Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 16
16
33
Útgðfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Svelnn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Svelnsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteínsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasfða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerð: isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viðmælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Lœkkun skatta
Engin ríkisstjórn hefur haft meira svigrúm til að gera
róttækar breytingar á skattakerfinu og lækka skatta á al-
menning og fyrirtæki en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks. Staða ríkissjóð hefur að líkindum
aldrei verið betri og því væri það óskynsamlegt en um-
fram allt ósanngjarnt ef ekki væri hugað að því að skila
almenningi og fyrirtækjum hluta af þeim fjármunum sem
ríkissjóður hefur tekið. Geir H. Haarde fjármálaráðherra
er að þessu leyti í öfundsverðri stöðu. Hann getur leyft sér
að framkvæma það sem hann hefur alla tíð staðið fyrir í
stjórnmálum; lækkun skatta og takmörkun ríkisumsvifa.
Ríkisstjórnin tilkynnti síðastliðinn föstudag að barna-
bætur yrðu hækkaðar í áfóngum á næstu þremur árum
auk þess sem dregið yrði úr tekjutengingu. Með þessu er
verið að standa við loforð sem gefið var í tengslum við
kjarasamninga og gott betur. Lækkun skatta er alltaf fagn-
aðarefni en ekki skiptir síður máli að stefnt skuli að því
að minnka tekjutengingu barnabóta. Skattkerfi sem bygg-
ir á umfangsmiklum tengjutengingum, líkt og íslenska
skattkerfið gerir, er ekki aðeins óhagkvæmt heldur ósann-
gjamt.
Hækkun barnabóta er hins vegar léttvæg þegar litið er
á heildina, en ákvörðun ríkisstjórnarinnar sýnir að vilji
er til að láta almenning njóta góðrar afkomu ríkissjóðs. Þá
hefur Davíð Oddsson forsætisráðherra lýst yfir vilja til að
fella niður eignarskatta, enda slíkt réttlætismál.
Viðskiptablaðið hvatti til þess í úttekt síðastliðinn mið-
vikudag að skattar yrðu lækkaðir umtalsvert og bendir á
einfalda staðreynd: „Fjármálaráðuneytið telur að af 30
milljarða króna afgangi skv. frumvarpi til fjárlaga næsta
árs séu um 15 milljarðar tekjuauki vegna góðærisins, en
15 milljarðar séu „raunverulegur“ afgangur sem halda
muni sér í venjulegu árferði. Samkvæmt því virðist því
vera svigrúm til að lækka skatta um að minnsta kosti 15
milljarða króna strax á næsta ári án þess að grípa til
nokkurs niðurskurðar eða endurskipulagningar á starf-
semi ríkisins.“
Tekjur ríkissjóðs af sköttum á einstaklinga og fyrirtæki
hafa hækkað verulega á undanförnum árum. Viðskipta-
blaðið bendir á að í nýútkominni skýrslu um samkeppnis-
hæfni landa komi fram að skattar á meðaltekjur hér á
landi séu með því hæsta sem þekkist. Aðeins Danir eru
með hærri skattprósentu á meðaltekjur en 59 lönd eru í
úrtaki skýrslunnar. Þessi staðreynd ætti að vekja forystu-
menn stjórnarflokkanna til umhugsunar og brýna fjár-
málaráðherra til góðra verka.
Viðskiptablaðið bendir á marga skatta á einstaklinga og
fyrirtæki sem vert sé að lækka eða fella niður en telur að
flest rök hnígi að því að mikilvægast sé að lækka skatta á
lögaðila. „Skattalækkanir til heimilanna eru liklegri til
þess að hafa þensluhvetjandi áhrif og lækkaðar álögur á
lögaðila myndu hjálpa fyrirtækjunum við að standast
þrýsting til verðhækkana vegna kostnaðarhækkana að
undanförnu.“ Blaðið leggur til að skattar verði lækkaðir
um nær 14.700 milljónir króna og munar þar mestu um
niðurfellingu stimpilgjalda, lækkim skatthlutfalls lögaðila
og lækkun tryggingagjalds. Þá minnir Viðskiptablaðið
enn og aftur á þá staðreynd að hátekjuskatturinn hafi átt
að vera timabundinn skattur.
Tillögiu: Viðskiptablaðsins í skattamálum eru skynsam-
legar og Geir H. Haarde, fjármálaráðherra gerði margt vit-
lausara en að hrinda þeim í framkvæmd.
Óli Björn Kárason
4H
____________________________________MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000_MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
DV
Skoðun
Heilbrigðisþjónustan:
Einkavæðing - sameining
„Öruggt og traust eftirlit œtti að tryggja hag sjúklinga.
En tvöföldun tœkjakosts, mannafla og aðstöðu í há-
tœknigreinum þar sem fjöldi aðgerða er lítill eða sam-
keppni sem leiddi til minni sérhœfingar væri óvit. “
Sjálfstæðisflokkuriim virð-
ist þessa dagana takast á við
skipulagsmál heilbrigðisþjón-
ustunnar. Reykjavíkurbréf
Morgunblaðsins fjallaði um
daginn um þetta mál og þar
er oft tekið á málum með at-
hyglisverðum og fróðlegum
hætti. Að mínu viti geta
einkarekstur og ríkis- eða
sveitarfélagarekstur á heil-
brigðisþjónustu vel átt sam-
leið við ákveðnar aðstæður. í
okkar þjóðfélagi eru þó
ákveðin takmörk fyrir slíkri
samkeppni, takmörk sem kunna að
vera rýmri í stærri samfélögum.
Auðvelt kann að vera að einkavæða
eða dreifa heilbrigðisþjónustu sem er
þess eðlis að sjúklingar eru margir, að-
gerðir eða meðferðir tíðar og kostnað-
ur vegna tækja viðráðanlegur. í þeim
tilvikum þegar um er að ræða sjúk-
dóma með litla tíðni, fáa sjúklinga á
ári, getur samkeppni beinlínis skaðað
bæði sjúklinga og samfélag.
Ör þróun og aukin sérhæfing
Ör þróun innan læknisfræðinnar
hefur leitt af sér sérhæfðan
og dýran tækjabúnað sem
stöðugt er endurbættur. í fá-
mennu landi er ógjömingur
að fjárfesta 1 mörgum tækj-
um af sama tagi þegar þörf er
bundin við fáa einstaklinga.
Slíkt mundi aðeins verða til
þess að við drægjumst aftur
úr. Mikil fjárfesting í ákveðn-
um tækjabúnaði og aðstöðu
leiðir til þess að önnur tæki
og aðstaða yrði að bíða. Það
þýðir aftur að við gætum
ekki veitt þjónustu í sam-
ræmi við það besta sem gerist. Það
liggur því beint við að þar sem um er
að ræða sjaldgæfa sjúkdóma, fáa sjúk-
linga og dýr tæki og aðstöðu er sam-
þjöppun þjónustu nauðsyn.
Nútíma þjóðfélag kallar á sér-
hæfingu
Dreifmg umfangsmikillar almennr-
ar þjónustu virðist við fyrstu sýn vera
tilvalin og leiða til samkeppni. Þá er
þess að gæta að dreifing gerir erflðara
um vik með sérhæfingu. Tökum til
dæmis geðlækningar. Er nokkur
ástæða til þess að sameina geðdeildir
tveggja sjúkrahúsa? Er það ekki dæmi
um þjónustu sem hentar að dreifa,
veita víða og e.t.v. koma á samkeppni?
Vel má vera en geðsjúkdómar eru
margs konar. Á minni deildum geta
læknar ekki sérhæft sig til að takast á
við ákveðna sjúkdóma. Þeir verða að
leysa þau vandamál sem að höndum
ber.
Það liggur í augum uppi að sérhæf-
ing hlýtur að leiða til bestu þjónustu
við sjúklinga. Þannig getur dreifing
þjónustu leitt til verri vinnubragða og
minni gæða. Við megum ekki gleyma
því hve fá við erum. Meginmarkmið
hlýtur að vera að gæði þjónustunnar
verði sem mest.
Hins vegar þarf að varast ópersónu-
legar risaeiningar, bákn sem éta pen-
inga og lúta ekki bestu stjórnunarað-
ferðum, lifa sínu eigin lífi.
Útboð undir öruggu eftirliti
Ég sé ekkert þvi til fyrirstöðu að
bjóða út rekstur heilsugæslustöðvar
samkvæmt vel skOgreindum þjónustu-
skilyrðum og undir öruggu eftirliti.
Vel má líka hugsa sér að gera þannig
þjónustusamninga um rekstur ákveð-
inna deilda. Ef til vill er það leið til
þess að bæta kjör starfsfólks um leið og
þess er freistað að ná fram hagræð-
ingu.
Öruggt og traust eftirlit ætti að
tryggja hag sjúklinga. En tvöfóldun
tækjakosts, mannaíla og aðstöðu í há-
tæknigreinum þar sem íjöldi aðgerða
er litill eða samkeppni sem leiddi til
minni sérhæfmgar væri óvit,
Guðmundur G. Þórarinsson
Guðmundur G.
Þórarinsson
verkfræOingur
Af menningarhátíðum
Erlend nemönd (meiraðsegja barna-
barn Kjarvals og Louisu Matthíasar-
dóttur!) hélt hjá mér fyrirlestur um ís-
lenska myndlist og talaði um hvað hún
væri alþýðleg; allir tjáðu sig um mynd-
list, keyptu hana og hefðu á henni
skoðanir, öfugt við New York þar sem
myndlistin væri einungis ætluð út-
völdum.
Þarna hafði ég á einum mánuði tek-
ið (með einum eða öðrum hætti) þátt í
þremur menningarhátíðum: bók-
menntahátíð, kvikmyndahátíð og
Smekkleysuhátíðinni Orðið tónlist.
Allar eru þessar hátíðir partur af dag-
skránni á menningarborgarári Reykja-
víkur. Eftir þetta hátíðamaraþon - og
orð stúlkunnar - fór ekki hjá því að ég
færi brjóta þreyttan heilann (alltaf
hættulegt) um menningu, menningar-
borg og hvort ekki fyndust djúpir neð-
anjarðarhellar þar sem gleyma mætti
allri menningu. (Heimilið er í rúst
vegna ofneyslu menningar, gæludýrið
að lotum komið vegna vanrækslu og
fjölskylda og vinir búnir að gleyma því
að ég sé til.)
„Seif“ uppákoma
allavega hvað varðaði inni-
hald - bókmenntir, kvik-
myndir, tónlist, en það sem
sló mig mest voru hinar
ólíku nálgunarleiðir á sam-
setningu menningarveislu-
borðsins.
Bókmenntahátíðin var á
allan hátt ákaílega „seif ‘ upp-
ákoma. Þarna fékk bók-
menntaþjóðin á einu bretti
fjölbreytt úrval viðurkenndra
höfunda og gat notið þeirrar
ánægju að hlusta á þá lesa úr
verkum sinum eða spjalla á
pallborðum við fræðifólk og rithöf-
unda. Allt var þetta með ákaflega finu
menningarlegu yfirbragði, ekkert kom
á óvart: þarna var búið að búa til ör-
uggan menningarpakka sem var rétt
matreiddur ofan í rétta markhópinn og
tókst með afbrigðum vel til.
Kvikmyndahátíð hafði sama yfir-
bragð öruggrar markaðssetningar
menningar. Almenningur skundaði
hlýðinn í bíó, enda búið að margsegja
honum að kvikmyndahátíð sé eini tím-
inn sem óhætt sé að fara i bíó, stundin
sem menningarvitinn lýsir upp
myrkviði afþreyingarinnar. í opnunar-
ræðum hátíðarinnar var þetta undir-
strikað, kvikmyndahátíð býður upp á
gæðamyndir sem eru eitthvað allt ann-
að en afþreyingarfóðrið.
Gæðamerki á jakkaboðungn-
um
Það var því óneitanlega nokkuð at-
hygli vert að opnunarmyndin sjálf,
Crouching Tiger, Hidden Dragon, er
undir miklum áhrifum frá afþreying-
arefni, bæði hinum nývinsælu Hong
Kong-kvikmyndum og japönskum
myndasögum, og brúar í raun þetta bil
milli fagurmenningar og afþreyingar.
Orðið tónlist, hátíð talaðr-
ar tónlistar, var einmitt há-
tíð sem brúaði bil, hrærði
hraustlega upp í hefðbundn-
um menningaruppskriftum
og flækti markalínur; bauð
upp á blöndu af hinu háa og
lága og öllu þar á milli.
Rapp, popp, framúrstefhu-
tónlist, ljóðskáld, popptextar,
rímur og klassískur söngur;
allt óð þetta hvað innan um
annað og gekk þversog kruss
yfir allar haganlegar menn-
ingarpakkahugmyndir.
í inngangi menningarborgarbók-
lingsins er menning skilgreind sem
það sem vel er gert. Bókmennta- og
kvikmyndahátíðirnar báru vissulega á
jakkaboðungnum merki gæða, meðan
Orðið tónlist tók meiri áhættu hvað
varðaði viðteknar hugmyndir um
gæði.
Fyrirframgefnar hugmyndir?
Og þá koma vangavelturnar: Er það
virkilega orðið hlutverk menningar að
styrkja og staðfesta fyrirframgefnar
hugmyndir okkar um hvað er góð
menning, líkt og gerðist á bókmennta-
og kvikmyndahátíð - en ekki á Orðinu
tónlist? Mun þessi vel matreidda
menning, pökkuð inn í smekklegar
umbúðir vera það sem stendur eftir
þegar menningarborgar(a)árið er liðið?
Og góðborgararnir nikka virðulega
kolli hver til annars í lok árs, ánægðir
með sjálfa sig og borgina sína, öruggir
í þeirri vissu að menningin er traust,
góð og umfram alit í fóstum skorðum.
- Ef það er þetta sem er til marks um
alþýðleik íslenskrar menningar þá er
hún í vondum málum.
Úlfhildur Dagsdóttir
Allar voru þessar hátíðir ólíkar,
„Og góðborgararnir nikka virðulega kolli hver til ann-
ars í lok árs, ánœgðir með sjálfa sig og borgina sína, ör-
uggir í þeirri vissu að menningin er traust, góð og um-
fram allt í föstum skorðum. “
Úlfhildur
Dagsdóttir
bókmenntafræöingur
í ensku knattspymunni í vetur?
Meistarakaup hjá Wenger
„Maður heyröi
miklar efasemd-
arraddir í upphafi
tímabils og gat
ekki gert ráð fyrir góðum ár-
angri þar sem við misstum tvo
lykilmenn, Petit og Overmars,
úr liðinu. En þau kaup sem
meistarinn (Wenger) gerði Bjorns- v*ss um Arsenal sé að fara
hafa skilað sér frábærlega og son, formaður inn í sitt besta leiktímabil
gera það mun fyrr en hann stuðnsngs- lengi og til marks um það er
sjálfur og flestir aðdáendur marmaklúbbs liðið búið að vinna bæði
vonuðust til. Arsenai Manchester United og Liver-
Liðiðer stöðugt og á ekki slæma leiki pool og þegar það gerðist síðast var
inn á milli. Menn eru alltaf að tala um Arsenal-liðið tvöfaldur meistari."
að vörnin sé orðin gömul en
hún er eins og rauðvínið, fer
bara batnandi með aldrinum.
Ég held að þurfi einn mann
með Viera á miðjunni og um
leið og við finnum hann hef ég
engar áhyggjur af þessu. Ég er
tiltölulega bjartsýnn og ég er
• •
Orugg sigling að titlinum
r„Þrátt fyrir geysi-
lega mikið álag og
meiðsli lykil-
manna á undan-
fornum vikum hafa leikmenn
Manchester United staðið
undir væntingum áhangenda
sinna.
Liðið er efst í úrvalsdeild-
inni, hefur skorað flest mörk
allra liða í úrvalsdeildinni,
fimm mörkum meira en það
\
i
Eiríkur Jóns-
son haróur
stuöningsmaó-
ur Man. Utd
lið sem kemur næst og einnig er lið- fyrir sigurhátíðinni á Old Trafford.
ið er með mesta markamuninn, átján Manchester er einfaldalega besta
mörk. Bráðlega tryggir liðið áfram- liðið á Englandi í dag.“
hald í Meistaradeild Evrópu,
sigur á Dinamo Kiev nægir
til þess að komast áfram í
næstu umferð þangað sem
United hefur átt fast sæti
undanfarin ár, eitt enskra
liða.
Veturinn verður örugg sigl-
ing í átt að enn einum Eng-
landsmeistaratitiinum og ég
sé ekki að Arsenal eða önnur
lið eigi möguleika á að spila
Arsenal hefur unnið bæöi Manchester United og Liverpool í fyrstu leikjum ensku knattspymunnar og er á toppnum ásamt Manchester. Liðiö hefúr verið á frábæru skriði og
hefur ekki tapað í 14 leikjum auk þess að vinna sanrrfærandi sigur í sínum riðli í meistarakeppninni á meðan önnur ensk lið hafa átt þar í miklum vandræðum.
Ummæli
Rómantískt friðarfyllerí
„Islenskir ráða-
menn verða að vakna
af því rómantíska
friðarfylleríi sem þeir
hafa verið á undan-
farin ár. Því lengur
sem þeir eru í
vímunni, því meiri
verða timburmennirnir sem við fáum
að kenna á í framtíðinni. Engin fram-
tíð er í þvi að halda áfram stuðningi
við öfgastefnu Bandaríkjanna í Mið-
Austurlöndunum, sem hefur byggst á
tveimur pólum sem geta aldrei gengið
upp.“
Ástþór Magnússon, stofnandi Friðar
2000, Mbl. 27. okt.
Allt fyrir Reykjavík
„Þvert gegn því
sem stjórnvöld halda
fram þá hefur
byggðastefna sú, sem
hér hefur verið rekin
á undanfornum
árum, fyrst og fremst
miðast við það að
efla höfuðborgarsvæðið á kostnað
landsbyggðarinnar... Stjórnvöld hafa
stýrt nær allri erlendri fiárfestingu og
uppbyggingu þekkingar- og upplýs-
ingagreina inn á höfuðborgarsvæðið
og er því ekki að undra að byggða-
röskunin verði svo mikil hér á landi.“
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskól-
ans á Akureyri, Dagur 27. okt.
Hagkvæmt að auka
einkarekstur
„Ein leið a.m.k. er sú að skjóta
fleiri stoðum undir heilbrigðisþjónust-
una, og það yrði hagkvæmast og skjót-
virkast með auknum einkarekstri.
Það á bæði við um þjónustu, sem boð-
in er út af opinberum heilbrigðisstofn-
unum, og með því að bjóða sjúkling-
um upp á þjónustu í einkareknum
sjúkrahúsum og aðgerðarstofum. Að
sjálfsögðu þarf opinbera heilbrigðis-
kerfið að sinna þörfum landsmanna
áfram. í velferðarþjóðfélagi er það og
verður undirstaðan."
Úr forystugrein Mbl. 27. okt.
Útúrsnúningar um
lífeyrissjóðina
a„Lifeyrisskuldbind-
ingar vegna ráðherra
og þingmanna hækk-
uðu um litlar 903 millj-
ónir'í fyrra ... Umræða
um lífeyrissjóði á ís-
landi einkennist af út-
úrsnúningum og hreinræktaðri lygi.
Þegar ráðamenn eru að hæla sér af
góðri stöðu llfeyrissjóða og miða viö
önnur lönd rugla þeir saman, viljandi
eða af fávísi, söfnunarsjóðum laun-
þega á vinnumarkaði og gegnum-
streymissjóðum hins opinbera."
Oddur Ólafsson blm., Dagur 27. okt.
Matar-
diskum
s\mm\
Hverju halda
þau uppi?
°° s jas"*’ «i*M*
v. *.V. cii
. Ú ** ‘v
„
& w
P\ÍT- Tpi5UN&Wm£?Vl£E
„Heimurinn er heimacc
Á ráðstefnu um fiöl-
menningarsamfélag á ís-
landi, sem haldin var á
Grand Hóteli 12ta október,
kom fram að tæplega 500
manns höfðu svarað spurn-
ingum sem Gallup hafði
sent til 2000 einstaklinga af
erlendum uppruna um land
allt. Af þeim hópi, sem ein-
ungis var tæpur fiórðungur
aðspurðra, höfðu 70%
stundað nám í islensku, en
85% töldu að skylda bæri
útlendinga, sem hygðust
setjast að í íslandi, til að læra málið.
Ennfremur kom fram að þriðjung-
ur foreldra bama í leikskólum sagði
þau hafa fengið stuðning vegna
tungumálaerfiðleika og annarskonar
aðlögunarvanda, en fimmtungur
þeirra sem ekki fengu stuðning
þurfti á honum að halda. Tæpur
helmingur foreldra bama í skólum
kvað börnin hafa fengið stuðning, en
tæp 40% þeirra sem ekki fengu
stuðning þurftu á honum að halda.
Hryggileg saga
Þessar tölur segja hryggilega sögu
um aðbúnað útlendinga sem hingað
flytjast. Ljóst má vera að meirihluti
þeirra hefur fullan hug á að læra
tungu landsmanna, en möguleikar
til þess eru næsta fátæklegir. Not-
hæfar kennslubækur eru engar til og
námskeið sem bjóðast eru bæði rán-
dýr og ófullburða.
Hér hafa yfirvöld fræðslumála
hrapallega brugðist, og mætti með
hæfilegri illkvittni gera því skóna,
að hérlendir ráðamenn hafi lítinn
sem engan skilning á sóuninni sem
felst í því að sniðganga og vanrækja
stóran hóp þegna, sem eru ekki ein-
ungis verðmætt vinnuafl, heldur
færa þjóðinni að auki mikilsverð
andleg verðmæti, auðga menningu
okkar, gera hana fiölbeyttari, lífvæn-
legri og litríkari.
Aðfluttir útlendingar eru
mannauður sem hver heilvita íslend-
ingur á að fagna og stjórnvöldum ber
að veita alla hugsanlega fyrir-
greiðslu, þannig að þeir fái sem best
aðlagast íslensku samfélagi. Danir
hafa séö sóma sinn í að leggja árlega
fram 20 milljónir króna til að efla og
bæta dönskukennslu á íslandi.
Fimm- eða tífalda þá summu ættum
við að leggja fram til að auðvelda að-
komufólki aðlögun að lífsháttum
okkar.
„Nýbúar“ litnír hornauga
íslendingar bjuggu til nýyrðið
„nýbúar" og var eflaust gert í fróm-
um og jákvæðum tilgangi, en orðið
hefur í meðfórum almennings
smámsaman fengið tiifinn-
ingahlaðið og neikvætt inn-
tak, virðist einkum vera
haft um innflytjendur frá
Asíu, Afríku og Suður-Am-
ríku. Hvernig skyldi íslend-
ingum, sem sest hafa að á
Norðurlöndum eða í Þýska-
landi, verða við ef þeir
fengju á sig stimpil nýbú-
ans?
Ekki er ósennilegt að
þessi orðnotkun eigi beinan
eða óbeinan þátt í þeim við-
brögðum landsmanna sem
margir innflytjendur kvarta undan.
70% þeirra kvarta undan afskipta-
leysi innfæddra, 50% hafa ekki feng-
ið ákveðna þjónustu vegna erlends
uppruna, 50% hafa orðið fyrir því að
talað væri niður til þeirra af sömu
sökum, 45% hafa mátt þola dónaleg-
ar athugasemdir og 15% hótanir. Við
höfum oft stært okkur af að vera
lausir við kynþáttafordóma, en sann-
leikurinn er sá, að grynnra á for-
dómum en margur fæst til að játa.
Þær fasísku tilhneigingar, sem lesa
má útúr ýmsum yfirlýsingum ungra
sjálfstæðismanna, sem og aðrir við-
líka hleypidómar eiga rætur að rekja
til djúplægrar vanmetakenndar sem
elur af sér nesjamennsku og bróður
hennar, sjálfbirging.
Hlægileg firra
Að skylda alla útlendinga, sem ' '
hyggjast setjast að á íslandi, til að
læra tungu landsmanna er í besta
fafli hlægileg firra en i versta falli
skýlaust brot á öllum mannréttinda-
sáttmálum sem Islendingar eiga að-
ild að. Sennilega voru þau 20% að-
spurðra útlendinga, sem voru hlynnt
þeirri hugmynd, búin að læra ís-
lensku og létu ógert að hugsa málið
til enda. Hinsvegar ber okkur skylda
til að veita öllum, sem fmna hjá sér
þörf til að læra málið, allan þann
stuðning sem þeir þurfa á að halda,
og þá ekki síst bömum og ungling-
um. „Heimurinn er heirna" í því fiöl-
menningarsamfélagi sem er í burð-
arliönum hérlendis
Sigurður A. Magnússon f
„Aðfluttir útlendingar eru mannauður sem hver heil-
vita íslendingur á að fagna og stjómvöldum ber að
veita alla hugsanlega fyrirgreiðslu, þannig að þeir fái
sem best aðlagast íslensku samfélagi. “ - íslensku-
kennsla fyrir útlendinga.
Siguröur A.
Magnússon
rithöfundur