fóru þeir óðum að slétta úr þeim og breyta ásýnd landsins. Og ameríski draumurinn - sem auðvitað var ekki bara amerískur heldur alþjóðlegur - um að menn gætu haflð sig upp úr fátækt til auð- legðar, hann varð sterkt einkenni á skaplyndi manna á þessum árum. Fátækir synir þurra- búðarfólks urðu ríkir, urðu jafnvel ráðherrar. Dæmin voru mörg sem sönnuðu að draumurinn gat ræst.“ Maöur 20. aldar var jafnaðarmaður Fyrsti hluti bókarinnar fjallar um árin fram að heimsstyrjöldinni og rekur þróun i stjóm bæjar- ins, framfarir í atvinnu- og samgöngumálum, menntamálum, verslun og svo framvegis og gefur myndir af almennum bæjcirbrag. Seinni hlutinn fjallar svo um stríðsárin 1914-18. „Þá verður mikil breyting á afstöðu okkar til stjórnvalda og hlutverks þeirra," segir Jón. „Áður trúðu allir að hreppsnefndir, bæjarstjóm- ir og önnur yfirvöld ættu fyrst og fremst að sjá til þess að menn væru ekki skattlagðir um of. Það átti að framkvæma hið nauðsynlega, ekkert um- fram það. Aldrei var afgangur af tekjum því að- eins var hirt af mönnum fyrir brýnum þörfum. En á stríðsárunum var kreppan það almenn að menn sáu að engin leið var að treysta einkaaðil- um til að sjá um alla hluti. Þá var viðurkennt að ríki og bær mætti gripa í taumana, skipuleggja atvinnubótavinnu, standa fyrir innflutningi og DV-MYND E.ÓL. Jón Hjaltalín sagnfræðingur Ameríski draumurinn - sem auövitaö var ekki bara amerískur heldur al- þjóölegur - um aö menn gætu hafiö sig upp úr fátækt til auöiegöar, varö sterkt einkenni á skaplyndi manna. hefði dregið sér fé þá var eins og Akureyringar vildu sýna honum fyrirgefningu sína með því að þegja. Bróðir hans var þingmaður og seinna ráð- herra en skyldleikinn við hinn seka var aldrei notaður gegn honum, þrátt fyrir hatrammar póli- tískar deilur í landinu um þær mundir. Þetta atvik sýnir aðra hlið á mannlegu eðli en maður er vanastur," heldur Jón áfram. „Maður hefði átt von á illvígu slúðri en það kom ekki. Bankastjórinn flúði til Kanada og ég veit ekki betur en það hafi átt að handsama hann þar en það var aldrei gert. Þar varð hann gamall maður og kom aldrei heim aftur en þrjú af fjórum börn- um hans fluttust til hans. Mér finnst gaman að finna svona dæmi af einstaklingum sem hægt er að horfa á í víðara samfélagslegu samhengi, skoða samfélagið og viðbrögð þess út frá einstak- lingunum. Kanna almenn lög og reglur og skoða hvemig þau bitna á einstaklingum og gera um leið tilraun til að skoða sálir mannanna. Það er eitt markmið mitt með þessu verki.“ Jón Hjaltason hefur unnið að ritun Sögu Akur- eyrar i niu ár, þrjú ár á bindi, og gefur Akureyr- arbær bækurnar út. Næsta bindi er væntanlegt að þremur árum liðnum og draumurinn er að það nái til 1940. „En efnið verður að fá að ráða því hversu langt verður farið,“ segir Jón. selja ódýr- ara en kaup- menn. Þá var líka viðurkennt að þau mættu leggja meiri álögur á íbúana og eiga afgang til að geta hjálpað þeim sem minna máttu sín. Þetta varð eitt af einkennum 20. aldar manns- ins: Hann viðurkennir að samfélagið megi grípa í taumana og að það eigi að leggja á þá sem meira mega sín til að jafna kjörin." Landflótta Akureyringur Við spurðum Jón hvað væri honum minnis- stæðast af stökum atvikum í þessu bindi. Þau eru vitaskuld mörg og hann hugsaði sig vel um áður en hann svaraði. „Kannski er eitt sérstaklega minnisstætt. Það kom upp mál þegar einn af forkólfum bæjarins flúði land eftir að hafa falið sig í kjallara ein- hverjar vikur uppi í Brekku þannig að um tíma héldu menn að hann væri dauður. Það sem kom mér á óvart í sambandi við það mál var sú al- gjöra þögn sem ríkti um það. Þetta var banka- stjóri í bænum, ákaflega vel liðinn, og þó að hann S Joan La Barbara til Islands Eins og áður hefur verið minnst á hér á síðunni verður haldin „hátíð talaðrar tónlistar" á laugardaginn kemur. Hefst há- tíðin með málþingi í Iðnó kl. 14 en um kvöldið verða tónleikar í íslensku óperunni þar sem mörkin milli skáldskapar og tóna verða fljótandi og stefha jafnvel til hafs. Stjarnan í stór- um hópi erlendra og islenskra listamanna er hin virta sópran- söngkona og tónskáld, Joan La Barbara, sem starfað hefur með- al annars með tónskáldum á borð við John Cage og Morton Feldman. Áhugamenn um tónlist ættu að taka eftir því að hún heldur líka einsöngstónleika í Salnum á sunnudagskvöldið, kl. 20. Fjölhæf listakona Joan La Barbara er fædd 1947 hefur veriö kölluö „einhver mesti og hefur á löngum ferli sem tón- raddsnillingur okkar tima". skáld, flytjandi og hljóðlistakona einbeitt sér að mannsrödd- inni sem hljóðfæri og gengið langt út fyrir öll hefðbundin mörk í verkum fyrir raddir, hljóðfæri og gagnvirka tækni. Hún hefur verið kölluð „ein- hver mesti raddsnillingur okkar tíma“ (San Francisco Examiner) og er mikilvirkur brautryðjandi í nútíma klass- ískri tónlist og hljóðlist. Hún hefur gert einstakar tilraunir með útvikkun á raddtækni, þar á meðal „multiphonics“ (hljóð sem framleidd eru sam- tímis á tveim eða fleiri tónsviðum), hringsöng, spangól og raddbandasmelli sem eru eins konar vöru- merki hennar. Joan La Barbara hefur fengið fjölmargar viðurkenn- ingar, haldið tónleika um all- an heim og komið fram með ýmsum merkustu sinfóníu- hljómsveitum Evrópu og Bandaríkjanna. Hún hefur gefið út hljómplötur með eigin verkum, stjómað upptökum á tónlist Johns Cage og Mortons Feldmans og frumflutt tímamótaverk sem skrifuð voru fyrir hana af þekktum amerískum tónskáldum. Hún hefur einnig unnið að þverfaglegum verkefnum með ýmsum myndlistarmönnum, þar á meðal hjónun- um Steinu og Woody Vasulka. Nýjasta útgefna verk hennar er „73 Poems“ sem er samvinnu- verkefni með myndlistarmanninum og textahöf- undinum Kenneth Goldsmith, gefið út sem graf- ískt verk, bók og geisladiskur. Á tónleikunum í Salnum á sunnudagskvöldið mun Joan byrja á „In the Dreamtime" sem hún samdi fyrir þýska útvarpið til að sýna hvers rödd hennar væri megnug. Þar klippir hún saman sautján eldri tónverk sín eins og þau komi til hennar í draumi. Einnig flytur hún The Waves eftir Charles Dodge við texta Virginiu Woolf, Voice Windows eftir sjálfa sig við myndbands- verk Steinu Vasulka, Solo for Voice 52 eftir John Cage og loks Shaman Song sem hún samdi við kvikmyndina Anima. Joan fléttar víða rödd sína á segulbandi við lif- andi söng sinn og óhætt er að lofa verulega óvenjulegum tónleikum þetta kvöld. ___________Menning Umsjón: Silja A&alsteinsdóttir í leit að frægð og frama í dag heldur Sinfóníuhljómsveit ís- lands í viðamestu hljómleikferð sem farin hefur verið héðan með alls 81 hljómsveitarmann. Á fóstudag leikur hljómsveitin í Manitoba og síðan á sam- tals tólf öðrum stöðum til 24. október þegar ferðinni lýkur. Meðal annars verður spilað í Carnegie Hall í New York, Kennedy Center í Washington og háskólabænum Ann Arbour í Michig- an. Allir þessir staðir eru þekktir fyrir að gera miklar kröfur til flytjenda inn- an sinna dyra og verður spennandi að sjá hvernig hljómsveitinni okkar farn- ast. Góða ferð! Til heiðurs John Lennon Á mánudaginn kemur ætlar útvarps- stöðin GULL 909 að halda afmælistón- leika í Borgarleikhús- inu til heiðurs bítlin- um John Lennon sem milljónir manna um allan heim dáðu þeg- ar hann féll fyrir morðingjahendi 8. des- ember 1980. John fæddist í Liverpool á Englandi 9. október 1940 og var fyrst og fremst þekktur sem tónlistarmaður en var einnig liðtækur rithöfundur, leikari og baráttumaður. Margir þekktustu tónlistarmenn þjóðarinnar heiðra John Lennon á þess- um degi með því að syngja lög eftir hann: Björgvin Halldórsson, Björn Jör- undur, Daníel Ágúst, Einar Ágúst, Ellen Kristjánsdóttir, Eyjólfur Kristjáns, Helgi Bjöms, Hreimur, KK, Páll Rósin- krans, Ragga Gísla, Selma og Védís Her- vör. Tónlistarstjóri er Jón Ólafsson. Allur ágóði af tónleikunum rennur til Umhyggju, félags til stuðnings lang- veikum börnum. Tónleikunum verður útvarpað í beinni útsendingu á GULL 909. Afmælissýning FB í dag, kl. 16.25, verður opnuð mynd- listarsýning í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í tilefni af 25 ára afmæli Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Á sýn- ingunni verða verk eftir 28 listamenn sem stigu fyrstu skrefin á myndlistar- ferli sínum við listadeild skólans. Verk- in eru af margvíslegum toga: málverk, skúlptúrar, grafik, textílverk, keramik, ljósmyndir og videóverk. Sýnendur eru: Anna Eyjólfsdóttir, Didda Hjartardóttir Leaman, Dröfn Guðmundsdóttir, Erling Þ.V. Klingen- berg, Georg Guðni Hauksson, Guðbjörg Hákonardóttir, Guðbjörg Hlíf Pálsdótt- ir, Gunnar Þ. Jónsson, Hekla B. Guð- mundsdóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Helga Kr. Unnarsdóttir, Helgi Eyjólfs- son, Hildur Jónsdóttir, Inga Þórey Jó- hannesdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Jó- hanna Sveinsdóttir, Kolbrún Sigurðar- dóttir, Margrét B. Magnúsdóttir, Ólöf Einarsdóttir, Jóní Jónsdóttir, Ragnar Stefánsson, Ráðhildur S. Ingadóttir, Sara Vilbergsdóttir, Sigrún Inga Hrólfs- dóttir, Sólrún Guðbjörnsdóttir, Stefanía Stefánsdóttir, Þórdís Elín Jóelsdóttir og Þórunn Hjartardóttir. Mósaík aftur á skjáinn Þær fregnir berast frá Stöð 2 að enginn Kristall verði í vetur og er það miður. En Mósaík verður á sín- um stað í Sjónvarpinu og í fyrsta þættinum í kvöld verður m.a. birt svipmynd af Guðjóni Pedersen, leikhússtjóra Borgarleikhúss- ins, fjallað um nýjasta leikrit Sigurðar Pálssonar, Einhver í dyrunum, rætt um Dancer in the Dark og Lars von Trier og loks flytur Einar Már Guðmundsson ljóð við tónlist Tómasar R. Einarssonar. Umsjónarmaður er sem fyrr Jónatan Garðarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.