Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2000, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2000, Síða 28
Snyrtiborð, dúkkur, dúkkuvagnar, vöggur, þríhjól og bílar fyrir litiar dömur. Sími 567 4151 & 567 4280 Heildverslun með leikföng og gjafavörur FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 The New York Times: íslensk rokktón- list á heimsvísu Brotlenti á Reykjavíkurflugvelli dvwvnd e.öl. Lítilli flugvél afgeröinni Cessna 172 RG hlekktist á viö lendingu á norður-suöurbraut Reykjavíkurflugvallar um sexleytið í gær. Flugvélin lenti utan brautarinnar, en svo viröist sem hjótabúnaður hafi ekki veriö niöri þegar hún lenti. Flugkennari og nemi voru í vélinni og sluppu báöir meö skrekkinn. Víkingaskip til sölu: Stórblaðið The New York Times fjaUaði um íslenska rokktónlist í listakálfi sínum í gær og þar er lýst undrun á þeirri fjölbreytni sem tón- listin hefur upp á að bjóða. Höfund- ur greinarinnar telur hljómsveitina Sigur Rós með þeim bestu i heimin- um sem spila rokk i dag. í greininni er farið mörgum orðum um ís- lenska náttúru og telur höfundur að hún sé drifkrafturinn á bak við gróskuna i íslenskri rokktónlist. -Kip Sjá nánar bls. 36. Kviknaði í verk- stæði DV-MYND KK Eldur í Hafnarfiröi Töluveröar skemmdir urðu á Véla- skemmunni hf. í Hafnarfiröi í gær er eldur kom upp á verkstæöinu. Engin siys uröu á fólki. Eldur kom upp í Vélaskemmunni hf. i Trönuhrauni í Hafnarfirði síð- degis í gær. Slökkviliðið á höfuð- borgarsvæðinu var kallað að verk- stæðinu og voru fjórir reykkafarar sendir inn. Þeir fundu upptök elds- ins og gekk slökkvistarfið vel, þrátt fyrir mikinn reyk og töluverðan eld. Engin slys urðu á fólki en skemmd- ir á verkstæðinu eru talsverðar. Einn maður var á verkstæðinu þeg- ar eldurinn kom upp og komst hann út heill á húfi. -SMK Milljón dollara fley - fyrir íslending eftir siglinguna í kjölfar Leifs heppna Kanadíska stórblaðið The Chron- icle - Herald greinir frá því að vík- ingaskipið íslendingur sé til sölu, eða eins og stendur í blaðinu: Notað vík- ingaskip til sölu. Siglt 6.400 kílómetra og í góðu ásigkomulagi. Verð: Ein milljón dollara. „í upphafi stóð ég í þessu aleinn. Hlutverk mitt var að smíða skipið og sigla því. Fyrir mér var New York endastöðin og nú vO ég selja skipið," segir Gunnar Marel Eggertsson, skip- stjóri Islendings, í samtali við The Chronicle - Herald, sagður staddur um borð í skipi sinu í höfninni í New York. Ekki er ljóst hversu mikill áhugi er á víkingaskipinu meðal væntanlegra kaupenda vestan- hafs en ráða má af orðum Gunnars Marels að hann sé með söluvænlegan hlut í höndunum þar sem víkinga- skipið er. Ljóst er hins vegar að fengi Gunnar Marel millj- ón dollara fyrir íslending leystust mörg vandamál hans hér heima. Smíði skipsins var Gunnari Marel dýr og sem dæmi má nefna að það lenti á uppboði í byrjun árs en þá sagði skipstjórinn í samtali við DV: „Þetta var óheppni og hefði aldrei átt að gerast." Sigling víkinga- skipsins íslendings í kjölfar Leifs heppna vestur um haf hófst 17. júní í Reykjavík og var siglt til Grænlands, Nýfundnalands og endað í hötninni í New York þar sem margir helstu framámenn íslendinga í stjórnmálum og menningarlífi tóku á móti Gunn- ari Marel og áhöfn hans. Nú er veisluhöldunum lokið og víkinga- skipið liggur bundið við festar í stór- borginni sem aldrei sefur. Um borð situr Gunnar Marel skipstjóri og bíð- ur kaupanda sem er tilbúinn til að reiða fram eina mfiljón dollara fyrir gripinn. Að mati sérfræðinga er erfitt að meta hvers virði víkingaskipið ís- lendingur er í raun, en eins og einn þeirra orðaði það: „Timbrið kostar lítið sem ekkert en þarna er á ferð- inni handverk sem fáir ráða við. Gunnar Marel er einn þeirra og nú er spurning hvort hann fer að fjölda- framleiða víkingaskip ef markaður- inn tekur við sér.“ -EIR íslendingur til sölu Fyrir mér var New York endastööin, segir skipstjórinn. Saman dv-mynd lárus karl Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff við indverska hofiö Taj Mahal í gær. Átök um 10 ára barn af Akranesi: Telpan áfram í fóstri Þar sem Akranesbær heiui ákveðið að áfrýja úrskurði Hér- aðsdóms Vesturlands, sem felldi úr gildi forræðissviptingu foreldra yfir 10 ára gamalli dótt- ur sinni og þeim aftur dæmt forræði dóttur sinnar, er ekki hægt að flytja barnið frá núver- andi fósturforeldrum sínum til Akraness. „Það er að sjálfsögðu búið að bjóða upp á umgengnisrétt foreldra við bamið,“ sagði Gísli Gíslason, bæjar- stjóri á Akranesi. Bamið var tekið af foreldrum sín- um á Akranesi í janúar síðastliðnum eftir að Héraðsdómur Vesturlands dæmdi fóður stúlkunnar sýkn- an saka af kynferðisbroti gagn- vart henni. Fyrir þremur árum dæmdi Hæstiréttur manninn í ársfangelsi skilorðsbundið í fimm ár fyrir sama brot en al- varlegri ákæm. Bamavemdarnefnd Akra- ness taldi öryggi telpunnar mynd- ógnað í fóðurhúsum og svipti því foreldrana forræði í janúar. Hér- aðsdómur taldi hins vegar bama- vemdamefnd ekki hafa gert allt sem í hennar valdi var til þess að fylgjast með baminu í foreldrahúsum og felldi úrskurð bamaverndamefndar úr gildi. Gísli útskýrði að ekki yrðir hróflað við baminu fyrr en Hæstiréttur hefði kveðið upp sinn dóm, þar sem áfrýjun- in frestar réttaráhrifum dómsins. Að sögn Gísla var það ekki taliö þjóna hagsmunum bamsins að flytja það þá daga sem líða milli þess að dómur var kveðinn upp þangað til áfrýjunarstefn- an verður lögð fram. Aðspurður hvort bamavemdar- nefnd hafi haft rangt fyrir sér í ákvörðun sinni um að taka bamið af foreldrum sínum svaraði Gísli: „Það telur héraðsdómurinn. En menn em ekki sammála honum. Það er alveg ljóst að það era greinilega skiptar skoðanir um málið.“ -SMK Sviösett Fjöldi bíla fauk Margir flutninga- , bílar og aðrar bifreið- ar fóra út af vegum á Norðurlandi vestra, í nágrenni Blönduóss, | í nótt. „Þeir era alls stað- ar. Ég hef ekki tölu á | þvi hvað þeir era Akureyri í gær. margir," sagði lög- reglumaður á Blöndu- ósi í morgun. Um eittleytið í nótt fór flutningabíll á hliðina í Víðidal og póst- bíil frá íslandspósti fór út af og lagðist á hliðina í Langadal á fimmta tímanum í nótt. Bílar fóra út af veginum í Vatns- skarði í nótt og margir bílar komust ekki upp Bakkaselsbrekkuna. Auk þessara fóra fleiri bílar út af vegum á þessu svæði en mikil hálka var á veg- um á Norðurlandi vestra í nótt og I morgun. Engin slys urðu á fólki.-SMK Vandaðar kveðjur £7 V/ÁKuy \ -iPih Sími 569 4000 brother P-touch 9200PC Prentaðu merklmiða beint úr tölvunni Samhæft Windows 95, 98 og NT 4.0 360 dpi prentun 1 til 27 mm letur Strikamerki Rafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport_______

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.