Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2000, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000
DV
7
Fréttir
Gamlar skilgreiningar á landsvæðum duga ekki lengur:
Hægari straumur til
Reykjavíkursvæðis
- höfuðborgarsvæðið teygist til nágrannabyggðanna
Höfuöstaöur Noröurlands
Reykjavík og nágrannabæjum hafl
gert fólki sem flytjast vill af lands-
byggðinni erfiðara um vik. Þar af
leiðandi sækist fólk frekar eftir að
setjast að í sveitarfélögum í næsta
nágrenni við hið hefðbundna höfuð-
borgarsvæði, sem svo er skilgreint.
Þar hafl fólk möguleika á að komast
í húsnæði á skaplegra verði.
Hafa sérfræðingar velt fyrir sér
nýrri skilgreiningu á höfuðborgar-
svæðinu, en ekki hefur enn fundist
á því nafn sem sátt er um. Hafa
menn stungið upp á heitum eins og
stór-höfuðborgar-
svæði og kransinn
(þar er átt við svæðið
í næsta nágrenni við
núverandi höfuð-
borgarsvæði). Með
slíkri útvíkkun á höf-
uðborgarsvæðinu
skapast lika annar
vandi. Hann er sá að
þar með er höggvið í
áður skilgreinda
landsbyggð. Þá munu
margir Akureyring-
ar vera lítt hrifhir að
láta telja sig til lands-
byggðarinnar sem
þeir vilja meina að
hafi á sér fremur
niðrandi stimpil. Því
vaknar líka spurning
hvað eigi þá að kalla
landsbyggðina sem
eftir er utan „stór-
höfuðborgarsvæðis-
ins“ og Akureyrar.
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
hagsstofnunar og Hagstofu íslands
um búferlaflutninga fyrstu 9 mán-
uði ársins kemur fram að dregið
hefur úr fólksflutningum af lands-
byggðinni til höfuðborgarsvæðisins
samkvæmt viðtekinni skilgreiningu
á svæðinu sem heild.
Til höfuðborgarsvæðisins, sem
svo er skilgreint, fluttu 1.382 um-
fram brottflutta fyrstu níu mánuði
þessa árs samkvæmt tölum Hag-
stofu íslands. Allt árið í fyrra var
þessi tala 2.077.
Nýja skilgreiningu vantar
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóð-
hagsstofnun dugar hefðbundin skil-
greining á höfuðborgarsvæðinu
vart lengur ef skoða á fólksflutninga
af landsbyggðinni á suðvesturhorn
landsins. Þó dregið hafi úr fólks-
flutningum til Reykjavíkur og ná-
grannasveitarfélaga er mikil upp-
bygging og aðflutningur fólks í
sveitarfélögum á Reykjanesskaga og
einnig í bæjum eins og Selfossi og
Akranesi. Hallast flestir að því að
ört hækkandi fasteignaverð í
Konukvöld úr skorðum hjá útvarpsstöðinni Létt 96,7:
Hlustandi lagðist undir strippara
- á sviði á Hótel íslandi
„Þetta var mjög gróft. Það var
engu líkara en konan héldi að hún
væri Sharon Stone í djarfri kvik-
mynd þama uppi á sviðinu," sagði
einn gesta á konukvöldi útvarps-
stöðvarinnar Létt 96,7 sem haldið
var á Hótel íslandi síðastliðið
fimmtudagskvöld. Konukvöld út-
varpsstöðvarinnar, sem höfðar helst
til miðaldra kvenna, þótti takast
með afbrigðum vel og var salurinn
þéttskipaður hlustendum stöðvar-
innar.
„Ég hef séð ýmislegt an aldrei
neitt í líkingu við þetta. Konumar
hreinlega trylltust þegar karlstripp-
ari sté á sviðið og fór að dilla sér
framan í konumar, sem létu ekki
segja sér það tvisvar að fara upp á
svið og taka þátt í strippi stráksins.
Hann var nakinn en með svarta
svuntu um sig miðjan og ein konan
lét höfuð sitt hverfa undir svuntuna
og dvaldi þar alllengi á meðan sal-
urinn æpti af fognuði," sagði ein
Hótel ísland
Miöaldra konur slepptu sér í trylltum
dansi stripparans.
kvennanna sem var á staðnum en
vill ekki láta nafn síns getið, enda
skammast hún sín fyrir að hafa tek-
ið þátt í þeim dansi sem þarna var
stiginn meðan eiginmaðurinn var
heima að gæta bús og bama. „Um
þverbak keyrði þó í lokaatriðinu
þegar ein konan lagðist á bakið á
sviðið með útglennta fætur og dró
stripparann yfir sig. Lágu þau lengi
á sviðinu í taktfóstum hrynjanda
tónlistarinnar sem vart heyrðist
fyrir hvatningarhrópum kynsystra
konunnar sem á sviðinu lá með
stripparann á milli fótanna. Ég hef
aldrei séð annað eins og þetta var
eiginlega ekki í takt við tónlistar-
stefnu stöðvarinnar, en Létt 96,7
spilar yflrleitt rólega og huggulega
tónlist. Hlustendur hennar hungrar
hins vegar bersýnilega í eitthvað
meira krassandi þegar i boði er,“
sagði konan, sem vart segist geta
haldið áfram að hlusta á stöðina án
þess að minningar frá konukvöld-
inu komi fram í hugann.
Að öðru leyti tókst þessi kvöld-
skemmtun útvarpsstöðvarinnar
Létt 96,7 ágætlega.
-EIR
Hiö eiginlega höfuðborgarsvæöi nær nú yfir Reykjanesskagann, austur á Sel-
foss og upp á Akranes.
Flestir fluttu frá Austurlandi
Það sem af er þessu ári fluttu 669 af
landsbyggðinni og 713 frá útlöndum. í
öðrum landshlutum nema á Suðumesj-
um, Suðurlandi og Vesturlandi vom
brottfluttir fleiri en aðfluttir. Flestir
fluttu frá Austurlandi, eða 254. Af ein-
stökum sveitarfélögum fluttust hins
vegar flestir til Kópavogs, eða 499, og
til Reykjavíkur fluttu 468. Aftur á móti
fluttu flestir frá Fjarðabyggð, eða 112
manns, frá ísafjarðarbæ fluttu 89 og 81
flutti frá Vestmannaeyjum.
Á fyrstu níu mánuðum ársins voru
skráðar 42.364 breytingar á lögheimili
einstaklinga í þjóðskrá. Þar af fluttu
22.126 innan sama sveitarfélags, 14.072
milli sveitarfélaga, 3.644 til landsins og
2.522 frá því. Á þessu tímabili fluttust
1.122 fleiri einstaklingar til landsins en
frá því. Þar af voru aðfluttir íslending-
ar 40 fleiri en brottfluttir og aðfluttir
erlendir ríkisborgarar 1.082 fleiri en
brottfluttir. Á sama tíma árið 1999 var
heildarfjöidi aðfluttra umfram brott-
flutta 1.048. -HKr.
ViÐ ERUM FLUTT
Heimsferðír
eru fluttar í
Skogarhlid 18
Heimsferðir hafa nú flutt aðalskrifstofur sínar í
Skógarhlíð 18, og bjóða viðskiptavini sína velkomna
í nýtt og glæsilegt húsnæði þar sem þú finnur nóg af
bílastæðum.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 • Reykjavík • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
BMW 316i Touring, 5 d., skr. 10.
‘98, d-blár, ek. 23 þ. km, bsk., álf. V.
2.100 þ., áhv. bílalán.
/ J&' -' — . Mm
MMC Galant 2000 st., 5 d., árg. 1998, skr. 10. ‘99, grár, ek. 7 þ. km, ssk. V. 1.800 þ. VW Passat 1600 st., 5 d. skr. 10. ‘97, rauður, ek. 49 þ. km, bsk., krókur. V. 1.330 þ. MMC Pajero 2500 DTI, 5 d„ skr. 01’ 94, blár, ek. 159 þ. km, ssk., sóll., 31V. 1.270 þ.
Dodge Durango SLT 5900, 5 d., skr.
10. ‘00, beis, NÝR, ssk., a/c, ABS
o.fl. o.fl. V.3.990. þ.
MIKIÐ OG GOTT ÚRVAL BÍLA Á SKRÁ
OG Á STAÐNUM. VANTAR BÍLA OG
VÉLSLEÐA Á SKRÁ OG Á STAÐINN.
0PIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL.10-18.
LAUGARDAGA FRÁ KL.10-14.
B - f BÍLASAUNNj
nöldur ehf.
B í L A S A L A
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
461 3020-461 3019
MMC Pajero Sport 2500 DTI, skr. 05.
‘99, vínr., ek. 18 þ. km, bsk., álf., 31',
m/mæli. V. 2.650 þ.
Toyota LandCr. 100 4200 DTI, skr.
06. ‘99, d-blár, ek. 30 þ. km, ssk.,
leður ABS, sóll., 7 manna o.fl. V. 5.290