Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Side 14
14 Menning Var líf fyrir GSM? Sýningin Tilvist er framlag Dansleikhúss meö ekka til leiklistarhátíðar sjálfstæðu leikhúsanna. Þetta er sjötta sýning Dansleikhússins og þemað er tilvist mannsins með áherslu á samskipti og þá ekki síst áhrif eða þátt nútímatækni í þeim. Svið- setningin er nýstárleg því að í staðinn fyrir hefð- bundna leikhúsuppröðun í salnum sátu áhorfend- ur uppi á sviði og með veggjum salarins en at- hafnasvæði dansleikhópsins var horn úr homi í miðjunni og við útidyr og glugga sem snúa út að Tjörninni. Þegar listamennimir vora ekki á svið- inu sátu þeir meðal áhorfenda. Nálægð dansleikar- anna og uppröðunin í salnum skapaði óformlega og notalega stemningu á sýningunni, það var eins og listamennirnir og áhorfendur væra saman í skemmtilegu boði. Það að útidyrahurð og gluggar vora partur af leikmyndinni undirstrikaði þetta heimilislega andrúmsloft. Dans Dansleikhús með ekka teflir fram tveim tján- ingarformum, leiklist og dansi sem annars vegar byggja á heimi orða og hins vegar á veröld hreyf- inganna. í Tilvist eru tiltölulega skýr skil á milli þessara tveggja forma þannig að í einu atriði ráða orðin ríkjum en i því næsta er hreyfmgin allsráð- andi. Vandasamt er að ferðast á milli svo ólíkra heima á stuttum tíma án þessa að missa niður stemninguna en skiptingar á milli kröftugra hreyfiatriða og hægari talaðra sena tókust prýðis- vel. Áhorfendur voru hrifnir með í ærslin jafnt sem átökin, ástina og óöryggið. Sýningin er byggð upp af sjáifstæðum hug- myndum sem tengjast innbyrðis beint og óbeint og mynda þannig samfellu eða heild. Boðskapur verksins er einfaldur og er það klárlega styrkur sýningarinnar. Dansleikararnir koma efninu líka til skila á skýran, einlægan og einfaldan hátt án þess að falla í þá gryfju að taka sjálfa sig eða efn- ið of hátíðlega. Einfaldur og skýr textinn var lip- ur og eðlilegur í meðfóram þeirra, þama var ungt fólk að tala um veraleika sinn og vandamál sem koma upp í samskiptum manna á milli. Á stöku stað minnti textameðferðin þó á gamalt íslenskt sjónvarpsleikrit. Hreyfíatriðin vora annars vegar takt- fastur samdans og hins vegar hlaup þar sem tvö risastór trampólín léku stórt hlut- verk. Þessi endurteknu atriði voru full af lífsgleði og orku og sýndu svo ekki varð um villst að listamennirnir nutu þess sem þeir vora að gera. í heild var frammistaða dansaranna/leikaranna frábær. Sérstaka athygli vakti Sveinbjörg Þórhallsdóttir sem er frábær dansari og hefur mikla út- geislun á sviði; einnig Richard Kolnby en leikur hans var áhrifamikill og grípandi. Búningar, ljós og sviösmynd vora hin smekklegustu og tónlistin var góð; sér- staka athygli vakti endurtekinn hljóð- effekt sem minnti á hjartslátt. Það er ótrú- lega flott að tónlistin skuli vera frumsam- in við flestallar íslensku danssýningamar undanfarið. Loks skal Dansleikhúsi með ekka óskað til hamingju með góða sýningu. Nakin fegurð Hvítir veggir og gólf, hvítt reipi hangandi úr loftinu og hvít lýsing sem gerir allt sem áður er nefnt ennþá hvítara. Eldrauðar fjaðrir liggja dreifðar um sviðið. Þær hörfa úr stað undan fótum dansaranna, karls og konu í hvítum fötum. Þessi mynd er úr dansverkinu Nakin sem var sýnt í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í gær. Að- standendur sýningarinnar era dansaramir Jóhann Freyr Björgvinsson og Sveinbjörg Þórhalisdóttir en þau hafa fengið til liðs við sig tónlistarmanninn Kristján Eldjám og búningahönnuðinn Hildi Haf- stein. Nakin er mjög fallegt verk sem sýnir samspil tveggja einstaklinga í hreyflngu og leik þeirra með fjaðrimar og reipið. Verkið er mjög áhugavert að sjá enda Sveinbjörg og Jóhann bæði dásamlegir dansarar. Nokkuð skortir þó á að markmið verks- ins sé skýrt en áhugavert verður að fylgjast með þróun þess. Sesselja G. Magnúsdóttir Dansleikhús meö ekka sýnir í lönó dansleikhúsverkiö Tilvist. Höfundar: þátttakendur í sýningunni. Listrænn stjórnandi: Sylvia von Kospoth. Tónlist: Kristján Eld- járn. Leikmynd og búningar: Rannveig Gylfadóttir. Lýs- ing: Coen Wermers. DV-MYND E.ÓL. Úr dansverkinu Nakin Sveinbjörg og Jóhann eru dásamlegir dansarar. Út um stéttar Þorbjörg Höskuldsdóttir listmálari hefur verið fastheldin á viðfangsefni og úrvinnslu þeirra síðastliðna þrjá áratugi, svo mjög að nú orðið er ákveðin tegund landslagssýnar órjúfanlega tengd nafni hennar. „Þetta er svipað og í verkunum hennar Tobbu,“ varð kunningja mínum að orði í fyrsta skipti sem hann sá kirkjugólfið svokallaða á Kirkju- bæjarklaustri með fjöllin í baksýn. í þessum verkum fer fram margháttað samspil óspilltrar íslenskrar náttúru og mannvirkja - eða mannvirkjaleifa - í vestrænum endur- reisnarstíl. Gjaman teygja sig tíglagólf, kannski ættuð úr málverkum Pieros eða Rafaels, inn í íslenska gilskorninga eða þá að grísk-rómverskar súlur eða hrörlegir hálfbogar standa upp úr íslenskri auðn og etja kappi við nálæg fjöli. Til frekari áherslu hefur listakonan einnig telft saman grunn- einingum sígildrar byggingafræði, tening- um, keilum og þríhymingum, og óbyggðri náttúrunni. Aukin dulmögnun Einfaldur framsetningarmáti Þorbjargar hefur ef til vill orðið til þess að menn hafa gert henni upp helst til einíold viðhorf til viðfangsefna sinna. Að segja að verk hennar gangi út á togstreitu náttúra og menningar eða togstreitu norrænnar menningarvitundar og klassískrar arfleifðar er eins og að lýsa því yfir að tiltekinn listamaður „fjalli um manninn" eða „vinni með náttúruna". Slíkar yfirlýsingar era svo galopnar i báða enda að þær verða nánast út í hött. Hér skiptir fyrst og fremst máli hvað lista- maðurinn ætlast fyrir með „manninn" eða „nátt- úruna“. Þorbjörg Höskuldsdóttir: Landvörður. Sú myndveröld sem hún skapar er skotin ávæningi um innra líf alls sem er. Nánari skoðun leiðir í ljós að málverk Þor- bjargar era langt í frá öll þar sem þau era séð. Á nýrri sýningu hennar í Hafnarborg er til dæmis áberandi hve oft hún forðast að draga afgerandi línur milli hins náttúrulega og manngerða; oft renna þau saman og verða hluti af sama sköpun- arverkinu. í tímans rás hefur einnig skýrst hversu margþættan skilning Þorbjörg leggur í menningartákn sín, ekki síst klassísku stéttarnar. Þær verða henni ekki einungis formrænt og hugmyndalegt mótvægi við náttúruna heldur „sviðsetja“ hana fyrir augliti okkar, eins og til að tæpa á firrtri náttúraupplifun hins jeppávædda borgar- búa. Einnig notar listakonan tiglagólfið í landslaginu öðrum þræði sem eins konar skákborð þar sem augljóslega er vikið að þeirri refskák sem óvandaöir aðilar eða glámskyggnir tefla gjarnan við viðkvæma staði í náttúrunni. En það sem er kannski mest áberandi í nýjum verkmn Þorbjargar og helst raunar í hendur við þá heildrænu sýn á náttúra og menningu sem minnst er á hér að ofan er stóraukin dulmögnun þeirra. Sú myndver- öld sem hún skapar, með malerískari tökt- um en nokkru sinni fyrr, er skotin ávæn- ingi um innra líf alls sem er. Tákngerving- ar þess era „furðuleg dýr“ af ýmsu tagi, ekki síst hestar, ljósgjafar og ýmsir óræðir hlutir sem augljóslega hafa djúpstæða merkingu fyrir listakomma. Það sem mér þótti einna merkilegast við þessa þróun í verkum Þorbjargar er hvernig nýjar mynd- ir hennar kallast á við dulúðugar myndir Kjarvals frá 1917-20 þar sem birtast fyrsta sinni klassísk tákn, furðuverur og hestar i sam- hengi við stórbrotna náttúra íslands. Ekki er að efa að þessi nýja - innhverfa - vidd í verkum Þor- bjargar á eftir að verða henni notadijúg. Aðalsteinn Ingólfsson Sýning Þorbjargar Höskuldsdóttur stendur til 16.10. Hafnarborg er opin kl. 12-18 alla daga nema þriöjud. MÁNUDAGUR 9. OKTÚBER 2000 _______________________DV Umsjón; Silja Aöalsteinsdóttir Egon Aodáend- ur austur- ríska teikn- arans og málarans Egon Schi- ele ættu að nótera hjá sér að stór sýning á verkum hans er nú haldin í safninu Gl. Holtegaard á Sjálandi og stendur til 12. nóvember. Egon Schiele dó úr spænsku veikinni 1918, 28 ára gamall, og eitt það síðasta sem hann teiknaði var kona hans á dauðastund- inni nokkrum dögum áður. Hann teiknaði og málaði bara fólk en hann var líka ófeim- inn við að sýna það við hvaða aðstæður og í hvaða stellingum sem vera skyldi. Svo ögrandi þóttu myndir hans að einu sinni var hann settur í gæsluvarðhald vegna þess að uppvíst varð að böm höfðu komist inn á vinnustofu hans og séð þar teikningar af fyrirsætum. Schiele Söngtónleikar Annað kvöld kl. 20 halda Björg Þórhalls- dóttir sópran og Þór- hildur Bjömsdóttir pí- anóleikari söngtónleika í Salnum í Tíbrárröð- inni. Á efniskrá eru verk eftir Haydn, Schubert, Strauss, Fauré og Britten. Björg Þórhallsdóttir stundaði söngnám við Tónlistarskólann á Akureyri og fram- haldsnám í óperusöng við Konunglega Tónlistarháskólann í Manchester á Englandi sem hún lauk vorið 1999. Hún hlaut ýmsar viðurkenningar á námstím- anum, m.a. fyrir framúrskarandi túlkun á þýskum ljóðasöng. Hún er nú búsett í London. Mynd af mynd Einar Garibaldi, myndlistarmaður og prófessor við LHÍ, flytur fyrirlestur við Opna Listaháskólann í Laugamesi í dag kl. 15 í stofu 024. Fyrirlesturinn nefnir hann „Mynd af mynd“ og fjallar þar um eigin verk. Á miðvikudaginn kl. 12.45 heldur Tinna Gunnarsdóttir fyrirlestur í Skip- holti 1, stofu 113. Tinna lauk meistara- gráðu sem iðnhönnuður frá Domus Aka- demy í Mílanó og fjallar i fyrirlestrinum um nám sitt og starf sem þríviddar- og iðnhönnuður. Málverkiö eftir málverkiö Um fátt hefur verið rætt af jafn mikflli ákefð meðal listamanna og „málverkið" og örlög þess. Á 7. áratugnum héldu margir að dagar málaralistarinnar væru taldir og nýir miðlar teknir við hlutverki hennar. Margir fögnuðu þeirri þróun en aðrir hörmuðu hana. Hvað skyldi vera hið sanna í málinu og hvers vegna skiptast menn i tvær andstæðar fylkingar, með og á móti málverkinu? Á námskeiðinu verður leitað svara við þessum og öðrum spumingum og rakin þróun málaralist- arinnar á síðustu áratugum. Fyrirlesari er Hall- dór Björn Runólfsson listfræðingur. Kennt verður í Listaháskóla íslands, Skipholti 1, og hefst námskeiðið 16. október kl. 20. Sama dag hefst nám- skeið um uppbyggingu og vörslu málverka. Aðaláhersla verður lögð á notkun olíu- lita en einnig á möguleika eggtemperu og akrýllita. Fjallað verður um vörslu mál- verka með lökkun og hvemig nota má vax. Kennari er Guðmundur Ármann Sigurjónsson myndlistarmaður og kennt verður í Skipholti 1. Frumútgáfa á Netinu Út er komin bók um sjónvarpsþýðing- ar, Orð í mynd, eftir Jóhönnu Þráinsdótt- ur, Ólöfu Pétursdóttur og Veturliða Guðnason. Bókin er á Netinu og slóðin er www.eyktir.com.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.