Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2000, Blaðsíða 9
9
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000
Útlönd
BpMM!! BUMM!!
s' LAGERSALA !!
oi g\rA!^l^900Ó-
BY FLEETWCOD,
9 Stk
27
SVEFNPOKAR 3.600.-stk.
stk STÓLAR 3.600.-stk.
32 stk SÓFI 6.900.-stk.
27 stk LUKT 1.990.-stk.
m
«
hev-G
FERÐAVARA
PLASTSTÓLAR 790.-
TAUSTÓLAR 990.-
FERÐABORÐ 1.990.-
FERÐASALERNI 9.990.-
1 stk 107 KERRA 29.700.- X,
8 stk 127 KERRA 39.900.- ^
5 Stk 157 KERRA 73.500.- %
2stk 197 KERRA 95.700.-
2 stk 237 KERRA157.600.- ^
□ LLUM DAXARA KERRUM FYLGIR
YFIRBREYÐSLA, FR ÍTT, FR ÍTT, FR ÍTT, FR ÍTT, FR ÍTT.
AÐEINS TJM HELGINA...
OPIÐ FRÁ 10-16
í SKEIFUNNI
SENDUM UM LAND ALLT S 533-1414 www.evro.is
EVRÖ
Konstantín fær
aftur hallirnar
Mannréttindadómstóllinn i Stras-
bourg úrskurðaði í gær að gríska
ríkið hefði breytt rangt er það gerði
upptækar hallir og jarðir Konstant-
íns, fyrrverandi Grikklandskon-
ungs.
Konungurinn og Anna María
drottning hafa búið í útlegð í
London frá því að þau flýðu frá
Grikklandi 1967 í kjölfar misheppn-
aðrar tilraunar til að steypa her-
stjórninni sem þá var við völd.
Mannréttindadómstóllinn mun síð-
ar fjalla um kröfu Konstantíns um
skaðabætur upp á 1,4 milljarða doll-
ara.
^ Deilendur fyrir botni Miðjarðarhafs funduðu í gær:
Israelar hefna ekki bíl-
sprengjunnar í Hadera
I snyrtingu
íbúi í Seoul í S-Kóreu snyrtir hundinn sinn á hundakaffihúsi í borginni. Á
kaffihúsinu geta gæludýraeigendur snyrt vini sína og keypt handa þeim fóöur
og leikföng auk ýmislegs annars.
ívanov fer í taug-
arnar á Albright
Rússneski utanríkisráðherrann
ígor ívanov fer svo mjög fyrir
brjóstið á ráðamönnum í Was-
hington að þeir telja hann hafa
áunnið sér sess á spjöldum sögunn-
ar fyrir ósvífni í diplómatiskum
samskiptum.
ívanov hefur þannig ítrekað hafn-
að öllum tilraunum Madeleine Al-
bright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, til að koma á nánum per-
sónulegum samskiptum þeirra í
milli, að því er fram kemur í grein
í bandaríska dagblaðinu Was-
hington Post.
Forveri Ivanovs. í embætti, Jev-
gení Prímakov, hafði allt annan
háttinn á og gerði sjálfur allt hvað
hann gat til að sjarmera ráðamenn
vestra. ívanov hefur aftur á móti
gert Albright gramt í geði hvað eft-
ir annað, segir bandarískur embætt-
ismaður sem til þekkir. Albright
sjálf hefur meira að segja látið orð
falla um stirð samskipti sín og
ívanovs. „Svo virðist sem rafhlöð-
urnar í farsímanum hans tæmist
alltaf þegar kemur að því að taka
ákvarðanir til að leysa vanda,“ er
haft eftir Albright.
ívanov hefur verið að falla í áliti
í Washington að undanförnu. Hann
skaut til dæmis upp kollinum í
Belgrad þegar uppreisnin gegn
Slobodan Milosevic stóð sem hæst.
Því næst fór hann til Mið-Austur-
landa til að ítreka rússneska hags-
muni þar. Allt án þess að láta
Bandaríkjamenn vita.
Steininn tók þó úr í nóvember-
byrjun þegar ívanov tilkynnti að
Rússar myndu ekki virða takmark-
anir á vopnasölu til írans eftir 1.
desember. A1 Gore varaforseti hafði
forgöngu um það samkomulag milli
Bandaríkjanna og Rússlands.
Tayeb Abdel-Rahim, einn ráðgjafa
Yassers Arafats, forseta Palestínu-
manna, óvæntan fund á landamær-
um ísraels og Gaza. Heimildarmenn
sögðu að þeir hefðu rætt leiðir til að
slökkva ófriðarbálið sem hefur orð-
ið að minnsta kosti 261 manni að
bana, aðallega Palestínumönnum.
Nokkrir menn féllu í átökum í
gær, bæði ísraelar og Palestínu-
menn. Skothvellir kváðu víða við á
Vesturbakkanum í gærkvöld.
ísraelsk stjórnvöld ákváðu í
morgun að gera ekki árásir í hefnd-
arskyni fyrir bílsprengju sem
Palestínumenn sprengdu í bænum
Hadera í fyrradag og varð tveimur
að bana. Þá hittust háttsettir emb-
ættismenn deilenda í gær til að
reyna að finna leiðir til að binda
enda á ofbeldisöldu undanfarinna
tveggja mánaða.
„Þau ákváðu þess í stað í grund-
vallaratriðum viðbrögð við ýmsum
aðstæðum, bæði pólitískum og hem-
aöarlegum," sagði einn heimildar-
manna Reuters-fréttastofunnar í
morgun eftir fund öryggiskjarna
ísraelsku ríkisstjórnarinnar. Fund-
urinn var hinn annar í röðinni frá
þvi bílsprengjan sprakk í Hadera.
Heimildarmaðurinn hafði eftir
Ehud Barak, forsætisráðherra ísra-
els, að ísraelar héldu áfram viðleitni
sinni til að binda enda á blóðbaðið.
Fyrir ráðherrafundinn í gær-
kvöldi héldu þeir Ephraim Sneh,
landvarnaráðherra ísraels, og
Arafat snýr heim
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, lagar höfuðfatiö viö heim-
komuna til Gaza frá Egyþtalandi.
Arafat hefur lýst vilja til aö hefja friö-
arviöræöur viö ísraela á ný.