Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Side 54
■*
' 62
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________DV
Draugur af Jökuldal vitjar Jóhannesar Proppé:
Myrtur gengur aftur
- massinn var með einhvers konar mannsmynd en var þó meira eins og útlínur með einhverju innan í
Brá sér bak við Lúdóið
„Aðdragandi málsins var
sá að ég var í vegavinnuflokki
sem hafði slegið upp tjaldbúð-
um rétt vestan við Lagar-
íljótsbrú og við vorum að
vinna okkur vestur eftir.
Tjaldbúðirnar voru í hlíðinni
sem lá niður að Jökulsá á
Brú, en þar var vegurinn í
gamla daga. Jökulsá rennur
oama í nokkuð djúpu gljúfri
og segir sagan að nokkrir
breskir hermenn hafi farið
þar út af og látist. En slíkt
gerðist oft á íslenskum vegum
og þótti víst ekki fréttnæmt á
sínum tíma. Flokkurinn sem
ég vann í var að gera við þjóð-
veginn og fólst starfið aðal-
lega í að handmoka grús úr
stóru barði á vörubíl. Ég man
að einn pilturinn í hópnum
hét Ásmundur og það var
hann sem fann dysina. Ás-
mundur þurfti að bregða sér
einu sinni sem oftar bak við
Lúdóið, eins og við kölluðum
það þegar menn þurftu að
fara afsíðis og hægja sér.
Þegar hann kom til baka
var hann með eldgamla og
molduga hauskúpu í hendinni
og sagðist hafa séð hana
standa út úr moldarbarði þar
sem hann sat á hækjum sér.
Verkstjórinn brást hinn versti við
og skipaði Ásmundi að fara með
hauskúpuna aftur á sinn stað og
segja ekki nokkrum manni frá
þessu. Ég held að verkstjórinn hafi
verið hræddur um að það yrði
bannað að taka ofaníburð þarna og
verkið yrði stöðvað eins og svo oft
er gert þegar eitthvað svona finnst.“
Rótaðl í dysinni
„Ég fékk Ásmund til að koma
með mér um kvöldið og sýna mér
staðinn og ég bað hann líka að þegja
yfir þessu, en af allt öðrum ástæð-
DV-MYND GVA
A þessum tíma var ég ungur og forvitinn og stalst í dysina eitt kvöldið.
Jóhannes Proppé var viö vegavinnu austur á Fljótsdalshéraöi rétt eftir 1940, þegar
félagi hans fann gamla dys.
um en verkstjórinn hafði gert.
Næstu helgi fór ég á staðinn með
brúnan kraftpappír sem ég átti og
tók hauskúpuna, eða þann hluta af
henni sem hafði komið í ljós. Ég sá
strax að þetta var dys og fór að
krafsa í henni, sem ég hefði í raun
ekki átt að gera, en áhugi minn fyr-
ir öllu fornu var of mikill til að
sleppa tækifærinu. Fljótlega fann ég
herðablað af manni og eitthvað sem
líktist mjög ryðguðu hnífsblaði und-
ir herðablaðinu. Einnig fann ég
fleiri bein, lærlegg og hryggjarlið.
Enn fremur kom í ljós ýmislegt
járnadrasl, m.a. nokkuð heillegur
hlutur sem var langt ryðgað járn-
stykki með einhvers konar krók á
endanum. Ég pakkaði öllu sem ég
gat inn og hætti leit en það var ör-
ugglega meira þarna þvi ég sá móta
fyrir fleiri dysjum í melnum.
Ég fór með góssið inn i tjald til
min og svaf á því um nóttina í von
um að dreyma manninn sem haus-
kúpan var af. Ég var viss um að
beinin tilheyrðu einhverjum forn-
manni sem hlaut að hafa verið drep-
inn þarna. Mér var seinna sagt að
forn þjóðleið hefði legið ofan af Jök-
uldal rétt við dysina. Mig dreymdi
ekkert um nóttina og ég komst
Jóhannes Proppé, fyrrver-
andi deildarstjóri hjá Sjóvá,
var við vegavinnu austur á
Fljótsdalshéraði og Jökuldal
rétt eftir 1940 þegar félagi
hans fann gamla dys. Sá sem
stjórnaði verkinu vildi ekki
að nokkur maður frétti af
fundinum af hræðslu við að
verkið yrði stöðvað. „Á þess-
um tíma var ég ungur og for-
vitinn og stalst í dysina eitt
kvöldið og rótaði í henni. Ég
fann bein, hauskúpu og ein-
hverja smáhluti sem ég tók og
pakkaði í pappír og tók með
mér heim í tjald.“
mcmchester m M
umted
Jóla súkkulaði-dagatöl
Full búð af nýjum vörum
tilvöldum til jólagjafa
Póstsendum
Austun/eri,
Háaleitisbraut 68,sími 568 4240
www.astund.is
aldrei aftur í dysina til að gramsa
meira því nokkrum dögum seinna
var ég fluttur til og settur í vinnu
ofar á Jökuldal."
Eins og að fara í
gegnum deig
„Þegar ég fór heim um haustið
tók ég beina- og járnadraslið með
mér til Reykjavíkur og geymdi það
inni í skáp í herberginu mínu. Ég
kláraði Verzló um vorið 1944 og fór
til Englands í framhaldsnám um
haustið. Ári seinna kom ég heim
en þá hafði velviljaður kvenmaður
tekið til í herberginu mínu og
fundið pakka með moldardraslinu
og hent honum í öskutunnuna.
Sem betur fer hafði ég sett járndót-
ið í kassa og var það því óhreyft.
Svo gerist það veturinn eftir að ég
kom heim að ég á oft erfitt með
svefn, vakna um miðjar nætur, og
á tímabil hélt að ég væri að verða
veikur. Eina nóttina i svartasta
skammdeginu vaknaði ég skyndi-
lega og fannst ekki allt með felldu,
settist upp og sá einhvem massa
standa við rúmgaflinn. Massinn
hafði einhvers konar mannsmynd
en var þó meira eins og útlínur
með einhverju innan í. Ég verð að
viðurkenna að ég varð dauðhrædd-
ur en forvitnin varð þó yfirsterk-
ari. Ég reis á fætur og fór að þukla
á massanum en það var eins og að
fara í gegnum mjúkt deig. Mér brá
hræðilega og kveikti ljós en þá
hvarf massinn. Eftir smástund
lagðist ég aftur og fór að hugsa um
þetta og hélt að mig hefði verið að
dreyma. Ég slökkti því ljósið og fór
aftur að sofa. Stuttu seinna hrökk
ég upp aftur og fannst einhver vera
Sviðsljós
að horfa á mig. Ég ætlaði varla að
þora að líta upp en gerði það samt
og þá var þetta sest á fótagaflinn.
Forvitnin var hræðslunni yfir-
sterkari og ég þreif í þetta eins og
áður en það sama gerðist. Ég fór i
gegnum þetta eins og deig.
Nú var mér öllum lokið, ég stökk
fram úr rúminu, öskraði eins hátt
og ég lifandi gat og hljóp að ljósa-
rofa sem var á veggnum við dym-
ar. Það vöknuðu náttúrlega allir í
íbúðinni við öskrin og komu
hlaupandi til að vita hvað væri eig-
inlega að mér. I margar vikur á eft-
ir þorði ég ekki að sofa með ljósin
slökkt og hafði því kveikt á borð-
lampanum við rúmið."
Líklega drepinn
„Ég hef aldrei fengið neina stað-
festingu á hvað þetta var og hef
aldrei orðið var við það síðan, en
ég er sannfærður um að þetta
hefur verið fommaðurinn sem átti
beinin. Hann hefur áreiðanlega
verið að leita að þeim eða komið til
að skamma mig fyrir hugsa ekki
betur um þau og láta henda þeim í
ruslið.
Stuttu seinna fór ég með járna-
draslið upp á Þjóðminjasafn til dr.
Kristjáns Eldjáms. Hann sagði
mér að hlutimir væru að öllum
líkindum frá landnámsöld og að
hluturinn með króknum sem ég
hafði velt mest fyrir mér væri
skemmulykill. Hann taldi einnig
að lega hnífsblaðsins í dysinni
benti til þess að maðurinn hefði
verið drepinn í bardaga eða úr
launsátri.“
-Kip
Kelsey Grammer:
Lætur í
minni pok-
ann fyrir
hægri öfl-
unum
Stjarnan góða Kelsey Grammer,
sem er okkar besti drengur úr sjón-
varpinu, á í vandræðum þessa dag-
ana en hann þarf að borga ríflega
tvær milljónir dala til fyrrverandi
umboðsmanna sinna vegan samn-
ingssvika. En það er svo sem ekki
það eina. í endursýningum á Frasi-
erþáttunum í bandarísku sjónvarpi
hefur það verið umdeilt að enn hef-
ur ekki skilað sér þáttur sem gerði
grín að Lauru Schlessinger sem er
hægrisinnuð útvarpskona sem er
þekkt fyrir siðferðisviðhorf sín.
Ástæðan fyrir því að þátturinn hef-
ur ekki verið sýndur er að Para-
mount sem á Frasier á líka þátt
Lauru og þeir vilja ómögulega
styggja nýja barnið sitt. Aftur á
móti er umhugsunarvert það sem
einn af höfundum Frasiers bendir á
- að sá þáttur sem fær Emmy-verð-
laun sé felldur út fyrir þann sem afl-
ar sér óvina. En svona er skynsem-
in i Hollywood.
T %
$,
f/ %
Jennifer Lopez:
Puff Daddy
pereat
- Puffy fái fjúk
Það er vart ofsögum sagt að rika og
fræga fólkið hafi annars konar áhyggj-
ur en afgangur mannkyns. Jennifer
Lopez leggur mikið á sig til að halda í
kærastann sinn, PufF Daddy, þrátt fyr-
ir að þar
fari hið
mesta fól.
Puffy átti
afmæli um
daginn og
þvældist
Jennifer
um alla
New York
borg i leit
að hinni
fullkomnu
af-
mælistertu
sem átti að
sýna Puffy
á bláa
Bentleyn-
um sínum.
Hún fann hana að lokum á Manhattan.
Vandræðin voru hins vegar þau að af-
mælisveisluna átti að halda á Miami.
Jennifer skundaði því út á flugvöll
með baksturinn og keypti sæti undir
tertuna í farþegaflugi og sendi hana til
Miami en fór síðan sjálf með einka-
þotu Pufiys.
Þetta dugði henni hins vegar ekki i
hjónabandsplástur i þetta sinn. Jenni-
fer þurfti að pissa í upphitunarveislu
Puffys og eins og flestir varð hún að
bregða sér á klósett. Vitni sem stödd
voru í veislunni vitna um að um leið
og Jennifer var horfm af vettvangi hafi
Puffy ekki getað stillt sig um að bjóða
konu á næsta borði að hitta hana við
gott tækifæri. Puff Daddy pereat - Puff
Daddy fái í]úk.