Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 26
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000 I>V Ættfræði___________________ Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára________________________ Hólmfríður Magnúsdóttir, ' Skólastíg 14a, Stykkishólmi. 85 ára_______________________ Gunnþórunn Markúsdóttir, Hrafnistu, Reykjavík. Jóhann Ágústsson, Hrafnistu, Reykjavík. 75 ára_______________________ Jón Gunnarsson, Klettahrauni 15, Hafnarfiröi. 70 ára_______________________ Inga Ásta Eiríksdóttir, Efstasundi 53, Reykjavik. Inger Sigfúsdóttir, Krummahólum 4, Reykjavík. , €rna Margrét Haraldsson, Melasíöu lOd, Akureyri. Petrea Aöalheiður Gísladóttir, Kirkjuvegi 14b, Ólafsfirði. Guðný Alberta Hammer, Lækjarbraut 2, Hellu. Guðbjörg Ásdis Guðmundsdóttir, afgreiðslustjóri hjá íslandsbanka á Súöavík, Vallargötu 4, Súöavík. Eiginmaöur hennar var Valdimar Össurarson sjómaöur sem lést 1980. Ásdis verður aö heiman. Siguröur B. Sigurðsson, Hallveigarstíg 9, Reykjavík. Jóhannes Óskarsson, Hrafnhólum 6, Reykjavík. Helga Þórðardóttir, Álfaskeiði 94, Hafnarfirði. Guðlaugur Þ. Sveinsson, Knarrarbergi 5, Þorlákshöfn. 50 ára_______________________________ Róbert Hlöðversson, Ingólfsstræti 12, Reykjavík. Örn Gústafsson, Gljúfraseli 1, Reykjavík. Gunnar J. Gunnarsson, Hraunbæ 144, Reykjavík. Dóróthea Antonsdóttir, Yrsufelli 8, Reykjavík. .» Smári Guðmundsson, Selbraut 14, Seltjarnarnesi. Bjöm K. Björnsson, Blómvangi 4, Hafnarfiröi. Ágúst Hilmarsson, Holtagötu 6, Akureyri. Anette Jensen, Lækjargötu 14, Akureyri. 40 ára_______________________________ Inga Kolbrún Mogensen, Bakkastig 3, Reykjavík. Halldór Guömundsson, Dúfnahólum 4, Reykjavík. Guðjón Karl Guðmundsson, Orrahólum 7, Reykjavík. Ólafur Einarsson, Hulduborgum 15, Reykjavík. Margrét Björk Magnúsdóttir, Hvannarima 2, Reykjavík. Hugrún Auður Jónsdóttir, Hörgsholti 25, Hafnarfirði. Sarah Josephine Grant, Öldugötu 44, Hafnarfiröi. Þorgeir Guðmundsson, Selsvöllum 4, Grindavík. Alda Sólveig Elíasdóttir, Bjarmalandi 13, Sandgeröi. Hjördis Kristinsdóttir, Suöurgötu 32, Sandgeröi. Anton Gunnlaugur Kristinsson, Háseyiu 41, Njarövík. Bessi Skírnisson, Duggufjöru 8, Akureyri. Eddy Oosterbaan, Hafnarbraut 45a, Höfn. 60 ara Persónuleg, alhlifia útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrír Olsen Baldur Fredriksen útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Sufiurhlf&35 • Sfmi 581 3300 allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is; Sgxttfgur Úlfar Guðmundsson prófastur á Eyrarbakka Ulfar Guömundsson, sóknarprestur á Eyrarbakka og prófastur Árnessprófastsdæmis. Úlfar Guömundsson prófastur, Túngötu 20, Eyrarbakka, er sextug- ur í dag. Starfsferill Úlfar fæddist í Reykjavík. Hann lauk verslunarskólaprófi frá VÍ 1959, stúdentsprófi 1961, stundaði nám í læknisfræði við HÍ 1961-63, lauk guðfræðiprófi frá HÍ 1972 og kennaraprófi frá KHÍ 1992. Úlfar stundaði almenn störf til sjávar og sveita á unglingsárum, var lögregluþjónn í Reykjavík 1965-70, og stundaði trilluútgerð á handfæraveiðar á Gulltoppi ÓF 33, 1974-80. Úlfar var sóknarprestur í Ólafs- fjarðarprestakalli 1972-76 og 1976-80, skipaður biskupsritari um hríð 1976, þjónaði jafnframt í Dal- víkurprestakalli 1978 og 1979 og í af- leysingum í Siglufirði 1972-80, skip- aður sóknarprestur í Eyrarbakka- prestakalli 1980, settur fangaprestur á Litla-Hrauni 1983-84, þjónaði jafn- framt í afleysingum í Þorlákshöfn til 1997 og Selfossprestakalli frá 1998 og var skipaður prófastur i Ámess- prófastsdæmi 1997. Úlfar var kennari við Bama- og gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar 1972-80, við Bamaskólann á Eyrar- bakka 1981-96 og kennari þar í hálfu starfi 1996-97, kennari við Iðnskóla Selfoss 1981, á Litla-Hrauni 1981 og við Grunnskólann á Stokkseyri 1984-97. Úlfar var formaður Málfundafé- lags Verslunarskóla íslands 1958-59, sat í stjóm Vöku 1962, í stjóm LlN 1968-69, í Stúdentaráði 1967-69, full- trúi stúdenta í Háskólaráði 1968-69, formaður skólanefndar Húsmæðra- skólans á Löngumýri 1976-77, í framkvæmdastjóm byggingamefnd- ar elliheimilis og heilsugæslustöðv- ar í Ólafsfirði 1972-80, í kjörstjóm Ólafsfjarðarkjördeildar 1974-80, í skólanefnd Ólafsfjarðar 1978-80, for- seti Rotaryklúbbs Ólafsfjarðar 1979-80, í félagsmálanefnd eldri borgara og öryrkja á Eyrarbakka 1982-86, skoðunarmaður hrepps- reikninga Eyrarbakkahrepps 1982-98, skoðunarmaður Sel- fossveitna frá 1992, í sáttanefnd Eyr- arbakka 1982-86, í áfengisvamar- nefnd Eyrarbakka 1988-94, formað- ur Bridsfélags Selfoss 1985-86, i Kjaranefnd Prestafélags íslands 1985-87, í stjóm Hjálparstofnunar kirkjunnar 1987-92, gjaldkeri Prestafélags Suðurlands 1987, ritari Prestafélags Suðuriands 1989-92, fyrsti formaður siðanefndar Presta- félags íslands frá 1994, í sfjóm Prestssetrasjóðs 1998-99, í stjóm Bridsfélags Hyeragerðis, gjaldkeri Prófastafélags íslands frá 1999. Úlfar hefur spilað keppnisbrids í áratugi, hefur oftsinnis sungið með blönduðum kórum og karlakór, lærði á píanó hjá Áma Bjömssyni, Katrínu Viðar og Mána Siguijóns- syni, lærði á pípuorgel hjá Sigurði ísólfssyni og tónfræði hjá dr. Róbert Abraham Ottóssyni og hafði kirkju- tónlist aö sérefni til embættisprófs í guðfræði. Hann hefur oft leikið ein- leik á orgel við kirkjulegar athafnir svo sem skím eða kistulagningu. Fjölskylda Úlfar kvæntist 26.7. 1969 Gunn- þóru Freyju Jóhannsdóttir, f. 13.11. 1944, sérkennara. Þau skildu 1990. Böm Úlfars og Gunnþóru Freyju eru Guðmundur Freyr Úlfarsson, f. 18.10.1970, B.SC. í eðlisfræði og tölv- unarfræði og M.SC. i samgöngu- verkfræði og stundar þar doktors- nám í samgönguverkfræði; Anna Kristín Úlfarsdóttir, f. 28.7.1974, lög- fræðingur hjá Eimskip en sambýlis- maður hennar er Sigmar Jack, læknanemi. Úlfar kvæntist 2.7. 1994 Herborgu Pálsdóttur, f. 21.1. 1960, hjúkrunar- konu og ljósmóðir. Böm Herborgar eru Herdís Sigur- grímsdóttir, f. 29.8. 1980, stúdent; Hildur Sigurgrímsdóttir f. 12.1.1986, nemi. Dóttir Úlfars og Herborgar er Guðrún Úlfarsdóttir, f. 14.8.1996. Systir Úlfars er Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 10.3. 1945, kaupmað- ur í Reykjavík Foreldrar Úlfars: Guðmundur Einar Páll Grímsson, f. 15.12. 1905 í Gröf í Laugardal, d. 4.4. 1979, hús- gagnasmíðameistari í Reykjavík, og Ingveldur Stefanía Runólfsdóttir, f. 19.7. 1886, d. 12.9. 1974, kaupmaður í Reykjavík. Siguröur Gunnarsson járnsmíðameistari á Akranesi Sigurður Gunnarsson jámsmíða- meistari, Vallarbraut 1, Akranesi, er sjötugur í dag. Starfsferill Sigurður fæddist í Reykjavík og ólst þar upp við Ránargötuna. Hann var í Miðbæjarskólanum, stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík, lærði jámsmíði og lauk prófum í þeirri iðngrein. Á sinum yngri árum stundaði Sigurður sjómennsku. Hann starf- aði síðan í Stálsmiöjunni, í Stálvík og í Stálveri. Auk þess stundaði hann verslunarrekstur um árabil. Sigurður flutti á Akranes 1992, hóf þar störf hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts sem nú heitir Skaginn hf. og starfar þar enn. Fjölskylda Sigurður kvæntist 24.12. 1955 Svandísi Helgadóttur, f. 8.6. 1931, húsmóður. Hún er dóttir Helga Hólm Halldórssonar múrarameist- ara og Helgu Ragnheiðar Hjálmars- dóttur húsmóður en þau voru búsétt á ísafirði. Böm Sigurðar og Svandísar em Gunnar Helgi, f. 12.9. 1956, tækni- fræðingur í Reykjavík, kvæntur Valgerði Skúladóttur, f. 30.6. 1956, og eru böm þeirra Hild- ur Pála, f. 26.4. 1976, í sambúð með Guðjóni Guðjónssyni, Inga Rán, f. 28.3. 1985, Atli Freyr, f. 16.1. 1987, og Iflugi Þór, f. 22.7. 1988; Auður, f. 17.12. 1959, lyfjatæknir á Akranesi en synir hennar eru Amar Helga- son, f. 22.7. 1984, og Steinar Helga- son, f. 3.9. 1987; Hólmfríður, f. 30.11. 1960, verslunarmaður á Akranesi, í sambúð með Sturlu J. Aðalsteins- syni, f. 31.1. 1959, stýrimanni og em böm þeirra Sigurður Már, f. 22.12. 1982, Svandís Hlíf, f. 3.5. 1991, og Snorri, f. 6.4.1993. Systkini Sigurðar eru öll látin en þau vom Regína húsmóðir; Margrét starfsstúlka; Gunnar húsasmíða- meistari. Foreldrar Sigurðar voru Gunnar Gunnarsson, f. að Rifshalakoti í Rangárvallasýslu 11.2. 1895, verka- maður í Reykjavik, og Hólmfríður Sigurðardóttir, f. að Kóngsstöðum í Skíðadal 3.1. 1895, húsmóðir í Reykjavík. Sigurður verður að heiman á af- mælisdaginn. Fertug Kristín Erna Arnardóttir kvikmyndagerðarmaður á Hvolsvelli Kristín Erna Amar- dóttir kvikmyndagerðar- maður, Steinum n, Hvols- velli en búsett um þessar mundir í Barmahlíð 44, Reykjavík, er fertug í dag. Starfsferill Kristin fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk stúdents- prófum frá MR 1981. Kristín starfaði við upptökustjórn hjá ríkissjónvarpinu, og síðan við kvikmyndagerð sem upptökustjóri, framkvæmdastjóri eða aðstoðarleik- stjóri frá 1986. Hún hefur verið með eigin rekstur á sviði ferðaþjónustu á sumrin frá 1995. Kristín er einn af stofnendum og eigendum Fossbúans ehf. á Skógum undir Eyjafjöllum. Fjölskylda Kristín giftist 11.6. 1994 Bárði Óla Kritjánssyni, f. 19.7. 1966, leik- myndasmið og leiðsögumanni. Hann er sonur Kristjáns Guð- mundssonar og Ólafar Báröardótt- ur, fyrrv. bænda að Steinum III í Hvolhreppi. Böm Kristínar Emu frá fyrra hjónabandi og Gunnars Smára Helgasonar hljóð- manns eru Helgi Hrafn Gunnarsson, f. 22.10.1980, forritari; Amdls Anna Gunnarsdóttir, f. 3.2.1982, nemi við VÍ. Þau eru bú- sett hjá móður sinni í Barmahlið. Alsystkini Kristínar Emu eru Baldvin Örn Amarson, f. 10.6. 1965, heildsali í Reykjavík; Helga Þórunn Amardótt- ir, f. 10.2. 1972, nemi í félagsfræði við HÍ. Hálfsystkini Kristínar Ernu, sam- feðra: Þórdís Bima Amardóttir, f. 25.5. 1977, skrifstofumaður, búsett í Noregi; Vilhjálmur Arnarson, f. 6.5. 1980, nemi í vélstjóm á Akureyri. Hálfbróðir Kristínar Emu, sam- mæðra: Ragnar Heiðar Ragnarsson, f. 30.12.1982, nemi í margmiðlun. Foreldrar Kristínar Emu eru Öm Bjömsson, f. 9.4. 1943, útibússtjóri Islandsbanka á Húsavík, og Hrafn- hildur Baldvinsdóttir, f. 31.8. 1942, bókari hjá Húsasmiðjunni í Reykja- vík. Kristín Ema verður við vinnu á afmælisdaginn en verður heima laugard. 4.11. nk. Merkír íslendingar TTalIgrímur Jónasson, kennari við Kenn- Xlaraskóla íslands, fæddist í Fremrikot- um í Skagafirði 30. október 1894, sonur Jónasar Hallgrímssonar, bónda þar, og k.h., Þóreyjar Magnúsdóttur húsfreyju. Hallgrímur var albróðir Frímanns Jón- assonar, skólastjóra í Kópavogi. Hallgrímur stundaði nám við Al- þýðuskólann að Hvítárbakka í Borgar- firði, lauk kennaraprófi frá Kennara- skólanum í Reykjavík 1920, stundaði nám við Kennaraháskólann i Kaup- mannahöfn og síðan við skólann í Askov og fór námsferð tfl Englands og fjölda slíkra ferða til Norðurlandanna. Hallgrimur var kennari við Bamaskólann i Vestmannaeyjum 1921-31 og bókavörður þar Hallgrímur Jónasson 1926-31 og síðan kennari við Kennaraskólann frá 1931-1968. Hallgrímur var einn af vinsælustu og virtustu kennurum Kennaraskólans um árabil en þegar verið var að koma upp fjölmennri kennarastétt til að stórauka almenna bamafræöslu hér á landi var ævistarf hans einkar mikilvægt. Hallgrímur var ágætur hagyrðingur og auk þess mikill áhugamaður um ferðalög, var fararstjóri hjá Ferðafélagi Islands i tuttugu sumur frá 1940, sat í stjóm félagsins 1944-1972 og var heið- ursfélagi þess og Útivistar. Þá hélt hann fjölda útvarpserinda, skrifaði mikið í Ár- bók Ferðafélagsins og samdi fjölda ferðalýs- inga. Hann lést 1991. Sigurður Emil Steingrimsson, Hátúni 25, Keflavík, verður jarösunginn frá Grindavikurkirkju mánud. 30.10. kl. 14.00. Ólafur Guölaugsson tæknifræöingur, frá Guðnastöðum, Fannafold 209, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánud. 30.10. kl. 13.30. Ingólfur J. Þórarinsson, Hjallaseli 55, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánud. 30.10. kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.