Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Page 23
23 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað Val Kilmer: Betri en Kubrick? Val Kilmer er svo sem ekki talinn í hópi albestu leikara samtímans, hvað þá sögunnar. Sjálfstraustið vegur þar nokkuð á móti því Val er ekki sérlega „tilbageholdende". Val er með nýja mynd um þessar mund- ir sem heitir Red Planet og fjallar auðvitað um Mars og geimferðir ýmiss konar. Hann er nokkuð sátt- ur við útkomuna, reyndar svo sátt- ur að gagnrýnendur svitna undan lofrullu hans um eigin verk. Val hefur til dæmis sagt að myndin væri örugg með að verða sígild og að hún væri betri en 2001 eftir Stanley Kubrick. Val segir að þótt Kubrick hafi verið klár hafi ýmis- legt í myndinni verið hálfslappt. Út- lit Red Planet sé til dæmis gífurlega magnað og áhrifamikið. Hvort Kubrick sér ástæðu til þess að vera að velta sér mikið í gröfinni verður svo hver og einn að meta með sjálf- um sér. Cher segist hafa tapaö stórfé á því aö styöja Al Gore til forseta. Cher er foxill: Tapaði stórfé á Gore A1 Gore sóttist mjög eftir stuðn- ingi listamanna og skemmtikrafta í framboði sínu til forseta Bandaríkj- anna á dögunum. Hann náði ekki al- veg alla leið í mark eins og kunnugt er þó ekki séu öll kurl komin til grafar í þeim efnum. Það kom flatt upp á menn á dög- unum þegar Cher, söngkona og leik- kona, sagði frá því að hún hefði tap- að stórfé á því að veita Gore stuðn- ing sinn - ekki vegna þess að hún hefði lagt fé í kosningasjóð hans heldur vegna þess að hún var svo mikilvægur skemmtikraftur á fund- um og samkomum að hún skrópaði í plötuupptökum í Bretlandi þar sem hún átti að vera að syngja inn ný topplög. í samningi hennar við útgefandann var sérstök klausa um slíkar fjarvistir og hver dagur sem hún skrópaði kostaði hana 1000 pund sem lætur nærri að vera hundrað þúsund krónur. Val Kllmer: Diaz fær ekki leika á móti Dillon Leikkonan Cameron Diaz er í afar góðum málum þessa dagana. Hasarmyndin Charlie’s Angels gengur mjög vel og mokar inn pen- ingum hvar sem hún er sýnd. Fyrir vikið hækkar gengið Diaz og hún getur nú sett fram launakröfur í lik- ingu við það sem Julia Roberts set- ur upp fyrir að leika. Framleiðendur kvikmyndarinnar Stuck Nowhere vildu endilega fá Diaz til þess að leika fyrir sig aðal- hlutverkið í þessari kvikmynd sem enn er í undirbúningi og settu ekk- ert fyrir sig himinhá laun. Það verður hins vegar ekkert af því að Diaz leiki í myndinni. Það var kærasti hennar, Jared Leto, sem kom í veg fyrir það. Hann ærðist þegar hann frétti að mótleikari Diaz í myndinni væri Matt Dillon en Dillon og Diaz voru einu sinni par. Aukinheldur var gert ráð fyrir ást- arsambandi og nektarsenum og hver veit hvað í þessari ófétis mynd. Þetta gat Leto alls ekki sætt sig við og setti hnef- ann í borðið og Diaz fer hvergi þrátt fyrir girnileg laun. Það er sennilega þetta sem er kallað að fórna öllu fyrir ástina. Rúnar Helgi Vignisson „Það er ekkert fyrirsjáan- legt í samskiptum karls og konu í þessum bráð- smellnu smásögum... persónurnar eru af holdi og blóði og því hafa sögurnar erótískan blæ.u Súsanna Svavarsdóttir/Mbl. „... glæsilegt smásagna- safn ... Þá er aðdáunar- vert á hve raunsæjan og trúverðugan hátt Rúnar nær að vinna úr við- kvæmu söguefni... sagan Dropinn á glerinu er í hópi bestu íslensku smá- sagna.“ Ágúst Borgþór Sverrisson Listavaktin/visir.is „Sögur hans búa yfir sannleika og dýpt... færir kynin nær hvort öðru, fær þau til að brosa hvort að öðru og viðurkenna eigin nekt. Með eða án fata.“ Sigríður Albertsdóttir/DV Kynin I þessum smásögum eru karlar og konur í tilfinningalegu og kynferðislegu návígi. Sögurnar draga hver með sínum hætti upp mynd af berskjölauðum persónum og dirfska höfundarins felst í því að ögra hinu viðtekna, ekki síst með því að líta styrk og getu karlmannsins í samlífinu nýjum augum. i navigi JPV FORLAG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.