Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Qupperneq 23
23
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Val Kilmer:
Betri en
Kubrick?
Val Kilmer er svo sem ekki talinn
í hópi albestu leikara samtímans,
hvað þá sögunnar. Sjálfstraustið
vegur þar nokkuð á móti því Val er
ekki sérlega „tilbageholdende". Val
er með nýja mynd um þessar mund-
ir sem heitir Red Planet og fjallar
auðvitað um Mars og geimferðir
ýmiss konar. Hann er nokkuð sátt-
ur við útkomuna, reyndar svo sátt-
ur að gagnrýnendur svitna undan
lofrullu hans um eigin verk. Val
hefur til dæmis sagt að myndin
væri örugg með að verða sígild og
að hún væri betri en 2001 eftir
Stanley Kubrick. Val segir að þótt
Kubrick hafi verið klár hafi ýmis-
legt í myndinni verið hálfslappt. Út-
lit Red Planet sé til dæmis gífurlega
magnað og áhrifamikið. Hvort
Kubrick sér ástæðu til þess að vera
að velta sér mikið í gröfinni verður
svo hver og einn að meta með sjálf-
um sér.
Cher segist hafa tapaö stórfé á því
aö styöja Al Gore til forseta.
Cher er foxill:
Tapaði
stórfé
á Gore
A1 Gore sóttist mjög eftir stuðn-
ingi listamanna og skemmtikrafta í
framboði sínu til forseta Bandaríkj-
anna á dögunum. Hann náði ekki al-
veg alla leið í mark eins og kunnugt
er þó ekki séu öll kurl komin til
grafar í þeim efnum.
Það kom flatt upp á menn á dög-
unum þegar Cher, söngkona og leik-
kona, sagði frá því að hún hefði tap-
að stórfé á því að veita Gore stuðn-
ing sinn - ekki vegna þess að hún
hefði lagt fé í kosningasjóð hans
heldur vegna þess að hún var svo
mikilvægur skemmtikraftur á fund-
um og samkomum að hún skrópaði
í plötuupptökum í Bretlandi þar
sem hún átti að vera að syngja inn
ný topplög. í samningi hennar við
útgefandann var sérstök klausa um
slíkar fjarvistir og hver dagur sem
hún skrópaði kostaði hana 1000
pund sem lætur nærri að vera
hundrað þúsund krónur.
Val Kllmer:
Diaz fær ekki leika
á móti Dillon
Leikkonan Cameron Diaz er í
afar góðum málum þessa dagana.
Hasarmyndin Charlie’s Angels
gengur mjög vel og mokar inn pen-
ingum hvar sem hún er sýnd. Fyrir
vikið hækkar gengið Diaz og hún
getur nú sett fram launakröfur í lik-
ingu við það sem Julia Roberts set-
ur upp fyrir að leika.
Framleiðendur kvikmyndarinnar
Stuck Nowhere vildu endilega fá
Diaz til þess að leika fyrir sig aðal-
hlutverkið í þessari kvikmynd sem
enn er í undirbúningi og settu ekk-
ert fyrir sig himinhá laun.
Það verður hins vegar ekkert af
því að Diaz leiki í myndinni. Það
var kærasti hennar, Jared Leto, sem
kom í veg fyrir það. Hann ærðist
þegar hann frétti að mótleikari Diaz
í myndinni væri Matt Dillon en
Dillon og Diaz voru einu sinni par.
Aukinheldur var gert ráð fyrir ást-
arsambandi og nektarsenum og
hver veit hvað í þessari ófétis
mynd. Þetta gat Leto alls ekki sætt
sig við og
setti hnef-
ann í
borðið og
Diaz fer
hvergi
þrátt fyrir
girnileg
laun.
Það er
sennilega þetta sem er kallað að
fórna öllu fyrir ástina.
Rúnar Helgi Vignisson
„Það er ekkert fyrirsjáan-
legt í samskiptum karls
og konu í þessum bráð-
smellnu smásögum...
persónurnar eru af holdi
og blóði og því hafa
sögurnar erótískan blæ.u
Súsanna Svavarsdóttir/Mbl.
„... glæsilegt smásagna-
safn ... Þá er aðdáunar-
vert á hve raunsæjan og
trúverðugan hátt Rúnar
nær að vinna úr við-
kvæmu söguefni... sagan
Dropinn á glerinu er í hópi
bestu íslensku smá-
sagna.“
Ágúst Borgþór Sverrisson
Listavaktin/visir.is
„Sögur hans búa yfir
sannleika og dýpt... færir
kynin nær hvort öðru, fær
þau til að brosa hvort að
öðru og viðurkenna eigin
nekt. Með eða án fata.“
Sigríður Albertsdóttir/DV
Kynin
I þessum smásögum eru karlar og konur í tilfinningalegu og kynferðislegu
návígi. Sögurnar draga hver með sínum hætti upp mynd af berskjölauðum
persónum og dirfska höfundarins felst í því að ögra hinu viðtekna, ekki síst
með því að líta styrk og getu karlmannsins í samlífinu nýjum augum.
i navigi
JPV FORLAG