Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Qupperneq 7
24 Sport ÍBV-Grótta/KR 21-29 1-0, 3-0, 5-2, 7-4, 7-9, 9-12 (10-14). 10-15, 11-18, 14-20, 16-23, 18-26, 21-29. IBV Mörk/viti (Skot/viti): Daði Pálsson 5/1 (8/2), Guðfinnur Kristmannsson 4 (10), Jón Andri Finnsson 4/1 (6/2), Erlingur Richardsson 3 (3), Mindaugas Andriuska 2 (7), Svavar Vignisson 1 (1), Sigurður Stefánsson 1 (3), Eymar Kriiger 1 (6/2), Sindri Ólafsson (1) Mörk úr hraöaupphlaupum: (Erlingur 3, Daði 3, Guðfmnur) Vitanýting: Skorað úr 2 af 6. Varin skot/viti (Skot á sig): Gísli Guðmundsson 6 (25, 24%), Sigurður Sigurðsson 4 (14/3, 29%) Brottvisanir: 8 mínútur. Grótta/KR Mörk/viti (Skot/víti): Hilmar Þórlinds- son 11/3 (14/3), Aleksanders Pettersen 9 (17), Davíð Ólafsson 5 (7), Atli Þór Samú- elsson 3 (7), Hörður Gylfason 1 (2), Krist- ján Þorsteinsson (3). Mörk úr hraðaupphlaupunv (Davíð 3, Hilmar) Vitanýting: Skorað úr 3 af 3 . Varin skot/víti (Skot á sig): Hlynur Mortens 10/2 (29/5, 34%), Hreiðar L. Guðmundsson 1/1 (2/2, 59%). Brottvisanir: 12 mínútur. Dómarar (1-10): Einar Hjaltason og Ingvar Reynisson (6) Gœöi leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 180. Maöur leiksins: Hilmar Þórlindsson, Grótta/KR. Stjarnan-HK 32-22 0-1, 1-2, 3-2, 6-3, 6-5, 9-5, 9-8, 12-9, 12-11, (15-11), 15-13, 16-14, 20-14, 20-15, 24-15, 24-18, 26-19, 29-19, 29-22, 32-22. Stiarnan Mörk/víti (Skot/viti): Eduard Moska- lenko, 7 (9), Magnús Sigurðsson, 7/6 (12/6), Bjami Gunnarsson, 6 (8), David Kekilja, 4 (6), Björgvin Rúnarsson, 4 (6/1), Amar Pétursson, 2/1 (4/2), Konráð Ólav- son, 2/1 (5/2), Sigurður Viöarsson (2). Mörk úr hraóaupphlaupum: 7 (Kekilja, 3, Björgvin, 2, Moskalenko, 2). Vitanýting: Skorað úr 8 af 11. Varin skot/viti (Skot á sig): Birkir ívar Guðmundsson, 20 (39/4, 51%), Ámi Þor- varðarson, 5 (8, 63%). Brottvisanir: 10 mínútur HK Mörk/viti (Skot/víti): Óskar Elvar Ósk- arsson, 6/4 (16/4), Alexander Amarson, 3 (3), Jón Bessi Ellingsen, 3 (3), Guðjón Hauksson, 2 (4), Samúel Ámason, 2 (4), Stefán BVeyr Guðmundsson, 2 (7), Jaliesky Garcia, 2 (8), Sverrir Bjömsson, 2(8). Mörk úr hraóaupphlaupum: 9 (Jón Bessi, 3, Guðjón, 2, Samúel, 2, Alexander, Sverrir). Vitanýting: Skorað úr 4 af 4. Varin skot/viti (Skot á sig): Amar Freyr Reynisson, 5/1 (19/5, 26%), Hlynur Jóhannesson, 15/2 (33/6,45%). Brottvísanir: 8 mínútur. Dómarar (1-10): Gfsli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson (4). Gœói leiks (1-10): 3. Áhorfendur: 160. Maóur leikins: Eduard Moskalenko, Stjörnunni. FH-ÍR 23-16 I- 0, 1-1, 4-1, 4-2, 8-2, 8-4, 10-4, 10-6, II- 6 (11-7), 13-7, 15-9, 17-11, 18-13, 22-14, 22-16, 23-16. FH Mörk/viti (Skot/viti): Héðinn Gilsson 5/1 (11/1), Sigurgeir Árni Ægisson 5 (13), Hjörtur Hinriksson 4 (6), Valur Örn Arn- arson 4 (10), Hálfdán Þórðarson 3 (4), Sverrir Örn Þórðarson 2 (2), Sigursteinn Arndal (1), Pálmi Hlöðversson (1). Mörk úr liraöaupphlaupum: 4 (Sverrir 2, Sigurgeir, Hjörtur). Vítanýting: Skorað úr 1 af 1. Varin skot/víti (Skot á sig): Berg- sveinn Bergsveinsson 11 (26/2, 42%), Jónas Stefánsson (1/1). Brottvisanir: 12 mínútur. ÍR Mörk/viti (Skot/viti): Finnur Jóhann- esson 3 (5), Bjarni Fritzson 3 (7), Erlend- ur Stefánsson 3/3 (6/3), Ólafur Sigurjóns- son 2 (6), Róbert Rafnsson 1 (1), Ingi- mundur Ingimundarson 1 (2), Brynjar Stefánsson 1 (3), Kári Guðmundsson 1 (4), Einar Hólmgeirsson 1 (4), Hallgrím- ur Jónasson (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 1 (Ólafur). Vítanýting: Skorað úr 3 af 3. Varin skot/viti (Skot á sig): Hall- grímur Jónasson 8 (18/1, 44%), Hrafn Margeirsson 6 (19, 32% ). Brottvísanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Stefán Amaldsson og Gunnar Viðarsson (8). Gceói leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 500. Maöur leikins: Bergsveinn Bergsveinsson, FH. Skotnir i kaf - ÍBV tapaði annað sinn í röð á heimavelli fyrir Gróttu/KR Eyjamenn tóku á móti Gróttu/KR í tíundu umferð íslandsmótsins í Vestmannaeyjum á fóstudagskvöld- ið. Eyjamenn hafa til þessa verið þekktir fyrir að eiga sigurinn nokk- uð vísan á heimavelli en oft reynist erfitt að lifa á fomri frægð en tvö töp liðsins í röð á heimavelli er eitthvað sem Eyjamenn eiga ekki að venjast. Grótta/KR sigraði auðveldlega í leiknum með átta mörkum, 21-29, og var sigur þeirra síst of stór. Eyjamenn voru þó mun sprækari til að byrja með og virtust gestirnir ekki alveg vera með hugann við verkefnið. Eyjamenn skoruðii fyrstu þrjú mörkin og héldu þriggja marka forystu fram eftir hálfleikn- um. Á elleftu mínútu urðu gestirnir fyrir áfalli þegar vamarjaxlinum Gísla Kristjánssyni var vikið af leik- velli fyrir að slá Mindaugas Andriuska óvart í andlitið. Dómur- inn var kannski dálítið strangur en líklega réttur. En gestimir virtust einfaldlega eflast. Fimm mörk í röð hjá Gróttu/KR var eitthvað sem leik- menn iBV áttu alls ekki von á enda náðu þeir sér aldrei á strik í leiknum eftir þetta. Gestirnir juku muninn í fjögur mörk, 10-14, en mestu mun- aði um vítanýtingu heimamanna en þeir fengu þrjú víti í fyrri hálfleik og nýttu ekkert þeirra. Útlitið var allt annað en gott hjá heimamönnum í hálfleik og bjuggust nú flestir við því að þeim myndi takast að rífa sig upp úr lægðinni og veita gestunum verðuga keppni. En leikmenn Gróttu/KR með þá Hilmar Þórlindsson og Aleksanders Petters- son í fararbroddi sýndu heimamönn- um enga miskunn. Gestimir skor- uðu fyrstu tvö mörk hálfleiksins og munurinn kominn í sex mörk áður en Eyjamenn náðu að svara fyrir sig. Geöveikir áhorfendur Eyjamenn léku versta leik sinn í áraraðir á fóstudagskvöldiö. Liðið saknar greinilega leikstjórnanda síns, Aurimas Frovolas, sem á við meiðsl að stríða en leikmannahópur liösins hefur líklega aldrei verið breiðari en nú og því ætti að vera hægt að leysa það vandamál. Leik- menn liðsins gerðu sig seka um að láta mótlætið fara í taugamar á sér og fyrir vikið varð leikur liðsins til- viljanakenndur, bæði í vörn og sókn. Grótta/KR sýndi hins vegar i gær að mikið býr í liðinu. Vamarleikur liösins var gífurlega sterkur og komust Eyjamenn lítið áleiðis gegn þeim. Sóknarleikur liðsins byggist að miklu leyti upp á tveimur mönn- um sem er í góðu lagi þegar þeir skora samtals tuttugu mörk. „Við áttum náttúrlega aldrei von á svona stórum sigri. Þetta er auðvitað algjör Ijónagryfja, áhorf- endumir eru geðveikir en styðja lið sitt dyggilega og menn koma alltaf vel spenntir fyrir leikina. En við áttum alveg toppleik i kvöld, vömin var mjög sterk hjá okkur og sóknar- leikurinn agaöur og þegar svo er þá getum við þetta. Þessi sigur skiptir okkur rosalega miklu máli. Við náðum að rífa okkur aðeins í burtu frá þessum pakka sem hefur verið í öðru sæti og niður,“ sagði Hilmar Þórlindsson sem skoraði alls ellefu mörk gegn ÍBV. - jgi Tak HK á Stjörnunni losnaði með stórskelli í Garðabæ: Svitalaus - sigur Stjömumanna á HK-ingum, 32-22, í gær Stjarnan vann auðveldan sigur á HK í Nissandeild karla í handbolta í gær, 32-22. Leikurinn markaði tíma- mót hjá Garðabæjarliðinu því það hafði mátt bíða í fimm og hálft ár eft- ir að leggja nágranna sína úr Kópa- vogi en HK hafði farið taplaust í gegn- um átta deildarleiki í röð og unnið sjö þeirra. Þetta var fjórði heimasigur Garðbæinga í röð en þeir eru að taka vel við sér eftir slæma byrjun í haust. Stjaman tók frumkvæðið strax í byrjun, HK átti góða kafla inni á milli en þeir kaflar náðu aðeins að minnka forskotið en aldrei að koma þeim að fúllu inn í leikinn. Skyttuleysi HK-manna var áber- andi i þessum leik, þær tvær sem lið- ið hefur yfir að ráða, Sverrir Björns- son og Jalieksy Garcia, nýttu aðeins 4 af 16 skotum sínum (25%) og töpuðu auk þess sex boltum saman. Fyrir bragðið þurfti Óskar Elvar Óskarsson að taka af skarið og það er agaleg töl- fræði fyrir lið að leikstjómandi þess þurfi að taka 12 skot utan af velli i einum leik. Sóknarleikurinn var líka það sem felldi HK-liðið sem hafði unn- ið tvo leiki í röð. Gott dæmi er að aðeins 9 mörk liðs- ins komu eftir uppsettar sóknir því liðiö skoraði níu hraöaupphlaups- mörk og 4 eftir víti. Auk þess að nýta aðeins 9 af 35 skotum utan af velli (26%) töpuðust 14 boltar, margir fyrir hreinan og beinan klaufaskap sofandi leikmanna liðsins. Markvarslan var aftur á móti í góöu lagi, Hlynur Jóhannesson sneri aftur í bókstaflegri merkingu og varði 15 skot og það voru aöeins hann, Jón Bessi Ellingsen og Óskar Elvar sem sýndu lífsmark í þessum leik. Stjörnumenn áttu ljúfan dag í gær. Eduard Moskalenko var sterkur á línunni, skoraöi sjö mörk auk þess að fiska þrjú viti og þrjá HK-inga út af í leiknum. Magnús Sigurðsson nýtti vítin líka vel og átti auk þess 6 stoðsendingar og aðrar þrjár sem gáfú víti. Bjarni Gunnarsson átti stóran fyrri hálfleik (með 5 mörk fyrir utan úr 6 skotum) en hélt sér til baka í laufléttum seinni hálfleik. Birkir ívar Guðmundsson hélt síðan vöku sinni í markinu allan tímann og varði vel. -ÓÓJ Oruggt hjá FH FH-ingar sýndu sitt rétta andlit þegar þeir sigruðu ÍR, 23-16, á fóstu- dagskvöldið. Gestimir úr Breiðholt- inu, sem hafa staðið sig vel i Nissan- deildinni í vetur, fengu ekki blíðar móttökur í Hafnarfirði. FH-ingar, sem voru gestrisnir með afbrigðum þegar þeir tóku á móti KA í síðasta leik, voru staðráðnir í að sýna hvað í þeim býr og það fengu ÍR-ingar sannarlega að reyna. FH-ingar voru fastir fyrir í vörn- inni og með þá Hálfdán og Sverri fremsta brutu þeir sóknarleik gest- anna á bak aftur og nýttu sóknir sín- ar vel i upphafi leiks. ÍR-ingum tókst aðeins að rétta sinn hlut fyrir leikhlé en það dugði þeim engan veginn til að vinna sig aftur inn í leikinn. Leikmenn FH spiluðu vel og ef framhald verður á þessu getur leiðin ekki legið annað en upp á við. Hjá ÍR var Finnur sterkur í vörninni og þeir Hrafn og Hallgrímur vörðu oft á tíðum vel en það dugði þó ekki til. „Fyrst og fremst spiluðum við mjög góða vöm sem verður að vera okkar aöall ef við ætlum að ná ár- angri. Þessa vörn spiluðum við í leiknum gegn Val og aftur í kvöld og ef hún er ekki í lagi þá eigum við erfitt uppdráttar. Ef eitthvað er þá hefðum við jafnvel átt að vinna þetta með meiri mun. Við köstuðum frá okkur fullt af boltum en vömin hélt mjög vel og Beggi varði auk þess vel svo að þetta var fyrst og fremst vörn og markvarsla og skynsamur sókn- arleikur," sagði Guðmundur Karls- son, þjálfari FH. „Við erum búnir að spila nokkra ágætis leiki og þetta er eitthvað sem virðist liggja fyrir þessu liði, að eft- ir nokkra góða leiki þá kemur eitt- hvað svona. Það er eins og við þurf- um að fá skell til að áminna okkur. Vinnuframlag hvers og eins var ákaflega dapurt og við gerðum ekki þá hluti sem við eigum að að gera, vorum óskynsamir og hreyfðum okkur lítið. Við vorum áhugalitlir og það var eins og það vantaði allan sigurvilja en FH liðið spilaði vel og við áttum aldrei neitt skilið í þessu,“ sagði Jón Kristjánsson, þjálfari ÍR, að vonum dapur með frammi- stöðuna. -ÞAÞ Valur-Fram 22-19 1-0, 1-1, 3-1, 3-5, 4-7, 6-8, 9-9, 10-10 (12-11), 12-12,12-13,14-13,16-16,18-16, 19-19, 22-19. Valur Mörk/viti (Skot/viti): Valdimar Gríms- son 7/4 (12/4), Fannar Þorbjömsson 4 (4) , Júlíus Jónasson 3 (9), Ingvar Sverris- son 2 (4), Markús Máni Michaelsson 2 (5) , Snorri Guðjónsson 2 (6), Bjarki Sig- urðsson 1 (1), Daníel Ragnarsson 1 (5). Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 (Ingvar 2, Valdimar og Fannar 1). Vítanýting: Skorað úr 4 af 4. Varin skot/viti (Skot á sig): Roland Eradze 16/2 (35/4, 48%). Brottvisanir: 10 mínútur (Daníel Ragnarsson rautt, 3x2 mín). Fram Mörk/viti (Skot/viti): Gunnar Berg Viktorsson 8/2 (16/3), Guðjón Finnur Drengsson 4 (8), Hjálmar Vilhjálmsson 2 (6) , Vilhelm Gauti Bergsveinsson 2 (9), Njörður Árnason 1 (2), Róbert Gunnars- son 1 (3/1), Björgvin Þ. Björgvinsson 1 (6). Mörk úr hraöaupphlaupum: 1 (Guðjón) Vitanýting: Skorað úr 2 af 4. Varin skot/víti (Skot á sig): Magnús Erlendsson 12 (33/3, 36%), Sebastian Alexandersson 0 (1/1). Brottvisanir: 6 mínútur. Dómarar (1-10): Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson (7). Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 120. Maður leikins: Roland Eradze, Val. + 25 MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2000 MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2000 I>V DV Sport Róbert Gunnarsson, Fram, fer hér inn af línunni í leik Vals og Fram aö Hlíöarenda á laugardag og Daníel Ragnarsson getur ekki annaö en horft á eftir honum. Þaö voru hins vegar Framarar sem horföu á eftir stigunum tveimur í poka Valsmanna aö leik loknum en þetta var annar ósigur Safamýrarpilta á tímabilinu. DV-mynd Hilmar Þór Þriggja leikja taphrina Valsmanna á enda í handboltanum: beinu brautina - Valsmenn unnu góðan sigur á Frömurum á Hlíðarenda Valur sigraði Fram á laugardag, 22-19, í Nissan-deild karla og komst þar með upp að hlið Gróttu/KR í þriðja til fjórða sæti deildarinnar. Valsmenn mættu mjög ákveðnir til leiks og virtust koma Frömurum á óvart. Þegar Safamýrarpiltar voru búnir að ná úr sér mesta sviðsskrekknum tókst þeim þó að sýna sitt rétta andlit og skoruðu 4 mörk í röð og héldu marki sínu hreinu í 10 mínútur. Þessar sveiflur í byrjun jöfnuðust þó út í lok fyrri hálfleiks og Valsmenn voru yfir í hálfleik, 12-11. Það var þó öðrum fremur Valdimar Grímsson sem hélt Val inni í leiknum í lokin. Hann skoraði 5 síðustu mörk þeirra á þeim tíma. Eradze skellti í lás Framarar virtust ætla að hefja seinni hálfleikinn með látum og breyttu vamarleik sínum í 5-1 en þeir léku 6-0 vörn allan fyrri hálfleik. Þetta virtist þó ekki trufla Valsara mikið því þeir skoruðu jafnt og þétt en Frömurum tókst alltaf að jafna og jafnt var á öllum tölum þar til þrjár mínútur voru eftir. Þá fékk Daníel Ragnarsson þriðju brottvísun sína og það virtist heypa eldmóði í Valsmenn og þá sérstaklega markvörð þeirra, Roland Eradze, en hann varði 4 af 5 síðustu skotum leiksins sem komu á mark hans, þar af eitt vítakast. Framarar reyndu að leysa leikinn upp en Valsmenn bættu bara við og hinum megin var Roland búinn að skella í lás. Geir Sveinsson var að vonum ánægður með sína menn að leik loknum. Hann sagðist sérstaklega vera ánægður með karakterinn í liðinu, að rifa sig upp eftir 3 tapleiki í röð í deildinni og koma og sigra Fram sem aðeins hafði tapað fyrir íslandsmeisturum Hauka fram að þessum leik. Aðspurður um markvörslu Rolands í lokin sagði Geir að Roland hefði hlutverk í liðinu eins og aðrir leikmenn liðsins og hann hefði staðið sig vel í þessum leik. Hann sagði einnig að hans menn hafi gert það sem fyrir þá var lagt, sýnt þolinmæði en það er það sem þarf gegn jafn öguðu liði og Fram er. Markverðirnir sterkir Roland Eradze var bestur Valsmanna í leiknum. Hann var svolitla stund að koma sér í gang en það má með sanni segja að hann hafi verið orðinn heitur á réttum tíma, undir lokin þegar hann varði mjög vel. Aörir leikmenn stóðu sig vel, þó er hægt að nefna frammistöðu Fannars Þorbjörnssonar sem nýtti færi sín vel og skoraði nokkur mikilvæg mörk. Valdimar Grímsson var liðinu líka mikilvægur, sérstaklega í lok fyrri hálfleiks þegar hann skoraði 5 mörk í röð. Framliðið náöi sér aldrei almennilega á strik í þessum leik. Sóknarleikur þess var oft á tíðum stirður og hægur, ekki beint fyrir augað. Þjálfari þess, Anatoli Fediouhine, reyndi ýmsa hluti en lítið gekk. Það var einhvern veginn eins og menn væru ekki almennilega með hugann viö leikinn. Manni finnst oft á tíðum að maður eins og Gunnar Berg Viktorsson eigi miklu meira inni en hann sýnir. Hann byrjar leiki oft mjög vel en seinni hálfleikur ef oft mun slakari hjá honum. Annars var markvörður þeirra Framara, Magnús Erlendsson, besti maður þeirra. Hann varði oft á tíðum vel, þó sérstaklega í upphafi leiks. Nokkur töf varð á leiknum í seinni hálfleik þegar Gunnar Berg Viktorsson átti skot yfir markið sem endaði í klukku hússins. Hún fór við það úr sambandi og tók nokkra stund að koma henni í gang aftur. Þegar þetta gerðist voru 18 mínútur eftir og var sá hluti talinn sérstaklega. Það voru því 18 mínútur eftir á klukkunni þegar leiknum lauk. -RG Roland Eradze. Magnús Erlendsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.