Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Side 26
58 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2000 I>V Ættfræði__________________ Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Fjölnir Stefánsson fyrrv. skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs • aMati'Aijllf-jll 85 ára_________________________________ Guðrún Þórðardóttir, Snorrabraut 58, Reykjavík. ♦ ^ Jóhanna Helgadóttir, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfiröi. Kristín Einarsdóttir, Sæbergi 6, Breiðdalsvík. 80 ára_________________________________ Pétur Báröarson, Grandavegi 39, Reykjavlk. Ingiríöur Blöndal, Stórageröi 38, Reykjavík. Guðmundur Runólfsson, Hrannarstíg 18, Grundarfirði. Rósa Hjörleifsdóttir, Miöjanesi 1, Króksfjarðarnesi. María Rósmundsdóttir, Freyjugötu lOb, Sauöárkróki. Ottó Snæbjörnsson, Byggöavegi 152, Akureyri. 75 ára_________________________________ Guðmundur Sigfússon, Heiöargeröi 34, Reykjavlk. Bragi Jónsson, Safamýri 49, Reykjavík. 70 ára_________________________________ Reynir Jósepsson, Rauðalæk 38, Reykjavlk. Sveinn Bjarnason, Brennistöðum, Borgarnesi. Anton Jóhannsson, Hverfisgötu 9, Siglufirði. 60 ára_________________________________ > Stefanía Sjöfn Sófusdóttir, Ferjubakka 10, Reykjavík. Aöalbjörg Stefánsdóttir, Brekkubyggö 75, Garðabæ. Guðmundur Jörundsson, Munaöarhóli 13, Hellissandi. 50 ára_________________________________ Avdil Bajrami, Seilugranda 4, Reykjavík. Benedikt Sigmundsson, Flúöaseli 74, Reykjavík. Auður Aðalsteinsdóttir, Laufengi 70, Reykjavlk. .í Höröur G Helgason, Staöarhrauni 15, Grindavík. Þórunn Guðmundsdóttir, Lækjartúni 13a, Mosfellsbæ. Fjölnir Stefánsson, fyrrv. skóla- stjóri Tónlistarskóla Kópavogs, Lækjasmára 6, Kópavogi, er sjötug- ur í dag. Starfsferill Fjölnir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann innritaðist í Tónlist- arskólann í Reykjavík 1943 lagði stund á sellónám hjá dr. Heinz Edel- stein, hóf nám i hljómfræði 1947 og síðar í tónsmíðum hjá Jóni Þórar- inssyni, lauk burtfararprófi í þeirri grein 1954 og stundaði framhalds- nám hjá Matyas Seiber í London 1954-58. Fjölnir var kennari við Tónlistar- skólann í Reykjavík 1958-68, tók jafnframt að sér stundakennslu við Tónlistarskólann í Mosfellsbæ 1965-66, við Tónlistarskólann í Keflavik 1965-67 og við Tónlistar- skóla Kópavogs 1966-67. Hann var ráðinn skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs 1968 og gegndi því starfi til 1.9. 2000. Tónverk eftir Fjölni hafa m.a. verið flutt á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands, á íslenskum og norrænum tónlistarhátíðum og á tónlistarhátíð International Society of Contemporary Music. Fjölnir var einn af stofnendum Musica Nova 1959 og er félagi í Tón- skáldafélagi íslands frá 1963. Hann hafði forgöngu um stofnun Taflfé- lags Kópavogs 1966, er heiðursfélagi þess frá 1994, var kosinn til trúnað- arstarfa við stofnun íslenskrar tón- verkamiðstöðvar 1968, sat þar í stjóm til 1984 og var formaður sið- asta árið, tók þátt í stofnun STS, samtaka tónlistarskólastjóra og sat í fyrstu stjórnum þeirra, og sat í stjórn STEFs 1974-88. Fjölnir var valinn heiðurslista- maður Kópavogs 1994. Fjölskylda Fjölnir kvæntist 1.1. 1958 Arndísi Guðmundsdóttur, f. 1.4. 1938, full- trúa á bæjarskjalasafni Kópavogs. Hún er dóttir Guðmundar Þorkels- sonar frá Valdastöðum í Kjós, f. 25.2. 1909, d. 8.11. 1969, innheimtu- manns á Bæjarleiðum, búsettur í Reykjavik, og Guðrúnar Ágústu Halldórsdóttur, f. 20.11. 1914, d. 27.3. 1991, verkstjóra á saumaverkstæði Anderson & Lauth, ættuð úr Árnes- sýslu. Börn Fjölnis og Arndísar eru Ingibjörg, f. 31.10. 1958, B.Sc., hjúkr- unarfræðingur á Landspítala við Hringbraut, búsett í Kópavogi, gift Brynjari Kvaran, íþróttakennara og lögfræðifulltrúa hjá sýslumannin- um í Kópavogi og eru böm þeirra Hlíf , f. 30.9. 1984, og Fjölnir, f. 7.4. 1988; Þorbera, f. 20.1.1962, B.A. í sál- arfræði og B.A. í dönsku, húsmóðir, búsett i Kópavogi, gift Karli Sesari Karlssyni skósmið, sem rekur Skóarann í Hafnarfirði, og eru börn þeirra Stefán Björn, f. 12.9. 1991, Arnhildur, f. 1.11. 1994, og Hrafn- kell, f. 7. 6. 1998; Brynhildur, f. 28.5. 1967, stundar kirkjusöngvaranám við Kirkjumúsíkskólann í Hró- arskeldu, búsett í Kaupmannahöfn en sambýlismaður hennar er Asger Mosegaard, viðskiptalögfræðingur er starfar í skattadeild Price Water- house & Coopers. Systkini Fjölnis eru Hanna Krist- ín, f. 24.12. 1939, M.ed., deildarstjóri fræðsludeildar Vinnueftirlits ríkis- ins, búsett í Reykjavík; Elín, f. 13.10. 1943, B.ed. í talmeinafræði með raddþjálfun sem sérsvið og veflist- arkona í kirkjulist, búsett á Norður- Jótlandi; Sigríður, f. 10.8.1945, leik- Fjölnir Stefánsson, fyrrv. skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs Fjölnir hefur kennt vlö Tónlistarskóla Reykjavíkur, Mosfellsbæjar, og Keflavíkur og veriö skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs frá 1968. skólakennari, búsett í Reykjavík; Ámi Erlendur, f. 14.2. 1949, við- skiptafræðingur og eigandi fast- eignasölunnar Gimli, búsettur í Reykjavik. Foreldrar Fjölnis voru Stefán Kristinsson, f. 28.6. 1896, d. 21.3. 1982, fulltrúi tollstjóra i Reykjavík, og Hanna Guðjónsdóttir, f. 16.5. 1904, d. 18.11.1984, píanókennari. Ætt Foreldrar Stefáns voru Kristinn Erlendsson frá Teigakoti á Akra- nesi, sjómaður og útvegsb. á Eyri í Mjóafirði í Suður-Múlasýslu, og Sig- riður Ámadóttir húsmóðir, ættuð frá Eyrarbakka. Foreldrar Hönnu voru Kristín Ólafsdóttir, húsmóðir og verkakona í Reykjavík, frá Stóru-Mörk undir Eyjatjöllum og Guðjón Jónsson, verkamaður, frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum. Tónlistarskóli Kópavogs mun halda tónleika Fjölni til heiðurs með verkum eftir eftir hann í Saln- um, Tónlistarhúsi Kópavogs, á af- mælisdaginn og hefjast þeir kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis. 40 ára________________________ Krístján Þorvaldsson, Nökkvavogi 44, Reykjavlk. Siguröur Már Jónsson, Sólheimum 24, Reykjavlk. Brynhildur Björnsdóttir, Mávahllð 2, Reykjavík. Kristinn Kristjánsson, Ferjubakka 6, Reykjavlk. Lovísa Björg Einarsdóttir, Hraunbæ 136, Reykjavík. Ellert Helgi Sigurðsson, Hraunbæ 48, Reykjavík. Helgi Jón Jónsson, .. Austurbergi 8, Reykjavlk. Heiðar Júlíus Sveinsson, Hvannarima 26, Reykjavlk. Björn Matthíasson, Logafold 40, Reykjavlk. Jón Sigurður Ólason, Esjugrund 13, Kjalarnesi. Dagmar Bjartmarz, Lautasmára 35, Kópavogi. Elín Rut Ólafsdóttir, Starmóa 16, Njarðvík. Elín Kristbjörg Sigurðardóttir, Eyrartúni 12, Sauöárkróki. Sigriður Elín Þórðardóttir, Raftahllö 76, Sauðárkróki. Bergljót Steingrímsdóttir, Brekkugötu 13, Ólafsfirði. Fanney Helga Hannesdóttir, Ártröð 5, Egilsstöðum. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olson Baldur Fredriksen útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Sufurhlíö35 • Sfmi 581 3300 Jón Þorsteinn Arason málarameistari í Reykjavík Jón Þorsteinn Arason málara- meistari, Breiðuvík 37, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Jón Þorsteinn fæddist á Patreks- firði og ólst þar upp. Hann lauk námi frá Reykjaskóla í Hrútafirði 1950, lærði málaraiðn hjá Jóni Bjömssyni, málarameistara í Reykjavík, 1954-58, stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík, lauk sveinsprófi 1959 og öðlaðist meist- araréttindi 1962. Jón flutti aftur til Patreksfjarðar 1959 og var þar málarameistari, auk þess að reka verslun og umboðssölu til 1985. Þá flutti hann til Reykjavík- ur þar sem hann hefur búið síðan og starfað við iðn sína. Jón var virkur í félagsmálum á Patreksfirði, var m.a formaður íþróttafélagsins Harðar um tima og tók virkan þátt í starfi Leikfélags Patreksfjarðar og Lionshreyfingar- innar. FjOlskylda Jón kvæntist 10.12. 1955 Þórdísi Toddu Ólafsdóttur, f. 24.3. 1936, mat- ráðskonu. Hún er dóttir Ólafs Haf- steins Guðbjartssonar, f. 23.3. 1917, d. 5.5. 1996, húsasmíðameistara, og Sólrúnar Önnu Jónsdóttur, f. 22.8. 1915, d. 11.10. 1992, húsmóður. Börn Jóns og Toddu eru Ari, f. 25.2. 1956, rafvirkjameistari í Reykjavík, en dóttir hans er Þórdís, f. 1980, og er sambýliskona Ara Sig- ríður Ellen Þórisdóttir en dóttir þeirra er íris Björk, f. 1994; Ólafur Hafsteinn, f. 18.5. 1957, húsasmíða- meistari á Selfossi, kvæntur Jónínu Sóleyju Hjaltadóttur og eru börn þeirra Þórunn Sif, f. 1984, Almar En- ok, f. 1987, og Jón Fannar, f. 1990; Þór f. 1.12. 1959, málarameistari í Kaupmannahöfn; Ægir, f. 29.3. 1963, málari í Keflavik, en sambýliskona hans er Eyrún Karlsdóttir og eru böm þeirra Karl Amar, f. 1986, Lísa Mjöll, f. 1992, og Ari, f. 1996; Helgi Rúnar, f. 8.1.1965, verslunarmaður í Reykjavík; Þorsteinn Geir, f. 30.6. 1974, líffræðingur Reykjavík. Jón er fimmti í röð sjö systkina. Systkini hans eru Ingólfur, f. 6.12. 1921, búsettur í Reykjavík; Þórhall- ur, vík; Steingrímur Einar, f. 28.3. 1925, búsettur í Reykjavík; Una Guðbjörg, f. 14.5. 1927, búsett í Reykjavík; Júl- íana Sigríður, f. 24.6. 1932, búsett í Reykjavík; Erna, f. 12.3. 1934. Foreldrar Jóns voru Ari Jónsson, f. 9.11. 1883, d. 24.8. 1964, skósmiður og kaupmaður á Patreksfirði, og k.h., Helga Jónsdóttir, f. 10.3. 1893, d. 9.5. 1962, húsmóðir. Ætt Ari var bróðir Þórðar, hreppstjóra í Firði í Múlasveit, fóður Ingibjargar, konu Árelíusar Níelssonar sóknarprests. Ari var sonur Jóns, b. á Vattarnesi, Arasonar, b. í Múla í Gufudalssveit, bróður Jóns, fóður Bjöms ráðherra, fbður Sveins forseta og Ólafs ritstjóra, afa Ólafs B. Thors forstjóra. Systir Ara var Helga, langamma Viðars Víkingssonar kvikmyndagerðarmanns. Ari var sonur Jóns, b. i Djúpadal, Arasonar, bróður Guðrúnar, ömmu Gests Pálssonar skálds. Bróðir Jóns var Finnur, afi Ara Arnalds, afa Ragnars Arnalds, fyrrv. ráðherra og Jóns dómara. Móðir Ara skósmiðs var Guðbjörg Jónsdóttir. Helga var dóttir Jóns Jónssonar, b. í Djúpadal og síðar i Fremri- Gufudal í Austur-Barðastrandar- sýslu, og k.h., Júlíönu Jónsdóttur. Jón verður að heiman á afmælis- daginn. Jakob Jóhannesson Smári, skáld, kennari og rit- höfundur, fæddist á Sauðafelli i Miðdölmn 9. október 1889. Hann var sonur Jóhannesar Lárusar Lynge Jóhannssonar, prests á Kvennabrekku, og f.k.h., Steinunnar Jakobínu Jakobsdóttur húsfreyju. Jakob var hálfbróðir, samfeðra, Ragnheiðar, móður Vífils verkfræðings og læknanna Ólafs Hergils og Þengils Oddssona. Hálfsystir Jóhannesar á Kvenna- brekku var Valgerður, langamma Jóns Steffensen læknaprófessors. Jakob lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1908, stund- aði nám í norrænum fræðum við Kaupmannahafn- arháskóla og lauk þar meistaraprófi 1914. Jakob var kennari við ýmsa skóla í Reykjavík 1914-1920 og við MR 1920-36. Jakob Jóhannesson Smári Jakob sendi frá sér ljóðabækumar Kaldavermsl, 1920, Handan storms og strauma, 1936, Undir sól aó sjá, 1939, og Við djúpar lindir, 1957. Hann var nýróm- antískt skáld, skáldskapurinn ljóðrænn og átakalít- ill, sonnettan hans aðalljóðaform en yrkisefnið gjarnan sótt í kyrrð og fegurð íslenskrar náttúru. Hann var því ekki beint barn sins tíma þegar leið á ferilinn. Samt urðu ýmis ljóða hans vel þekkt og oft sungin. Jakob þýddi m.a. sum verka Gunnars Gunnarssonar, leikrit eftir Ibsen og Strindberg, óperettur, og Bókina um veginn eftir Lao-tse, ásamt Yngva Jóhannessyni. Þjónustu- auglýsingar ►I550 5000 allan sólarhrmginn. www.utfararstota.ehf.is/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.