Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 DV Fréttir Njósnaforinginn féll á eigin óþokkabragði Keypti atkvæði stjórnmálamanna Vladimiro Montesinos, fyrrverandi yfirmaöur leyniþjónustu Perú, er talinn hafa undir höndum upplýsingar um fjöida stjórnmálamanna, dómara, blaöamanna og kaupsýslumanna. Maðurinn á bak við fall Albertos Fujimoris Perúforseta olli meiri skaða en nokkur stjórnmálaand- stæðingur og efnahagskreppa á 10 ára valdatimabili forsetans. Fyrr- verandi yfirmaður leyniþjónustunn- ar í Perú, Vladimiro Montesinos, hefur verið kallaður Raspútín Perú. Hann er sakaður um að hafa njósn- að fyrir bandarísku leyniþjónust- una, stjórnað dauðasveitum Perú, verið í samvinnu við ílkniefnasala, selt vopn og greitt þingmönnum mútur. Ferill Montesinos hófst innan hersins snemma á áttunda áratugn- um. Árið 1977 var hann rekinn úr hernum og dæmdur í 1 árs fangelsi. Hann var fundinn sekur um að hafa afhent Bandaríkjunum skjöl um herinn í Perú sem þótti hollur Sov- étríkjunum. Á níunda áratugnum hóf hann störf sem lögmaöur í Lima í Perú. Meðal viðskiptavina hans voru menn sem sakaðir voru um fikni- efnabrot, skattsvik og svindl. Árið 1996 sakaði fikniefnasali fyr- ir rétti Montesinos um að hafa heimtað 50 þúsund dollara á mán- uði árið 1991 fyrir að hylma yfir fikniefnaviðskipti í Huallaga-daln- um. Nokkrum dögum seinna breytti fíkniefnasalinn, Demetrio Chavez, framburði sínum. Falsaö fæöingarvottoí ö Montesinos er sagður hafa hitt Alberto Fujimori þegar sá síðar- nefndi bauð sig í fyrsta sinn fram til forseta 1989-1990. Montesinos að- stoðaði Fujimori vegna ásakana um svindl. Montesinos er einnig eignað það að hafa með umdeildu fæðing- arvottorði sannað að Fujimori væri fæddur í Perú en ekki Japan. Hefði hann fæðst í Japan hefði hann ekki mátt bjóða sig fram til forsetaemb- ættisins. Móðir Fujimoris sór hins vegar að sonur hennar væri fæddur Erlent fréttaljós í Perú. Orð móðurinnar voru ekki vefengd. Eftir kjör Fujimoris var Montesinos settur yfir herferð gegn fíkniefnum sem farin var i sam- vinnu við Bandaríkin. Montesinos átti einnig þátt í árangursríkum að- gerðum til að uppræta skæruliða- samtökin Skínandi stíg. Völd Montesinos jukust eftir að þingið var leyst upp 1992 þegar Fu- jimori forseti tók allar stofnanir kverkataki. Það var Montesinos sem aðstoðaði við skipun nýrra yf- irmanna í hernum og hæstaréttar- dómara. Árið 1997 var hann náinn ráðgjafi Fujimoris þegar gíslar voru teknir í bústað japanska sendiherrans. Gíslatökunni lauk með því að allir mannræningjarnir, sem voru í Tupac Amaru-samtökunum, voru drepnir. Montesinos, sem var orðinn ör- yggisráðgjafi og yfirmaður leyni- þjónustunnar í Perú, var oft sakað- ur um mannréttindabrot en aldrei tókst að sanna neitt. Net uppljóstrara Hann var hafinn yfir lög vegna náinna tengsla sinna við forsetann. Haft er eftir Fujimori að hann myndi vaöa eld og reyk fyrir vin sinn. Montesinos var sagður hafa kom- iö sér upp neti uppljóstrara sem hann notaði til að hóta andstæðing- um forsetans og kúga fé út úr þeim. Ekkert var hins vegar hægt að rekja beint til hans. Samkvæmt fjölmiðlum í Perú var það ein af földum myndavélum Montesinos sjálfs sem myndaði hann er hann var að afhenda stjórn- arandstöðuþingmanni 15 þúsund dollara fyrir að tryggja flokki forset- ans meirihluta á þinginu. Þegar myndbandsupptakan var sýnd i sjónvarpi í september síðastliðnum neyddist Fujmori ekki bara til að taka afstöðu gegn Montesinos opin- berlega heldur einnig til að tilkynna að hann myndi segja af sér á næsta ári og boða til kosninga til að finna eftirmann sinn. Stjórnarandstæðingurinn Fem- ando Olivera, sem hafði fengið myndbandsupptökuna afhenta, sagði hana koma frá óbreyttum borgara sem hefði tengsl við óá- nægða herdeild. Olivera sagði að borgarinn hefði fyrst haft samband við þingkonu og fyrrverandi eigin- konu Fujimoris, Susönu Higuchi, sem sakaði eiginmann sinn um spillingu þegar hún skildi við hann fyrir nokkrum árum. Olivera kvaðst hafa undir höndum fleiri myndbandsupptökur sem sýndu Montesinos múta kaupsýslumönn- um, blaðamönnum, stjórnmála- mönnum og liðsforingjum. Þegar leyniþjónustumenn Montesinos reyndu að handtaka sjóliða, sem sakaður var um að hafa afhent myndbandsupptökuna frægu, kom herinn í veg fyrir handtökuna. Her- inn var farinn að draga sig í hlé. Montesinos flýði tii Panama þar sem hann þykir augljóslega hafa við- skiptahagsmuna að gæta. Mánuði síð- ar tóku yfirvöld í Panama þá ákvörð- un að veita Montesinos ekki hæli og hann flaug aftur heim til Perú. Sjálfur kvaðst hann hafa neyðst til að koma heim eftir að hafa fengið líflátshótan- ir frá vinstri sinnuðum skæruliðum og fikniefnasölum. Hann hefur farið huldu höfði eftir heimkomuna. Þing- menn fuilyrða að Fujimori hafi að- stoðað Montesinos við að komast hjá handtöku. Með hálsbindi í stíl Heimkoma Montesinos leiddi til gífurlegra mótmæla á götum úti. Mótmælendur kröfðust handtöku hans. Fyrsti varaforseti Perú, Francisco Tudela, sagði af sér í kjöl- farið. Talið er að Montesinos hafi undir höndum upplýsingar um fjölda stjórnmálamanna, dómara, blaða- manna og kaupsýslumanna. „Ég held að Montesinos stjórni í raun Iandinu,“ sagði rithöfundur- inn Mario Vargas Llosa fyrr á þessu ári. Hann keppti um forsetaembætt- ið við Fujimori 1990. Margir Perú- búa hafa verið á sömu skoðun og er því ekki undarlegt að þeir hafi ótt- ast valdarán í kjölfar flótta Fujimor- is til Japans. Herinn lofaði hins veg- ar að fara að lögum. Þrátt fyrir að Montesinos hafi verið hægri hönd Fujimoris þau 10 ár sem hann var við öld veitti hann fyrst sjónvarpsviðtal fyrir tæpum tveimur árum. Hann kom fram við hlið Fujimoris og stríddu þeir hvor öðrum. Þeir voru með hálsbindi í stíl. Byggt á Washington Post, BBC o.fl. Óhreint í pokahorninu Fyrr í þessum mánuöi þvoöu íbúar Lima í Perú fána fyrir framan stjórnarhöllina og hengdu þá til þerris til aö mótmæla óþverra þar innandyra. Afsögn frá hótelherbergi Alberto Fujimori Perúforseti sendi afsagnarbréf heim frá hótelherbergi í Tókýó í Japan. Fujimori er hér fyrir utan hóteliö umkringdur öryggisvöröum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.