Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2000, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2000, Síða 8
8 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 1>V Gore heilsar poppara Al Gore, forsetaefni demókrata, heilsaöi upp á poppsöngvarann Jon Bon Jovi þegar hann var á kosninga- feröalagi í Wisconsin í gær. Heston segir að byssueigendum standi ógn af Al Leikarinn Charlton Heston, for- seti samtaka bandarískra byssueig- enda, hvatti kjósendur í gær til að greiða repúblikananum George W. Bush atkvæði sitt í forsetakosning- unum eftir viku þar sem byssueig- endum stæði ógn af A1 Gore, for- setaefni demókrata. „Greiðið frelsinu atkvæði fyrst. Kjósið George Bush. Allt annað er langt að baki og í öðru sæti sem gleymist ftjótt," sagði Charlton Heston á fundi sem byssueigendafé- lagið hélt í Wisconsin. Hundruð manna hlýddu á mál hans. Sjálfur sagði Gore á kosninga- fundi i gær að hann væri hlynntur skynsamlegu eftirliti með byssueign en að hann vildi ekki ganga á rétt sportveiðimanna. George W. Bush hélt þriggja pró- sentustiga forskoti sínu á A1 Gore í daglegri könnun Reuters/MSNBC í gær, 45 prósent gegn 42. Kannanir í níu barátturíkjum bentu þó til að Gore væri að sækja í sig veðrið, til dæmis í heimaríki sínu, Tennessee. Sjö fórust í fárviðri í Evrópu norðvestanverðri: Versta óveður í rúman áratug við frekari úrkomu á bæði miðviku- dag og fimmtudag í sunnanverðu Englandi og í Wales. „Hún getur valdið frekari flóð- um,“ sagði í viðvörun veðurstofunn- ar. Yfirvöld í Bretlandi sögðu að fár- viðrið hefði verið það versta sem hefði komið í rúman áratug. Heita má að allt athafnalíf á sunnanverðu Englandi hafi lamast þar sem falln- ir trjábolir og flóð lokuðu vegum og járnbrautarlinum, auk þess sem fjöldi heimila eyðilagðist. Flugsamgöngur í Bretlandi og Frakklandi fóru úr skorðum, Eurostar-hraðlestin undir Ermar- sundið gekk ekki og ferjusiglingar á Ermarsundi lágu niðri. Þúsundir trjá, sem mörg hver voru margra alda gömul, brotnuðu og öllum almenningsgörðum í París var lokað vegna hættunnar sem af trjánum stafaði. Vindhraðinn fór í allt að 145 kiló- metra á klukkustund og bæði veður- fræðingar og umhverflssinnar vör- uðu við því að búast mætti við meiri veðurham en áður vegna gróðurhúsaáhrifanna. „Hættulegar breytingar á veður- farinu hafa þegar gerst. Fárviðrið og flóðin eiga eftir að verða tíðari og erfiðari," sagði Roger Himan, lofts- lagssérfræðingur í samtökunum Vinum jarðarinnar i London. Bresk tryggingafélög telja að tjón- ið þar geti numið allt að 120 millj- örðum íslenskra króna og að aðeins helmingur skemmdra eigna hafi verið tryggður. Breska veðurstofan varaði í far fárviðrisins sem varð sjö manns morgun við flóðum á stórum svæð- að bana í Evrópu norðvestanverðri. um í sunannverðu Englandi í kjöl- Veðurstofan sagði að búist væri Brim við ströndina Svona var umhorfs viö belgísku strandlengjuna í fárviörinu sem gekk yfir norövestanveröa Evrópu á sunnudag og í gær. Sjö menn týndu lífi í veöur- hamnum, ýmist í umferöarslysum eöa drukknuöu. Álagnirtg opinberra gjalda lögaðila á árinu 2000 og álagning tryggingagjalds samkvæmt lögum nr. 113/1990 í samræmi við 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, er hér með auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 2000 vegna tekna á árinu 1999 og eigna í lok þess árs er lokið á alla lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla þeirra laga. Jafnframt er lokið álagningu fjármagnstekjuskatts á lögaðila sem undanþegnir eru skattskyldu samkvæmt 2., 3., 5., 6. og 7. tölul. 4. gr. fyrrgreindra laga, en eiga að greiða fjármagnstekjuskatt í samræmi við ákvæði 3. mgr. 72. gr. laganna. Einnig er lokið álagningu tryggingagjalds vegna greiddra launa á árinu 1999 á alla gjaldskylda aðila, einstaklinga sem lögaðila. Álagningarskrár með gjöldum lögaðila og tryggingagjaldi verða lagðar fram í öllum skattumdæmum í dag, þriðjudaginn 31. október 2000. Skrárnar liggja frammi til sýnis á skattstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðsmönnum skattstjóra í hverju sveitar- félagi dagana 31. október til 14. nóvember að báðum dögum meðtöldum. Álagningarseðlar, er sýna álögð opinber gjöld lögaðila og tryggingagjald 2000 hafa verið póstlagðir. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda sem lögaðilum hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 2000, sem og kærur vegna álagðs tryggingagjalds 2000 þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni hans eigi síðar en fimmtudaginn 30. nóvember 2000. 31. október 2000 Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Erla Þ. Pétursdóttir. Skattstjórinn f Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson, Skattstjórinn ( Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl Lauritzson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson, Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson. Palestínskir drengir kasta grjóti aö ísraelskri herstöö í bænum Rafah á Gazasvæöinu í gær. Þrjátíu Palestínumenn særöust er hermenn skutu á þá á Gazasvæöinu. ísraelar gera eld- flaugaárásir á Palestínumenn ísraelski herinn gerði í nótt eld- flaugaárásir úr þyrlum á þrjár bækistöðvar Fatahhreyfingar Yass- ers Arafats P£destínuleiðtoga á Vest- urbakkanum og Gazasvæðinu. Ekki hafði í morgun frést af manntjóni eða skemmdum vegna árásanna. Vígamenn Fatahhreyfingarinnar hafa verið herskáir í átökunum við ísraela sem hófust 28. september síðastliðinn. ísraelskur öryggisvörður var skotinn til bana í austurhluta Jerú- salem í gær. Lögreglan sagði palest- ínskan byssumann hafa verið að verki. Lík tveggja annarra ísraela fundust á Vesturbakkanum um helgina. Annar hafði verið stunginn til bana en hinn skotinn. Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, sagði við setningu ísraelska þingsins í gær að ísraelar myndu hvorki þola árásir á hermenn né óbreytta borgara. Stórsigur Rugova Lýðræðislegi demókrataflokkur- inn, flokkur Ibra- hims Rugova, vann stórsigur i kosning- unum í Kosovo á laugardaginn. Hlaut flokkurinn 58 prósent atkvæða. Lýðræðisflokkur Kosovo, sem er róttækari flokkur, hlaut 27 prósent atkvæðanna. Kennarar í verktakavinnu Nokkur hundruð sænskra kennara bjóða nú starfskrafta sína sem verktakar. Tíu fyrirtæki bjóða þjónustu kennara og búast þau við bjartri framtíð, svipaðri þeirri sem ríkir i heilbrigðisgeiranum. Bensínverð lækkar Olíufélögin í Danmörku lækkuðu í morgun verð á bensíni í kjölfar lækkunar á heimsmarkaðsveröi. Björgunarstarfi lýkur Líklegt er talið að björgunarstarfi við kafbátinn Kúrsk ljúki á morgun. Kafarar komast ekki inn í miðhluta og fremsta hluta kafbátsins. Tekist hefur að ná tólf líkum úr kafbátnum. Slösuðust í jarðskjálfta Öflugur jarðskjálfti, 5,5 á Richter, gekk yfir miðhluta Japans í morgun. Sjö manns slösuðust í skjálftanum. Ný HlV-veira í Finnlandi Ný gerð HIV-veiru breiðist nú út meðal sprautufíkla í Helsingfors, Moskvu, Kaliningrad og Riga. Kúariða af hrukkukremum Konur sem notað hafa hrukkukrem blönduðum heila, brisi, milta og legi úr kúm eiga á hættu að fá Creutzfeldt-Jacob- sjúkdóminn. Þetta kemur fram í skýrslu bresku stjómarinnar. Handtökur í Perú Heryfirvöld í Perú lýstu því yfir i gær að þau hefðu handsamað flesta þeirra 50 hermanna sem tóku þátt í uppreisn gegn Fujimori forseta á sunnudaginn. Herforingi í haldi uppreisnarmanna var frelsaður. Geimfarar lagðir af stað Geimflaug, með rússneskum og bandarískum geimfórum, var í morgun skotið frá Kasakstan til alþjóðlegrar geimstöðvar. Rottueitur í barnabollu Heill bekkur 12 ára barna drakk jarðarberjabollu með rottueitri á hrekkjavöku um helgina. Bekkjarfélagi hafði sett eitrið út sem var svo lítið aö engum varð meint af. Pútín í París Búist er við að Vladímír Pútín Rússlandsforseti kynni umbæturnar í landi sínu fyrir frönskum ráðamönnum í París í dag til að vekja athygli franskra fjárfesta. Pútín heldur heim til Rússlands á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.