Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2000, Qupperneq 4
F F T T R Y i inT...............................hl.....N.....11,
Vikan 10. nóvember til 16. nóvember
lifið
Ifókus
í kvöld frumsýnir
Háskólabíó fram-
hald hinnar geig-
vænlega vinsælu
grínmyndar The
, Nutty Professor
) með Eddie
Murphy. í The
Klumps er Janet
Jackson í hinu
aðalhlutverkinu
og Eddie sjálfur
í helstu aukahlut-
verkum sem
meðlimir hinnar
frjálslega vöxnu
Klump-fjölskyldu.
„Á föstudagskvöldið var ég
að leika í leikrit-
inu Strætið sem
er frábært leikrit
sem verið er að
sýna í Stúdenta-
leikhúsinu. Eft-
ir leikritið fór
ég með sam-
starfsfólki, vin-
um og kunn-
ingjum á djam-
mið. Laugardagurinn fór að
mestu í hvíld og um kvöldið
var ég aftur að leika í Stræt-
inu. Seinna um kvöldið horfði
ég í fyrsta sinn á myndina
Englar alheimsins sem er al-
veg frábær mynd. Helgina end-
aði ég síðan á að fara og borða
ljómandi góðan mat hjá
mömmu og pabba.“
Hlynur Páll Pálsson bók-
menntafrœðinemi.
Féria er nýr fastur háralitur frá UOréal er býður
upp á fjölmarga litatóna.
Féria skiptist í Féria Color liti og Féria
Contraste strípuliti sem innihalda bursta til að
greiða strípur í hár.
Féria er fyrir þá sem vilja leika sér að litum!
Nú með 15% kynningarafslætti!
Lyf&heilsa
Brúðkaup í bígerð
Þegar við komum til leiks
stendur til að ljúflingurinn
Sherman giftist prófessor Denise
Gaines, sem Janet Jackson leik-
ur. Denise sæta hefur með mat-
græðgi sinni falliö í kramið hjá
Klumpunum, sérstaklega ömmu
gömlu, sem er himinlifandi yfir
því að litli strákurinn hennar fái
nú loksins að ríöa. Gleðistöngull-
inn tággranni og kjaftfori Buddy
Love, sem spratt úr iðrum
Shermans í fyrri myndinni, er
hins vegar ekki jafn sáttur og
ákveður að dúkka upp á yfirborð-
ið og grípa í taumana. Birtingar
hans eru margslungnar, en kjaft-
urinn og stælarnir á honum eru
slíkir að Sherman er við það að
missa alla virðingu. Slagurinn
stendur að mestu um yngingarlyf
sem Sherman hefur fundið upp og
hefur reynt að halda leyndu fyrir
Buddy. Auðvitað mistekst sá felu-
leikur, og það meira að segja eftir
að Klumparnir sumir hverjir stel-
ast í lyfið með lostaörvandi afleið-
ingum. Sherman á þá á brattann
að sækja að ná aftur formúlunni,
stabílísera fjölskylduna og sann-
færa Denise um að það sé ekki
glappaskot hjá henni að ætla að
giftast sér.
Janetar þáttur
Janet Jackson hefur fyrir löngu
sýnt að henni er fleira til lista lagt
en að vera bara örverpið í
Jackson-familíunni músíkölsku
Langþráð pylsa
og shake
„Á föstudags-
kvöldið gerði ég
ekkert nema að
bera á mig
brúnkulitinn og
fór snemma að
sofa. Um morg-
uninn fór ég í
samanburðinn
fyrir fitness-
keppnina og svo aftur heim til
Keflavíkur í myndatöku hjá
Suðurnesjablöðunum. Svo var
mótið um kvöldið og eftir það
fékk ég mér pylsu og shake
sem ég hafði beðið lengi eftir
að gera. Ég ætlaði síðan að
fara í Leikhúskjallarann en
mundi að ég átti eftir ritgerð
og að læra fyrir þrjú próf
þannig að ég sat í súpunni með
það á sunnudaginn."
Freyja Siguröardóttir fitness-
meistari
Klumparnir í
fning
Eddie Murphy er kominn fram
á sjónarsviðið enn einn ganginn,
nú með aðra mynd sína um spik-
fjallið Sherman Klump og ævin-
týri hans. Fyrri myndin, sem var
aftur endurgerð á meistarastykki
Jerry Lewis, The Nutty Profess-
or frá 1963, var sprenghlægileg og
reisti feril Murphy við eftir að
hann hafði ekki gert almennilega
mynd árum saman. Nú hristir
hann, með dyggri aðstoð þolin-
móðra förðunarmeistara, fram úr
erminni nánustu ættingja prófess-
orsins, hina útblásnu Klump-fjöl-
skyldu, sem vakti feikna lukku
með drundrímum sínum í fyrri
myndinni.
Janet Jackson fer með hlutverk tilvonandi brúðar Shermans Klump í myndinni.
Fjölskyldan er ekki lengi að taka hana í sátt þegar þau komast að því að
stúlkan getur innbyrt heilu ósköpin af mat.
og geðheilsutæpu. Á yngri árum
lék hún í sjónvarpsþáttaröðunum
Good Times og Diffrent Strokes,
sem voru feikivinsælar í Banda-
ríkjunum, og Fame-þáttunum,
sem ættu vart aö þurfa kynningar
við. Hún hefur gefið út slatta af
hljómplötum og má þar helst
nefna Control og Rhythm Nation
1814 frá seinni hluta níunda ára-
tugarins og er þvílíkur fantadans-
ari að í samanburði er Michael
stóri bróðir eins og draghölt fylli-
bytta á níunda glasi. Staða hennar
í poppheiminum er því sterk, en
til þessa hefur framlag hennar til
kvikmyndanna takmarkast við
rullu á móti Tupac Shakur í
Poetic Justice, sem John
Singleton leikstýrði og kom út
1993. Nú er bara að sjá hvort hún
nær að meika það á hvíta tjaldinu
sem verðandi Klump-kona. Svo
má geta þess að í Lífinu eftir
vinnu má nálgast frímiða á mynd-
ina, en hann gildir fyrir þá 300
fyrstu sem hafa rænu á að not-
færa sér hann.