Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
69
Tilvera
íslandsmót kvenna í tvímenningskeppni:
Kristjana og
Erla unnu
með glæsibrag
íslandsmót kvenna í tvímennings-
keppni var spilað um síðustu helgi í
Bridgehöllinni við Þönglabakka.
Kristjana Steingrímsdóttir og Erla
Sigurjónsdóttir unnu með glæsibrag
eftir að hafa leitt mótið svo til frá
byrjun og skutu yngri keppinautum
sínum ref fyrir rass. Kristjana og Erla
hafa áður unnið allar keppnir sem
konum standa tii boða og voru á árum
áður fastakonur í kvennalandsliðinu.
Röð og stig efstu para var annars
þessi:
1. Kristjana Steingrímsdóttir-Erla
Sigurjónsdóttir 210
2. Ljósbrá Baldursdóttir-Anna Þóra
Jónsdóttir 164
3. Hjördís Sigurjónsdóttir-Ragn-
heiður Nielsen 132
4. Anna Ívarsdóttir-Guðrún Ósk-
arsdóttir 109
5. Esther Jakobsdóttir-Dröfn Guð-
mundsdóttir 80
Góð þátttaka var í mótinu eða 26
pör og virðist áhugi kvenna fyrir
bridge vera mikill um þessar mundir.
í opna íslandsmótinu í tvímenn-
ingskeppni, sem haldiö var fyrir
stuttu, bar æskan þá reyndari ofurliði
þegar Stefán Jóhannsson og Steinar
Jónsson unnu með miklum yflrburð-
um. Þótt þeir félagar séu tiltölulega
nýtt par þá hafa þeir gefið sér tíma til
að ræða kerfi og búa til sagnvenjur til
að mæta stöðum sem alltaf geta kom-
ið upp. Ein slík sagnvenja kom fyrir í
spilinu í dag, en með henni náðu þeir
slemmu af nokkru öryggi sem önnur
pör fundu ekki lyktina af.
N/A-V
N/Allir
* 5
KG
* 1074
* ÁK76542
* D432
* ÁD43
* G532
* D
N
V A
S
* G976
* 1076
* D986
* 98
* ÁK108
* 9852
* ÁK
* G103
Stefán
Guðjohnsen
skrifar um bridge
Norður taldi sér trú um að hann
væri með opnunarhendi (hvernig
sem hann komst að því) og hann
opnaði á einum tígli:
Noröur Austur Suður Vestur
1 ♦ 1 grand pass 3 **
pass 3 ♦** pass 6 *
pass pass pass
* Spyr um lykilspil ef makker á meira en
tvíspil í laufi.
** Tvö lykilspil en neitar drottningu.
Með tvíspil í laufi þá segir austur
3 grönd, þannig að spil vesturs voru
orðin töluvert verðmeiri. Einnig
var öruggt að spilið lægi vel vegna
opnunar norðurs og Stefán skaut
því á slemmuna.
Engin vandræði voru á því að fá
tólf slagi, einungis þurfti að trompa
einn tígul. Aðeins fimm pör af tutt-
ugu náðu slemmu á spilið og tvö af
þeim spiluðu hana í austur. Þá var
hjartaútspil banvænt og auðvitað
fannst það á báðum borðum.
íslandsmót
(h)eldri og yngri
spilara
í dag og á morgun fer fram ís-
landsmót (h)eldri spilara og yngri
spilara og er spilað í Bridgehöllinni
við Þönglabakka. Þátttaka heflr ver-
ið dræm undanfarin ár en vonandi
rætist úr því núna.
þú nærð alltaf sambandi
_ við okkur!
Cf) 550 5000
^ ollo u|.|/4> Worfo 1/1 O_•
alla virka daga kl. 9-22
sunnudaga kl. 16-22
(g) dvaugl@ff.is
hvenær sólarhringsins sem er
550 5000
Myndgatan ___________
Myndgátan hér
til hliðar lýsir
oröasambandi.
Lausn á gátu nr. 2865:
Þröngsýnn maður
Þetta er asnalegur staöur fyrir
hreióur. Þaó ætti að vera uppi
? í tré. J
O)
f Rölegn N
v sirákar' J
^ Þetta er bara
*****
Hver er eigmlega dómari i þessum le-k?1
Ekki veit ég! Þeir taka alltaf voldm i
sinar hencJur i seinm háífletkl!