Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2000
23
DV
Helgi Jónas Guðfinnsson, sem leikur í Belgíu, átti ágætan leik með tslenska lanndsliðinu gegn Belgum í
Evrópukeppninni um helgina. Landsliðsmennirnir gera það ekki endasleppt en á miðvikudag mæta þeir Slóvenum í
keppninni og verður leikið í Laugardalshöll.
Undankeppni Evrópumóts landsliða í körfuknattleik:
Margt jákvætt
- þrátt fyrir tap gegn Belgum, 96-61
íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik beið lægri hlut fyrir
Belgum I bænum Roselare í viður-
eign þjóðanna í undankeppni Evr-
ópumóts landsliða á laugardags-
kvöldið. Lokatölur leiksins urðu
96-61 en í hálfleik var staðan 38-33
fyrir Belga. íslenska liðið átti
frumkvæöið lengstum í fyrsta leik-
hluta en í öðrum leikhluta náðu
Belgar betri tökum á leiknum og
höfðu fimm stiga forystu þegar
blásið var til leikhlés.
Heimamenn hittu vel í þriðja
leikhluta og gerði sá leikkafli út
um leikinn. í fjórða leikhluta
breikkaði bilið enn frekar og
tryggðu Belgar sér að lokum 35
stiga sigur. Leikur íslenska liðsins
var allt annar og betri en gegn
Úkraínu í síðustu viku. Sóknar-
leikurinn var beittari og rúllaði
betur en í síðasta leik.
Njarðvíkingurinn Logi Gunnars-
son var bestur í íslenska liðinu og
þeir Friðrik Stefánsson og Helgi
Jónason komust einnig vel frá
sínu.
Besti ieikur liösins í langan
tíma
„í heildina litið var ég nokk-
uð ánægður með strákana í
þessum leik. Þetta var einn
besti leikur liðsins í langan
tíma. Sóknarleikurinn var
betri en gegn Úkraínu og í
heild sinni gengu hlutirnir
miklu betur fyrir sig en í síð-
asta leik. Við nálguðumst körf-
una betur og náðum opnum
skotum. Ég hefði viljað sjá
menn hitta betur úr þessum
færum en reyndin varð. Það
urðu þáttaskil i leiknum þegar
við fórum að taka f'ærri fráköst
en fram að því voru Belgar
ráðvilltir í leik sínum,“ sagði
Friðrik Ingi Rúnarsson lands-
liðsþjálfari i samtali við DV.
Friðrik Ingi sagði að með
betri hittni hefði verið hægt að
halda bilinu á liðunum í 15
stigum.
„í síðari hálfleik náðu
Belgarnir frumkvæðinu. Þeir
fóru að leika boltanum meira
inn í teig með góðum árangri
og í kjölfarið lentum við í villu-
vandræðum. Það sem ég er
einna ánægðastur með er að
leikmenn börðust vel, gáfust
aldrei upp og það sáust margar
góðar hliðar á leik liðsins.
Núna er bara að nýta tímann
vel til undirbúnings fyrir leik-
inn gegn Slóveníu á miðviku-
dag. Þá mætum við langbesta
liðinu í riðlinum en Slóvenar
hafa ekki tapað leik. Það lýsir
styrk þeirra vel að þeir lögðú
Makedóníu með yfir 20 stiga
mun,“ sagði Friðrik Ingi.
Stig íslands: Logi Gunnars-
son 16, Ólafur Jón Ormsson 11,
Herbert Arnarson 10, Helgi
Jónas Guðfinnsson 10, Friðrik
Stefánsson 5, Jón Arnór Stef-
ánsson 4, Páll Axel Vilbergsson
3, Birgir Örn Birgisson 2.
Hjá Belgum var Jaumin
stigahæstur með 19 stig og
Struelens skoraði 17 stig.
-JKS
Slóvenar firnasterkir
Slóvenar hafa á að skipa yfir-
burðaliði í D-riðli undankeppni
Evrópumóts landsliða í körfu-
knattleik en liðið mætir íslending-
um í Laugardalshöllinni á mið-
vikudag. Slóvenar hafa um langt
skeið verið i hópi sterkustu þjóða
Evrópu í körfuknattleik.
Slóvenar sigruðu Makedón-
íumenn, 103-82, um helgina og í
Kiev sigruðu Úkraínumenn lið
Portúgala, 89-67. Tvær efstu þjóð-
irnar í riðlum keppninnar komast
i úrslitakeppni mótsins. íslend-
ingar eru eina þjóðin sem ekki
hefur tekist að vinna leik í riðlin-
um.
Slóvenar hafa fullt hús stiga eft-
ir sjö umferðir eða 14 stig. Barátt-
an um annað sætið er á milli
Úkraínumanna, Belga og Make-
dóníumanna. Úkraínumenn hafa
12 stig og Belgar og Makedón-
ímenn 11 stig. Portúgalar hafa
hlotið átta stig og íslendingar sjö
stig. Tvö stig eru gefin fyrir sigiu
og eitt stig fyrir tap. -JKS
Sport
Heimsbikarinn á skíðum:
Ævintýri
líkast
- hjá Króatanum Janicu Kostelic
„Svigkeppni kvenna snýst nú að-
allega um hver verður í 2. sæti þar
sem það efsta er fyrir fram frátek-
ið,” sagði hin svissneska Sonja Nef
eftir að ljóst var að Janica Kostelic
frá Króatíu vann annað svigmót
vetrarins sem fram fór í Aspen í
Bandaríkjunum.
Kostelic vann einnig fyrsta mót
vetrarins en þetta er fjórði sigur
hennar í röð þar sem hún vann síð-
ustu tvö mót síðasta keppnistíma-
bils. Árangur hennar er ævintýri
líkastur en hún sleit sex liðbönd í
hægra hné fyrir 11 mánuðum i
skíðabrekkum St. Moritz í Sviss.
Þessi ungi Króati vann með
nokkrum yfirburðum, var þegar
komin með 0,74 sekúndna forskot
eftir fyrri umferð og gat því tekið
það rólega i þeirri síðari. Kostelic
verður 19 ára í janúar næstkom-
andi. Hún er einnig þess heiðurs að-
njótandi að vera sú yngsta sem
vinnur svigkeppni kvenna í heims-
bikarkeppninni en þegar hún var 17
ára gömul vann hún fyrstu keppni
sína, í St. Anton í Austurríki.
„Ég get ekki útskýrt þetta. Ég
skíða bara einfaldlega eins og mér
ber og þetta er árangurinn,” sagði
Kostelic eftir sigurinn.
Hermann Maier 15. í bruninu
Fyrsta brunkeppni vetrarins
var háð í Láke Lousie í Kanada á
laugardaginn og bar þar helst til
tíðinda að heimsbikarmeistarinn í
bruni, ásamt öðrum alpagreinum,
var aðeins 15. Austurríkismaður-
inn Stephan Eberharter sigraði
þar í fyrstu brunkeppni sinni á 12
ára ferli sínum. Hann hefur und-
anfarið þurft að standa í skugga
landa síns, Hermanns Maiers, og
hefur í 10 skipti verið annar á eft-
ir Maier, núverandi heimsbikar-
meistara í bruni, risasvigi, stór-
svigi og samanlögðum árangri í
alpagreinum. Maier átti þó ein-
staklega slæman dag og lauk
keppni í 18. sæti.
Annar varð hin ungi svissneski
Silvano Beltrametti og er hann
óðum að komast í röð hinna allra
bestu í bruninu í dag. Lasse Kjus
tók skælbrosandi við bronsinu en
vegna meiðsla tók hann aðeins
þátt í einni brunkeppni á síðasta
keppnistímabili.
Michaela Dorfmeister tryggði
austurríska kvennaliðinu fyrsta
sigurinn á keppnistímabilinum
með sigri i risasvigi í Aspen á
fostudag. Reyndar er Dorfmeister
fyrsta austurriska konan sem sigr-
ar í Aspen i 12 ár og sigurinn því
kærkominn. Önnur varð franska
stúlkan Regine Cavagnoud og
Corinne Rey Bellet frá Sviss varð
þriðja. -ejá
Janica Kostelic hefur farið á kostum í heimsbikarnum á skíðum til þessa í
vetur og er til alls vís. Hér fagnar hún sigrinum í sviginu í Aspen. reuter
RAUfiH DJÖFLARNIR
Knattspyrnustjörnurnar í sögu
Manchester United
Ómissandi bók fyrir alla Rauöa Djöfla.
Ferð þú á Old Trafford?
Sjá nánar á kápu bókarinnar.
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR^' jÉ'