Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Síða 29
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
29
Helgarblað
kom ofl í Unuhús og var málkunnug
honum... Steinn gat stundum verið ill-
málgur og jafnvel skrökvað uppá fólk.
En nú tók hann algeram stakkaskipt-
um.“
Neitaö um áritun til
Bandarikjanna
„Mér er til efs að ort hafi verið á ís-
lensku öllu heitari ástarljóð en ljóðin
sem Steinn orti til hinnar glötuðu ást-
meyjar í Ferð án fyrirheits og Tíman-
um og vatninu," skrifar Sigurður A.
Magnússon. Hann nefnir ljóðin Ég
leita þín, Lát huggast bam, Myndlaus
og Utan hringsins.
Vert er að hafa í huga hve óvarlegt
er varðandi ástarljóð skálda að full-
yrða neitt um til hvers þau era ort.
Slíkar staðhæfmgar geta verið alrang-
ar; era i raun þarflausar, þótt þær séu
forvitnilegar - og breyta engu um bók-
menntalegt gildi ijóðanna.
Varðandi kvæðin, sem eiga að vera
ort til Louisu, ber að hafa í huga að um
getgátur einar er að ræða. Hins vegar
er vitað með vissu að Steinn orti ljóð-
ið Siesta til Ásthildar Bjömsdóttur, að
öllum líkindum á Sólbakka árið 1938,
þegar hann vann það:
í dagsins önnum dreymdi mig
þinn djúpa frið, og svo varð nótt.
Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt,
þeim svefhi enginn rænir þig.
En samt var nafn þitt nálægt mér
og nóttin full af söngvaklið
svo oft, og þetta auða svið
bar ætíð svip af þér.
Og þungur gnýr sem hrynji höf
mitt hjarta lýstur enn eitt sinn:
Min hljóða sorg og hlátur þinn,
sem hlutu sömu gröf.
En hvað skyldi Louisa sjálf hafa sagt
um samband þehra Steins og ástarljóð
hans? Hún var að venju fáorð, þegar
Sigurður A. Magnússon spjallaði við
hana: „Ég þekkti Stein og Nína líka.
Hann sat fyrir hjá okkur. Ég held hann
hafi verið ástfangnari af Ninu en mér.
Sé það rétt eftir honum haft að Tíminn
hías Einarsson
yfirlæknir, hefði
fengið því fram-
gengt, og reynt á
þann hátt að
koma í veg fyrir
samband dóttur
sinnar og skálds-
ins. Flestir, sem
höfundur hefur
rætt við, telja þá
skýringu óiík-
lega.
Louisa Matthíasdóttir í París 1938
og vatnið sé um mig, þá er það rétt.
Hann hlýtur að hafa vitað það sjálfur.
Ég segi ekki að ég hafi ekki haft grun
um það, en ég er ekkert að leita að slík-
um hlutum."
Sigfús Daðason segir í bók sinni að
Steinn hafi verið einráðinn í að leggja
af stað til Bandaríkjanna árið 1942,
þegar Louisa var nýlega farin þangað.
„Sótti Steinn um vegabréfsáritun til
bandaríska konsúlsins, en umsókninni
var hafnað," skrifar hann. „Verður
engum getum leitt að því, hvað eink-
um hefur ráðið því að Steini var bann-
aður aðgangur að Vesturheimi; hvort
þeim herrum hefur litist illa á skáld-
skap hans, eða hvort tukthúsdómur-
inn vegna niðurskurðar hakakrossfán-
ans hefur verið honum þar tO trafala,
eða eitthvað enn annað.“
Sigurður A. Magnússon segir að
Steinn hafi fengið vegabréfsáritun, en
hún síðan verið dregin til baka. Sögu-
sagnir vora um að faðir Louisu, Matt-
Þolinmóður
að sitja fyrir
En til eru
áþreifanlegar
minjar um sam-
starf Steins
Steinarrs við
Louisu og Nínu
Tryggvadóttur;
dýrmæt lista-
verk sem lifa
munu um
ókomna tíð.
Nína sagði
Erlendi í Unu-
húsi einhveiju
sinni að hana og
Úllu langaði til
að mála por-
trett, en það
væri svo erfitt
að fá fólk til að
sitja fyrir, þar
sem allir væra
að vinna á dag-
inn þegar birta
væri næg.
„Það er þá
helst hann Steinn," sagði Erlendur.
„Hann yrkir bara á nætumar, svo að
hann getur vel setið fyrir á daginn.“
Steinn var staddur í litlu stofunni og
tók vel í þetta; og hann sat oft fyrir hjá
listakonumun báðum. Þær máluðu
einnig Halldór Laxness, og dag
nokkum hringdi Erlendur til Nínu og
sagði:
„Nú verð ég að vera heima í dag; ég
er svo slæmur af kvefi að ég kemst
ekki til vinnu minnar hjá tollinum
eins og ég er vanur. Nú máttu koma og
mála mig ef þú vilt.“
Og Nína og Louisa raku til, örkuðu
með trönur og málningu upp í Unuhús
og máluðu Erlend í rúminu.
„Þolinmóðasti fyrirsáti Ninu var
Steinn Steinarr," skrifar Hrafnhildur
Schram listfræðingur. „Af honum mál-
ar Nína alls þrjár myndir á fjórum
árum. Þær era tvímælalaust meðal
sterkustu andlitsmynda hennar. Má
með sanni segja um þessar myndir að
þær séu frekar „run hann“ en af hon-
um, eins og Bjöm Th. Bjömsson kemst
svo réttilega að orði í íslenskri mynd-
list II. Hér er Nína fyrst og fremst að
fást við formið sem hún þjappar sam-
an í flata geometríska litablakka og
hvelfd form sem hún byggir upp eftir
lögmáli kúbismans... Nína málar Stein
með sterkum litum og höggnum form-
um, augun brenna eins og tveir
leisergeislar og munnsvipurinn er
festulegur en ekki alveg laus við
þykkju."
Málverkiö sem hvarf
Matthías Johannessen sagði Sigurði
A. Magnússyni sögu um ástir Steins
Steinarrs, sem eflaust á eftir að festast
í minni manna og teljast til þjóðsagna
í framtíðinni. Hún byggist á því hve
erfitt er að greina sundur myndir
Nínu og Louisu frá þeim árum, þegar
þær unnu saman, þótt verk þeirra
yrðu síðar gjörólík og auðþekkt.
Nokkru áður en Steinn Steinarr lést
sat Matthías í stofunni hjá honum í
Fossvogi og þeir spjölluðu saman. Þá
varð skáldinu skyndilega litið á vegg-
inn og spurði:
„Veistu eftir hvern þessi mynd er?“
„Já,“ svaraði Matthías.
„Nú,“ hváði Steinn. „Eftir hvern er
hún?“
„Nínu Tryggvadóttur," fullyrti
Matthías.
„Nei, Matthías minn,“ sagði Steinn
og lækkaði róminn. „Hún er ekki eftir
Nínu, þótt ég hafi sagt það öllum. Hún
er eftir Louisu frænku þina. Nefndu
það aldrei við Ásthildi," bætti hann
við.
Þegar Steinn var látinn fóra Matthí-
as og Ragnar í Smára í heimsókn til
ekkjunnar. Matthías leit í kringum sig;
honum fannst eitthvað vanta.
Málverk Louisu hafði verið tekið
niður.
Það var horfíð úr stofunni.
Visa Rauðagerði 26, s. 588 1259 Euro
Hagstofa íslands - Þjóðskrá
Er lögheimili yöar rétt skráö í þjóöskrá?
Nú er unnið að frágangi árlegrar íbúaskrár 1. desember. Mikilvægt er að
lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá.
Hvað er lögheimili?
Samkvæmt lögheimilislögunum frá árinu 1991 er lögheimili sá staður þar
sem maður hefur fasta búsetu.
Hvaða er föst búseta?
Föst búsefa er sá staður þar sem maður hefur bækistöð sfna, dvelst aö
jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans
er. Þetta þýöir aö lögheimili manns skal jafnan vera þar sem hann
býr á hverjum tíma.
Hvaö er ekki föst búseta?
Dvöl frá heimili um stundarsakir t.d. vegna orlofs, vinnuferða og veikinda
er ekki breyting á fastri búsetu og þar af leiðandi ekki breyting á lögheim-
ili. Sama gildir t.d. um dvöl f gistihúsum, sjúkrahúsum, heimavistarskólum
og fangelsum.
Hvernig eiga hjón og fólk í óvígöri sambúö aö vera skráö?
Séu þessir aðilar samvistum eiga þeir að hafa sama lögheimili. Hvaö
barnafólk varðar er reglan sú að dvelji annar hvor aðilinn fjarri fjölskyldu
sinni um stundarsakir, t.d. venga atvinnu, skal lögheimili allrar fjöldkyld-
unnar vera skráð hjá þeim sem hefur börn þeirra hjá sér.
Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?
Breyting á fastri búsetu á að tilkynna innan 7 daga frá flutningi til skrif-
stofu þess sveitarfélags sem flutt er til. Ennfremur má tilkynna flutning
beint til Hagstofu íslands - Þjóðskrár eða lögregluvarðstofu í Reykjavík.
Tilkynningar skulu vera skriflegar á þar til gerðum eyðublöðum.
Hagstofa íslands - Þjóöskrá
Skuggasundi 3
150 Reykjavík
Sími: 560 9800
Bréfsími: 562 3312
Haust - vetur 2000
U tiTci/ci
á vönduðum
dömu- og herrafatnaði
að Rauðagerði 26
í dag, laugardag,
frá kl. 10-18.
Verið velkomin
Green House
the friendly way of selling