Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2000, Síða 2
I
2
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000
Fréttir
1>V
Ráðgátan um andlát og endurkomu Halldórs hagfræðinema í Texas:
Lánasjóður í klemmu
- systirin leitaði til Jóns Baldvins og ætlar að semja við Morgunblaðið
„Við erum að vinna í því að koma
Halldóri bróður okkar inn i kerfið á
ný og það er auðsótt. Allt lifið hefur
sinn rytma og það á einnig við um
mál Halldórs. Hins vegar er heimili
okkar núna umsetið af ljósmyndur-
um og þegar að því kemur ætlum við
að semja við Morgunblaðið og segja
sögu Halldórs þar,“ sagði Kristín ís-
leifsdóttir, systir Halldórs hagfræði-
nema sem týndist í Texas fyrir 12
árum og var fyrir löngu úrskurðaður
látinn þgar hann skaut óvænt upp
kollinum hér heima fyrir skemmstu.
Á 1973 ára fresti
„Það gerist ekki nema á 1973 ára
fresti eða svo að menn rísi upp frá
dauðum ef ég skil söguna rétt,“ sagði
starfsmaður hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna en Halldór var um skeið
viðskipavinur sjóðsins á meðan hann
stundaði hagfræðinám sitt í Texas
enda námið dýrt og ekki á færi ein-
staklinga að gera slíkt án lánveitinga
úr sjóðnum. Yfirstjórn Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna stendur frammi
fyrir vanda nú þegar afskrifaður við-
skiptavinur hans er allt í einu kom-
inn á ról á ný og ekki ljóst hvemig
við á að bregðast.
Niðurfelling lána
„Reglan er sú að öll lán sem eru
ógjaldfelld eru feUd niður við andlát
lánþega. Þetta eru lög sem gilda í öll-
um tilvikum og fyrir alla,“ sagði Stef-
án Aðalsteinsson, yfirmaður inn-
heimtudeildar Lánasjóðs íslenskra
námsmanna, í gær. Að öðru leyti
vildi hann ekki tjá sig um námsskuld-
Aðlögun
Hér dvelur Halldór Heimir á meöan hann aðlagast íslensku samfélagi.
ir Halldórs hagfræðinema en benti á
Steingrím Ara Arason, framkvæmda-
stjóra sjóðsins.
Einstakt og án hliöstæðu
„Ég get ekki rætt
málefni einstakra
námsmanna sem hér
hafa fengið lán,“
sagði Steingrímur
Ari en neitaði því
ekki aðspurður að
L - málefni Halldórs
.;jjr jfej hefðu verið rædd í
Steingrímur Ari Lánasjóðs-
Arason ms enda astæða til
þar sem dæmi Hall-
dórs sé einstakt og án hliðstæðu í
sögu sjóðsins. Er nú í skoðun hvern-
ig Lánasjóðurinn bregðist við í mál-
inu því alls ekki liggi ljóst fyrir hvort
afskrifaðar skuldir vegna andláts lán-
þega séu afturkræfar þegar hann
„lifnar við“ eins og ástatt er um mál
Halldórs í sjóðnum.
Sýndi keramik í Washington
Samkvæmt heim-
ildum DV leitaði
Kristín, systir Hall-
dórs, til Jóns Bald-
vins Hannibalsson-
ar, sendiherra í
Washington, og
æskti liðsinnis
hans í leitinni að
bróður sinum. Ekki
náðist í Jón Baldvin
í íslenska sendiráð-
inu ytra í gær en
herrafrú og
Bryndís
Schram
Bryndís sendi-
eiginkona Jóns Bald-
vins kannast vel við Kristínu.
„Kristín er heimilisvinur hjá okk-
ur eftir að hún sýndi kera-mikverk
sín hér á Connecticut Avenue ásamt
nokkrum öðrum íslenskum lista-
konum síðastliðið vor. Hvort hún
hafi þá borið þá ósk upp við Jón
Baldvin að hann liðsinnti henni í
leitinni að Halldóri veit ég ekki. Það
verður að spyrja Jón sjálfan að því,“
sagði Bryndís Schram í gær í síma-
viðtali úr sendiherrabústaðnum i
Washington.
Maður ársins?
Auk Lánasjóðs íslenskra náms-
manna er Vátryggingafélag íslands
að kanna stöðu sína í máli Halldórs
hagfræðinema en hann var tryggður
hjá Samvinnutryggingum þegar
hann hvarf og var líftrygging hans
greidd út með skilum eftir að hann
hafði verið úrskurðaður látinn.
Staða tryggingarfyrirtæksins er jafn
óljós og Lánasjóðs íslenskra náms-
manna þar sem málið er einstakt og
án fordæma hér á landi.
Enn er spurningunni ósvarað
hvað Halldór Heimir ísleifsson var
að aðhafast þau tólf ár sem hann var
talin látinn. Ung frænka hans, dótt-
ir Kristínar ísleifsdóttur, sagði þó
eftirfarandi í samtali við DV í fyrra-
kvöld.
„Ætli það sé ekki bara rétt sem
skólabróðir hans sagði í DV um dag-
inn,“ en þar átti stúlkan við um-
mæli Björns Hróarssonar, ritstjóra
og fyrrum skólafélaga Halldórs úr
Menntaskólanum i Kópavogi, en
Björn hafði fullan skilning á hvarfi
skólabróður síns og sagði orðrétt:
„Hann gerði það sem okkur alla
dreymir um en enginn þorir. Hall-
dór er maður ársins."
-EIR
Brotist inn í
verslanir
Brotist var inn í verslun í Þorláks-
höfn í nótt. Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi komust þjófarnir undan með 15
lengjur af sígarettum og á milli 40.000
og 50.000 í reiðufé. Einnig var brotist
inn í sælgætisverslun í Laugarási um
miðnætti i nótt og skiptimynt stolið úr
búöarkassa. Lögreglan á Selfossi er
með bæði málin í rannsókn og biður
hún þá sem gætu hafa orðið varir við
mannaferðir við verslanimar í Þor-
lákshöfn og í Laugarási í nótt að hafa
samband við sig. -SMK
Bíll skemmdur
Klukkan rúmlega þrjú í nótt tóku
tveir unglingspiltar sig til og lögðust
upp á vélarhlíf bDs sem lagt var í mið-
borg Reykjavíkur, við leigubilastöðina
í Lækjargötu. Piltamir spörkuðu
einnig í hurðina og spegilinn öku-
mannsmegin en höfðu sig svo á burt.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er
ekki vitað hvað piltunum gekk til. Hún
er með málið í rannsókn. -SMK
DV-MYND LÁRUS KARL
Forsetinn á Indlandi
Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, lagði í gær blómsveig við minnismerki Mahatma Gandhi, mestu þjóöhetju
Indverja. í dag heimsækja forsetinn og Dorrit draumastað elskenda, Taj Mahal.
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur:
Vill ítarlega rannsókn
- á efnistöku úr Faxaflóa - bein tilmæli til iðnaðarráöherra
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur hefur samþykkt að
beina því til iðnaðarráðherra að hið
fyrsta fari fram ítarlegar rannsókn-
ir á áhrifum efnisnáms í Faxaflóa
og á Sundum á lífríki og landbroti.
Slíkar rannsóknir eru að mati
nefndarinnar forsenda fyrir veit-
ingu frekari námaleyfa á svæðinu.
Ofangreinda samþykkt gerði um-
hverfis- og heilbrigðisnefnd nýverið
á fundi sínum. Auk þessa bendir
nefndin á að eðlilegt væri að um-
sagnarréttur sveitarfélaga vegna
leyfa til efnistöku í sjó væri rýmk-
aður út fyrir netalagnir, að minnsta
kosti á þeim svæðum þar sem sveit-
arfélög hafa hafnsögu.
DV fjallaði um þetta mál í sumar
þegar efnistaka Björgunar hf. i
Jarðefnanám
Dæluskipiö Perlan við vinnslu efna
úr sjó.
Kollafirði var harðlega gagnrýnd á
þeim forsendum að hún væri að
eyðileggja allar fjörur við Reykja-
vik. Iðnaðarráðherra hafði veitt fyr-
irtækinu leyfi til efnistökunnar til
næstu fimm ára, en ekki hefur far-
ið fram neitt umhverfismat á áhrif-
um efnistöku í sjó.
Á fundi umhverfis- og heilbrigð-
isnefndar var lögð fram greinargerð
um málið. Þar kemur fram að eng-
ar vísindalegar rannsóknir hafi far-
ið fram á áhrifum efnistöku í Faxa-
flóa á lífríkið. Þörf fyrir slikar
rannsóknir hafi margoft verið til
umræðu, enda brýn nauðsyn á að
þær fari fram. Fjárskortur hafi hins
vegar hamlað verkinu.
Þá segir að ljóst sé að malarnám
á grunnsævi hafi talsverð áhrif á
lífríkið. Við setdælingu myndist
djúpar gryfjur í hafsbotninn, sem
skapi hættu fyrir botndýr, svo sem
kúskel og hörpudisk. Þá geti malar-
nám hugsanlega spillt hrygningar-
svæðum og aukið seiðaafföll. Loks
geti efnistaka hugsanlega valdið
mengunarhættu, þar sem styrkur
PCB og fleiri þungmálma sé hærri í
sjávarseti í Kollafirði en víðast ann-
ars staðar við landið.
í greinargerðinni segir að fyrir-
liggjandi gögn séu algerlega ófull-
nægjandi til að hægt sé að taka af-
dráttarlausa afstöðu til áhrifa jarð-
efnanámsins á umhverfið. Ef
tryggja eigi að viðkvæm eða ein-
stök búsvæði verði ekki eyðilögð af
námavinnslu sé nauðsynlegt að
kanna hvers kyns lífríki sé til stað-
ar á fyrirhuguðum námasvæðum
áður en til framkvæmda komi,
þannig að hægt sé að skapa saman-
burðargrunn vegna síðari vöktunar
svæðisins eftir framkvæmdir og
meðan á þeim stendur.
-JSS
20 mil|jónir í RKÞsófnun
Samkvæmt tölum frá Rauða krossi
íslands höfðu í gær safnast um 19,5
milljónir í átakinu „Gengið til góðs“
sem fram fór á laugardaginn. Tekið
verður á móti framlögum í síma
næstu tvær vikur.
Afli undir mörkum
Varðskipið Óðinn stóð línubát að
meintum ólöglegum veiðum á Vest-
fjarðamiðum í síðustu viku. Skipverj-
ar línubátsins eru sakaðir um brott-
kast á smáfiski þar sem við mælingar
reyndist nærri helmingur aflans und-
ir leyfilegum mörkum Hafrannsókna-
stofnunar. Mbl. greinir frá.
-HKr.
Ekki einkavætt sjúkrahús
Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðisráð-
herra sagði á Al-
þingi i gær að það
væri ekki stefha rík-
isstjórnarinnar að
einkavæða heilt
sjúkrahús enda ekki
hægt að sjá að slíkt
væri fýsilegur kostur.
Enn deilt um Vatnsenda
Skiptar skoðanir eru um breyting-
artillögur meirihluta skipulagsnefnd-
ar Kópavogsbæjar á Vatnsendasvæð-
inu sem kunngerðar voru sl. föstudag.
Þær miða m.a. að því fresta byggingu
sex fjögurra hæða tjölbýlishúsa við
vatnið, eða alls 61 íbúðar af 113 og
fresta afgreiðslu deiliskipulags á
svæðinu. Dagur greinir frá.
Tilnefningar til Eddunnar
íslensku kvik-1
mynda- og sjón-
varpsverðlaunin
Eddan verða afhent
þann 19. nóvember
næstkomandi. Sem
bíómynd ársins eru
tilnefndar myndirn-1
ar Englar alheims-
ins, 101 Reykjavik og Isleriski draum-
urinn. Leikstjóri ársins er tilnefhdur
Friðrik Þór Friðriksson fyrir Engla
alheimsins, Baltasar Kormákur fyrir
101 Reykjavík og Óskar Jónasson fyr-
ir Úr öskunni i eldinn. Vísir greinir
frá.
Sameining sparisjóða
Á sameiginlegum aukafundi stofn-
fjáraðila Sparisjóðs Súðavíkur, Spari-
sjóðs Önundaríjarðar og Sparisjóðs
Þingeyrai’hrepps í gærkvöld var
ákveðið að að sjóðimir sameinuðust
Eyrasparisjóði á Patreksfirði.
Skilar af sér í nóvember
Að sögn Jóns Sveinssonar, varafor-
manns einkavæðingamefndar ríkis-
stjórnarinnar, mun nefndin skOa af
sér greinargerð varðandi einkavæð-
ingu Landssímans í nóvember. Jón
segir skilin þó vera ódagsett enda
mikU vinna eftir enn hjá nefndinni.
Nefndin átti að skUa af sér í septem-
ber. Dagur greinir frá.
Samningar aö renna út
Kjarasamningar
nær allra aðUdarfé-
laga Bandalags
starfsmanna ríkis og
bæja og Bandalags
háskólamanna
renna út í dag. Eitt
stéttarfélag hefur
boðað verkfaU, en
það er Félag framhaldsskólakennara
sem hefur boðað verkfaU 7. nóvember
hafi samningar ekki tekist. Mbl.
greinir frá.
Pattstaöa í klámlínumálinu
Pattstaða er í klámlínumálinu svo-
kaUaða í Fljótum. Bóndinn neitar að
borga fyrir klámsímtölin enda hafi
hann aldrei hringt í svoköUuð síma-
torg. Visir greinir frá.