Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Blaðsíða 2
20 MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2000 Sport Formaður SH: Rosalega stoltur „Sem formaður SH get ég ekki annað en verið mjög stoltur af þessum krökkum. Það er ekkert öruggt í svona keppni, baráttan er alltaf sú sama en leynt og ljóst stefndum við að því að setja stigamet og það gekk eftir. Við gáfum allt í keppnina og vor- um stað- ráðin að koma með bik- arinn heim í Fjörðinn sjötta ár- ið í röð,“ sagði Hrafn- kell Mar- inósson, formaður SH, í samtali við DV. „Það á ekkert félag eignarhald á þessum bikar. Við erum að sigra á samstöðu og mikilli breidd. í dag eru í kringum 300 sundmenn hjá okkur svo við höf- um um marga sundmenn að velja sem er oft og tíðum mjög erfitt. Það er mikil hefð fyrir sundinu í Hafnarfirði og eftir þvi sem mér skilst þá voru hér margir sundmenn að synda í þriðja æítlið. Ég sá allavega þrjá afa sem eiga sundmenn í bik- arliðinu. Það er mikið búið að gerast á sl. tíu árum með mark- vissu starfí. Viö erum búnir að leggja planið fyrir 2005 og gerum það opinbert fljótlega hvert það er. Það er bjart fram undan og við hugsum ekki bara fyrir morgundaginn heldur til 2005 en Brian þjálfari hefur ákveðið að vera hjá okkur þangað til.“ Ný keppnislaug verði tilbúin fyrir 2005 „Við erum að vinna heima- vinnuna og gerum ráð fyrir því að bæjarstjórn leiti ráða hjá okk- ur þegar þar að kemur. Það er m.a. eitt af okkar áætlunarverk- um fyrir 2005 að í Hafnarfirði verði byggð 50 metra inni-keppn- islaug. Eftir að Örn náði sínum frábæra árangri á Ólympíuleik- unum sagði ég að hann hefði lagt homstein að nýrri laug í Hafnar- firði. Bæjaryfirvöld hafa skipað byggingarnefnd og þar verður sundmaður innanborðs sem gef- ur sérfræðiráðgjöf. Ég er mjög bjartsýnn á þessa byggingu sem full þörf er fyrir,“ sagði Hrafn- kell Marinósson. -JKS Lokastaðan í bikarnum Bikarkeppnin í 1. og 2. deild fór fram i Sundhöll Reykjavíkur um helgina. Það varð hlutskipti Ármanns og Breiðabliks að falla í 2. deiid en ÍA og Njarðvík taka sæti þeirra í næstu keppni. Lokastaðan varð þessi: 1. deild: 1. SH ........................30.611 2. Ægir .....................27.513 3. Keflavík................. 23.702 4. KR....................... 23.588 5. Ármann................... 20.636 6. Breiðablik ...............20.511 2. deild: 1. ÍA.........................21.963 2. Njarðvlk..................21.646 3. Óðinn.....................20.314 4. Selfoss ..................15.858 5. Vestri....................15.699 6. ÍBV ......................12.471 7. UMSB........................3137 -JKS DV Góður andi, samheldni og skemmtileg hvatningahróp einkenna sundmót hér landi. Þrátt fyrir aöstöðuleysi og enga aðstööu fyrir áhorfendur gera sundmenn gott úr hlutunum og láta verkin tala. Hér eru tvær stöllur úr Ægi sem hvetja sitt iið og gefa ekkert eftir í þeim efnum. DV-myndir Hilmar Þór 11 SH bikarmeistari sjötta árið i röð um helgina: Sundfélag Hafnarfjarðar varð í gær bikarmeistari í sundi sjötta árið í röð. Sigur Hafnfirðinga var sannfærandi og fékk SH tæpum þrjú þúsund stigum fleiri en Ægir sem hafnaði í öðru sæti. Gott sund- starf og sterkir sundmenn skila SH þessum glæsta árangri en maður mótsins var tvímælalaust Öm Am- arson úr SH sem setti þrjú islands- met í einstaklingsgreinum og fjórða metið í boðsundi. Örn setti íslandsmet í 200 metra flugsundi, synti á 2:00,32 mínútum. Þá setti hann íslandsmet í 100 metra skriðsundi á 49,52 sekúndum þegar hann synti sprett sinn í 4x100 metra skriðsundi með boðsundssveit SH. Hann sló síðan 13 ára gamalt met í 800 metra skriðsundi, synti á 8:07,71 minútu og loks í 1500 metra skrið- sundi á tímanum 15:25,94 mínútum. Fimmta metið í keppninni var sett í 100 metra bringusundi þegar Jakob Jóhann Sveinsson synti vegalengd- ina á 1:03,15 mínútum. Aldrei í betra formi öm er geysilega öflugur og 1 sam- tali við DV eftir mótið sagði hann að hann hefði aldrei á sínum ferli verið í eins góðu formi. „Æfingamar eru greinilega að skila sér núna en ég hef æft sleitu- Þessir sundmenn framtíðarinnar mættu vfgaiegir til bikarkeppninnar með þessi skemmtilegu höfuðföt. laust frá því í febrúar og meiðslin í öxl, sem háðu mér i fyrstu, eru að baki og munar um minna. Það er góð tiifinning að sjá að æfingamar eru farnar að skila góðum árangri. Núna ætla ég að hvOa svolftið fyrir Evrópumótið sem hefst eftir þrjár vikur. Hlakkar til Evrópumótsins Ég hlakka mikið til þess móts og er ákveðinn að verja Evróputitlana í 200 og 100 metra baksundi. Það verður erfitt en ég á eftir að fá mikla keppni frá Króata sem er heimsmeistari i 25 metra laug og Evrópumeistari í 50 metra laug,“ sagði Örn Arnarson. „Það er frábært að vinna bikar- inn sjötta árið í röð og það er von- andi að hann verði sem lengst í Hafnarfirði. Það er í það minnsta markmiðið en við verðum að halda okkur viö efnið og halda áfram á sömu braut í öflugu starfi og ástundun við æflngar. Ægir sýndi það í þessari keppni að félagið er í sókn,“ sagði Örn. Hann sagðist ætla að taka sér smáhvíld eftir Evrópumótið en síð- an hæfust æfíngar af fullum krafti í janúar enda væru næg verkefni á næsta ári. -JKS Þaö er hefð fyrir því að eftir verðlaunaafhendingu stingur sigurliöið sér í laugina og sumir fjúka út í öllum fötunum. Orn í stuði - fímm íslandsmet voru sett í keppninni og átti Örn fjögur þeirra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.