Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2000, Side 28
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000
Forseti FFSÍ:
Ómerkilegur
áróðursþáttur
um kvóta
i
i
i
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
f hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
K I
Framhaldsskólakennarar:
Óbreytt staða
„Staðan er óbreytt," sagði Elna
Katrín Jónsdóttir, formaður Félags
framhaldsskólakennara, í morgun um
stöðu samningamála. Fundur í kjara-
deilunni var haldinn hjá ríkissátta-
semjara í gær. Boðaðir hafa verið
fundir i dag, á morgun og fimmtudag.
-JSS
Snyrtiborð, dúkkur,
dúkkuvagnar, vöggur,
þríhjól og bílar fyrir
litlar dömur.
Sími 567 4151 & 567 4280
Heildverslun með leikföng og gjafavörur
Fáskrúðsfjörður:
4 börn suður
vegna víruss
Fjögur börn á aldrinum fimm til
sjö ára voru um og eftir helgina
flutt frá Fáskrúðsfirði til Reykjavík-
ji'.r vegna stífleika í hnakka.
Hirynjólfur Hauksson, læknir á Fá-
skrúðsfirði, sagði við DV að hér
væri ekki um heilahimnubólgufar-
aldur að ræða heldur vírus sem
hefði þá tilhneigingu að valda ert-
ingu í heilahimnu. Brynjólfur segir
að vírusinn hafi verið í gangi í bæn-
um í talsverðan tíma og einnig hafi
hann stungið sér niður á Eskifirði
og í Reykjavík. „Ég ákvað að flytja
bömin suður í varúðarskyni og
held að þau hafi flest verið útskrif-
uð núna,“ sagði Brynjólfur. „Þetta
var búið að vera í gangi í talsverð-
an tíma og ég held að þetta sé frek-
ar endirinn á þessum tilfellum held-
ur en hitt. Krakkamir hafa verið að
fá væga ertingu en engan hnakka-
'iÉtstifleika. Ef það verður hins vegar
vart við hnakkastífleika hjá þeim á
ég engra kosta völ en að senda þau
suður til öryggis," sagði Brynjólfur.
-Ótt
Bolungarvík:
Fannst í höfninni
Hvítur bíll sem lögreglan í Bolung-
arvík lýsti eftir í gærmorgun fannst í
höfninni á Bolungarvík um ellefuleyt-
ið í gærmorgun. Ökumaðurinn var í
bílnum er hann fannst og var maður-
inn látinn.
Síðast sást til mannsins um klukk-
an 16 á sunnudag og var byrjað að
leita að honum á sunnudagskvöld.
Ekki er unnt að greina trá nafni
hins látna að svo stöddu. -SMK
k---------------------------
Rjúpnaskyttur
velta bíl
Bíll tveggja rjúpnaskytta valt á þjóð-
vegi 87 sunnan við Húsavík um hádeg-
isbilið á sunnudag, með þeim afleiðing-
um að önnur skyttan var flutt á sjúkra-
hús. Mennirnir tveir vora á ferð á mal-
arveginum þegar ökumaðurinn missti
stjórn á jepplingi sinum, af gerðinni
Suzuki. Báðir mennirnir voru í bilbelt-
um. Ökumaðurinn var fluttur á Heil-
brigðisstofnunina á Húsavík, þar sem
gert var að sáram hans. Hann reyndist
ekki alvarlega slasaður og slapp hinn
maðurinn ómeiddur. Billinn er hins-
vegar ónýtur. -SMK
NORSK SÚRMJÓLK!
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Nýjar vörur daglega
Þessi nýi einstaklingur iét sér fátt um finnast þrátt fyrir nýjar vörur versiana og haustvinda sem nýlega eru farnir aö
blása á höfuöborgarbúa. Barniö kúröi bara í vagni sínum og horfði stóískum augum á Ijósmyndara DV.
Innflutningur fósturvísa úr norskum kúm:
Uppstokkun hjá Samvinnuferðum:
Tuttugu fá reisupassa
Leyfi með ströng-
um skilyrðum
- tilraun á tveimur búum og tekur 8-10 ár
„Við tilkynnum til Verðbréfaþings-
ins í dag að viö munum segja upp 20
starfsmönnum nú um þessi mánaða-
mót,“ sagði Guðjón Auðunsson, verð-
andi framkvæmdastjóri Samvinnu-
ferða- Landsýnar, í samtali við DV í
morgun.
„Þetta er í tengslum við þá ákvörð-
un að draga örlítið saman sætafram-
boðið á næsta ári miðað við árið í ár.
Þessi samdráttur í starfsmannafjölda
er í samræmi við það. Sætaframboð
var almennt of mikið þessu ári. Starfs-
menn Samvinnuferða-Landsýnar era
um 120 og nálægt 200 þegar mest er
Við ætlum líka að ná fram ákveð-
inni hagræðingu þar sem við erum
komnir með starfsemina á eitt gólf í
nýju húsnæði. Við vorum áður á sjö
hæðum niðri í Austurstræti."
- Hvað með flugfrelsið?
„Þvi verður haldið áfram og það er
ekki neinn bilbug á mönnum að finna.
Við ætlum inn á nýja áfangastaði i sól-
ina næsta sumar og ætlum líka að
reyna að viðhalda gömlu hefðbundnu
áfangastöðunum. Nú eigum við kost á
að fá 273 sæta flugvélar og við ættum
að ná fram betri sætanýtingu en verið
hefur.“ -HKr.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra mun, samkvæmt heimild-
um DV, tilkynna í dag að hann hafi
ákveðið að leyfa
innflutning á
fósturvísum úr
norskum kúm
með ströngum
skilyrðum. Til-
raunin munu
fara fram á
tveimur tilrauna-
búum og taka
8-10 ár. Eins og
DV hefur þegar
greint frá mun tilraunin snúast um
að bera saman íslenskar kýr,
norskar kýr, svo og blendingskýr
sem yrðu að hálfu íslenskar og að
hálfu norskar.
Hugmyndin um að flytja norskar
kýr hingað til lands kom upphaflega
fram meðal kúabænda. Á aðalfundi
kúabænda á Hvanneyri síðsumars
1995 var samþykkt að hefja þegar
undirbúning að innflutningi á nýju
mjólkurkyni. í kjöifarið hófst mikil
Guönl
Ágústsson.
og heit umræða um
hvort flytja ætti inn
norskar kýr. Árið
1997 komst enn frek-
ari skriður á málið
þegar svonefnd
nautgriparæktar-
nefnd, sem þá var
starfandi á vegum
Búnaðarfélags ís-
lands, fór í fúndar-
herferð um allt land
til að kynna bænd-
um hugmyndir um
að kynbæta íslensku
kúna. Tillögur
nefndarinnar voru á
þann veg að um 50 bú tækju þátt í
tilraun með fósturvísa úr svoköll-
uðu NRF-kyni. Að þessu loknu fór
fram skoðanakönnun meðal kúa-
bænda og skyldi framhald málsins
byggt á niðurstöðum hennar. Óvænt
reyndist mikill meirihluti vera and-
vígur því að norska kýrin héldi inn-
reið sína hér. Við nánari athugun
reyndust menn hafa skilið spum-
íslenska kýrin fær nú samkeppni frá norskum kúm.
ingtma svo hvort skipta ætti um
kúakyn hér á landi eða ekki.
í mars 1998 barst landbúnaðar-
ráðuneytinu formlegt erindi frá
Bændasamtökum íslands og Lands-
sambandi kúabænda um leyfi til að
flytja inn fósturvísa úr norskum
kúm í tilraunaskyni til kynbóta.
Ákvörðun verður tiikynnt í dag.
-JSS
Afgreiðsla Samvinnuferða.
yfir háannatímann. Þetta er þvl um
10-20% fækkun eftir því hvemig á það
er litið. Við þessa breytingu verðum
við með sambærilegan starfsmanna-
fjölda og var í upphafi árs 1999.
Grétar IVIar
Jónsson.
- bull, segir Páll
„Þátturinn er
ómerkilegur áróður
fyrir stórútgerðar-
menn,“ segir Grétar
Mar Jónsson, forseti
Farmanna- og fiski-
mannasambands ís-
lands, um sjónvarps-
þáttaröðina Alda-
hvörf sem Ríkissjón-
varpið sýnir um þess-
ar mundir. Grétar Mar segist hafa orð-
ið fokreiður í gærkvöld þegar fjallað
var um kvótakerfið sem sagt var hafa
stuðlað að uppbygg-
ingu þorskstofhsins.
„Það er greinilegt
hveijir era styrktar-
aðilar þessa þáttar.
Fullyrðingar um að
við höfúm besta fisk-
veiðikerfi er ekkert
nema lygar og
þvæla. Þar nægir að
benda á 200 milljarða
króna skuldir sjávar-
Páll
Benediktsson.
útvegsins og ástand fiskistofnanna við
landið. Ríkissjónvarpinu er til
skammar að sýna svona þætti. Þetta er
hneyksli," segir Grétar Mar.
Páll Benediktsson, umsjónarmaður
þáttanna, visar staðhæfingum Grétars
Mars á bug sem bulli og segist ekki
taka mark á þeim: „I þættinum í gær
viðraði ég til dæmis ýmsar hugmyndir
í kvótamálum sem ég hygg að séu stór-
útgerðarmönnum ekki að skapi," sagði
Páll Benediktsson í morgun. -rt/-EIR
Verslókennarar
ekki í verkfall
Kennarar í Verslunarskóla íslands
munu ekki fylgja öðram framhalds-
skólakennurum í verkfall 7. nóverber
nk. ef til þess kemur.
Berta Sigurðardóttir, talsmaöur
kennara í Verslunarskólanum, sagðí
við DV að ástæðan fyrir því að kennar-
ar þar færu ekki í verkfall um leið og
aðrir væri sú að þeir væra ekki búnir
að kjósa um hvort þeir myndu styðja
boðað verkfall Félags framhaldsskóla-
kennara. Það væri því ijóst að kennar-
ar í Verslunarskólanum færa seinna í
verkfall en starfsbræður þeirra í öðr-
um framhaldsskólum ef verkfallsboð-
un yrði samþykkt.
Berta sagði að allflestir kennarar í
Verslunarskólanum væra innan Fé-
lags framhaldsskólakennara. Þeir ættu
nú í samningaviðræðum við skólann.
Kröfur þeirra væra hinar sömu og
annarra framhaldsskólakennara sem
semdu við ríkið.
Berta kvaðst gera ráð fyrir að geng-
ið yrði til kosninga um stuðning við
boðað verkfall framhaldsskólakennara
síðar í vikunni. -JSS
Tilboösverö kr. 4.444
biother
Lítil en STÓRme
5 leturstærðir
9 leturstillinpar
prentar í 2 linur
borði 6, 9 og 12 mm
P-touch 1250
Rmerkileg merkivél
4 gerðir af römmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Gæði og glæsileiki
smoft
Grensásvegi 7, sími 533 3350.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i