Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Qupperneq 60
68
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
Tilvera x>V
Heimsmeistaramót FIDE:
Hannes teflir við Anand
vinni hann fyrstu skákina
'*1
* V
m
Listdans í óperunni
Nemendur í framhaldsdeild Listdansskóla Island
— sýna dansverk eftir kennara skólans.
öll Lionsdagatöl eru merkt: I-
Þeim fylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa,
Ailur hagnadur rennur til iíknarmála.
- á þriðja tug nemenda af báðum kynjum stundar nám
Nemendur i framhaldsdeild List-
dansskóla ísland sýna dansverk eftir
kennara skólans í Islensku óperunni
sunnudaginn 26. nóvember og hefst
sýningin klukkan 16.00.
Listdansskólinn hóf kennslu sam-
kvæmt nýrri námskrá framhalds-
skóla í haust. Samkvæmt nýju
námskránni geta nemendur sem
velja dans sem kjörsvið eða sem val-
grein valið að milli tveggja lína
þ.e.a.s. nútíma listdans eða klassísk-
an listdans.
Hátt á þriðja tug nemenda af báð-
um kynjum stunda nám við skólann.
Námið við Listdansskólann nær yfir
fjögur ár en á fjórða ári starfa nem-
endur við dansflokk sem er undir-
búningur fyrir atvinnumennsku eða
frekar nám í Listaháskóla.
Staða efstu liða í 2. deild:
1. Skákfélag Grandrokk 17.5. v. af 24
2. Taflfélag Reykjavíkur c-sveit 13.5 v.
3. Taflfélag Bolungarvíkur 13.5 v.
Staða efstu liða í 3. deild:
1. Taflfélag Vestmannaeyja 16 v. af 24.
2. Skákfélag Akureyrar c-sveit 13.5 v.
3. Taflfélag Dalvíkur 13 v.
Hvítt: Arnar Þorsteinsson
Svart: Júlíus Friðjónsson
Dietmar-Morra-bragð.
I. d4 d5 2. e4 dxe4. Peösfómin er
óvenjuleg en Júlíus bregst rétt við.
Hræddari sálir hefðu skipt yfir í
franska vöm með 2. e6 og vonað hið
besta. 3. Rc3 Rf6 4. Bg5 Bf5 5. f3
Rbd7 6. Bc4 e5!
Svona á að tefla á móti þessu; að
fara að hirða af mörg peð er ógæti-
legt. Aðalatriðið er að koma liðsafl-
anum í virka stöðu.... 7. fxe4 exd4
8. Rd5 Bg6 9. Dxd4 Bc5 10. Bxf6
gxf6 ll. Dc3 C6 12. Rf4 Db6!
Nú eru góð ráð dýr. Hótunin Bxgl
er slæm og ekki er hægt að lang-
hróka vegna Be3+, svo ekki sé talað
um hótunina Bb4. 13. Kfl 0-0-0 14.
Rd3 Bxe4 15. Rf3 Kb8 16. Bxf7
Bxd3+ 17. cxd3 Re5 18. Rxe5 fxe5.
Það sem verður hvítum að falli er
ólánleg staða kóngs hans. 19. Ke2
Hd4 20. a3 e4 21. Hael Hhd8 22. b4
Bf8 23. Bc4 Bh6 24. dxe4 Hxc4.
0-l.
Heimsmeistaramót FIDE hefst
mánudaginn 27. nóvember í Nýju-
Delhí á Indlandi. Eini keppandi ís-
lands, Hannes Hlífar Stefánsson,
mætir í l. umferð Moldavíubúanum
og stórmeistaranum Viktor Bologan
(2641). Nái Hannes að vinna Bologan
mun hann mæta stigahæsta keppand-
anum, indverska stórmeistaranum
Viswanathan Anand (2762), í 2. um-
ferð. Hannes Hlífar Stefánsson er tal-
inn sigurstranglegri í einviginu gegn
Viktor Bologan í l. umferð heims-
meistaramóts FIDE sem hefst á
mánudag. Þetta er eina einvígið í l.
umferð þar sem hinum stigalægri er
spáð sigri, en líkur Hannesar á sigri
í einvíginu eru taldar 59%! Mót þetta
er gífurlega sterkt og eru nánast allir
keppendurnir í karlaflokki, sem eru
eitt hundrað talsins, stórmeistarar.
Dagskráin er eftirfarandi og skýr-
ir keppnisfyrirkomulagið ágætlega.
1. umferð karlar (72 keppendur)
konur (56 keppendur) 27-29. nóvem-
ber 2000.
2. umferð karlar (64 keppendur)
konur (32 keppendur) 30. nóvember-
2. desember 2000.
3. umferð karlar (32 keppendur)
konur (16 keppendur) 3.-5. desember
2000.
4. umferð karlar (16 keppendur)
konur (8 keppendur) 6.-8. desember
2000.
5. umferð karlar (8 keppendur)
konur (4 keppendur) 9.-ll. desember
2000.
6. umferð karlar (4 keppendur)
konur (Úrslitaeinvígi - 2 keppend-
ur) 12.-16. desember 2000.
Síðan verður lokaeinvígi karla
flutt til Teheran í fran, 6 skákir, 20.-
26. desember.
í l. umferð er teflt á 36 borðum.
Keppendur tefla 2 skákir og síðan er
bráðabani ef jafnt er. í annari um-
ferð bætast við 28 stigahæstu skák-
mennimir.
Það er því við ramman reip að
draga og Hannes má aldeilis vera
harður ef hann á að komast langt.
En í 2 skáka einvígi getur allt gerst,
svo ekki sé talað um bráðabana.
Andstæðingar hans þurfa að notast
við mannganginn eins og Hannes
Hlífar sjálfur! Þar sem Hannes og
Jón Viktor fslandsmeistari eru báð-
ir fæddir sama dag og ég, 18. júlí,
óska ég Hannesi að sjálfsögðu auka-
lega góðs gengis.
TR með nauma forystu á
íslandsmóti skákfélaga
Fyrri hluti mótsins var haldinn
um síðustu helgi og eins og sést eru
það Taflfélag Reykjavíkur og Taflfé-
lagið Hellir sem berjast um sigurinn
í efstu deild. Ég tel möguleikana
nokkuð jafna hjá liðunum, Hellir
vann í innbyrðis viðureign félagana
en vinningafjöldi í lok móts ræður
Hannes Hlífar Stefánsson
Teflir í fyrstu umferöinni gegn stórmeistaranum Viktor Bologan.
úrslitum. Keppnin var að vanda
skemmtileg og gaman að hitta svo
marga skákmenn á einum bletti.
l rílM
Sævar
Bjarnason
skrifar um
skák
Keppendur voru vel á annað hund-
rað og allt fór vel fram í sönnum
skákkeppnisanda. Menn voru misá-
nægðir með gengi sinna liða eins og
gengur. Grandrokk er greinilega að
vinna í 2. deild en þeir verða að
styrkja lið sitt fyrir næsta vetur ef
þeir ætla að halda sæti sínu í efstu
deildinni, svo ekki sé talað um sig-
ur í henni.
Staðan í efstu deild:
1. Taflfélag Reykjavíkur a-sveit 24 v. af 32
2. Taflfélagið Hellir a-sveit 22.5 v.
3. Skákfélag Akureyrar 21 v.
4. Skákfélag Hafnarfjarðar 16 v.
5. Taflfélag Reykjavíkur b-sveit 15.5 v.
6. Taflfélagið Hellir b-sveit 13 v.
7. Taflfélag Garðabæjar 9 v.
8. Taflfélag Kópavogs 7 v.