Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Side 12
12
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2000
Skoðun DV
Sveinn B. Jónsson nemi:
Nei, engum.
Hjörtur Eysteinsson nemi:
Já, aðallega fótbolta.
Skipulagsklúður í Hafnarfirði
H.G.
skrifar:
I Hafnarfirði hefur verið talsvert af
svokölluðum grænum svæðum í
grennd við miðbæinn og ber þar fyrst
og fremst að nefna Hellisgerði sem er
vel skipulagður garður og notalegur.
En nú ber svo við að grænu svæðun-
um hefur fækkað vegna þess sem ég
vil kalla skipulagsklúður. Við póst-
húsið í Strandgötu var grænn blettur
sem kallaður var Thorsplan. Þar var
gott að setjast á sólríkum dögum og
úða í sig ís. En nú er Thorsplanið far-
ið undir banka að því að mér skilst.
Einnig var byrjað að róta til i hin-
um enda miðbæjarins, nefnilega við
Hafnarborg. Á gönguferðum um Hafn-
„Það er Ijóst að með ákvörðun
sinni um byggingu Hörðu-
vallaskóla er bæjarráð Hafn-
arfjarðar að viðurkenna að
því er illa við þennan vina-
lega stimpil sem Hafnarfjörð-
ur hefur á sér. “
arfjörðinn var alltaf notalegt að ganga
að Hafnarborg, fara þar út á grasblett-
inn og horfa á Einarsbúð i fjarska.
Eitt af eldri húsum Hafnarfjarðar og
skapar verulega notalegt andrúmsloft
í umhverfinu. Þar er kominn banki
líka.
Nú fannst mér gott komið af steypu
og húsum á grænu svæðin í Hafnar-
firði. En nú er í hámæli deilan um
Hörðuvallaskóla sem á að byggja við
hlið Sólvangs. Hörðuvallaskóli á að
verða enn eitt braggalaga steypu-
ferlíkið i anda Ráðhúss Reykjavíkur.
Það er ljóst að með ákvörðun sinni
um byggingu Hörðuvallaskóla er bæj-
arráð Hafnarfjarðar að viðurkenna að
því er illa við þennan vinalega stimp-
il sem Hafnarfjörður hefur á sér.
Ég skora á bæjaryfirvöld í Hafnar-
firði að endurskoða afstöðu sína til
hins nýja Hörðuvallaskóla. Mér kæmi
ekki á óvart þó að honum yrði fund-
inn staður í Hellisgerði í ljósi fyrri
framkvæmda.
Fyigistu með íþróttum?
Hrefna Sigurjónsdóttir afgreiöslu-
stúlka:
Ekki mikið, en ég fylgdist með
Ólympíuieikunum.
Þóröur Pálmason sjómaöur:
Já, þá helst með fótbolta og lítils
háttar með körfunni.
Aöalgeir Sigurösson bókavörður:
Já, eitthvað, helst þá með frjáisum
íþróttum.
Helgi Davíö Björnsson nemi:
Nei, en þó með stórviðburðum.
Auðlindanefnd skilar skýrslu
- margir vantrúaðir á plaggið
„Plaggið verður skúffumat-
ur að eilífu og skilar aldrei
sátt um auðlindir þjóðar-
innar, hvað þá tekjum í rík-
issjóð eins og reynt er að
halda að almenningi. “
Ásgeir Ásgeirsson
skrifar:
Mér sýnast tillögur hinnar svo-
nefndu auðlindanefndar ekki vera
meiri eða merkilegri en einfalt
krataplagg, sem eigi eftir að gufa upp
í illvígum deilum innan skamms
tíma. í blaðagrein nýlega gerðist ein-
hver svo djarfur að eigna plagg þetta
framsóknarmönnum. En mér sýnist
allt plaggið bera þess vitni, að þar hafi
kratar um fjallað mestmegnis, og ráð-
ið flestu. Nefndarformaðurinn, fyrr-
verandi Seðlabankastjóri, sem enn er
nefndakóngur hins opinbera, þrátt
fyrir að hafa látið af störfum, hefur
líklega talið, að þarna hafi hann reist
sér þann bautastein, sem geri honum
kleift að setjast loks í helgan stein.
Og af þeim viðtökum, sem plaggið
hefur fengið hjá auðtrúa og misvitr-
um - en umfram allt óhreinlyndum al-
þingismönnum - má geta sér til um
afdrif nefndarálitsins. Plaggið verður
skúffumatur að eilífu og skilar aldrei
sátt um auðlindir þjóðarinnar, hvað
þá að það eigi eftir að skila tekjum í
ríkissjóð eins og reynt er að telja al-
menningi trú um.
Á tímum eins og nú þegar oll rök
hníga að því að eignarhald ríkisins á
flestum sviðum sé hverfandi, þýðir lít-
ið að halda því að fólki, að náttúru-
auðlindir hér á landi séu best komnar
í eigu ríkisins að eilifu. Þetta eitt
hvetur þjóðina til að gjalda varhug
við þeirri álitsgerð sem hin alltum-
lykjandi auðlindanefnd þykist hafa
sæst á. Kratar, bæði hér á landi og
annars staðar, hafa verið þekktir fyr-
ir annað en hagræðingu. Þeir hafa átt
metið hér á landi, að vera mestu
eyðsluseggirnir á almannafé þegar
þeir hafa komist að ríkiskassanum.
Þetta krataplagg verður því ekki til
annars en að framlengja þá úlfúð sem
löngum hefur verið i kringum kvóta-
lögin.
Sjávarútvegurinn stendur nú
frammi fyrir hruni í flestum greinum,
af ýmsum og óviðráðanlegum orsök-
um. Það er því einfaldlega óráð að
efna til áframhaldandi óvildar i garð
þessa atvinnureksturs með fram
komnu plaggi um að galopna fiskimið-
in fyrir Pétri og Páli. - Krataplaggið
er óundirrituð viljayfirlýsing um
áframhaldandi óvissu um íslensk auð-
lindamál á láði og legi.
Sáttagjörö viö útvegsmenn?
Kratapiagg skiptir um hendur.
Fjas um ímyndaðan óþverra
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra er mað-
ur þjóðarinnar. Hann er eins og klettur í hafmu
sem ekkert fær haggað, ólíkt Kolbeinsey, sem
Gæslan hefur gefist upp á að múra saman. Hall-
dór er líka stór og stæðilegur og þá glæsifegastur
á velli þegar hann skmlar selskinnsjakkanum
sínum fræga. Þvilík dýrðarsjón.
Dagfari hefur aldrei getað skilið hvers vegna
ríkissyómin er að druslast með brandarakarlinn
Davíð í stóli forsætisráðherra. Ætli það væri ekki
munur að hafa þar alvöruþrunginn og ábyggileg-
an mann sem í þokkabót á talsvert undir sér í
kvóta, ef marka má orð Sverris Hermannssonar,
frekar en spjátrunginn Davfð.
Það er líka unun að hlýða á Halldór, orð hans
flæða inn um eyrun eins og lygn og tær bergvatnsá. Þar
er heldur ekkert gragg í straumiðunni, heldur ómeng-
aður framsóknarboðskapurinn eins og hann gerist best-
ur. Svo segir Halldór líka alltaf satt. Þá sjaldan að sann-
leikurinn er á skjön við orð foringjans, þá er það ein-
vörðungu vegna þess að vondir menn eru að pirra
hann. Þannig varð þjóðin vitni að því er Halldór sagði
sannleikann um handónýtar skoðanakannanir DV -
þær eru nú eitthvað annað en pottþéttu kleinumar hjá
mömmu.
Að vísu verður það að játast að DV hefur einstöku
sinnum giskað á réttar niðurstöður, en hver getur það
Fjölmiðlar eru þannig stöðugt að fara
með fleipur um stöðu Framsóknar-
flokksins. Það er alltaf einhver nei-
kvœðni í gangi um að flokkurinn sé á
húrrandi niðurleið í vinsældum eins
og salmonellusjúklingur með rœpu.
ekki? Meira að segja Dagfari hefúr tippað á þijá rétta í
getraunum!
Fjölmiðlar eru þannig stöðugt að fara með fleipur
um stöðu Framsóknarflokksins. Það er alltaf ein-
hver neikvæðni í gangi um að flokkurinn sé á húrr-
andi niðurleið i vinsældum eins og salmonellusjúk-
lingur með ræpu.
Grátlegast er að f hóp nöldurseggja sé nú að bæt-
ast annars ágætur bóndi frá Höllustöðum. Hann er
að blaðra um að meirihluti framsóknarmanna sé á
hans bandi í Evrópumálinu. Hvað veit Páll Péturs-
son lfka um Evrópumálin? Ekki er það hann sem
stendur i orrahríðinni i Brussel. Nei, þar er það
kletturinn okkar sem ber af og gnæfir upp úr mann-
hafinu eins og Heimaey í suðvestan tuttugu og fimm
metrum á sekúndu.
Það er líka þetta leiðindanagg sem Dagfari þolir
ekki út í okkar ágæta utanríkisráðherra. Sverrir Her-
mannsson og viðlíka kumpánar eru sífellt að fjasa um
einhvem ímyndaðan óþverra sem þeir vilja klína á
Hafldór. Þannig er Sverrir sífellt að staglast á því að
fjölskylda Halldórs eigi kvóta. Hvað með það! Dagfari
veit ekki betur en fiölskylda Halldórs hafi sjálf stuðlað
að þeirri kvótaeign í gegnum einstaka stjómkænsku og
snilli Halldórs í pólitíkinni. Kvótaeignin kemur því
engum við, þetta er fjölskyldumál og Sverrir ætti að
skammast sín fyrir að vera að hrekkja saklaust fólk.
Skipulagning
Vatnsmýrarinnar
Þórhallur skrifar:
Svokölluð Flug-
vallamefnd, sem
skipuð var til að
undirbúa at-
kvæðagreiðslu
Reykvlkinga um
framtíðarnýtingu
Vatnsmýrarinnar,
tínir nú fram lítt
sannfærandi rök
kvæðagreiðslunnar. Tafir á úttekt sér-
fræðinga o.fl. o.fl. Úttektir sem að
miklu leyti em unnar af flugmála-
stjóra, ef trúa má blaðafrétt um málið!
Óvíst er þvi hvort nokkru sinni verð-
ur af þessari kosningu. En að flug-
málastjórn sé helsti ráðunauturinn í
skipulagningu Vatnsmýrarinnar þýð-
ir einfaldlega að Reykjavíkurflugvelli
er ekki ætlað að hverfa á næstu árum.
Ég ásaka borgarfulltrúa i minnihluta
borgarstjórnar fyrir sérstaklega slak-
an hlut í málinu. Virðast helst ekki
vilja koma nálægt umræðunni, nema
til málamynda.
«
fyrir frestun at
Stílalestur á Al-
þingi
Hildur'Guojónsdóttir skrifar:
Þá hafa þing-
menn löggjafar-
samkomunnar
lesið stílana
sína í áheyrn
þjóðarinnar.
Þetta árlega, tuð
í kjölfar fjár-
lagagerðar í út-
varpi og sjón-
varpi er orðið til
skammar fyrir
þingmenn.
Þarna standa þeir í pontu eins og
skólakrakkar og lesa af blaði það sem
þeir hafa fram að færa. Þeir tafsa og
muldra af munni fram, næstum ofan í
bringuna. Það er ekki reisn sem fylg-
ir þessum málflutningi ef málflutning-
ur getur þá kallast. Hér áður voru
þingmenn sem fluttu mál sitt blaða-
laust og af mikilli sniOd. Nú er hún
Snorrabúð stekkur. Ég veit ekki út á
hvað þingmenn eru kosnir í dag. Ekki
er það út á málflutninginn, það er
víst.
Frá Alþingi
Málflutningur í
lamasessi?
Sameinað höfuð-
borgarsvæði
Guðjón Einarsson skrifan
Ég er íbúi á höfuðborgarsvæðinu
(ekki í Reykjavík þó) og ég er því
fylgjandi að öll núverandi sveitarfélög
á þessu svæði, sem við stundum köll-
um „Stór-Reykjavíkursvæðið“, verði
sameinuð undir einni stjórn. Fyrst og
um sinn kynni að vera hagkvæmt að
halda Mosfellsbæ utan við þá samein-
ingu. Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópa-
vogur og Garðabær liggja hins vegar
svo þétt saman og nýta verulega þjón-
ustu Reykjavíkur að þaö er hrein bá-
bilja að vinna ekki strax að samein-
ingu þessara byggðarkjarna. Allt yrði
ódýrara meö þeim hætti, einnig
stjórnsýslan með einn borgarstjóra og
eina bæjarstjórn.
Er olíu eða gas að
finna
Sigurbjörn Jónsson skrifar:
Loksins, loksins er komið að því að
einhver rýfur þögnina meö ráðstefnu
um hugsanlega olíu i setlögum hér við
landið. Landgrunnið og auðlindir þess
er yfirskrift á fundi um þessi mál dag-
ana 13. og 14. þ.m. og er ráðstefan öll-
um opin eins og auglýst er í blöðum.
Auðlindir á hafsbotni er einn þáttur-
inn sem ræða á þama og olíuleit og ol-
íuvinnsla. Er olíu eða gas að finna á
íslenskum hafsvæðum? er stærsta
spuming okkar íslendinga í dag. Von-
andi verður frumvarp tO laga á veg-
um iðnaðarráðherra að veruleika
fljótlega.
IPV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.