Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Qupperneq 27
59 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2000 DV Tilvera 'H'MI Scott 46 ára Bandaríski leikarinn Scott Bakula fagnar 46 ára afmæli sínu i dag. Scott hefur leikið í miklum Qölda sjón- varpsmynda í gegnum tið- ina en einnig landað hlut- verkum í bíó- myndum. Þar má frægastar telja American Beauty, Major League og A Passion to Kill. Gildir fyrir þriðjudaginn 10. október Vatnsberinn (20. ian.-is. fehr.t . Sinntu mikilvægum verkefhum fyrst þar sem ekki er séð hve mikirm tíma þú hefur. Þrýsting- ura fólk við vinnu skilar sér lítið. Þú verður að leggja þig allan fram. Rskarnir (19. febr.-20. marsl: Gættu þess að gleyma lengu mikilvægu þótt þú hafir í mörg hom að lita. Það gætu orðið einhvérjir árekstrar í einkalifinu. HrútUfinn (21. mars-19. apríl): . Gengi þitt í vinnunni * fer óðum batnandi og það er engu líkara en að lánið leiki við þig. Gamall vinur leitar ráða hjá þér. nrutunnn m, G^i </ S ekki. Þú ætti Nautið (20. april-20. maíl: / Þú ert fremur niður- dreginn fyrri hluta dagsins en það bráir þó af þér ef þú hefur nóg fyrir stafhi. Þú kynnist mikil- vægri manneskju á næstunni. Tvíburarnlr (2i: maí-21. iúní): Þú ert talsvert gefinn f fyrir að gagnrýna aðra og það gæti komið þér í koll ef þú gætir þín i ættir að eyða kvöldinu 1 góðra vina hópi. Krabbinn 122. iúní-22. iúií): Það hefur verið mikið j að gera hjá þér undan- ' farið og nú er kominn tími til að hlaöa batt- erfiri. Þú ættir að fara í ferðalag. liónið (23. iúlí- 22. áeúst): Lifið virðist leika við þig þessa dagana og ekki er ólíklegt að ást- in sé á næstu grösum. Kvöldið verður afar skemmtilegt og eftirminnilegt. Mevian (23. ágúst-22. sept.l: Þú hugar aö framtíðar- áformum og er þar ^^V^l^sannarlega úr mörgu ^ r að velja. Þótt ýmsir vilji ráðleggja þér og vilji þér vel verður þú að treysta á sjálfan þig. Vogin (23. sept.-23. okt.l: Ástvinir eiga saman notalega stund og em V JT jafnvel famir að gera r JT áætlanir mn framtíð- ina. Þetta er einmitt rétti tlminn til þess. Sporðdreki (24. okt.-2i. nóv,): Það er óróleiki í kring- \ inn þig sem stafar af \ \ Vjjóleystu deilumáli. * Reyndu að komast að niðurstöðu um breytingar sem fyrst. Bogamaður (22. nóv.-21. des,): Staðfesta er mikilvæg í rdag. Þú ert vinnusam- r ur og eitthvað sem þú t gerir vekur athygli fólks í kringum þig. Steingeitln (22. des.-i9. ian.): Þín bíða ný og skemmtilegt tækifæri í vinnunni sem er um að gera að nýta sér. Fjölskyldulífið gengur betur en það hefur gert undanfarið. er komið út meö fjölbreyttu og áhugaverðu efni. Nýir kaupendur ársins fá 3 blöð I kaupbæti. Áskriftarsfmar: 551 7044 og 552 7430. Guðrún Kristín og Stefán Jón: Keramik fyrir alla T^V >C Pétur Ds^ur meö Dusan Makavejev FemiCare® hylki með mjólkursýrugerlum fyrir leggöng. intiiTi- pleje Hluti af náttúruLegri flóru konunnar! Fæst I Apótekinu, Lyfju, Lyf og heilsu og apótekum landsins. SfT'U SÍAH^ Eg vissi ekki alveg á hverju ég mætti eiga von þar sem ég sat í salnum og beið eftir Dusan Makavejev, enda hafði ég ekki séð svo mikið sem eina einustu mynda hans. Ég hafði að vísu lesið svolítið um hann og myndir hans í blöðunum en reynslan hefúr kennt mér að fara varlega í að taka mark á því sem kvikmyndaspekúlantar segja. Þegar hann steig upp á sviðið var það fyrsta sem ég tók eftir hversu óskaplega hokinn þessi gamli maður er. Ekki veit ég hvort þessi líkams- burður er meðfæddur eða hvort líkam- legur krankleiki, bogur yfir kvik- myndavélum eða sálrænar byrðar af viðureignum hans við yfirvöld og rit- skoðara eiga þar hlut að máli, en eftir að hann var sestur varð þetta ekki eins áberandi. Hann leit út eins og góðlát- legur afi með sitt hvíta hár og skegg og vingjamlega andlitsdrætti, alls ekki sá pervertíski uppreisnarseggur sem maður gæti ætlað af því sem skrifað hefur verið um myndir hans. Hann tal- aði stuttlega um fyrri myndina á sýn- ingarskránni, hásri röddu manns sem sogið hefúr ófáan vindlinginn um æv- ina. Svo steig hann af sviðinu, ljósin slokknuðu og myndin byijaði. WR: Mysteries of the Organism (1971) ★ ★★ Þetta er myndin sem varð tO þess að Dusan Makavejev þurfti að flýja heimaland sitt eftir að hún var bönnuð þar sökum pólitískrar og kyn- ferðislegrar umfjöllunar sem ekki féll ráðamönnum í geð. í myndinni bland- ar hann saman heimildum og skáld- sögu. Hún er að hálfú leyti heimildar- mynd um undarlegan kynlífsfræðing, Wiihelm Reich, en byltingarkenndar hugmyndir hans um kynhegðun og fúll- nægingu urðu til þess að hann varð fangels- aður og bækur hans brenndar i Bandaríkjunum á sjöunda áratugnum. Skáldaði hluti myndarinn- ar fiallar um júgóslavneska konu sem aðhyllist kenningar Reich og predikar þær yfir félögum sinum í kommúnista- flokknum. Myndin er kannski svolítið sundurlaus en hefur upp á mörg áhugaverð atriði að bjóða og er alla vega skiljanlegri en næsta mynd hans, Sweet Movie, sem var næst á dagskrá. Sweet Movie (1974) ★ ★ Það var ekki laust við að ég væri spenntur að sjá hvað hefði > » ★ 29. Mptamber - 12. október 2000 Kvikmyndahátíð í Reykjavík Sweet Movie Hneyksiaði á fyrstu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. hneykslað fólk svo óskaplega fyrir 22 árum þegar myndin var sýnd á fyrstu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík og sá sem fer á myndina til að sjá slíkt verð- ur ekki fyrir vonbrigðum. Gyllt typpi auðmannsins pissar á unga, fallega og saklausa eiginkonu hans, sem síðar er troðið naktri ofan í ferðatösku, og nuddar seinna typpinu á sessunaut sínum um andlit sér meðan aðrir gest- ir svallveislunnar æla í súpupott og kúka á matardiska. Mörg atriðin eru sniðug, jafnvel fyndin, en myndin er vægast sagt rugl- ingsleg og mér fannst sem ég skildi ekki hvað leikstjór- inn væri að meina oft á tíðum. í umræðunum eftir mynd- ina kom reyndar fram að í mörgum til- vikum var ekki um neina dulda merk- ingu að ræða heldur tilviljanir. Mynd- in átti upprunalega að vera eins konar framhald af skáldaða hlutanum í My- steries of the Organism en þróaðist í tilviljanakennda tilraunastarfeemi þar sem leikstjórinn sýndi bara það sem honum og leikurunum datt í hug á hveijum tíma. Hlandatriðið snemma í myndinni kom t.d. til vegna þess að leikaranum var svo mikið mál að hann þurfti að létta á sér. Töku- maðurinn lét vélina rúlla og atriðið var haft með. Djúphugsaðar pælingar og merkingarlausar til- viljanir Mikið hefur verið skrifað um hvemig Makavejev notar súrrealisma og táknsæi tii að koma á framfæri pólitískri gagnrýni en eftir að hafa hlýtt á svör hans við spumingum áhorfenda hef ég grun um að margir leggi dýpri merkingu í sumt í verkum hans en þar er að finna. T.d. var afar skemmtileg sagan hans af til- urð lokaatriðsins í Sweet Movie. Hann var að taka upp á leigðum báti í Hollandi en lenti í einhverjum útistöðum við eigendur bátsins sem fóm til lögreglunnar með þá sögu að hann ætlaði að fremja raunveruleg morð í bátnum. Lögreglan mætti á staðinn og tók ekki þá skýringu hans gilda að hér væri bara um kvikmynd að ræða. Það end- aði með því að hann þurfti að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis að kvik- myndin myndi sýna, svo ekki væri um að viilast, að morðin væra ekki raun- veruleg. Hann lét því likin öE vakna upp eins og af svefrii í lok myndarinn- ar. Þetta og fleiri atriði sem hann sagði frá vakti með mér þá hugsun að kannski væm kvikmyndaspekúiantar helst til of ákafir í að kafa ofan í verk kvikmyndagerðarmanna og draga af þeim ályktanir sem ekki stæðust. Dus- an Makavejev er menntaður sáifræð- ingur og það er engin spuming að í verkum hans er að fmna rauðan þráð sem hægt er að skilgreina myndir hans út frá og sem á sér rætur í sál- fræðilega þenkjandi huga hans. Mynd- ir hans fjalla um kynferðislegt frelsi sem hægt er að yfirfæra á pólitískt frelsi og yfirleitt leiðir kynferðislegt frelsi sögupersóna hans þær út í ógöngur, rétt eins og þeir sem voga sér að tileinka sér pólitískt skoðanafrelsi eiga ekki von á góðu í þeim löndum þar sem slíkt er heft. Hins vegar er ekki hvert einasta atriði í myndum hans markvisst og úthugsað. í raun era þær myndir sem ég hef séð fremur sundurlausar og tilviljanakenndar og einkennast meira af tilraunastarfsemi en úthugsaðri gagnrýni. Pétur Jónasson Litagleði og lífsgleði munu fara saman í nýju og spennandi keramik- galleríi að Laugavegi 48B en á fóstu- daginn buðu Guðrún Kristín Sigurð- ardóttir og Stefán Jón Hafstein tO opnunarhátíðar. Galleríið ber nafnið Keramik fyrir alla og það er vel við hæfi því gestum gefst kostur á að skapa sina eigin muni á staðnum. Lit- ir og penslar eru á borðum og það eina sem gestir þurfa að koma með er sköpunargleðin. Fjöldi fólks heiðraði Guðrúnu Kristínu og Stefán Jón þennan dag. Opnunargestir Einar Sigurðs- son, fram- kvæmdastjóri Flugleiða, og Kristin Ing- ólfsdóttir pró- fessor skoö- uðu sig um í Keramik fyrir alla og nutu góðra veit- inga gestgjaf- anna. Borgarstjóri og Stefán Jón Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mætti í opnunarteitið. DV-myndir Einar J. löjusemin í fyrirrúmi Vinkonur Guðrúnar Kristínar; Ýr Gunnlaugsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og Katrín Guðmundsdóttir, voru önnum kafnar við að mála keramik. Allir velkomnir Steinunn Bergsteinsdóttir hönnuður kom til opnunar- innar ásamt tíkinni Pertu. Baka til sést i þingkonuna Guðrúnu Ögmundsdóttur en konan með blómvöndinn er eigandi gallerísins, Guðrún Sigurðardóttir. Vorum aö taka upp glænýjar vörur fyrir dömur og herra. 25-40% lægra verö. Ný myndbönd sem áöur kostuöu 2.490, nú á 1.500. Geröu samanburö á verði, úrvali og þjónustu. Opið laug. 10-16 mán.-fös. 10-20 Fákafeni 9 • S, 553 130Q f- ■C <r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.