Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Síða 9
Kvikmyndaskóli íslands Stundin er runnin upp! Kvikmyndaskóli íslands hefur hafið samstarf viö Rafiönaöarskólann. Gagnger breyting hefur verið gerð á námsframboði við skólann auk þess sem 2 ára nám í kvikmyndagerð mun hefjast næsta haust. Skólinn hefur stóraukið tækjakost sinn og flutt í nýtt og stærra húsnæði. Loksins er orðinn grundvöllur fyrir að bjóða upp á alvöru nám í kvikmyndagerð á íslandi. Grunnnám í kvikmyndagerð Nám fyrir þá sem hyggja á frekara nám í kvikmyndagerö. Einnig fyrir þá sem vilja fá alhliða grunnþekkingu á kvikmyndagerð áður en þeir leita sér að starfi í greininni. Námið hentar vel sem undirbúningur fyrir 2 ára nám í kvikmyndagerð frá Kvikmyndaskóla íslands. Kennsla hefst 22. janúar. 2 ára nám í kvikmyndagerð Nám fyrir þá sem stefna markvisst að því að ná árangri sem kvikmyndagerðarmenn hér heima eða erlendis. Námið er bæði fræðilegt og verklegt þar sem nemendur fara í alla grunnþætti kvikmyndagerðar, en sérhæfa sig þegar líða tekur á. Skólinn tekur að sér að koma nemendum á framfæri að námi loknu. Kennsla hefst 1. september. Grunnnám í sjónvarps- og kvikmyndaförðun Farið er í alla grunnþætti förðunarfagsins. Kenndur er grunnurinn í kvikmynda- og sjónvarpsförðun m.a. með þjálfun á tökustöðum. Nemendur eru undirbúnir fyrir frekara nám í kvikmyndagervum. Kennsla hefst 13. febrúar. DÆMI UM NÁMSKEIÐ í BOÐI Á VORÖNN 2001 Leiklistarnámskeið Snert á helstu atriðum leiklistar s.s. raddbeitingu, framsögn, líkamstjáningu og spuna. Handritanámskeið Fjallað er um ýmis grundvallaratriði í vinnslu á kvikmyndahandritum. Uppbygging, hvörf, endir, persónusköpun, aukasögur o.s.frv. Kvikmyndataka Námið fyrir þá sem vilja læra betur á heimilisupptökuvélina. Fjallaö er um mynduppbyggingu, myndmál ogýmis grundvallaratriöi tengd kvikmyndatöku Framleiðsia kvikmynda Kvikmyndatónlist Avid klippinámskeið Fyrir þá sem vilja kynnast þeim möguleikum sem þetta vinsælasta klippiforrit kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðarins býður upp á. Fyrir byrjendur sem lengra komna. Kvikmynda- og leiklistarvinnustofa fyrir börn Upplýsingar í síma 588 2720 Hringdu í okkur og fáðu sendan námsvísi eða farðu á slóðina www.raf.is/kvikmyndaskoli KVIKMYNDRSKOLI ÍSLRNDS RAFIÐNAÐARSKÓLINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.