Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Page 10
10 Útlönd MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2000 DV Sækir á George \N. Bush, ríkisstjóri í Texas, undirbýr sig nú fyrir næstu kappræö- ur viö Al Gore á miövikudagskvöld. George W. Bush saxar enn á for- skot Als Gores George W. Bush, forsetaefni repúblikana í Bandaríkjunum, held- ur áfram að saxa á forskot Als Gor- es, forsetaefnis demókrata, að þvi er fram kom í nýrri skoðanakönnun í gær. Gore nýtur fylgis 44 prósenta kjósenda en Bush 42 prósenta. Fyrir aðeins þremur dögum var munurinn sex prósentustig, Gore í vil. Bush var önnum kafinn á búgarði sínum nærri Waco í Texas að æfa sig fyrir kappræðurnar milli þeirra Gores á miðvikudagskvöld. Gore var væntanlegur til Sara- sota á Flórída í gærkvöld þar sem hann mun einnig undirbúa sig fyrir kappræðumar. Madeleine Albright, utanríkisráöherra Bandaríkjanna: Arafats að binda enda á ofbeldið Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að það væri Yassers Arafats, forseta Palestínumanna, að stöðva átökin milli Palestínumanna og Israela undanfama ellefu daga sem hafa orðið tugum manna að bana. Ekki var annað að sjá en að Al- bright tæki undir það sjónarmið Ehuds Baraks, forsætisráðherra ísraels, að Arafat hefði til þess vald að stöðva grjótkast Palestínumanna á Vesturbakkanum, Gaza og í sjálfu Israelsríki. Hún sagði að ísraelum fyndist sem þeir væru í herkví. „Ég tel það augljóst að Yasser Arafat sé leiðtogi palestínsku þjóð- arinnar,“ sagði Albright í viðtals- þætti bandarísku sjónvarpsstöðvar- innar NBC. Albright viðurkenndi að Arafat væri í erfiðri stöðu þar sem grjót- kastararnir væru ungt fólk. Ehud Barak ítrekaði þá viðvörun sína til Arafats i gær að friðarferlið Fórnarlambanna minnst Paiestínsk börn minntust i gær þeirra sem hafa látist í átökum Palestínumanna og ísraelskra her- manna undanfarna daga. Þeirra á meöal var þrettán ára gamall piltur. myndi renna út í sandinn ef ekki yrði orðið við kröfum um að binda enda á öll ofbeldisverk á mánudags- kvöld, við lok Yom Kippur, eins helgasta dags gyðinga. Barak hét því á laugardag, þegar hann veitti Arafat tveggja sólar- hringa frest til verksins, að beita öllum tiltækum ráðum til að koma aftur á röð og reglu. Leiðtogar Palestínumanna létu hótanir ísraela sem vind um eyrun þjóta og kenndu óhóflegri valdbeit- ingu ísraelskra hermanna um mik- inn fjölda látinna. Þá fór spenna vaxandi milli Isra- eia annars vegar og Sýrlendinga og Líbana hins vegar eftir að skærulið- ar Hizbollah í Líbanon námu þrjá ísraelska hermenn á brott á laugar- dag. Líbanskar og ísraelskar her- sveitir voru i viðbragðsstöðu í gær. Barak sagðist gera sýrlensk stjórn- völd ábyrg fyrir velferð hermann- anna þriggja. Skálaö fyrir nýjum forseta í Júgóslavíu Margir Serbar geröu sér dagamun í gær til aö fagna nýjum forseta landsins, Vojislav Kostunica. Hér má sjá tvo ánægöa menn skála fyrir nýja forsetanum á meöan þeir bíða eftir aö nautiö veröi tilbúiö á grillinu. Kostunica var svar- inn i embætti á laugardag eftir aö þjóöin haföi hrakiö Stobodan Milosevic á brott eftir 13 ára harðstjórn. Thai Express Laugavegi 126 105 Reykjavík Sími 561-29-29 Fax 561-11-10 e-mail: tomasb@simnet.is Góður taílenskur matur Sérverslun með rafhlöður RAF30RC Rauðarárstís 1 105 Reykjavík Slmi: 562 2130 Simbréf: 562 2151 netfans: rafbors@islandia.is Kostunica tekinn við í Júgóslavíu: Refsiaögerðum ESB aflétt í dag Vojislav Kostunica, nýr forseti Júgóslavíu, lét fara lítið fyrir sér í gær, fyrsta daginn sinn í embætti. Kostunica hitti yflrmann hersins að máli en ekki hefur verið greint frá hvað þeim fór i milli. Nýja forsetans bíður mikið verk- efni; að endurreisa efnahag Júgóslavíu, sem er í kaldakoli vegna refsiaðgerða þjóða heimsins og áralangrar einangrunar landsins á alþjóðavettvangi. Evrópusambandið ætlar þegar í dag að aflétta einhverjum refsiað- gerðanna. Byrjað verður á að af- nema viðskiptabann á olíu og tak- markanir á flugi flutningaflugvéla til landsins. Þá ætla Evrópulönd að koma aftur á eðlilegum samskiptum við Júgóslavíu. Kostunica þarf jafnframt að styrkja stöðu sína gagnvart serbneska þinginu þar sem stuðn- ingsmenn Slobodans Milosevics, sem þjóðin steypti úr stóli fyrir helgi, ráða enn lögum og lofum. Milosevic er enn í Belgrad og ætl- ar sér að verða foringi stjórnarand- stæðinga. Hubert Védrine, utanríkisráð- herra Frakklands, talaði þó fyrir munn allra Vesturlanda í gær þegar hann sagði að koma þyrfti Milos- evic í burtu. Samfylkingin, sem stendur að baki nýja forsetanum, ætlar að reyna að mynda nýja stjórn sérfræðinga til að koma á stöðugleika i landinu á meðan kosn- ingar verða undirbúnar og hreinsað verður til í stjómkerfinu. Kurteislegar kappræður Hillary Rodham Clinton, forsetafrú í Bandaríkjunum og frambjóðandi til öldungadeildarinn- ar, og keppinautur hennar, Rick Lazio, héldu annan kapp- ræðufund sinn í gær. Þótti fundurinn fremur bragð- daufur og kurfteislegur, miðað við fundinn fyrir nokkrum vikum. Læti í Kristjaníu Danskir lögregluþjónar og hund- ar þeirra urðu fyrir flöskum og grjóti þegar þeir eltu tvo menn sem grunaðir voru um að selja þýfl inn í fríríkið í Kaupmannahöfn. Minnkandi atvinnuleysi Atvinnuleysi í Færeyjum hefur farið minnkandi að undanfórnu og er nú komið niður í tvö prósent, að sögn blaðsins Sosialurin. Fleiri kon- ur en karlar eru án vinnu. Félagarnir ráöa ferðinni Anders Fogh Rasmussen, leiðtogi danska íhaldsflokksins Venstre, seg- ir að það verði flokksfélaganna að ræða og ákveða hversu mikið flokk- urinn eigi á komandi árum að þrýsta á um aukinn samruna Dan- merkur við Evrópusambandið. Sonurinn til Kína Marko, sonur Slobodans Milos- evics, fyrrum Júgóslaviuforseta, er á leið til Peking að sögn júgóslav- neskrar fréttastofu. Marko fór til Moskvu um helgina og var falskt nafn á ferðaskjölum hans. Evrópa á ýmsum hraöa Niels Helveg Pet- ersen, utanríkisráð- herra Danmerkur, sagðist i gær eiga von á að í desember yrðu opnaðar dyrn- ar fyrir því að þau lönd ESB sem vilja fara hraðar í sak- irnar en önnur í samrunaferlinu geti það án þess að þurfa að bíða eft- ir hinum sem vilja fara hægar. íhaldsmenn reykja hass Sjö háttsettir menn í breska íhaldsflokknum hafa viðurkennt að hafa fiktað við hassreykingar á yngri árum. Játningarnar koma flokknum í vandræði vegna tillagna hans á dögunum um að herða mjög refsingar fyrir dópfikt, meðal ann- ars hassreykingar. Kwasniewski kosinn á ný Aleksander Kwa- sniewski var endur- kjörinn forseti Pól- lands í gær. Sam- kvæmt útgöngu- spám fékk þessi fyrrum kommúnisti en núverandi jafn- aðarmaður 56,1 pró- sent atkvæða. Hann þurfti að fá meira en 50 prósent til að ná kjöri í fyrri umferð. Stuðningsmenn Kwa- sniewskis lýstu yflr ánægju sinni með niðurstöðuna. Hugsanlegt er að veður komi í veg fyrir að hægt verði að skjóta geimskutlunni Discovery á loft frá Flórida í dag. Ferðin er sú 100. frá því geimskutlumar fóru fyrst í loftið fyrir margt löngu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.