Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2000, Síða 1
cr cr
ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000
Reykingar
auka
víðáttufælni
Bls. 23
Tal opnar
fyrir GPRS
Bls. 21
140 GB
diskur
Bls. 20
tölvun tækni og vísinda
PlayStation
Stærsta og virtasta
tölvusýningin sem
haldin er á banda-
rískri grund er Com-
dex. Sýningin er hald-
in tvisvar á ári og var seinni sýning
þessa árs haldin í síðustu viku.
Eins og fyrri daginn hélt tölvumó-
gúllinn Bill Gates ávarp við opnun
sýningarinnar þar sem hann ræddi
framtíðina í tölvuiðnaðinum. Meðal
þess sem Gates sagði var að þrátt fyr-
ir tilkomu fjölmargra nýrra tækja
sem nú gætu tengst Netinu væru dag-
ar gömlu góðu heimilistölvunnar
langt í frá taldir. Ástæðuna' fyrir
þessu segir hann vera þá að flest
þessara litlu nettengdu tækja, s.s.
handtölvur og farsímar, svo eitthvað
sé nefnt, ráði ekki við allar þær upp-
lýsingar sem komi til með að renna
um Netið. Sem dæmi tók hann .Net-
áætlun Microsoft um að leigja hug-
búnað yfir Netið, eitthvað sem litlu
tækin réðu ekki við. Einhverjir hafa
sjálfsagt brosað út í annað þegar
Gates kom með þessa yfirlýsingu þar
sem Microsoft er nú stærsti framleið-
andi heimilistölva og fer varla að tala
á móti þeim.
Eitt sem vakti athygli á Comdex
var sú staðreynd að .Com fyrirtækin
sáust varla. Síðustu tvær sýningar
hafa verið yfirfullar af netfyrirtækj-
um. Það hefur hins vegar harðnað á
dalnum hjá þeim fyrirtækjum og flest
þau sem voru á síðustu sýningu er
annaðhvort komin á hausinn eða
hafa hægt um sig. í staðinn var mik-
ið um nýjungar á sviði hugbúnaðar
og vélbúnaðar og er hægt að finna
umfjöllun um nokkur forvitnileg
tæki og forrit á opnunni í Heimin-
um.
* „Sýrð“ geðhjálp
I Bandarikjunum er
nú nokkuð merkileg
gerjun í gangi innan
geðhjálpargeirans.
Þar hafa nokkrir geð-
læknar og sálfræðingar byrjað að nota
ofskynjunarlyf eins og ecstasy, LSD,
sveppi o.s.frv., við meðferð á sjúklmg-
um sínum. Ein af rökunum sem þeir
halda fram er að með því að nota of-
skynjunarlyf eigi fólk auðveldara með
að muna erfið atvik úr lífi sínu. Fólk
„trippar" undir eftirliti og fer síðan í
gegnum reynslu sína með læknum
sínum seinna meir. Samkvæmt viðtöl-
um sem birtust á veftímariti Wired er
fólk afar ánægt með þessa meðferð og
segir hana gera kraftaverk.
Mikil andstaða er gegn geðmeðferð
sem þessari og háværar mótmæl-
araddir hafa heyrst, enda eru þetta
ailt ólögleg eiturlyf sem notuð eru.
Þetta hefur valdið því að meðferðir
sem þessar eru haldnar á leynilegum
stöðum og fólk kemst aðeins í þær
með því að þekkja rétta aðila.
Nýr flokkur dýra
Danskir vísinda-
menn segjast hafa
uppgötvað nýjan
flokk dýra sem lifir í
köldum vatnsupp-
sprettum á Grænlandi. Dýrin eru
aðeins um einn tíundi úr millímetra
og hafa hlotið fræðiheitið Limnogn-
athia maerski.
Dýrin, sem fundust í sýnum sem
tekin voru árið 1996 í kaldri lind á
Diskóeyju, eru af sömu tegund og
önnur nýuppgötvuð tegund smá-
dýra sem eiga það sameiginlegt að
hafa flókna kjálka. Eftir miklar
rannsóknir varð niðurstaðan sú að
aðeins kvendýr var að finna í sýn-
inu og var gerð árangurslaus leit að
karldýrum en ekkert gekk. Þetta
hefur valdið því að kenning er uppi
um að kvendýrin fjölgi sér með
skiptingu. Rannsóknir á dýrunum
eru hins vegar bara nýbyrjaðar og
margt eftir órannsakað í sambandi
við starfsemi og lifnaðarhætti.
Vísindamennirnir sem fundu dýr-
in telja að margar aðrar smáverur
séu eftir órannsakaðar.
LlííuuÓí
E
v
Okeypis smáauglýsingar!
►I Gefins
-alltaf á miövikudögum
►! Tapað - fundið
-alltaf á þriðjudögum
DV
Smáauglýsingar
550 5000
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VISII*.IS