Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Síða 28
60 ____________________MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2000 Tilvera i>v í f iö Anna Júlíana syngur í Borgar- neskirkju í kvöld munu þær Anna Júlíana Sveinsdóttir messósópran og Sól- veig Anna Jónsdóttir píanóleikari halda söngskemmtun í Borgarnesi. Tónleikamir fara fram í Borgames- kirkju. Efnisskráin er fjölbreytt. Krár____________________ ■ RÓIEGHEIT Á CAFÉ ROMANQE Óperan á laugardagskvöldi: Hátíð talaðrar tónlistar Orðið tónlist var yfirskrift hátíð- ar talaðrar tónlistar sem Smekk- leysa ehf. efndi til í Óperunni á laugardagskvöld. Markmið hátiðar- innar var að fagna hvers kyns sam- slætti orða og tónlistar þar sem mörk skáldskapar og tónlistar verða fljótandi. Fjölbreyttur hópur innlendra og erlendra listamanna, tónlistar- manna og skálda kom fram á hátíð- inni; þeirra á meðal múm, Ása Ket- ilsdóttir, Sigur Rós, Bragi Ólafsson, Erpur Eyvindarson, Linda Vil- hjálmsdóttir, Einar Óm Benedikts- son og margir fleiri auk Möggu Stínu sem var kynnir kvöldsins. Háboröið Margir kvöddu sér hljóös á hátíöinni. Bræöralag Þórdís slagverksleikari í góö- um félagsskap Pollock-bræðr- anna, Mikka og Danna. Baksviðs Hljómsveitin Sigur Rós læt- ur fara vel um sig baksviös í Óperunni. Tónlistaratriði Bragi Curver ásamt myndlistarkon- unni Berglindi. Enski píanóleikarinn og söngvarinn Miles Dowley spilar sig inn í rómat- ískt sinnuð hjörtu á Café Romance. Kertaljós og Ijúfir tónar. Valdabarátta og heitar tilfinningar Leikhús 1 LISTAKLÚBBURINN Dagskrá Listaklúbbsinsí kvöld er helguö hinu heilaga forna hljóðfæri frumbyggja Ástralíu, DIDGERIDOO, en hún hefst klukkan 20.30. Myndiist_________________________ ■ 14 FORINGiAR Á DILLON Svo nefnist myndlistarsýning listamannsins Þorkels Þórissonar sem var opnuð um helgina. Á sýningunni eru fjórtán olíumálverk. ■ JOHN KROGH í GUK Um helgina opnaði danski myndlistar- maðurinn John Krogh sýningu í GUK - Exhibition Place. Opnunin var á Selfossi en GUK er sýningarstaður fyrir myndlist sem er að finna í þremur löndum; í húsagaröi á Selfossi, í garöhúsi í Lejre í Danmörku og í eldhúsi í Hannover í Þýskalandi. ■ OLGA PÁLSDÓTTIR Listakonan Olga Pálsdóttir opnaði sýningu í Fella- og Hólakirkju um helgina. Sýningin verður opin daglega frá 13 til 17 til 15.9. ■ GEÐVEIK LIST Á laugardaginn var opnuð sýningin Geðveik list í Gallerí Geysi, Hinu húsinu v/lngólfstorg. Þrir listamenn eiga verk á sýningunni. Það eru myndlistarmennirnir Katrin Níelsdóttir og Leifur G. Blöndal og skáldið Vilmar Pedersen. ■ CREIPAR ÆGIS Fyrir níu árum byrjaði listamaðurinn Greipar Ægis að vinna Tár tímans, sameiginlegt nafn yfir einstök verk hans, úr hinum svarta og sér- kennilega sandi íslands. Listamaðurinn afhjúpaði verkið Tár tímans um helgina í tilefni af fimm ára afmæli Gleraugnaverslunarinnar Sjáðu, Laugavegi 40, milli kl. 17 og 19. ■ RÍS ÚR SÆ í USTASAFNI ASÍ Helga Magnúsdóttir sýnir um þessar mundir verk sln I Ásmundarsal, Listasafni ASf við Freyjugötu. Listakonan kallar sýningu sína Rís úr Sæ. Opnanir___________________________ ■ CAFE9NET.......... 16-18:Gestgjafar kynna verkefni og hjálpa gestum við að setja inn efni. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Glaðir frumsýningargestir Þau Vilhjálmur Kristjánsson, ráðgjafi hjá KPMG, og Kristín Blöndal voru meöal frumsýningargesta. Bíógagnrýni Spjallað saman Þeir Hjálmar H. Hjálmars- son og Siguröur Halldórs- son klarínettuleikari spjölluöu saman á frumsýningunni HHK Anægðar konur Þær Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Guöfinna Bjarna■ dóttir, rektor Viöskiptaháskólans í Reykjavík, og Helga Jóns- dóttir borgarritari voru greinilegar ánægöar með sýninguna. The Emperor and the Assassin ★ ★★'Á Fyrsti keisarinn Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Valdabarátta og heitar tilfinning- ar réðu ríkjum á stóra sviði Borgar- leikhússins á fostudagskvöldið þeg- ar einn mesti harmleikur leikbók- menntanna, sjálfur Lér konungur eftir Shakespeare, var frumsýndur. Það er Pétur Einarsson sem túlkar Lé konung en Halldóra Geirharðs- dóttir er í hlutverki fiflsins sem fylgir honum eftir. Popparinn og leikarinn Seli stórpoppari á tali viö Benedikt Erlingsson leikara I sófanum Rósa Sigurbergsdóttir kennari og Jónatan Garöarson sjónvarps- maöur höföu tyllt sér í einn sófann þar sem þau ræddust viö. DV-MYNDIR INGÓ The Emperor and the Assassins, nýjasta kvikmynd Chen Kaige (Farwell My Concubine) er epísk stórmynd af bestu gerð. Myndin ger- ist í Kína á þriðju öld fyrir Krist og segir frá þeim keisara sem samein- aði konungdæmin í eitt stórt keis- araveldi sem var við lýði fram á sið- ustu öld. Myndin hefur þó aldrei yfir sér raunsæistón heimildar- mynda sem tengjast söguiegum staðreyndum heldur er hún tíma- laust drama þar sem plottað er i stórum stíl og engum hlíft þegar völd eru annars vegar. Kaige hefur sýnt það áður að það liggur vel fyr- ir honum að tengja mannlegan breyskleika stórum atburðum og hann slær enga feilnótu í þeim efn- um. Persónur myndarinnar eru kannski fjarlægar okkur eins og sjáifsagt persónur íslendingasagn- anna eru fjarlægar Kínverjum en þegar viðfangsefnið er völd, hatur, afbrýði, ástir og svik þá eru engin landamæri til. The Emperor and the Assassins skiptist í flmm kafla sem eru í beinu framhaldi hver af öðrum þó áherslumunur sé á þeim. Ófriður hefur lengi ríkt í Kína. Konunginn Tilræðismaðurinn og keisarinn. Stórmynd af bestu gerö. af Quin dreymir um að sameina mörg konungsdæmi í eitt stórveldi. Til að svo geti orðið þarf hann að sanna fyrir öðrum hvers hann er megnugur. Hann vill því setja á svið með aðstoð tilvonandi drottn- ingar sinnar morðtilræði þar sem - 12. októbor 2000 j 29. soptombor Kvikmyndahátíð í Reykjavík hann stendur uppi sem hetja í aug- um almennings. Þetta tilræði getur ekki orðið sannfær- andi nema tilræðis- maðurinn komi frá helsta keppinaut hans. Ástkona hans Zhao er því send undir fölsku flaggi til keppinautarins og hittir þar fyr- ir þekktan vígamann sem snúið hef- ur við blaðinu og þolir ekki lengur blóð. Þetta er sá maður sem hún vill að komi með sér á fund tilvonandi keisara í Kína. í millitíðinni hefur konungurinn, sem vill að sameining könungdæmanna fari friðsamlega fram, sýnt sitt rétta eðli... The Emperor and the Assassin minnir stundum á sögulegar mynd- ir Akira Kurosawa. Það er mikið um blóði drifln atriði sem ættu að fylla mann óhug en eins og Kurosawa tókst í sínum myndum tekst Kaige að gera þau þannig úr garði að óhugnaðurinn yflrkeyrir aldrei mannlega þáttinn f dram- tískri frásögninni. Leikur í mynd- inni er góður, nálgast að vísu ofleik í hádramatískum atriðum hjá ein- staka leikurum. Þekktust er Gong Li, sem enn eina ferðina sýnir af- burða leik auk þess sem reisn og glæsileiki er hennar aðalsmerki. Hilmar Karlsson Leikstjóri: Chen Kaige. Handrit: Chen Kaige og Peigong Wang. Aöalleikarar: Gong Li. Fengyi Zhang, Xujian Li og Zhou Sun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.