Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2000, Síða 9
9
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000_____________________________________________________________________________________________
DV Útlönd
Marija Milosevic
Ástand dóttur forsetans fyrrverandi
var mjög alvarlegt í síöustu viku.
Dóttir Milosevics
á sjúkrahúsi
með taugaáfall
Marija Milosevic, dóttir Slobod-
ans Milosevics, fyrrverandi
Júgóslavíuforseta, liggur nú á
sjúkrahúsi í Belgrad vegna tauga-
áfalls. Ástand hennar var hættulegt
þegar hún var lögð inn fyrir viku
en hún er nú á batavegi þó hún sé
enn alvarlega veik, að því er blaðið
Vecemje Novosti greindi frá i gær.
Þetta eru fyrstu fregnimar sem
berast af Mariju frá því 6. október
þegar faðir hennar neyddist til þess
að draga sig í hlé.
Sonur Milosevics, Marko, er sagð-
ur hafa yfirgefið Belgrad ásamt
konu sinni og barni nokkrum
klukkustundum eftir að faðir hans
gafst upp.
Danskir stjórnmálamenn undrandi á ríkidæmi Færeyinga:
íhuga niðurskurð
á ríkisstyrknum
Peningar streyma í svo miklum
mæli inn í færeyska ríkiskassann
að margir stjórnmálamenn í Dan-
mörku íhuga nú að skera niður
beinan ríkisstyrk Dana til Færey-
inga, að því er segir í danska blað-
inu Jyllands-Posten í morgun.
Styrkurinn nemur nú vel á tíunda
milljarð íslenskra króna á ári.
Á síðustu þretnur árum hefur
færeyski landskassinn verið rekinn
með um það bil flmm milljarða ís-
lenskra króna afgangi á ári. Lands-
kassinn er því hreinlega að sligast
undan um það bill fimmtán millj-
arða króna tekjuafgangi.
Færeyska landstjórnin segir að
þróun ríkisfjárniálanna að undan-
fórnu sé söguleg og sýni að hægt er
að leggja peninga til hliðar.
Danskir stjórnmálamenn eru
ekki jafnhressir með þennan sparn-
að og færeyska landstjórnin. Að
sögn Jyllands-Posten furða margir
sig á því að danskir skattgreiðendur
skuli standa straum af sparnaðinum
á sama tíma og færeyska landstjórn-
in hafnar alfarið tillögum danskra
stjórnvalda um fjögurra ára aðlög-
Poul Nyrup Rasmussen
Danski forsætisráðherrann og aðrir
ráðamenn í Danmörku ræða stöð-
una í sjálfstæðisviðræðunum við
Færeyinga i dag. Síðasta lota við-
ræðnanna í Kaupmannahöfn fór út
úm þúfur á fimmtudag.
unartíma fyrir afnám ríkisstyrksins
eftir að Færeyjar öðlast sjálfstæði.
Samningaviðræðurnar um sjálf-
stæði fóru meðal annars út um þúf-
ur á fimmtudag vegna kröfu Færey-
inga um að fá fimmtán ára aðlögun-
artíma.
Danskir jafnaðarmenn hafa ekki
enn rætt hvað gerist þegar styrkur-
inn rennur út í lok næsta árs. Jan
Petersen þingflokksformaður segir
það hins vegar ekkert náttúrulög-
mál að styrkurinn skuli nema um
tíu milljörðum íslenskra króna.
„Og jafnvel þótt efnahagslíf Fær-
eyja sé viðkvæmt bendir tekjuaf-
gangurinn til þess að þeir geti sjálf-
ir staðið undir stærri hluta velferð-
arkerfisins," segir Jan Petersen.
Samkvæmt upplýsingum frá fær-
eysku landstjórninni varðandi fjár-
lög næsta árs nota Færeyingar á
þessu ári aðeins um þriðjung
danska ríkisstyrksins i rekstur hins
opinbera. Margir milljarðar fara
beint í sparnað. Anfinn Kallsberg
lögmaöur er ekki hissa á orðum
Dananna. Hann hefur sjálfur áhuga
á að lækka ríkisstyrkinn.
Harry Potter sjálfur
Daniel Radciiffe sem leikur Harry
Potter í væntanlegri kvikmynd hefur
ekki áhyggjur af slæmum áhrifum.
Harry Potter
sannar að Satan
er á meðal vor
Harry Potter-æðið sem fer um
jörðina eins og eldur í sinu þykir
ýmsum sönnun þess að Satan sjálf-
ur sé enn á meðal vor. Barátta gegn
litla töframanninum hefur færst í
aukana að undanfórnu. „Harry Pott-
er-bækurnar eru til þess fallnar að
laða fólk að göldrum og hinu yfir-
skilvitlega," segir á heimasíðu
bandariskra strangtrúarsamtaka.
Aðdáendur Harrys láta sér fátt
um finnast og búast má við að á
hrekkjarvökunni, sem haldin er
víða um heim í dag, verði margir
krakkar í Harry Potter-búningum.
Höfundur bókanna, J.K. Rowling,
hlær hins vegar að fullyrðingum
um að bækur hennar hvetji til
djöfladýrkunar.
3 ára ábyrgð
Hæstaréttardómari drepinn á Spáni
Spænskir lögregiuþjónar rannsaka verksummerki eftir bílsprengju sem varð
hæstaréttardómara, ökumanni hans og lífverði að bana í Madríd í gær.
Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, eru sökuð um verknaðinn.
Handtaka í kjölfar sjónvarpsþáttar TV2:
Danskur fréttamaður
í gervi barnaníðings
Á meðan danska sjónvarpsstöðin
TV2 sendi út heimildaþátt um danska
barnaníðinga í gærkvöld handtók lög-
reglan einn þeirra sem fram komu í
þættinum. Samtök barnaníðinga
höfðu árangurslaust reynt að stöðva
útsendinguna á þeim forsendum að
þeir hefðu verið kvikmyndaðir í
leyni. Nokkrum klukkustundum fyrir
útsendinguna tilkynnti undirréttur í
Kaupmannahöfn að kröfu barnaníð-
inganna hefði verið hafnað.
Danski fréttamaðurinn Jacob Billing
fékk hugmyndina að þættinum þegar
hann útskrifaðist frá blaðamannahá-
skóla Danmerkur. Hann hafði sam-
band við samtök barnaníðinga en
fékk ekkert svar. Þremur mánuðum
seinna fékk hann bréf frá samtökun-
um. Hann ákvað að villa á sér heim-
ildir og tók sér nafnið Jacob And-
ersen. Hann kvaðst vera fjölskyldu-
maður en hafa áhyggjur af hneigð
sinni til barna. Honum voru boðnar
myndir af bömum og kvikmyndir
með þeim og bent á Netið. Einnig var
honum sagt frá möguleikanum á kyn-
mökum við börn erlendis.
Billing ákvað að leita uppi nokkur
bamanna sem höfðu verið kvikmynd-
uð. Slóðin leiddi til Svíþjóðar og til
tveggja kvenna sem nú eru fullorðnar.
Önnur hafði verið mynduð við leik-
fimisæfmgar með vinkonu sinni. Þær
vora beðnar um að afklæðast því gera
átti þær að stjömum. Foreldrar telpn-
anna bönnuðu fleiri myndatökur. Hin
konan hafði verið misnotuð af fóður
sínum. Hún vissi ekki að teknar hefðu
verið myndir af ódæðisverkinu.
Nýttu hana í sláturtíð, framtíð,
berjatíð, nútíð, vertíð og gúrkutíð því
verðið er í þátíð
Sú blákalda staðreynd, að AEG
frystikisturnar okkar hafa verið á sama
verði í ríflega eitt ár, ætti að ylja mönnum
um hjartarætur.
Vörunr. Heiti Brútto Lítrar Netto Lítrar Hæð sm. Breidd sm. Dýpt sm. Körfur sem fylflja Læsing Einangrun þykkt 1 mm. Rafnotkun m/v 18°C umhv.hita kWh/24 klst Verð áður Tilboðsverð
12HS HF120 132 126 86 55 61 1 Nei 55 0,60 43.092 29.900
23HL HFL230 221 210 86 79 65 1 Já 55 0,84 47.843 33.900
29HL HFL290 294 282 86 100 65 1 Já 55 1,02 51.039 35.900
38HL HFL 390 401 382 86 130 65 2 Já 55 1,31 54.599 39.900
53HL EL 53 527 504 86 150 73 3 Já 60 1,39 65.116 46.900
61HL EL 61 607 581 86 170 73 3 Já 60 1,62 73.287 53.900
Verðfrysting
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
___rfk___
RáDIOfMOSf
Geislagötu 14 • Sími 462 1300