Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Side 33
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 Helqarblað 33 DV tökumar. Hvað hefur komið í stað- inn? „Fjölmiðlarnir hafa að verulegu leyti tekið að sér að sjá fólki fyrir blóði og ofbeldi. Dauðinn sjálfur er orðinn mjög fjarlægur fólki því hann hefur verið fluttur út af heimilunum inn á stofnanir á borð við elliheimili og sjúkrahús. Stærstur hluti manna deyr á slíkum stofnunum - öfugt við fyrir 100 árum þegar næstum allir dóu í baðstofunni innan um aðra heimilismenn. Þessi dauði er farinn úr híbýlum fólks, en í staðinn er kom- inn fjölmiðladauði sem gerir viðskiln- aðinn mun óraun- verulegri en hann ætti að vera. Fólk er komið úr tengsl- um við dauðann því hann er ekki sá hluti af mannlegri tilvera sem hann var.“ Heimspeki grafaranna og Hallgríms Bókin er mjög persónuleg og lýsir reynslu Óttars af dauðanum og hans fjölmörgu birtingarmyndum. Óttar segir að dauðinn sé eins og ástin. Það geti enginn skrifað um ástina nema sá sem hefur orðið ástfanginn. Það sé því ekki hægt að skrifa bók um dauð- ann nema leggja töluvert af sjálfum sér í hana. Óttar leggur nú stmid á geðlækn- ingar en hann segist hafa mikla reynslu af vinnu á gjörgæsludeildum, bráðamóttökum og lyflækningadeiid- um þó að bókin mótist fyrst og fremst af honum sjálfum sem manneskju. En af því að hann er læknir hefur hann fengið innsýn í ríki dauðans og vill miðla af þeirri reynslu. f bókinni seg- ir hann m.a. frá erfiðu dauðastríði fólks sem hafði mjög mikil áhrif á hann. „Faðir minn var svo lengi að deyja að ég lifði í nálægð við dauðann árum saman,“ segir Óttar. „Hann var það heilsulaus að hann var oft fluttur nær dauða en lífi á sjúkrahús og dauðinn og umhugsunin um dauðann var mér skiljanlega alltaf mjög nálæg. Ungur fór ég að vinna í kirkjugörðum og lærði þá inn á heimspeki grafara og Hallgríms Péturssonar." Það era fleiri atvik sem tengjast dauðanum sem höfðu afgerandi áhrif á líf Óttars. „Ég var sendur i áfallahjálp til Flateyrar eftir snjóflóðið og sú vinna lauk upp augum mínum fyrir mörgu sem ég þurfti að athuga og velta fyrir mér varðandi líf mitt. Það urðu hjá mér vatnaskil; ég fór tii Þýskalands að læra sögu og þýsku og sagði skilið við þjóðkirkjuna." Frásögn Óttars um Flateyri birtist hér til hliðar. Guð og dauðinn horfnir af heimilunum Óttar segir að bókin sé einnig til- raun til að taka dauðanum sem fyrir- bæri allsendis utan sorgarumræð- unnar sem hefur verið áberandi und- anfarin ár. „I dauðafræðum er dauðinn skoð- aður sem marg- hliða fyrirbæri sem spannar öll svið heimspeki, trúarbragða og sögu. Ég hef líka mikið verið að velta því fyrir mér hvaða áhrif fjarvist dauðans mun hafa á mannlega hugs- un, heimspeki, bókmenntir og listir. Dauðinn sem raunverulegt fyrirbæri er far- inn út úr tilvist hms almenna borgara. Stór hluti íslendinga um fimmtugt hefur aldrei séð lík. Hvaða áhrif hefur það á aht huglægt starf?“ Óttar ræðir einnig um áhrif fjar- vistar dauðans á trúarbrögðin. Hann segir að Guð sé horfinn af heimilun- um eins og dauðinn. „Öll trúarbrögð mannkyns byggj- ast á því að veita svar við því hvað tekur við eftir dauðann. Vitund mannsins um eigin dauðleika var e.t.v. forsenda trúarbragðanna. Þegar dauðinn verður svo óraunveralegur - verður Guð þá ekki líka óraunvera- legur? Hverfur Guð kannski með dauðanum? - Kemur þá ekki bara tómhyggja í staðinn? „Algengasta umkvörtunin sem fólk kemur með til okkar geðlæknanna er almennur kvíði og lífsleiði. Fáir koma hins vegar og lýsa yfir dauða- hræðslu eða ótta við dómsdag. Það er ekki lengur í tísku vegna þess að dauðinn er ekki eins raunverulegur og hann var.“ Menn halda aö tíminn sé nægur - Hugsar þá enginn um dauðann? „Jú, auðvitað. En það hefur breyst frá því að dauðinn var heimilisfastur á baðstofuloftinu. Karlmaður um fimmtugt fyrir um 150 árum hafði sennilega misst báða foreldra sína í gröfma, eina tU tvær eiginkonur úr bamsfararsótt, tvö tU tíu böm og „Ég held að ég hafi veríð fullmikill áhugamaður um dauðann oft og tíð- um. Ég hef verið óþreyt- andi að leita uppi staði eða minningar um mannlega harmleiki, s.s. Auschwitz, Treblinka, Tróju og Theresienstadt. Það skemmtir ekki - heldur heillar og kitlar. “ Þú nærö alltaf sambandi _ við okkur! 550 5000 alla virka daga kl. 9-22 sunnudaga kl. 16-22 @ dvaugl@ff.is V ' hvenær sólarhringsins sem er 550 5000 flesta sina vini. Nú er auðveldlega hægt að finna fólk um fimmtugt sem aldrei hefur misst neinn." - Ert þú að bæta úr þessu dauða- leysi að einhverju leyti - með bók- inni? „Já, ég held að dauðinn sé forsenda lífsins og sá sem ekki upplifir sinn endanleika getur heldur ekki að notið lífsins. Ef maður hugsar aldrei hvað maður vill gera áður en þessu öUu er lokið rætast aldrei neinir draumar, því menn halda að timinn sé nægur - sem er auðvitað mjög alvarlegur mis- skilningur. Ef maður er aldeilis ómeðvitaður um það að aUt tekur þetta einhvem endi - tU hvers er maður þá að lifa lífinu? Dauðinn er undirstaða lífsins og gleðinnar." - Verður maður að geta sagt, kom þú sæU þá þú vUt, eins og HaUgrím- ur? „Já maður verður að geta sagt það sem allra oftast - meðvitaður um að sú hamingja sem maður upplUir er endanleg." -þhs =1 B LÆ R I í STOFUNA ÞÍNA LIÐ-AKTÍN VIRKAR! LIÐ-AKTÍN inniheldur 2 efni sem byggja upp brjóskið í liðunum: Chondroitin sulfate er mikilvægt byggingarefni brjósks, sina og beina. Það verndar brjósk gegn árásum ensíma sem valda á því skemmdum. Glucosamine sulfate er nauðsynlegt til myndunar bandvefs í líkamanum. Helsta hlutverk þess er að efla framleiðslu brjósks og hefur reynst vel til að viðhalda heilbrigðu brjóski í liðum. Gréta Guðráðsdóttir þjáðist af brjóskeyðingu í baki „ Fyrir u.þ.b. ári fór ég að nota Lið-Aktín og eftir nokkurn tíma fann ég fyrir verulegum bata. í dag held ég mér verkialausri með Lið-Aktín “ O ■?, CC/R Éh ndttúrulega eilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi <=■■■ .‘í'l-f '

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.