Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2000, Blaðsíða 9
b i ó
Ifókus
Vikan 10. nóvember til 16. nóvember
ll±±gu.
V T M M II
II
í kvöld frumsýnir Stjörnubíó breska eðalkrimmann „Snatch“.
Myndin er langþráð önnur mynd leikstjórans Guy Ritchie og
skartar hrúgu af úrvalsleikurum, með skurðgoðið Brad Pitt
fremstan meðal jafningja.
Glæponar í
sýrðum hrærigraut
Lock, Stock and Two Smoking
Barrels var ein allra besta spennu-
og grínmynd níunda áratugarins,
ef ekki sú besta. Tryllingslegur
söguþráöurinn, flugbeitt samtölin,
þykkur Lundúnahreimurinn, grát-
broslegir bófar, frábær tónlist og
geðveikisleg en áhrifarík mynda-
taka og klipping sáu til þess að
myndin varð ógleymanleg þeim
sem hana sáu og gerði leikstjór-
ann, Guy Ritchie, að stjömu. Á
þeim tveimur árum sem síðan eru
liðin hefur Guy helst komist i frétt-
irnar fyrir að vera bólfélagi
Madonnu númer eitthvað og
bamsfaðir númer tvö, en nú er
loksins komin frá honum önnur
kvikmynd sem ber heitið Snatch.
Kaninn bætist í blönduna
Eins og í LS2SB gerast hlutirnir
í London en nú taka að auki nokkr-
ir dólgslegir amerískir rummungar
þátt í plottinu. Það eru engir smá-
kallar (Ritchie virðist engan áhuga
hafa á að búa til bitastæð kvenhlut-
verk) sem koma að vestan, t.d. eru
Benicio Del Toro (“hand me the
fucking keys, you cocksucker,
what the fuck?“) og Dennis Farina
(„Taxi! To the fucking airport“) al-
vön bíófúlmenni. Aðalmaðurinn er
samt auðvitað gredduvakinn ný-
gifti, Brad Pitt, en hann leikur
írska sígaunann One Punch
Mickey sem er boxari sem neitar
að láta kaupa sig. Karakteramir
heita reyndar flestir sýrulegnum
mafíunöfnum sem gætu fengið
Vestmannaeyinga til að skammast
sín fyrir flatneskjuna. Fótbolta-
slátrarinn fyrrverandi.Vinnie Jo-
nes, leikur t.d. Bullet Tooth Tony,
Ewen Bremner (Spud úr Train-
spotting) leikur fígúru að nafni
Mullet, sem útleggst með sítt að aft-
an, og aðrir karakterar heita nöfn-
um eins og Franky Four Fingers,
Boris The Blade, Doug The Head og
Turkish.
Maraslunginn sögu-
þráour
Aðstandendur myndarinnar
segja að söguþráðurinn sé aðal-
númerið en ekki einhver leikarinn,
hvort sem hann heitir Brad Pitt
eða eitthvað annað. Víst er að
plottið gæti gert tölvu gráhærða en
þar blandast saman demantarán,
gyðingar frá New York með of-
næmi fyrir Englandi, hjólgraðir
hundar, gamlar hjólhýsakerlingar,
fyrir fram ákveðnir boxbardagar
og hver veit hvað. Með svona gríð-
arlegar væntingar á bakinu hefði
Snatch auðveldlega getað valdið
vonbrigðum en skemmst er frá því
að segja að gagnrýnendur, jafnt og
bíógestir, hafa komist iskyggilega
nálægt því að óhreinka nærfot sín
af fögnuöi yfir því hversu frábær
skemmtun myndin er. „Mun betri
en LS2SB,“ segja þeir einum rómi,
og það eitt og sér er nóg til að reka
hvern heilvita mann í bíó, og það í
hvelli.
Bíóborgin
Space Cowboys
Nokkrir gamlir refir úr
geimferðaráætlunum
NASA fá uppreisn æru
á gamalsaldri. Snilld-
arteymi leikara.
Sýnd ki.: 5,30, 8,
10,30
U-571 ★★ .Eflitiðer
fram hjá hnökrum og
myndin og sagan tek-
in án hugleiðinga um
mótsagnir og sannleiksgildi þá er U-571 fín
spennumynd sem stundum myndar rafmagn-
að andrúmsloft."-HK
Sýnd ki.: 10
íslenski draumurinn ★★★ ,Á heildina litið
ræður Robert I. Douglas vel við formið. ís-
lenski draumurinn lofar góöu um framtíðina
hjá honum." -HK
Sýnd kl.: 6, 8, 10
Buena Vista Social Club Gamlir kúbanskir
tónlistarmenn sem eiga Kastro það að þakka
að hafa þurft aö fást við skóburstun fremur
en hljóðfæraleik síðustu áratugina, samein-
ast hér á ný. Heimildarmynd.
Sýnd kl.: 6, 8
Bíóhöllin
The Nutty Professor II
endurgerðri mynd. »
Þetta hljómaði ekkert
voðalega vel, ef ekki <tÆk
væri fyrir Eddy Murphy
sem fer með hlutverk sPb'Í**3
hnotuglaða prófesórs- r|3PjSí
m
r
ins og flölskyldu hans
allrar. Ef prump er eitt-
hvað sem fær þig til
að veltast um af hlátri
þá er þetta mynd sem
þú lætur ekki ganga
þér úr greipum
Sýnd kl.: 4, 6,50, 8, 10,15
Chlcken Run ★★★ „Húmorinn í Kjúklinga-
flóttanum er einstaklega frumlegur og góður
auk þess sem fígúrurnar eru vel heppnaðar
og raddir eins og best veröur á kosið." -HK-
Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10
The Kid Bruce Willis hefur gleypt ótæpilegt
magn geölyfja og hittir æskumynd sjálfs sins
í eiturvímunni. Ekta Disneymynd.
Sýnd kl.: 3,50, 5,55, 8,10,05
The Exorcist Þetta er ein frægasta hryllings-
mynd allra tíma, í þeim búningi sem leikstjór-
inn hefði helst kosið. Særingamaðurinn flæk-
ist milli hverfa og rekur á undan sér fjörulalla
og púka.
Sýnd kl.: 8, 10,30
Gossip Hvar liggja mörkin milli slúðurs og
frétta? Það er ekkert grin þegar slúðrið breyt-
ist í alvöru lífsins.
Sýnd kl.: 10
Space Cowboys (Sjá Bíóborg)
sýnd kl.: 8,10,15
Asterix & Obelix Já þeir eru komnir, Ástrík-
ur & Steinrikur, til að bösta þessa andsk.
Rómverja sem gera lítiö annað en að drekka
vín og fara í gufu.
Sýnd kl.: 3,50, 5,45
Fantasía/2000 ★★ .Þegar á heildina er lit-
ið þolir Fantasía 2000 ekki samanburð við
forvera sinn, hún er samt sem áður vel þess
virði að sjá hana, tónlistin er fín og teikning-
arnar stórkostlegar. Matreiðslan er þaö sem
betur hefði mátt gera." -HK
Sýnd kl.: 4
Háskólabíó
The Nutty Professor II (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 5,45, 8, 10,15
Chlcken Run ★★★ (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 6
With or Without you Þetta er hugljúf saga
um fólk sem þarf annað hvort að vera með
Framhaldsmynd af
■m
eða án hvors annars.
Sýnd kl.: 8
Lulu on the Bridge Enginn veit hvað raun-
verulega gerðist á brúnni, en af kynning-
arplakatinu aö dæma fór þar fram heljarinnar
kossaflens.
Sýnd kl.: 6, 8, 10
Dancer in the Dark ★★★★ „Líkt og myndin
sjálf er afstaða mín til hennar afskaplega klof-
in milli aðdáunar og pirrings. Ég mæli hins
vegar mjög með því aö þú drifir þig, lesandi
góður, og dæmir fyrir þig." -ÁS-
Sýnd kl.: 5,30
101 Reykjavík ★★★
Sýnd kl.: 6
Kringlubíó
The Exorcist (Sjá
Bíóhöll)
Sýnd kl.: 8, 10,30
Bedazzled Brendan
Fraser gengur eitthvað
illa I kvennamálunum
og fær aðstoð djöfuls
til þess að vinna
hjarta stúlku sinnar.
Hversu skemmtilega
hljómar þetta?
Sýnd kl.: 4, 6, 8,10
Asterix & Obelix (Sjá BTóhöll)
Sýnd kl.: 3,30
The Kid (Sjá Bíóhöll).
Sýnd kl.: 3,45, 5,50, 8, 10,10
Laugarásbíó
Drowning Mona Það fer að miklu ieyti eftir
smekk manna, en sumum finnst eggin frá
Mónu bara svo vond á bragöið aö þeir vilja
drekkja þeim.
Sýnd kl.: 6, 8, 10
The Cell Jennifer
Lopez leikur f þessum
trylli og ekki er gott að
átta sig á því hvers
kyns mynd er hér á
ferðinni, en falleg er
hún gleðikonan á
henni.
Sýnd kl.: 6, 8,10
Shaft Shaft er einn
vígalegasti negrinn á
svæðinu og þegar
hann er leikinn af Samuel L. Jackson lokast
hringurinn. Þetta er endurgerö af klassískri
bíómynd.
Sýnd kl.: 6, 8, 10
Regnboginn
What Lles Beneath ★★ „Það er hálffúlt að
það fólk sem stendur að What Lies Beneath
skuli ekki geta gert betur." -gse
Sýnd kl.: 5,30, 8,10,30
Scary Movie Allar hryllingsmyndir fyrir ung-
linga, síðustu ár, fá það óþvegið í þessari grfn-
mynd.
Sýnd kl.: 6, 8, 10
The Kid (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 6, 8,10
Blg Momma¥s House
★ Er Martin Lawrence
jafngóður gamanleik-
ari og Eddie Murphy?
Svarið hlýtur að vera
neitandi.-HK
Sýnd kl.: 6
Loser Það er leiðin-
legt að vera talinn
aumingi. Sýnd kl.: 8,
10
Stjörnubíó
Bedazzled (Sjá Kringlubfó)
Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10
Snatch Snatch er frá þeim hinum sama
manni, sem gerði LS2SB sér og öðrum að
gamni. Ekki á þessi að vera sfðri en sú, en
um hvað hún er hafa fæstir klú.
Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10
tónleikar
Útgáfutónleikar hljómsveitarínnar Stolið verða haldnir í Kjallaranum við Hverfis-
götu næstkomandi fimmtudag. Fyrsti diskur sveitarinnar, Allt tekur enda, kemur
út í vikunni og lofa drengirnir hörkutónleikum.
Hljómsveitin Stolið hefur starfað
í tvö ár og hafa þeir drengir unnið
að plötunni allan þann tíma. Þrír
meðlimanna koma úr hinni víð-
frægu sveit Soma, sem lagði upp
laupana árið 1998. Þegar Soma var
upp á sitt besta voru sveitaböllin
orðin aðalvettvangur sveitarinnar
og segja liðsmenn Stolið að slíkt
verði ekki uppi á teningnum í þetta
skiptið.
Þeir segja erfitt að skilgreina tón-
listina en áhrifavaldarnir, ef hægt
sé að tala um slíka, séu alla vega úr
frekar þunglamalegri átt. Er þá átt
við post-rokk og þess konar tónlist.
Tónlistin þeirra mun þó vart teljast
of þungmelt en þeir Viðurkenna fús-
lega að ekki megi búast við ein-
hverjum útvarpshitturum.
Útgáfutónleikarnir verða eins og
áður segir í Kjallaranum næst-
komandi fimmtudagskvöld. Hús-
ið opnar upp úr 21 og mega þeir
sem mæta snemma búast við
góðum veitingum.