Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
I>V
Fréttir
Rannsókn á lífríki vegna efnistöku af sjávarbotni ótímasett:
Stór aðgerð sem kostar milljónir
- segir jardfræðingur á Orkustofnun
Forráðamenn Orkustofnunar
hafa ekki tekin ákvörðun um
hvenær ráðist verður í aö rann-
saka hvaða áhrif efnistaka af
sjávarbotni hafi á lífríki Hval-
fjaröar.
Iðnaðarráðherra hefur sent
stofnuninni erindi þess efnis aö
slík rannsókn verði gerð. Jafn-
framt meti stofnunin hvort
ástæða sé til slíkrar rannsóknar í
Faxaflóa. Að sögn Freysteins Sig-
urðssonar, jarðfræðings á Orku-
stofnun, er aðgerð af þessu tagi
mikil umfangs og spannar langt
árabil. Hún muni kosta milljónir
króna.
Umhverfisrráðuneytið, Holl-
ustuvernd ríkisins og Náttúru-
vernd ríkisins hafa lagt á það
áherslu að rannsóknir fari fram á
hvort nægilega vel sé að málum
staðið við efnistöku Björgunar hf.
af sjávarbotni til að lífríki sjávar-
botnsins skaðist ekki. Iðnaðar-
ráðuneytið ritaði Orkustofnun í
framhaldi bréf þar sem farið er
fram á rannsókn á þessum þætti.
„Þetta veldur tímabundinni
röskun á lífríkinu, það eru allir
sammála um það,“ sagði Frey-
steinn. „Hæpnara er að efnistak-
an valdi varanlegri röskun í þeim
mæli sem hún hefur verið. Ef allt
efni yrði hins vegar tekið úr fló-
anum gæti þessi hætta aukist."
Aðspurður hvort einhverjar
rannsóknir hefðu verið gerðar á
sjávarbotninum þar sem efnið
væri tekið sagði hann að „ýmsir
aðilar hefðu rannsakað ýmsa
þætti“ en engar samfelldar rann-
sóknir hefðu farið fram. Þær
ábendingar sem fram heföu kom-
ið bentu til þess að efnistaka gæti
valdið tímabundinni röskun á
efnistökustað en umfang efnistök-
unnar til þessa hefði ekki endi-
lega verið það mikið að það hefði
valdið einhverri varanlegri rösk-
un á svæðinu.
-JSS
Seiður Grænlands eftir Reyni Traustason fjallar unr
sex íslendinga sem búa og starfa á Grænlandi.
Þetta eru hreindýrabóndi.ferðafrömuður,
forstjóri, hjúkrunarfræðingur, skipstjóri
og landstjórafrú.
Bókin lýsir ótrúlegum hrakningum,
ægifegurð Grænlands og daglegu lífi í ^ |
. þessu næsta nágrannalandi Islands seni %
■ þráttfyrir nálægðina er svo fjarlægt.
Dalvegi 16b, sími 554 7700
Hreindýrabónriinn
Sandkorn
______ggdímsjón:
Höröúr Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.ls
Krislján óhress
Kristján Jó-
hannsson stór-
söngvari var í við-
tali í morgunút-
varpi Rásar 2 og
var víða komið
j við. Þar kom að
því að söngvarinn
var spurður hvort
hann ætlaði ekki
að fara að halda tónleika „heima“ á
Akureyri. Var greinilegt á svari
Kristjáns að hann er ekki beint
ánægður með ýmsa aðila á Akureyri
þessa dagana. Hann sagðist hafa ætl-
að að halda tónleika á Akureyri á
næsta ári en aðilar eins og kórar og
hljóðfæraleikarar hefðu ekki viljað
færa sín áform til um nokkra daga
fyrir sig. Kórar og hljóðfæraleikarar
á Akureyri halda því sínu striki, Ak-
ureyringar fá ekki að sjá Kidda Jó
og sjálfur er stórtenórinn óhress...
Ekki myndaðir í baðí
Ný lög um per-
sðnuvernd eiga að
taka gildi um ára-
mótin. Mimu lög-
regluyfirvöld og
tölvunefnd skila
dómsmálaráðu-
neytinu umsögn-
um sínum um
málið á næstunni.
Búast má við ólíkum sjónarmiðum
þar sem lögreglan vill fá að varðveita
sem mest af hvers konar upplýsing-
um. Á hinn bóginn eru þeir sem ótt-
ast persónunjósnir og að slík gögn
geti verið misnotuð. Menn minnast í
þessu sambandi kvartana hjóna á
Eyrarbakka yfir njósnum fangavarða
með eftirlitsmyndavélum um manna-
ferðir í hús í nágrenni fangelsisins á
Litla-Hrauni. Gárungar fullyrða að í
nýju lögunum verði klásúla sem veiti
nágrönnum fangelsisins Litla-Hrauns
strangt takmarkaða heimild til að
setja upp gluggahlera þegar heimilis-
fólk bregður sér í bað...
Satt eða...?
Skjár einn
hefur skemmt
landanum og
stefnir nú á út-
breiðslu mn
land allt. Nýtur
fyrirtækið ekki
síst vinsælda
fyrir að rukka
engin afnotagjöld. Prestssonur-
innÁmi Þór Vigfússon þykir hafa
verið að gera ágæta hluti en allt
kostar það þó peninga. Framan af
var lítið um auglýsingar en hagur
strympu hefur talsvert vænkast í
þeim efnum. Upphaflegt hlutafé mun
þó hafa sín takmörk og í maí var
leitað að nýjum fjárfestum sem sagt
var að fyrirtækið væri farið að skila
hagnaði. Það stangast hins vegar á
við það sem síðar kom fram í
Morgunblaðinu i heiðursviðtali við
Árna Þór. En nú mun vera í
undirbúningi að auka enn hlutafé...
Afmælisgjöfin
Fyrirtækið íslakk við Smiðjuveg í
Kópavogi hélt upp á 4 ára afmæli sitt í
gær. Eigand-
inn, Guðjón
Hallgrímsson,
bauð Qölda
manns til að
samgleðjast
starfsfólki sem
tók við góðum
óskum og
kveðjum velunnara og
viðskiptavina. Skömmu áður en gest-
irnir komu birtist þó óvænt kveðja
sem hengd var upp á vegg á húsi
handan götunnar og blasti við úr
gluggum verslunarinnar. Þar var á
ferðinni samkeppnisfyrirtækið í bíla-
málningarbransanum, Orka, með helj-
armikið auglýsingaskilti. Segja gár-
ungar að forsvarsmanni þess, Snorra
Guðmundssyni, hafi verið hugsuð
þegjandi þörfin af Guðjóni og hans
fólki. Mun honum og gestum hans
hafa þótt að með þessum nýja stíl í
auglýsingamennskunni hefðu Orku-
menn seilst ansi langt í leit að við-
skiptavinum...