Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Blaðsíða 22
'6
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
I>v
Ættfræði
Umsjón: KJartan Gunnar Kjartansson
95 ára__________________________________
(ristín Björnsdóttir,
(uldugili 6, Akureyri, og vistmaöur á
(ristnesspítala.
90 ára__________________________________
3ddný Kristjánsdóttir,
Sundabúö 3, Vopnafirði.
35 ára _________________________________
Guðmundur Ingi Ólafsson,
Suöurgötu 39, Keflavík.
Aðalheiður Björgvinsdóttir,
Skaröshliö 17, Akureyri.
15 ára__________________________________
Sigurður Jónsson,
Hávallagötu 15, Reykjavík.
Ingibjörg Bryngeirsdóttir,
Norðurvör 5, Grindavík.
Björn Elíasson,
Hólavegi 9, Dalvík.
Suðmunda Anna Valmundsdóttir,
Hólavangi lle, Hellu.
70 ára__________________________________
Suðmundur Bjarnason,
Garðsstöðum 35, Reykjavík.
Vilborg Axelsdóttir,
Sefgörðum 24, Seltjarnarnesi.
Soffia Georgsdóttir,
Viðilundi 5, Akureyri.
so ára__________________________________
konráö Guðbjartsson,
Hjallavegi 7, Flateyri.
Hári Ólfjörö Nývarösson,
Hlíðarvegi 59, Ólafsfiröi.
> iiömundur Guöjónsson,
;kólavegi 37, Fáskrúösfirði.
ída Jónsdóttir,
•ðtúni 1, Höfn.
Oára_______________________
igurgeir Sigurgeirsson,
i ogafold 174, Reykjavík.
: irikur Guðmundsson,
Sæbólsbraut 34a, Kópavogi.
Uafliði Viðar Ólafsson,
Garpsdal, Króksfjaröarnesi.
ión Arnar Pálmason,
Hvammshlíð 2, Akureyri.
Ingibjörg Sigrún Guðjónsdóttir,
Borgarhrauni 3, Hveragerði.
40 ára_____________________
Ásgeir Ásgeirsson,
Njálsgötu 40, Reykjavík.
luðfinnur Guðnason,
Garðsstööum 25, Reykjavík.
Sólrún Skúladóttir,
Hvannarima 8, Reykjavík.
junnar Júlíus Gunnarsson,
Laufrima 6, Reykjavík.
Vlarís Rúnar Gíslason,
Ásbúðartröð 3, Hafnarfirði.
Grétar Ingólfsson,
Hjallabraut 6, Hafnarfirði.
bröstur Reynisson,
Jörundarholti 42, Akranesi.
Þór Oddsson,
Borgarbraut 23, Borgarnesi.
Ásdís Helgadóttir,
Fálkakletti 16, Borgarnesi.
Bergþóra Jónsdóttir,
Rútsstöðum, Búðardal.
Sísli Jakob Jósefsson,
Fjarðarhorni, Brú.
Stefanía Björk Bragadóttir,
Ránargötu 26, Akureyri.
Pétur Jensson,
Lambhaga 11, Selfossi.
Sarot Saraphat,
Lyngási 4, Hellu.
lát_____________J
Einar G. Guðlaugsson, frá Búðum í
Hlöðuvík, Álakvísl 1, lést á Landspítal-
anum viö Hringbraut þriðjud. 3.10.
Sigriður Bogadóttir frá Flatey á Breiða-
firði lést á Landspítalanum viö Hring-
braut aðfaranótt þriðjud. 3.10.
Brian D. Holt, fyrrum ræöismaöur, Suö-
urgötu 6, er látinn.
Smáauglýsingar
Allt til alls
►I550 5000
Attatíu og flmm ára
Sæmundur Elimundarson
fyrrv. sjúkraliði og kaupmaður
Sæmundur Bergmann Elimund-
arson, Seljahlíð, Hjallaseli 55,
Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í
dag.
Starfsferill
Sæmundur fæddist á Hellissandi
og ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Héraðsskólann á Laugarvatni
1937-39 og lauk sjúkraliðaprófi 1965.
Sæmundur stundaði landbúnað-
ar-, sjómanna- og verkamannastörf
til 1965, var sjúkraliði við Klepps-
spitala, Borgarspítala og Landakots-
spítala 1966-70 og starfrækti Safn-
arabúðina við Frakkastíg 1970-90 er
Hreiðar, sonur hans, tók við rekstr-
inum.
Sæmundur hefur búið í Reykja-
vík frá 1942, í Kieppsholtinu, Gerð-
unum og Hlíðunum en er nú í Selja-
hlíð - heimili aldraðra.
Sæmundur gegndi trúnaðarstörf-
um í verkamannafélaginu Dagsbrún
í Reykjavík, sat í stjórn Sjúkraliða-
félags íslands frá stofnun og til 1970,
var m.a formaður þess í hálft annað
ár og er nú heiðursfélagi þess.
í tilefni afmælisins kemur nú út
bók Sæmundar, Hugleiðingar og
minningabrot.
Fjölskylda
Sæmundur kvæntist 25.6. 1941
Guðrúnu Ámýju Guðmundsdóttur,
f. 27.2. 1920, d. 1966, húsmóður. Hún
var dóttir Guðmundar Kristins
Gíslasonar og Þuríðar Ámadóttur,
bænda á Hurðarbaki í Villingaholts-
hreppi.
Böm Sæmundar eru Guðmundur
Kristinn Sæmundsson, f. 3.11. 1946,
rithöfundur og kennari að Skógum
undir Eyjafjöllum, og eru börn hans
Ólafur Kristinn vélamaður, Guðrún
Árný hjúkrunarfræðingur, gift Jós-
ep Sigurðssyni vélstjóra en þeirra
börn em Aron Bjarki, Elín og
Gunnar Ingi Jósepsbörn, Atli Sævar
háskólanemi, Heimir Dúnn fram-
haldsskólanemi og Kristófer Jökuil;
Hreiðar Þór Sæmundsson, f. 6.7.
1948, kaupmaður í Reykjavík, en
sonur hans er Örlygur Þór Hreið-
arsson; Sigurður Rúnar Sæmunds-
son, f. 10.11. 1951, bifreiðarstjóri í
Reykjavík, kvæntur Lindu Ernu-
dóttur en böm hans eru Sæmundur
Þór málari, kvæntur Sigrúnu Þor-
steinsdóttur og er dóttir þeirra Erla
Diljá Sigurðardóttir, Matthías Rún-
ar, og Arngrímur Jón; Matthías
Viðar Sæmundsson, f. 24.6. 1954,
dósent við HÍ, búsettur i Reykjavík,
býr með Steinunni Ólafsdóttur
leikkonu.
Sambýliskona Sæmundar frá 1970
er Helga Jónsson, f. Roth, frá Ham-
borg.
Systkini Sæmundar: Anna Elísa-
bet Elimundardóttir, f. 18.11.1904, d.
24.7. 1956, húsmóðir, móðir Erlends
Haraldssonar sálfræðiprófessors;
Guðrún Ástríður Elimundardóttir,
f. 10.7. 1906, nú látin, móðir Sigurð-
ar E. Guðmundssonar, fyrrv. for-
stjóra Húsnæðisstofnunar, og Krist-
ins yfirlæknis; Björn Gestur Eli-
mundarson, f. 8.1. 1908, dó í æsku;
Kristjánsína Elimundardóttir, f.
13.7.1908, nú látin, húsmóðir á Hell-
issandi; Ögmundur Sigurður Eli-
mundarson, f. 24.6. 1911, nú látinn,
verkamaður í Reykjavík; Hallgrím-
ur Pétur Elimundarson, f. 1.7. 1913,
dó i bemsku; Hallbjörg Elimundar-
dóttir, f. 30.4. 1917, húsmóðir í
Reykjavík; Hallbjöm Bergmann Eli-
mundarson, f. 21.10. 1918, trésmiður
í Kópavogi; Ólafur Bergmann Eli-
mundarson, f. 28.12. 1921, sagnfræð-
ingur í Reykjavík; Kristrún Helga
Svandís Elimundardóttir, f. 16.12.
1925, lengi símvörður á Hellissandi,
nú búsett í Reykjavík
Foreldrar Sæmundar voru Eli-
mundur Ögmundsson, f. 30.9. 1876,
d. 27.7.1954, formaður á Hellissandi,
og k.h., Sigurlaug Cýrusdóttir, f.
17.12. 1881, d. 4.6. 1963, húsmóðir.
Sæmundur Elimundarson
Sæmundur hefur komiö víöa viö um ævina, unniö viö landbúnaö og
sjómennsku, og veriö verkamaöur, sjúkraliöi og kaupmaöur.
Ætt
Elíimundur var bróðir Karvels
Ögmundssonar og Jóhannesar Ög-
mundssonar. Elimundur var sonur
Ögmundar, skálds og handlæknis á
Hellissandi, Jóhannessonar og
Önnu Elísabetar Jóhannsdóttur.
Sigurlaug var dóttir Cýrusar, b. á
Öndverðamesi, Andréssonar, bróð-
ur Ögmundar, fóður Karvels, út-
gerðarmanns og oddvita i Njarðvík.
Móðir Cýrusar var Guðrún Bjöms-
dóttir, b. á Hrafnabjörgum í Hörðu-
dal, Gestssonar og Haildóru, systur
Guðrúnar, ömmu Guðmundar
Björnssonar landlæknis og
langömmu Bjama, afa Sigfúsar, for-
stjóra Heklu, og Ingimundar sendi-
herra Sigfússona. Bróðir Halldóru
var Steinn, langafí Jóns, afa Óttars
Yngvasonar, forstjóra íslensku út-
flutningsmiðstöðvarinnar. Halldóra
var dóttir Sigfúsar Bergmanns, b. á
Þorkelshóli í Víðidal, Sigfússonar.
Móðir Sigurlaugar Cýrusdóttur
var Guðrún Bjömsdóttir.
Fertugur
Steindór Óli Ólason
verkstjóri hjá ístaki í Noregi
Steindór Óli Ólason, verkstjóri
hjá ístaki í Noregi, Nygárdsbo 13,
Há 4364, Sirevág, Noregi, er fertug-
ur í dag.
Starfsferill
Steindór Óli fæddist í Reykjavík
en ólst að mestu leyti upp hjá
ömmu sinn, Gunnbjörgu Steinsdótt-
ur, og manni hennar, Guðmundi Jó-
hannssyni, að Miðkrika í Hvol-
hreppi. Hann stundaði nám í offset-
ljósmyndun við Iðnskólann í
Reykjavík.
Steindór Óli hefur starfað hjá
ístaki um árabil, m.a. við Sigöldu-
virkjun og Blönduvirkjun, við Vest-
fjarðagöngin, Hvaifjarðargöngin og
við Sultartangavirkjun.
Þá hefur hann starfað á vegum
fyrirtækisins við hafnargarðagerð í
Færeyjum, við flugvallargerð á
Grænlandi og starfar nú við hafnar-
garðagerð í Noregi.
Fjölskylda
Steindór Óli kvæntist 18.5. 1997
Sigurrós
Allansdótt-
ur, f. 18.5.
1963, starfs-
manni hjá
ístaki. Hún er dóttir Allans Heiðars
Sveinsbjömssonar, húsasmiðs og
verkstjóra hjá ístaki, og Kristínar
Jónsdóttur, deildarritara við Lands-
spítalann í Fossvogi.
Böm: Maren Rós Steindórsdóttir,
f. 28.10.1981, nemi; Eva Laufey Kjar-
an, f. 16.5. 1989; Guðmundur Jó-
hann, f. 2.7. 1990; Allan Gunnberg
Steindórsson, f. 11.7.1994.
Systkini Steindórs Óla eru Jón
Gils, starfsmaður hjá ístaki í
Reykjavík; Ágúst, starfsmaður hjá
Olís í Mosfellsbæ; Gunnbjörg, nemi
í Edinborg; Kristinn, nemi í Þýska-
landi; Brynjólfur, nemi i Reykjavík.
Foreldrar Steindórs Óla: Óli
Ágústsson, f. 29.9. 1936, fyrrv. for-
stjóri Samhjálpar, og Ásta Jónsdótt-
ir, f. 10.3. 1942, fyrrv. starfsmaður
Samhjálpar.
Fimmtug
Ingeborg Eide Geirsdóttir
verkakona í Reykjavík
Ingeborg Eide Geirs-
dóttir verkakona, Auðar-
stræti 15, Reykjavík, er
fimmtug í dag.
Starfsferill
Ingeborg Eide fæddist á
Húsavík og ólst þar upp
til níu ára aldurs. Hún
flutti þá suður í Skálatún
í Mosfellssveit þar sem
hún var búsett til 1982.
Ingeborg Eide flutti til Reykjavík-
ur 1982 þar sem hún hefur átt heima
síðan. í Reykjavík var hún fyrst bú-
sett að sambýlinu Sigluvogi 5 þar
sem hún bjó í eitt ár. Hún flutti síð-
an í Auðarstræti í Reykjavík 1983
og hefur átt þar heima síðan.
Ingeborg Eide fór að vinna við
Þvottahús ríkisspítalanna árið 1978
en þar hefur hún starfað samfellt
síðan.
Fjölskylda
Systkini Ingeborgar Eide eru Hlíf
Geirsdóttir, f. 18.5. 1949, sjúkraliði;
Ólína Geirsdóttir, f. 24.11.
1951, leikskólakennari;
Benedikt Geirsson, f. 12.9.
1953, framkvæmdastjóri.
Foreldrar Ingeborgar
Eide voru Geir Benedikts-
son, f. 19.6. 1907, d. 16.12.
1962, verkamaður og
verkstjóri á Húsavík, og
Paule Hermine Eide Eyj-
ólfsdóttir, f. 26.8. 1911, d.
4.2. 1979, húsmóðir.
Ætt
Foreldrar Geirs voru Benedikt
Sigurgeirsson, b. á Tóvegg i Keldu-
hverfi, og Abelína Bjarnadóttir
húsfreyja.
Foreldrar Hermínu: Eyjólfur Sig-
urðsson sjómaður og Ingeborg Eide,
fædd í Noregi. Þau bjuggu á Fá-
skrúðsflrði.
Ingeborg Eide heldur upp á af-
mælisdaginn að Kársnesbraut 139
laugardaginn 7.10. milli kl. 15.00 og
18.00.
Mcrkir Islcndingar
AilÍS
Benedikt Gröndal
Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal
skáld fæddist 6. október 1826 á Eyvind-
arstöðum á Álftanesi. Foreldrar hans
voru Sveinbjöm Egilsson rektor og k.h.,
Helga, dóttir Benedikts Gröndal, skálds
og háyfirdómara.
Benedikt varð stúdent á Bessastöð-
um 1846 og lagði stund á náttúruvís-
indi og bókmenntir í Kaupmannahafn-
arháskóla, var stundakennari við Lat-
ínuskólann í Reykjavík 1852-54 og
þýddi úr Hómerskviðum, fór aftur til
Hafnar og þaðan til Þýskalands, var í
Belgíu um skeið en lauk meistaraprófi í
norrænum fomfræðum i Höfn 1863, fyrstur
íslendinga, og var kennari við Latínuskól-
ann í Reykjavík frá 1874.
Benedikt er, ásamt Matthíasi og Stein-
grími, þekktasta ljóðskáld síðrómantísku
stefnunnar en lakara skáld en þeir. En
hann var afbragðs stílisti, afkastamikill
fræðimaður og fjölhæfasti menntamað-
ur samtímans: náttúrufræðingur, fom-
málamaður, manna fróðastur um sögu,
heimspeki og bókmenntir, málari,
teiknari og skrautritari. Fyrst og síð-
ast var hann þó yndislega mannlegur
og drepfyndinn.
Sjálfsævisaga Benedikts heitir
Dœgradvöl en þekktasta verk hans, og
ein skemmtilegasta islenska ritsmíð, fyrr
og síöar, er Heljarslóöarorrusta. Árið 1888
keypti Benedikt húsið Vesturgötu 16b og bjó
þar til dauðadags 1907. Húsið stendur enn.
Jarðarfarir
Hulda Gunnarsdóttir verslunarmaöur,
Gautlandi 11, verðurjarðsungin frá Bú-
staðakirkju föstud. 6.10. kl. 13.30.
Helga Björgvinsdóttir, Brekastíg 7b,
Vestmannaeyjum, verðurjarðsungin frá
Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugard.
7.10. kl. 10.30.
Guömundur Halldórsson frá Hólshjá-
leigu, Lagarfelli 21, Fellabæ, verður
jarðsunginn frá Egilsstaöakirkju laugard.
7.10. kl. 14.00.
Margrét S. Pálsdóttir frá Túni í Vest-
mannaeyjum, síðasttil heimilis í Folda-
hrauni 40, verðurjarðsungin frá Landa-
kirkju, laugard. 7.10. kl. 14.00.
Ágúst Grétar Jónsson, Skúlagötu 72,
Reykjavík, veröurjarösunginn frá Foss-
vogskapellu föstud. 6.10. kl. 13.30.
Útför Vals Fannar gullsmiðs fer fram frá
Kópavogskirkju föstud. 6.10. kl. 15.00.