Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Síða 6
6
Fréttir
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
DV
Hvert vildir þú flytja?
- skoðun allra sem tóku afstöðu í könnun DV 23. október sl.
Skoðanakönnun DV um hug íslendinga til búferlaflutninga:
23,8 prósent
landsbyggðar-
fólks vill suður
- en 24,3 prósent höfuðborgarbúa vill til útlanda
Flestir landsmenn vilja flytja til
Reykjavíkur samkvæmt skoöana-
könnun DV sem gerð var í síðustu
viku. Akureyri, Danmörk og Spánn
eru einnig ofarlega á óskalistanum.
Margt athyglisvert kom i ljós í
skoðanakönnuninni, sem fram-
kvæmd var mánudagskvöldið 23.
október. Úrtakið var 600 manns af
öllu landinu, jafnt skipt á milli
landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis
og einnig jafnt á milli karla og
kvenna. Spurt var: Ef þú stæðir
frammi fyirir því að þurfa að flytja
úr þinu byggðarlagi, hvert vildir þú
flytja? Svörun var mjög góð og alls
tóku 88,7% afstöðu til þessarar
spumingar, en 11,3% voru ýmist óá-
kveðin eða svömðu ekki.
„Topp tíu“ llstinn
Þegar skoðaður er vilji allra
þeirra sem afstöðu tóku í könnun-
inni kemur í ljós að flestir vildu
flytja til Reykjavíkur, eöa 15,6%.
Næst á vinsældalistanum er Akur-
eyri, en þangað vfldu 14,1% flytja ef
þeir stæðu frammi fyrir
þeirri spurningu að
þurfa á annað borð að
flytja úr sínu byggöar-
lagi. í þriðja sæti á list-
anum er svo Hafnarfjörð-
ur, en þangað vildu 7%
aðspurðra flytja.
Athygli vekur að í
fjórða sæti á listanum er
Danmörk, en þangað
vildu 6,4% aðspurðra
flytja. í fimmta sæti er
Spánn með 4,5% at-
kvæða aðspurðra. Egils-
staðir eru í sjötta sæti
með 3,6% atkvæða, þá
Bandaríkin í sjöunda
sæti með 2,8%, Kópavog-
ur er í 8. sæti með 2,6%,
Mosfellsbær er í níunda
sæti með 2,4% og Eng-
land er í tíunda sæti með
2,3% atkvæða.
Þar á eftir kemur Sel-
foss með 2,3%, Keflavík
með 2,1%, Noregur með
2,1%, Akranes með 1,9%,
Svíþjóð með 1,5%, Sauð-
árkrókur, Vestmanna-
eyjar, Portúgal, Færeyjar
og Stykkishólmur eru
með jafn mörg atkvæði í
flmmtánda til tuttugasta
sæti, eða 0,9% atkvæða
aðspurðra.
Spánn í þriöja sæti
Ef skoðuð er afstaða fólks sem af-
stöðu tók eftir búsetu kemur ber-
lega í ljós mikill munur. íbúar á höf-
uðborgarsvæðinu eru mun hlynnt-
ari því að flytja til útlanda en íbúar
á landsbyggðinni.
Á „topp tíu“ lista íbúa á höfuö-
borgarsvæðinu er Akureyri í fyrsta
sæti af einstökum stöðum, með
15,4% atkvæða. Þá kemur Reykja-
vík, sem valkostur fyrir þá sem búa
í nágrannabæjunum, með 8,2%. At-
hygli vekur hins vegar að Spánn er
í þriðja sæti á vinsældalista íbúa
höfuðborgarsvæðisins, en þangað
vildu 7,9% flytja ef flutningar úr
byggðarlaginu stæðu fyrir dyrum.
í fjórða sæti kemur Danmörk með
7,5% atkvæða, Bandaríkin eru í
fimmta sæti með 5,7%, Kópavogur
er í sjötta sæti með 3,9%, Selfoss er
í sjöunda sæti með 3,2%, Garðabær
er í áttunda sæti með 3,2%, England
er í níunda sæti með 3,2% og í tí-
unda sæti er Hafnarfjörður með
2,5% atkvæða. Samanlagt vildu því
24,3 prósent íbúa höfuðborgarsvæð-
isins fremur flytja til útlanda en á
landsbyggðina
Afstaöa landsbyggöarfólks
Á „topp tíu“ lista íbúa á lands-
byggðinni er Reykjavík í fyrsta sæti
eða 23,8% yfir þá staði sem það kysi
helst að flytja til ef það á annað borð
þyrfti þess. í öðru sæti er Akureyri
með 12,7% og í þriðja sæti er Hafn-
arfjörður með 11,9%.
Líkt og hjá íbúum höfuðborgar-
svæðisins, þá er Danmörk í fjórða
sæti á vinsældalista landsbyggðar-
fólks með 5,1%, í fimmta sæti eru
Egilsstaðir með 4,4%, Keflavík er í
sjötta sæti með 3,6%, Mosfellsbær
er í sjöunda sæti með 3,2%, Noregur
er í áttunda sæti með 2,4%, Akranes
er í níunda sæti með 2,0% atkvæða
og Spánn er í tíunda sæti einnig
með 2,0% atkvæöa landsbyggðar-
fólks.
Afstaða kynja
I heildarniðurstöðum
er vart marktækur mun-
ur á afstöðu kynjanna til
flutnings úr sínu byggð-
arlagi. Þó vilija ríflega
helmingi fleiri konur en
karlar af landsbyggöinni
flytja til Hafnarfjarðar.
Hins vegar vilja um
þriðjungi fleiri karlar en
konur af landsbyggðinni
flytja til Reykjavíkur.
I sveitarfélögum í ná-
grenni höfuðborgarinn-
ar setja ríflega helmingi
fleiri karlar en konur
Reykjavík efst á óska-
listann. Aftur á móti
vilja umtalsvert fleiri
konur af höfuðborgar-
svæðinu flytja til Akur-
eyrar en karlar. Kynin á
höfuðborgarsvæðinu
eru nokkuö sammála
um afstöðuna um flutn-
ing til Spánar og ekki er
heldur mjög mikill mun-
ur á afstöðu kynja á
landsbyggðinni til flutn-
ings til Danmerkur.
Á sjöunda tug staða
var nefndur á nafn í
könnuninni, bæði inn-
anlands og utan. Af
þeim var nærri þriðj-
ungur staðanna erlend-
is. -HKr.
............. Unisjón:
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.ls
Komin heim
Knattspyrnu-
konan ástsæla,
Vanda Sigur-
geirsdóttir, sem
hefur gert garð-
inn frægan bæði
sem leikmaður
og þjálfari hjá
félagsliðum og
landsliði
kvenna, er
komin heim. Heima er á Sauðár-
króki, og þar var Vanda nýlega í
viðtali hjá staðarblaðinu Feyki. Þar
barst m.a. í tal að kona þjálfaði
karlmenn i knattspymu og segir
Vanda að þrátt fyrir eitthvert tal
um slíkt sé hún hrædd um að
menn þori ekki að ráða konu i
slíkt starf. Það hafi þó verið gert
erlendis, m.a. í Noregi og á Ítalíu,
með ágætis árangri. Vanda hefur
náð stórkostlegum árangri sem
þjálfari kvennaliða og lið undir
hennar stjórn skiluðu ávallt meist-
aratitlum.
Alveg jafn greind
Meira um
Vöndu Sigur-
geirsdóttur
sem er mikil.
kjamakona. í
viðtalinu í
Feykisagði
hún sem satt er
að enginn þjálf-
ari hér á landi
(karlar meðtald-
ir) hafi skilað eins góðum árangri
og hún. „Ekki einu sinni Gaui
Þórðar getur státað af því aö hafa
aldrei brugðist að hafa skilað
meistaratitli" segir Vanda. Hún
segir það lélegt að vera ekki metin
af hæfileikum sínum og kunnáttu,
heldur út frá kynferði. „Ég er
sannfærð um að ég kann alveg eins
mikið i þjálfun og karlamir. Ég hef
sótt sömu námskeið og þeir og er
alveg ábyggilega jafn greind og
þeir“. - Þama hafið þið það, karl-
rembur, gott hjá þér, Vanda, að
vanda þeim ekki kveðjumar.
Hjálmar fer ekki
Hjálmar
Jónsson alþing-
ismaður Sjálf-
stæðisflokksins
á Norðurlandi
vestra hefúr
! verið orðaður
við framboð í
„Norðaustur-
kjördæminu"
svokallaða
næst þegar kosið verður til Al-
þingos, og alls kyns sögur verið til
að ýta undir þann orðróm. Hjálmar
hefur m.a. þurft að sækja fundi
austur á land starfs síns vegna og
það hefur þótt benda til þess aö
hann hygðist bjóða sig fram þar
næst. Nú hefur hjálmar hins vegar
tekið af öll tvímæli um hvaö hann
hyggst fyrir. Hann ætlar ekki að
færa sig til austurs heldur mun
hann áfram gefa sveitungum sínum
kost á þjónustu sinni.
í biðstöðu
Málefni marka-
skorarans vakra,
Tryggva Guð-
mundssonar frá
Vestmannaeyjum,
sem undanfarin
ár hefur leikið
með Tromsö í
Noregi em enn í
sviðsljósinu.
Fjölmiðlar hafa verið
iðnir viö að segja frá ferðum hans
eins og fram hefur komið hér í þess-
um dálki. Frá því var skýrt að
Tryggvi færi hugsanlega til reynslu
hjá Blackbum á Engalndi, síðan kom
fétt um að hann væri að fara þangað,
þá fétt um að hann væri á leiðinni tfl
Blackbum, næst frétt um að hann
væri kominn til Blackbum og loks
undir lok síðustu viku frétt þess efn-
is að Tryggvi væri kominn heim til
Tromsö og mál hans væru i biðstöðu.
Á það er treyst að næst þegar
Tryggvi bregður sér af bæ, verði
skýrt frá því, og það STRAX!