Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2000, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2000, Side 22
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 I>v . 14______ Ættfræði Uinsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 95 ára__________________________ Þóroddur Sæmundsson, Lerkilundi 30, Akureyri. 90 ára__________________________ Rakel Jóhannsdóttir, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfiröi. Þórunn Guömundsdóttir, Faxabraut 13, Keflavtk. 85 ára__________________________ Helgi Þorláksson, Sléttuvegi 11, Reykjavík. Jónína Elíasdóttir, Kópavogsbraut lb, Kópavogi. Vilborg Bjarnadóttir, Borgarbraut 65, Borgarnesi. Jón Guömundur Bergmann, fyrrv. aðalféhiröir, Ljósvallagötu 24, Reykjavík. Eiginkona hans er Ágústa Bergmann. Þau taka á móti gestum I Ými, húsi Karlakórs Reykjavíkur, Skógarhlíö 20, í dag milli kl. 17.00 og 20.00. 75 ára________________________________ Emil Bergmann Emilsson, Múlavegi 19, Seyöisfiröi. ?0 ara 70 ára_______________________ Halldór Geir Lúövíksson, Erluhólum 1, Reykjavík. Fjóla Runólfsdóttir, Presthúsabraut 34, Akranesi. Valgeröur Jónsdóttir, Jórutúni 10, Selfossi. 60 ára Erla Æmk Jónasdóttir, t w Stífluseli 5, ' rw Reykjavík. Eiginmaður hennar er Þórarinn A. Guðjónsson. I Þau taka á móti gestum að heimili sínu laugard. 4.11. kl. 15.00-18.00. Jóhanna Gísladóttir, Sæviöarsundi 31, Reykjavík. Edda Gísladóttir, Torfufelli 32, Reykjavík. Bríet Böövarsdóttir, Seftjörn, Patreksfirði. 50 ára________________ Kjartan Ásmundsson, Ferjubakka 6, Reykjavík. Ingþór Arnórsson, Funafold 99, Reykjavík. Drífa Kristjánsdóttir, Torfastööum, Selfossi. 40-Éra_________________________ Sigríöur Björk Bragadóttir, Blönduhlíð 5, Reykjavík. Pálmi Guömundsson, Akurgerði 16, Reykjavík. Bjöm Erlendsson, Vesturlbr. Ásulundi, Reykjavlk. Alda Kolbrún Haraldsdóttir, Jórufelli 12, Reykjavík. Skúli Pálsson, Kársnesbraut 90, Kópavogi. Páll Valsson, Reynigrund 11, Kópavogi. Helena Guömundsdóttir, Lækjarási 3, Garöabæ. Guðbjörg B. Gunnlaugsdóttir, Brekkustíg 35a, Njarðvlk. Sunneva Gissurardóttir, Austurvegi 15, Isafiröi. Lárus Þór Jónsson, Spítalastíg 5, Hvammstanga. Guörún Brynja Báröardóttir, Oddabraut 12, Þorlákshöfn. Njáll Kolbeinsson, Miðstræti 9a, Vestmannaeyjum. Margrét Björnsdóttir, áöur til heimilis á Lindargötu 7, Reykjavík, lést á Landsplt- alanum viö Hringbraut fimmtud. 28.10. Jósef Sigurvaldason, Eiösstööum, lést á Héraöshælinu Blönduósi miövikud. 25.10. Ásgeir J. Ágústsson, Neöstaleiti 7, Reykjavlk, andaðist fimmtud. 19.10. sl. Útförin hefur farið fram I kyrrþey aö ósk hins látna. - Álfheiöur iria Þóröardóttir, Kóngsbakka 3, Reykjavík, lést á líknardeild Landspít- alans I Kópavogi sunnud. 22.10. Útförin hefur fariö fram. Scxtugur Pétur Einarsson Pétur Einarsson, leikari, leikstjóri og fyrrv. skólastjóri Leiklistarskólans Pétur er í hópi þekktustu leikara þjóöarinnar. Hann hóf leikferil sinn hjá Leikfélagi Reykjavikur 1966 og byrjaöi auk þess snemma aö leikstýra. leikari og leikstjóri Pétur Einarsson leikari, Ljós- heimum 4, Reykjavík, er sextugur í dag. Starfsferill Pétur fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófum frá MA 1961, lauk prófum frá Leiklistarskóla LR 1964 og MA- prófi í leiklist frá Háskólanum í Ge- orgíu í Bandaríkjunum 1966. Pétur var leikari og leikstjóri hjá LR 1966-75, skólastjóri Leiklistar- skóla íslands 1975-83, leikari hjá Þjóðleikhúsinu og LR 1983-86, leik- hússtjóri LA 1986-88, leikari og leik- stjóri hjá Þjóðleikhúsinu 1988-89, kennari við Leiklistarskóla íslands 1988-97 og er leikari og leikstjóri hjá LR frá 1989. Pétur er formaður Félags leik- stjóra á íslandi frá 1994, formaður Sambands félaga leikstjóra á Norð- urlöndunum frá 1999, situr í stjórn Bandalags íslenskra listamanna frá 1994, í stjórn Listaháskóla íslands frá 1998, í stjórn Kvikmyndasjóðs frá 2000 og var fulltrúi íslands í Nor- rænu leiklistarnefndinni 1982-88. Frá 1998 hefur Pétur unnið við það að hjálpa fólki til að hætta að reykja með aðferð Allen Carr’s, Ea- sy Way to stop smoking. Pétur var búsettur í Vestmanna- eyjum til 1961, í Reykjavík 1961-86, á Akureyri 1986-88 og í Reykjavík frá 1988. Fjölskylda Eiginkona Péturs er Birgitte Heide, f. 17.4. 1959, listdansari og ballettkennari hjá íslenska dans- flokknum og Listdansskóla íslands. Hún er dóttir Paul E. Heide, úr- smiðs í Kópavogi, og Guðrúnar Ágústsdóttur húsmóður. Böm Péturs eru Margrét Kristín Pétursdóttir, f. 9.3.1962, leikari og á hún eitt barn; Sólveig Pétursdóttir, f. 17.8.1970, nemi og á hún eitt barn; Þórunn Elín Pétursdóttir, f. 3.8. 1972, nemi; Guðrún Lára Pétursdótt- ir, f. 9.2.1976, nemi en maður henn- ar er Einar Þór Þórarinsson og eiga þau eitt bam; Elís Pétursson, f. 13.4. 1980, nemi; Pétur Heide Pétursson, f. 3.10. 1990, nemi. Systkini Péturs eru Páll J. Ein- arsson, f. 22.1. 1937, flugmaður í Reykjavík; Guttormur P. Einarsson, f. 15.3. 1938, kerfisfræðingur í Reykjavík; Sólveig Fríða Einars- dóttir, f. 21.8. 1945, ljósmóðir í Garðabæ; Sigfús Einarsson, f. 11.8. 1951, Phd. í líffræði, búsettur í Sví- þjóð. Foreldrar Péturs; Einar Gutt- ormsson, f. 15.12. 1903, d. 1984, sjúkrahúslæknir í Vestmannaeyj- um, og Margrét Kristín Pétursdótt- ir, f. 29.12. 1914, húsmóðir. Ætt Faðir Einars var Guttormur, b. í Geitagerði í Fljótsdal, Einarssonar, b. í Fjallseli, Guttormssonar, stúd- ents á Arnheiðarstöðum, Vigfússon- ar, pr. á Valþjófsstað, Ormssonar, fóður Margrétar, langömmu Gutt- orms, foður Hjörleifs, fyrrv. alþm. Móðir Einars í Fjallseli var Hall- dóra Jónsdóttir, vefara á Kórreks- stöðum, Þorsteinssonar, ættföður Vefaraættar, föður Péturs, langafa Ragnars Hcilldórssonar, fyrrv. for- stjóra ísals. Móðir Einars læknis var Odd- björg Sigfúsdóttir, b. á Fljótsbakka, Oddssonar. Móðir Sigfúsar var Þur- íður Hallsdóttir, b. á Sleðbrjóti, Sig- urðssonar, bróður Bjöms, langafa Önnu, móður Bjöms Tryggvasonar, aðstoðarbankastjóra Seðlabankans. Margrét var dóttir Péturs, sjó- manns á Akureyri, Jónatanssonar, b. á Þúfum í Skagafirði, Magnússon- ar. Móðir Margrétar var Jóhanna spákona Benediktsdóttir, b. í Höfða- hverfi, Ólafssonar og Jóhönnu Rakelar Jónsdóttur. Pétur tekur á móti vinum og vandamönnum í Félagsheimili tannlækna, Síðumúla 35, 3. hæð, í dag milli kl. 17.00 og 20.00. Attræður Pétur Kristinn Bjarnason fyrrv. skipstjóri og yfirhafnsögumaður á ísafirði Pétur Kristinn Bjarnason, fyrrv. skipstjóri og yflrhafnsögumaður hjá ísafjarðarhöfn, Esjugrund 48, Kjal- amesi, varð áttræður í gær. Starfsferill Pétur fæddist í Hnífsdal en ólst upp á ísafirði og var i sveit í Tröð í Bjarnardal í Önundarfirði frá sjö ára aldri og þar til hann varð tólf ára. Pétur naut almennrar barna- skólamenntunar þess tíma og lauk fiskimannaprófi frá Stýrimanna- skóla íslands 1944. Pétur hóf sjómennsku á ísafirði fjórtán ára. Hann var á mótorbátn- um Mumma hjá Agnari Guðmunds- syni, var síðan á síld með Gísla Júl- íussyni á Kolbrúnu frá Akureyri og á Huginn II með Guðbimi Jónssyni. Pétur réð sig á Richard vorið 1941 og var þá á síld en í Englandssigl- ingum á vetrum. Að loknu stýri- mannsprófi varð hann stýrimaður á Richard og síðan skipstjóri. Þegar stríðinu lauk fór Pétur til Reykja- víkur og var á togurum á vetrum en skipstjóri á síldarbátum á sumrin. Hann fór síðan aftur til Isafjarðar og var stýrimaður og skipstjóri á Is- borginni hjá Ragnari Jóhannssyni. Þegar togaraútgerð ísfirðinga lauk festi Pétur kaup á rækjubát og stundaði rækjuveiðar í nokkur ár. Hann gerðist síðan yfirhafnsögu- maður á ísafirði og starfaði síðan á skrifstofu fógeta og var jafnframt skipaður meðdómari í Sjó- og versl- unardómi. Pétur réðst eftir það til sjávarút- vegsráðuneytisins við fiskveiðieftir- lit á Vestfjörðum og vann þar til starfslóka opinberra starfsmanna. Eftir það keypti hann sér trillu sem hcmn reri á á sumrin en vann í Netagerð Vestfjarða á vetrum þar til hann varð sjötíu og fimm ára er hann hætti störfum. Pétur og kona hans fluttu þá suð- ur á Kjalarnes á vit dætra sinna og bamabama. Fjölskylda Pétur kvæntist 2.7. 1949 Helgu Pálínu Ebenezersdóttur, f. 1.12.1923, húsmóður og kaupkonu. Hún er dóttir Ebenezers Benediktssonar, sjómanns í Bolungarvík, og Guð- mundu M. Pálsdóttur húsmóður. Dætur Péturs og Helgu Pálínu eru Ebba Guðmunda, f. 27.12. 1948, hárgreiðslumeistari, búsett í Mos- fellsbæ, gift Þorgrími Októssyni skrifstofustjóra Árbæjarútibús Landsbankans; Herdís, f. 2.11. 1950, leikskólakennari, búsett í Mosfells- bæ, gift Sigurði H. Guðjónssyni hrl. og lögfræðingi Húseigendafélagsins; Elín Þórhildur, f. 23.7.1958, húsmóð- ir og fyrrv. kaupkona, búsett á Kjal- arnesi, gift Gunnlaugi Jóhann- essyni pípulagningameistara. Systkini Péturs: Guðmundur Kr. Falk, f. 19.9. 1913, nú látinn, skip- stjóri; Pétur M.B., dó ungur; Guð- rún Þorbjörg, f. 10.5. 1917, nú látin, meinatæknir; Jóhanna Maria, f. 16.6.1919, nú látin, skipsþerna; Frið- rik Tómas, f. 5.5. 1922, nú látinn, málari; Jóhannes Bjami, f. 18.1. 1925, sjómaður; Eyjólfur Níels, f. 18.8. 1925, rafvirki; Kristín Magnea, f. 21.11. 1926, húsmóðir; Guðrún Guðleifs, f. 18.5. 1929, húsmóðir; El- ísa Rakel, f. 18.5. 1929, húsmóðir; Lúsía, f. 11.1. 1931, meinatæknir; Jón Aðalbjöm, f. 27.8. 1932, ljós- myndari; Hannes Trausti, f. 4.9. 1935, nú látinn, bifvélavirki. Foreldrar Péturs voru Bjami Magnús Pétursson, f. 1.1. 1892, d. 19.2. 1957, sjómaður og síðar neta- gerðarmaður á ísafirði, og k.h., Her- dís Jóhannesdóttir, f. 23.9. 1891, d. 7.8. 1961, húsmóðir. Ætt Bjami var sonur Péturs, b. á Hálsi á Ingjaldssandi, Magnússonar og Jóhönnu Jónsdóttur. Herdís var dóttir Jóhannesar jámsmiðs Elíassonar, b. í Efri-Hlíð í Helgafellssveit, Jónssonar, b. í Straumfjarðartungu, Jónssonar, b. í Seljum, Jónssonar. Móðir Herdísar var Guðrún Þor- björg Jónsdóttir, b. í Fremri-Arnar- dal og á Hallsstöðum á Langadals- strönd, Sæmundssonar, b. í Fremri- Arnardal, Ámasonar. Móðir Guð- rúnar Þorbjargar var Vigdís Jóns- dóttir, vinnumanns 1 Stakkanesi, Sumarliðasonar. Móðir Vigdísar var Þorbjörg Þorvarðardóttir, b. í Eyrardal, Sigurðssonar, b. í Eyrar- dal, Þorvarðarsonar, ættföður Eyrarættarinnar. Pétur og Helga eru í útlöndum um þessar mundir. Jóhann Valdórsson frá Þrándarstöðum lést að heímili sínu, Lagarási 17, Egilsstööum, þann 25.10. Útför hans fer fram frá Egilsstaðakirkju laugard. 4.11. en jarðsett verður að Eiðum sama dag. Ólafur Helgi Auöunsson frá Dalseli, Háaleitisbraut 43, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriöjud. 31.10. kl. 13.30. Jarðarför Finns Finnssonar, kennara frá ísafirði, Árskógum 6, Reykjavík, fer fram frá Dómkirkjunni þriöjud. 31.10. kl. 15.00. Kristín Björnsdóttir frá Ytri-Vík veröur jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðjud. 31.10. kl. 13.30. Svanfríður Guöjónsdóttir, Heiðarbraut 37, Akranesi, verður jarösungin frá Akraneskirkju þriðjud. 31.10. kl. 14.00. Merkir Islendingar Einar Benediktsson, skáld og athafna- maður, fæddist að Elliðavatni 31. októ ber 1864, sonur Benedikts Sveinssonar, yf- irdómara, alþm. og sýslumanns, og Katrínar Einarsdóttur húsmóður. Einar lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1884 og lögfræðiprófi 1892. Hann var með föður sínum á Héðinshöfða 1892-94, stofnaði Dagskrár, 1896, fyrsta íslenska dagblaðið, var málflutnings- maður og síðan sýslumaðm’ á Stóra- Hofi í RangárvaHasýslu frá 1904 en fór utan 1907 og var búsettur í Noregi, Edin- borg, Kaupmannahöfn og í Lundúnum tU 1921, stundaði kaupsýslu og beitti sér mjög fyrir nýtingu íslenskra auðlinda. Hann var búsettur í Reykjavík frá 1921 en bjó tólf síðustu Einar Benediktsson æviárin í Herdísarvik. Ljóðabækur Einars eru Sögur og kvæði, 1879; Aldamótaljóð, 1900; Hafblik, 1906; Hrannir, 1913;Vogar, 1921; Hvammar, 1930; Ólafs ríma Grænlendings, 1930, og Alþingishátíðarljóð, 1930. Einar er fuUþroskað skáld í sinni fyrstu ljóðabók sem er hvoru tveggja í senn, í anda raunsæis og nýrómantík- ur. Skáldskapur hans verður tUkomu- meiri eftir því sem á líður. Hann verð- ur skáld hinna löngu hástemmdu setn- inga um algUda visku og hin æðstu sannindi, heimspekUega þenkjandi og haUur undir algyðistrú. Einar lést 1940 og var jarðsettur, fyrstur íslendinga, í heiðursgrafreit á ÞingvöUum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.