Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2000, Síða 10
10
Útlönd
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
x>v
Teygjubyssa á Gaza
Palestínskur unglingur skýtur úr
teygjubyssu að ísraelskum dátum.
Ekkert miðaði í
Mið-Austurlöndum
Dennis Ross, sendifulltrúi Banda-
ríkjastjómar, hélt heim frá Mið-
Austurlöndum snemma í morgun
eftir árangurslausar viðræður við
ráðamenn um leiðir til að binda
enda á ofbeldið sem hefur kostað á
þriðja hundrað manns lífíð.
Tveir Palestínumenn voru skotn-
ir til bana i gærkvöld nærri Jeríkó
á Vesturbakkanum, að sögn lækna.
ísraelski herinn sagði að skipst
hefði verið á skotum við Palestínu-
menn á þessum slóðum.
Fyrr um daginn höfðu aðrir tveir
Palestínumenn fallið í átökum
nærri Hebron og tólf ára drengur
lést af sárum sem hann hlaut i Gaza
á miðvikudag.
Þrátt fyrir blóbaðið sagðist Yass-
er Arafat, forseti Palestínumanna,
ekki hafa gefið upp alla von um frið.
Ehud Barak, forsætisráðherra fsra-
els, var ekki jafnbjartsýnn.
Málsókn vegna
kúariðuveiki
Lögmaður tveggja franskra fóm-
arlamba Creutzfeldt-Jakob veikinn-
ar, annars látins, ætlar að höfða mál
gegn frönskum og breskum yfir-
völdum og Evrópusambandinu fyrir
að hafa ekki brugðist rétt við
kúariðufári á níunda og tíunda ára-
tugnum. Vegna fjölda kúariðutil-
fella í Frakklandi hafa Spánn og
Ungverjaland bannað innflutning á
nautakjöti þaðan. Ítalía íhugar inn-
flutningsbann og þrýstingur er á yf-
irvöld í Bretlandi að bregðast við á
sama hátt. Sala á nautakjöti í
Frakklandi hefur minnkað um 40
prósent undanfamar vikur.
Handtalning atkvæða leyfð í Flórída:
Úrslitin ráðast
kannski í nótt
Hæstiréttur Flórída heimilaði í
gær að atkvæði úr forsetakosning-
unum yrðu handtalin í nokkrum
sýslum í Flórída. Samkvæmt opin-
berum tölum er George W. Bush,
forsetaefni repúblikana, enn með
300 atkvæða forskot á A1 Gore, for-
setaefni demókrata.
Níu dagar eru nú liðnir frá því
bandaríska þjóðin gekk að kjörborð-
inu til að velja sér forseta. Hugsan-
legt er að úrslitin liggi ljós fyrir
næstu nótt þegar þúist er við að for-
maður yfirkjörstjórnar á Flórída
staðfesti niðurstöður kosninganna í
ríkinu. í húfi eru 25 kjörmenn. Þeir
munu ráða úrslitum um hvor verð-
ur næsti forseti Bandaríkjanna,
Bush eða Gore.
Hart er nú deilt um það i Flórída
Handtalningin hafin
Formaður kjörstjórnar i Palm Beach
meö atkvæðakassa í fanginu.
hvaða atkvæði verða talin með þeg-
ar lokaúrslitin verða kynnt og hafa
dómstólar fengið málið til úrskurð-
ar. Stuðningsmenn Gores vilja
handtalningu í kjördeildum þar sem
demókratar hafa allajafna meiri-
hluta. Kosningastjórar Bush leggj-
ast hins vegar gegn endurtalningu
og vilja að úrslit frá því á þriðjudag
ráði.
Katherine Harris, innanríkisráð-
herra Flórída og eldheitur stuðn-
ingsmaður Bush, hefur sagt að úr-
slitin sem hún staðfesti á þriðjudag,
það er 300 atkvæða forskot Bush,
stæðu og hið eina sem gæti breytt
þeim væru utankjörfundaratkvæði.
Hvernig þau falla verður ljóst í
fyrramálið að íslenskum tíma. Á
meðan berjast lögmenn flokkanna.
Tekiö í höndina á forsetanum
Bill Clinton Bandaríkjaforseta hefur veriö tekið með kostum og kynjum í Víetnam þar sem hann er nú í heimsókn,
fyrstur Bandaríkjaforseta eftir að Víetnamstríðinu lauk fyrir 25 árum. Nokkrir krakkar teygðu sig út um giuggann á
heimili sínu til að geta tekið í höndina á forsetanum sem var að kaupa jólagjafir í handverksbúð við hliðina.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir á eftir-
farandi eignum:
Álakvísl 25,0101, 3ja herb. íbúð, hluti af
nr. 21-31 og hlutdeild í bílskýli, Reykja-
vík, þingl. eig. Anna Guðjónsdóttir, gerð-
arbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðju-
daginn 21. nóvember 2000 kl. 10.00.
Bauganes 44, íbúð á efri hæð ásamt bíl-
geymslu m.m., Reykjavík, þingl. eig.
Jytte Th. M. Jónsson og Helgi Jónsson,
gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Islands
hf., Landsbanki íslands hf., höfuðst.,
Lánasjóður íslenskra námsmanna og
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 21.
nóvember 2000 kl. 10.00.
Bergstaðastræti 48, 66,6 fm verslun á 1.
hæð, með aðaldyrum á liorni hússins,
ásamt geymslu, 0005 m.m., Reykjavík,
þingl. eig. íslenskar fyrirsætur ehf., gerð-
arbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn
hf. og Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn
21. nóvember 2000 kl. 10.00.
Dalbraut 1, 0104, 39,4 fm þjónustuhús-
næði í næstnyrsta eignarhluta á jarðhæð,
Reykjavík, þingl. eig. Þorgeir Jóhanns-
son, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið,
þriðjudaginn 21. nóvember 2000 kl.
10.00.
Eiðistorg 13, 010104, 109,3 fm verslun
m.m. ásamt geymslu merkt. 0014 (áður
merkt 0105), Seltjamamesi, þingl. eig.
Bjöm Ingólfsson, gerðarbeiðandi Toll-
stjóraembættið, þriðjudaginn 21. nóvem-
ber 2000 kl. 10.00.
Frakkastígur 12a, 0204, íbúð á 2. hæð,
Reykjavík, þingl. eig. Amar Sveinsson,
gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóður, Lífeyr-
issjóður sjómanna og Tollstjóraskrifstofa,
þriðjudaginn 21. nóvember 2000 kl.
10.00.___________________________________
Garðyrkjustöðin í Reykjadal, spilda úr
landi Reykjahlíðar, Mosfellsbæ, þingl.
eig. Erlingur Olafsson, gerðarbeiðandi
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 21.
nóvember 2000 kl. 10.00.
Grandagarður 8,010105,888,8 fm iðnað-
arhúsnæði á 1. hæð m.m., Reykjavík,
þingl. eig. Hamra ehf., gerðarbeiðandi
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 21.
nóvember 2000 kl. 10.00.
Hólmaslóð 2, 0101, 294,5 fm vinnslusal-
ur á 1. hæð og skrifstofa og starsmanna-
aðstaða á 2. hæð 38,6 fm, Reykjavík,
þingl. eig. Nónborg ehf., Bíldudal, gerð-
arbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðju-
daginn 21. nóvember 2000 kl. 10.00.
Hraunberg 4, 0301, rishæð V-endi,
Reykjavík, þingl. eig. Eggert Amgrímur
Arason, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður
verslunarmanna og Tollstjóraembættið,
þriðjudaginn 21. nóvember 2000 kl.
10.00.___________________________________
Hverfisgata 82, 010102, verslunarhús-
næði í V-enda, 83,3 fm, Reykjavík, þingl.
eig. ÍS-EIGNIR ehf., gerðarbeiðandi
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 21.
nóvember 2000 kl. 10.00.
Laufengi 27, 0201, 3ja herb. íbúð á 2.
hæð t.v. m.m., Reykjavík, þingl. eig.
Danfríður Kristín Ámadóttir, gerðarbeið-
endur Ibúðalánasjóður og Tollstjóraemb-
ættið, þriðjudaginn 21. nóvember 2000
kl. 10.00. '
Laufengi 104, 0102, 3ja herb. íbúð,
Reykjavík, þingl. eig. Hildur Bjömsdótt-
ir, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og
Ibúðalánasjóður, þriðjudaginn 21. nóv-
ember 2000 kl. 10.00.
Laugavegur 22a, Reykjavík, þingl. eig.
GAM ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóra-
embættið, þriðjudaginn 21. nóvember
2000 kl. 10.00.
Rjúpufell 27, 0301, 4ra herb. íbúð, 92,2
fm, á 3. hæð t.v. m.m., Reykjavík, þingl.
eig. Einar Erlendsson, gerðarbeiðandi
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 21.
nóvember 2000 kl. 10.00.
Suðurlandsbraut 6,010101, verslunar- og
skrifstofurými á I., 2. og 3. hæð m.m.,
Reykjavík, þingl. eig. Fjölritun Nóns
ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið,
þriðjudaginn 21. nóvember 2000 kl.
10.00.
Æsufell 4, 0106, 5 herb. ibúð á 1. hæð,
merkt F, Reykjavík, þingl. eig. Snæbjöm
Kristjánsson, gerðarbeiðendur Islands-
banki hf., höfuðst. 500, og Tollstjóraemb-
ættið, þriðjudaginn 21. nóvember 2000
kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum veröur háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Laugateigur 8. 0001, 4ra herb. kjallaraí-
búð og 1/4 lóðar, Reykjavík, þingl. eig.
Jón Ólafsson, gerðarbeiðendur íslands-
banki-FBA hf., Lífeyrissjóðurinn Lífiðn
og Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis,
útibú, þriðjudaginn 21. nóvember 2000
kl. 13.30.
Skeljagrandi 5, 0103, Reykjavík, þingl.
eig. Bjöm Ævarr Steinarsson og Vilhelm-
ína Ólafsdóttir, gerðarbeiðendur Ibúða-
lánasjóður, Skeljagrandi 5, húsfélag, og
Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn 21.
nóvember 2000 kl. 10.00.
Skólavörðustígur 22c, 020101, geymslu-
skúr á baklóð m.m., Reykjavík, þingl.
eig. Magnús Matthíasson, gerðarbeiðandi
Erlingur Sigurður Davíðsson, þriðjudag-
inn 21. nóvember 2000 kl. 10.30.
Vesturgata 16,010101, l.hæðogkjallari.
010201, 2. hæð. 010301, 3. hæð, Reykja-
vík, þingl. eig. Sturlungar ehf., gerðar-
beiðandi Kristinn Hallgrímsson, þriðju-
daginn 21. nóvember 2000 kl. 11.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Stuttar fréttir
Hvetur til einingar
Joseph Estrada,
forseti Filippseyja,
sem réttað verður
yfir í næsta mánuði
vegna meintrar
mútuþægni, hvatti í
morgun til einingar
meðal þjóðarinnar.
Stj órnarandstaðan
krefst þess að Estrada segi af sér.
Japanir á hvalveiðar
Floti japanskra hvalveiðiskipa
sigldi í morgun áleiðis til Suður-
skautslandsins tæpum sólarhring
eftir að Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti hvatti Japana til að hætta hval-
veiðum.
Mir sökkt í Kyrrahafið
Rússneska geimstöðin Mir verður
tekin úr notkun í febrúar á næsta
ári. Verður stöðin látin falla í
Kyrrahafið.
Eldur vegna jurtaolíu
Jurtaolía var notuð í vökvaafls-
kerfi skíðalestarinnar í Kaprun i
Austurríki sem eldur kom upp í.
Jurtaolía brennur við lægra hitastig
en jarðolía. Hafi lega í vökvaafls-
kerfinu hitnað kann að hafa kvikn-
að í jurtaolíunni, að því er sérfræð-
ingar segja i viðtali við austurrískt
dagblað.
Njósna ekki um Kúrsk
Fulltrúi NATO sagði í gær að
Rússar þyrftu ekki að óttast njósnir
bandalagsins við kafbátinn Kúrsk.
Rússar hafa sprengt að undanfórnu
við kafbátinn til að fæla forvitna
frá.
Samtal yfir kvöldverði
Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, og Gerhard
Schröder, kanslari
Þýskalands, ræddu
evrópsk málefni yf-
ir þriggja klukku-
stunda löngum
kvöldverði i gær.
Voru viðræðurnar undirbúningur
fyrir leiðtogafund ESB í Frakklandi
í desember. Robin Cook, utanríkis-
ráðherra Bretlands, varaði í gær
Blair við einangrun tækju Bretar
ekki fullan þátt i evrópskri sam-
vinnu.
Rannsókn á þjófnaði
Fulltrúar bresku
hirðarinnar sögðu
að starfsmaður,
sem grunaður er
um að hafa stolið
brúðkaupsgjöf til
Karls prins og
Díönu heitinnar
prinsessu, hefði
verið látinn hætta störfum um
stundarsakir á meðan lögreglan
rannsakaði málið. Breskir fjölmiðl-
ar segja að bryti Díönu hafi verið
handtekinn vegna þjófnaðar á dem-
antsskreyttu skipslíkani sem metið
er á 170 milljónir íslenskra króna.
Skipið var gjöf frá emímum af
Bahrain.
Létust af landadrykkju
Yfir sextíu Keníabúar hafa látist
af völdum landadrykkju. Yfir 200
hafa verið fluttir veikir á sjúkrahús
vegna drykkju landans. Óttast er að
enn sé verið að neyta hans. Flest
fórnarlambanna eru úr fátækra-
hverfum Nairobi.