Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2000, Síða 1
15
Heimsbikarmótið
á skíðum í fullan
gang
Bann Xaviers stytt
Níu mánaða bann sem Abel Xavier, hinn hárprúði leikmaður Everton og portúgalska lands-
liðsins, hlaut fyrir hiö eftirminnilega rauða spjald í undanúrslitaleiknum gegn Frökkum á EM
í sumar, hefur verið stytt í sex mánuði. Leikmaðurinn sótti þaö hart að fá bannið fellt niður en
áfrýjunarnefnd UEFA sagði hegðun hans gagnvart dómara leiksins ekki hafa verið til
eftirbreytni og því stæði bannið en yrði stytt. Leikmaðurinn var afar óánægður og ekki siður
með þá staðreynd að Everton sendi ekki fulltrúa td dómsins til að verja hann. -ÓK
Nef sigraði í Park City
Svissneska stúlkan Sonja Nef tryggði sér sinn 5. heimsbikarsig-
ur í stórvigi í Park City í gærkvöldi. Nef tókst að vinna upp stórt
forskot austurrísku Brigitte Obermoser sem skíðaði frábærlega í
fyrri umferð þar sem hún myndaði sér 1,29 sekúndna forskot á
næsta keppanda. Martina Ertl, sigurvegarinn í Sölden, fyrstu
keppni vetrarins, var 19. eftir fyrri umferð en náði þó að lyfta sér
í það sjöunda. Önnur í stórsviginu varð Brigitte Obermoser frá
Austurríki og þriðja varð Anja Pársson. -esá
Víðförulir
dómarar
íslenskir handknattleiks-
dómarar verða á ferðinni í Evr-
ópu um helgina og vinna við
fjóra leiki. Stefán Amaldsson
og Gunnar Viðarsson dæma
stórleik FC Barcelona og Wy-
brzeze Gdansk frá Póllandi í
Meistaradeild Evrópu, Guðjón
L. Sigurðsson og Ólafur Har-
aldsson verða við stjórnina í
leik Skövde frá Svíþjóð og
Savinesti frá Rúmeníu í Evr-
ópukeppni bikarhafa, Gunnar
K Gunnarsson verður eftirlits-
maður á leik Runar frá Noregi
og Banik Karvina frá Tékk-
landi í Meistaradeildinni sem
og Hákon Sigurjónsson á leik
THW Kiel frá Þýskalandi og
Braga frá Portúgal í sömu
keppni.
Fitness
um helgina
Á sunnudaginn kl. 19 verður
haldið Bikarmeistaramót íslands
í fitness á Broadway. Flestir
sterkustu fitnesskeppendur
landsins mæta til keppni þar
sem keppt er um Hreystisbikar-
inn. Mótið er jafnframt úrtöku-
mót fyrir Norðurlandamót sem
haldið verður í Svíþjóð á næsta
ári. Nokkrar nýjar þrautir hafa
verið settar upp í hindrana-
brautinni sem á örugglega eftir
að reyna til hins ýtrasta á kepp-
endur. Það verður því spennandi
að fylgjast með gengi þeirra um
helgina.
Viggó Sigurösson er bjartsýnn fyrir
leikina gegn Bodo HK um helgina og
lætur sjálfsagt í sér heyra á bekknum aö
vanda. DV-mynd Hilmar Þór
íslandsmeistarar Hauka í handknattleik mæta
Bodo HK frá Noregi tvisvar sinnum um helgina
á Ásvöllum í Evrópukeppni félagsliða en íslands-
meistararnir taka nú þátt í þeirri keppni eftir að
hafa dottið út úr Meistaradeild Evrópu i leikjun-
um gegn ABC Braga frá Portúgal fyrir skömmu.
Haukamir hafa hins vegar verið á hvínandi sigl-
ingu hér heima og eru einir og ósigraðir á toppi
Nissandeildarinnar eftir níu leiki. DV-Sport
hafði samband við þjálfara liðsins, Viggó Sig-
urðsson, í gær og spurði hann um leikina um
komandi helgi og gengi liðsins í deildinni.
„Þetta verða hörkuleikir. Leikirnir gegn Braga
voru mikil vonbrigði fyrir okkur og menn ætla
sér að sjálfsögðu að gera betur,“ segir Viggó. „Ég
er búin að skoða Bodo-liðið nokkuð vel og er bú-
inn að sjá þrjá leiki með þeim. Norðmennirnir
eru með álíka sterkt lið og við, þeir eru mjög vel
mannaðir en styrkleiki okkar er sá að við höfum
meiri breidd. Þeir eru með sex mjög góða leik-
menn, öflugan miðjumann, öfluga hægri handar
skyttu og sterkan línumann en aðal þeirra er
vamarleikurinn. Ég vonast hins vegar til þess að
heimavöllurinn geri útslagið um það að við
komumst áfram.
Það eru allir leikmenn Hauka að mestu heilir,
Petr Baumruk á að vísu við smávægileg hnjá-
meiðsl að stríða en hann spilar. Við reynum bara
að halda okkar striki, spilum af öryggi og tökum
annan leikinn fyrir í einu. Það er náttúrlega
erfitt að spila svona tvo daga í röð en þetta verð-
ur sjálfsagt erfiðara fyrir þá því þeir koma ekki
fyrr en seinnipartinn á morgun (í dag), fara beint
á æfmgu og síðan er leikur á laugardag. Við get-
um því ekki kvartað yfir álagi.“
Nú hefur Haukaliðið byrjað íslandsmótið mjög
vel og allt gengið ykkur hag, ef frá eru taldir leik-
irnir gegn Braga. Hver er galdurinn?
„Við æfum mjög vel og undirbúningurinn und-
ir mótið var mjög góður. öll umgjörðin í kring-
um Hauka-liðið er frábær, aðstæður og stjórnun
í kringum liðið er fyrsta flokks og góður stuðn-
ingskjami sem kemur á alla leiki, eins og sást í
leiknum gegn Fram í Safamýrinni þar sem
stuðningurinn við okkur var miklu öflugri en
heimamanna..
Það er mjög góður andi í hópnum. Þeir sem
voru að koma nýir inn í hópinn hafa komið mjög
vel út, Rúnar Sigtryggsson var áður í Haukunum
og síðan fáum við Einar Öm Jónsson sem fellur
mjög vel inn í hópinn og það er stórkostlegur
vinningur að hafa fengið hann,“ sagði Viggó að
lokmn.
-ÓK