Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2000 ^s- VIDEOH Á þrnu. baridli LLIN Fréttir Aflakóngurinn á gulllaxveiðum á síðasta fiskveiðiári: Fráleitt að gull- laxinn sé búinn i - þrátt fyrir að heildarveiði hafi dregist saman um 2/3 „Ég held það sé af og frá að gulllaxinn sé búinn, þótt það hafi verið minna af honum á síðasta fískveiðiári," segir Hilmar Helgason, skipstjóri á gulllaxaflaskipinu Hrafni Sveinbjarnarsyni GK 255, sem er í eigu Þorbjamar í Grindavík. Gulllaxaflinn varð alls rúm 4.870 tonn á síðasta flskveiðiári, veruleg- ur samdráttur í afla frá metárinu 1998, en þá veidd- ust ails tæplega 15.600 tonn af gulllaxi á íslandsmiðum sam- kvæmt upplýsingum frá Fiskistofú. Þrátt fyrir sam- drátt í gulllaxaflanum hefur hann aðeins verið meiri metárið 1997-98. Rúm 800 tonn veiddust árið 1996 en á árinu 1997 varð veruleg aukning í aflanum en þá veiddust 3.367 tonn. Gulilax- inn er veiddur i venjulegt botntroll með smærri möskva í belgpoka háð leyf- um. Aflahæsta skipið á gull- laxveiðunum á nýliðnu fisk- veiðiári var Hrafn Svein- bjarnarson GK 255 með rúm 1.190 tonn. Þá kom Hrafn GK með rúmlega 1.030 tonn og í þriðja sætinu var Vest- mannaey VE með tæp 847 tonn. Alls voru 36 íslensk fiskiskip skráð með gull- laxafla á fiskveiðiárinu. „Ég hef enga skýringu á því hvers vegna veiðarnar minnka en þetta er alveg af- bragðs matfiskur. Þetta er kjörið hráefni. Guillaxhakk er bæði bragðlaust og lykt- arlaust og svo er það mikið gelatín bindiefni í því að það er hægt að nota þetta í allt og það tekur í sig það bragð sem bætt er við það. Ef þú setur aðeins ýsuhakk saman við þá er þetta ýsu- hakk, lúðan verður lúða og humar verður humar. Við erum mest að selja þetta til Noregs og verðið er ekki nógu gott miðað við vinn- una sem við leggjum í þetta, en þeir hafa aðeins verið að nota þetta innanlands líka,“ sagði Hilmar, sem sagði að þeir væru á þorskveiðum núna fyrir austan land. „Eitthvað hefur þetta verið skárra síðustu tvo sólar- hringa, en mjög lélegt und- anfarið, þetta venjulega haustástand sem kemur yf- irleitt í september." -DVÓ DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON Fólk og fé í Sléttuhlíðarrétt í Skagaflrðl Þegar snjóaöi til fjalla létti það smalamennskuna: Féö leitaði til byggða DV. SKAGAFIRDI:____________________ A ýmsu hefur gengið í smala- mennsku yst á TröUaskaganum í haust en þar voru göngur tvær helgar um miðjan september. Þannig hrepptu Siglfirðingar versta veður við fjárrekstur úr Héðinsfirði yfir í Siglufjörð á sunnudegi. Helgina áður höfðu Austur-Fljótamenn smalað og fengið foráttuvatnsveður fyrri dag- inn. Þá snjóaði til fjalla þannig að fé kom niður og létti það mikið smölun seinni daginn. Hins vegar fengu Slétthlíðingar bærilegt gangnaveður á laugardeginum. „Við fórum Qórtán talsins, allt þaulvanir gangnamenn á þessum slóðum, út i Héðinsfjörö eftir há- degi á fóstudag og fengum þá ágætt veður til smölunar. Sömu- leiðis var bærilegt á laugardegin- um þar til við vorum að reka sam- an, þá fór að hvessa og rigna. Við lögðum af staö kl. 7 morguninn eft- ir með fjárreksturinn yfir fjallið. Þá var snjókoma og talsvert hvasst uppi á fjallinu en þetta gekk vel engu að síður. Safnið var komið í rétt í Siglufirði um kl. 13. Þeir fengu slæmt veður tU að smala Siglufjörðinn en það hjálpaði að það snjóaði niður í miðjar fjalls- hlíðar um nóttina þannig að féð t var neðar en ella og var þægara við að eiga,“ sagði EgiU Rögn- valdsson, gangnastjóri þeirra sem smöluðu Héðinsfjörðinn. Það eru félagar í Skiðafélagi Siglufjarðar sem hafa annast smölun í Héöins- firðinum mörg undanfarin ár. „Það er fastur kjami sem fer í þetta ár eftir ár. Sumpart er þetta ævintýr út af fyrir sig en getur verið ansi strembið og harðsótt ef j veður er vont,“ sagði Egill. -ÖÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.