Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2000, Qupperneq 8
8
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000
1>V
Gore heilsar poppara
Al Gore, forsetaefni demókrata,
heilsaöi upp á poppsöngvarann Jon
Bon Jovi þegar hann var á kosninga-
feröalagi í Wisconsin í gær.
Heston segir að
byssueigendum
standi ógn af Al
Leikarinn Charlton Heston, for-
seti samtaka bandarískra byssueig-
enda, hvatti kjósendur í gær til að
greiða repúblikananum George W.
Bush atkvæði sitt í forsetakosning-
unum eftir viku þar sem byssueig-
endum stæði ógn af A1 Gore, for-
setaefni demókrata.
„Greiðið frelsinu atkvæði fyrst.
Kjósið George Bush. Allt annað er
langt að baki og í öðru sæti sem
gleymist ftjótt," sagði Charlton
Heston á fundi sem byssueigendafé-
lagið hélt í Wisconsin. Hundruð
manna hlýddu á mál hans.
Sjálfur sagði Gore á kosninga-
fundi i gær að hann væri hlynntur
skynsamlegu eftirliti með byssueign
en að hann vildi ekki ganga á rétt
sportveiðimanna.
George W. Bush hélt þriggja pró-
sentustiga forskoti sínu á A1 Gore í
daglegri könnun Reuters/MSNBC í
gær, 45 prósent gegn 42. Kannanir í
níu barátturíkjum bentu þó til að
Gore væri að sækja í sig veðrið, til
dæmis í heimaríki sínu, Tennessee.
Sjö fórust í fárviðri í Evrópu norðvestanverðri:
Versta óveður
í rúman áratug
við frekari úrkomu á bæði miðviku-
dag og fimmtudag í sunnanverðu
Englandi og í Wales.
„Hún getur valdið frekari flóð-
um,“ sagði í viðvörun veðurstofunn-
ar.
Yfirvöld í Bretlandi sögðu að fár-
viðrið hefði verið það versta sem
hefði komið í rúman áratug. Heita
má að allt athafnalíf á sunnanverðu
Englandi hafi lamast þar sem falln-
ir trjábolir og flóð lokuðu vegum og
járnbrautarlinum, auk þess sem
fjöldi heimila eyðilagðist.
Flugsamgöngur í Bretlandi og
Frakklandi fóru úr skorðum,
Eurostar-hraðlestin undir Ermar-
sundið gekk ekki og ferjusiglingar á
Ermarsundi lágu niðri.
Þúsundir trjá, sem mörg hver
voru margra alda gömul, brotnuðu
og öllum almenningsgörðum í París
var lokað vegna hættunnar sem af
trjánum stafaði.
Vindhraðinn fór í allt að 145 kiló-
metra á klukkustund og bæði veður-
fræðingar og umhverflssinnar vör-
uðu við því að búast mætti við
meiri veðurham en áður vegna
gróðurhúsaáhrifanna.
„Hættulegar breytingar á veður-
farinu hafa þegar gerst. Fárviðrið
og flóðin eiga eftir að verða tíðari og
erfiðari," sagði Roger Himan, lofts-
lagssérfræðingur í samtökunum
Vinum jarðarinnar i London.
Bresk tryggingafélög telja að tjón-
ið þar geti numið allt að 120 millj-
örðum íslenskra króna og að aðeins
helmingur skemmdra eigna hafi
verið tryggður.
Breska veðurstofan varaði í far fárviðrisins sem varð sjö manns
morgun við flóðum á stórum svæð- að bana í Evrópu norðvestanverðri.
um í sunannverðu Englandi í kjöl- Veðurstofan sagði að búist væri
Brim við ströndina
Svona var umhorfs viö belgísku strandlengjuna í fárviörinu sem gekk yfir
norövestanveröa Evrópu á sunnudag og í gær. Sjö menn týndu lífi í veöur-
hamnum, ýmist í umferöarslysum eöa drukknuöu.
Álagnirtg opinberra gjalda lögaðila á
árinu 2000 og álagning tryggingagjalds
samkvæmt lögum nr. 113/1990
í samræmi við 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, er hér
með auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 2000 vegna tekna á árinu 1999 og
eigna í lok þess árs er lokið á alla lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla þeirra
laga. Jafnframt er lokið álagningu fjármagnstekjuskatts á lögaðila sem undanþegnir eru
skattskyldu samkvæmt 2., 3., 5., 6. og 7. tölul. 4. gr. fyrrgreindra laga, en eiga að
greiða fjármagnstekjuskatt í samræmi við ákvæði 3. mgr. 72. gr. laganna. Einnig er
lokið álagningu tryggingagjalds vegna greiddra launa á árinu 1999 á alla gjaldskylda
aðila, einstaklinga sem lögaðila.
Álagningarskrár með gjöldum lögaðila og tryggingagjaldi verða lagðar fram í öllum
skattumdæmum í dag, þriðjudaginn 31. október 2000. Skrárnar liggja frammi til sýnis
á skattstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðsmönnum skattstjóra í hverju sveitar-
félagi dagana 31. október til 14. nóvember að báðum dögum meðtöldum.
Álagningarseðlar, er sýna álögð opinber gjöld lögaðila og tryggingagjald 2000 hafa
verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda sem lögaðilum hefur verið tilkynnt
um með álagningarseðli 2000, sem og kærur vegna álagðs tryggingagjalds 2000 þurfa
að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni hans eigi síðar en fimmtudaginn 30.
nóvember 2000.
31. október 2000
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Erla Þ. Pétursdóttir.
Skattstjórinn f Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson,
Skattstjórinn ( Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson,
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.
Palestínskir drengir kasta grjóti aö
ísraelskri herstöö í bænum Rafah á
Gazasvæöinu í gær. Þrjátíu
Palestínumenn særöust er hermenn
skutu á þá á Gazasvæöinu.
ísraelar gera eld-
flaugaárásir á
Palestínumenn
ísraelski herinn gerði í nótt eld-
flaugaárásir úr þyrlum á þrjár
bækistöðvar Fatahhreyfingar Yass-
ers Arafats P£destínuleiðtoga á Vest-
urbakkanum og Gazasvæðinu. Ekki
hafði í morgun frést af manntjóni
eða skemmdum vegna árásanna.
Vígamenn Fatahhreyfingarinnar
hafa verið herskáir í átökunum við
ísraela sem hófust 28. september
síðastliðinn.
ísraelskur öryggisvörður var
skotinn til bana í austurhluta Jerú-
salem í gær. Lögreglan sagði palest-
ínskan byssumann hafa verið að
verki. Lík tveggja annarra ísraela
fundust á Vesturbakkanum um
helgina. Annar hafði verið stunginn
til bana en hinn skotinn.
Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, sagði við setningu ísraelska
þingsins í gær að ísraelar myndu
hvorki þola árásir á hermenn né
óbreytta borgara.
Stórsigur
Rugova
Lýðræðislegi
demókrataflokkur-
inn, flokkur Ibra-
hims Rugova, vann
stórsigur i kosning-
unum í Kosovo á
laugardaginn.
Hlaut flokkurinn 58
prósent atkvæða. Lýðræðisflokkur
Kosovo, sem er róttækari flokkur,
hlaut 27 prósent atkvæðanna.
Kennarar í verktakavinnu
Nokkur hundruð sænskra
kennara bjóða nú starfskrafta sína
sem verktakar. Tíu fyrirtæki bjóða
þjónustu kennara og búast þau við
bjartri framtíð, svipaðri þeirri sem
ríkir i heilbrigðisgeiranum.
Bensínverð lækkar
Olíufélögin í Danmörku lækkuðu
í morgun verð á bensíni í kjölfar
lækkunar á heimsmarkaðsveröi.
Björgunarstarfi lýkur
Líklegt er talið að björgunarstarfi
við kafbátinn Kúrsk ljúki á morgun.
Kafarar komast ekki inn í miðhluta
og fremsta hluta kafbátsins. Tekist
hefur að ná tólf líkum úr
kafbátnum.
Slösuðust í jarðskjálfta
Öflugur jarðskjálfti, 5,5 á Richter,
gekk yfir miðhluta Japans í
morgun. Sjö manns slösuðust í
skjálftanum.
Ný HlV-veira í Finnlandi
Ný gerð HIV-veiru breiðist nú út
meðal sprautufíkla í Helsingfors,
Moskvu, Kaliningrad og Riga.
Kúariða af hrukkukremum
Konur sem notað hafa
hrukkukrem blönduðum heila,
brisi, milta og legi úr kúm eiga á
hættu að fá Creutzfeldt-Jacob-
sjúkdóminn. Þetta kemur fram í
skýrslu bresku stjómarinnar.
Handtökur í Perú
Heryfirvöld í
Perú lýstu því yfir i
gær að þau hefðu
handsamað flesta
þeirra 50 hermanna
sem tóku þátt í
uppreisn gegn
Fujimori forseta á
sunnudaginn.
Herforingi í haldi uppreisnarmanna
var frelsaður.
Geimfarar lagðir af stað
Geimflaug, með rússneskum og
bandarískum geimfórum, var í
morgun skotið frá Kasakstan til
alþjóðlegrar geimstöðvar.
Rottueitur í barnabollu
Heill bekkur 12 ára barna drakk
jarðarberjabollu með rottueitri á
hrekkjavöku um helgina.
Bekkjarfélagi hafði sett eitrið út
sem var svo lítið aö engum varð
meint af.
Pútín í París
Búist er við að Vladímír Pútín
Rússlandsforseti kynni
umbæturnar í landi sínu fyrir
frönskum ráðamönnum í París í
dag til að vekja athygli franskra
fjárfesta. Pútín heldur heim til
Rússlands á morgun.