Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Qupperneq 1
19
Andri Þór Óskarsson úr Birninum
(til vinstri) og Hendrik Sverremo
hjá Skautafélagi Reykjavíkur eigast
hér við í leik liöanna í
Skautahöllinni í gær. Sverremo
skoraði tvö mörk og lagði upp eitt
til viðbótar en það dugði þó ekki til
því Andri Þór og félagar hans í
Birninum fögnuðu 7-5 sigri.
DV-mynd E.ÓI.
Soofl
Miðvikudagur 13. des. 2000
dvsport@ff.is
Björninn á toppnum
Síðsti leikur þriðju umferðar íslandsmótsins í ishokkí fór fram í
Skautahöllinni í Laugardal í gær. Bjöminn lék við Skautafélag
Reykjavíkur og lauk leiknum með sigri Bjarnarins, 7-5, sem meö honum
tryggði sér toppsætið á íslandsmótinu í jólafríinu.
Leikurinn var spennandi og sýndu bæöi lið góðan leik. Fyrsti leikhluti
fór 2-2. Annar leikhluti fór 3-1 og sá þriðji endaði með jafntefli, 2-2.
Allt annað var að sjá lið SR nú heldur en í síðustu leikjum. Liðið lék
mjög vel og virtist endurkoma Heiðars Inga Ágústssonar hafa mjög jákvæð
áhrif á leikmenn SR. Heiðar lagði skautana á hilluna siðastliðið vor, en
kemur nú aftur tO leiks og styrkir lið SR mikið. Bestu leikmenn
Bjarnarins voru þeir Sergei Zak, Jónas Breki Magnússon og Ágúst
Torfason.
Mörk og stoðsendingar Bjamarins: Sergei Zak, 3/3, Jónas Breki
Magnússon 1/3, Ágúst Torfason 2/0, Sigurður Einar Sveinbjamarson 1/0,
Glenn Hammer 0/1.
Mörk og stoðsendingar SR: Henrik Sverremo 2/1, Snorri Rafnsson 1/1,
Helgi Þórisson 1/1, James Divine 1/1, Wladimir Baranov 0/1, Heiðar Ingi
Ágústsson 0/1.
Spáð í SS-bikar karla í handbolta:
Spennuleikir
- í átta liða úrslitunum, sá stærsti í Safamýri milli Fram og Hauka
Bikarkeppni kvenna í körfu:
ÍR/Breiðablik
komið áfram
Sameiginglegt lið ÍR og Breiða-
bliks varð siðasta liðið til þess að
tryggja sér sæti i átta liða úrslit-
um bikarkeppni kvenna í körfu
þegar liðið vann Ungmennafélag
Hrunamanna, 61-20, í Smáranum.
Guðbjörg Guðbjörnsdóttir og
Gunnur Ósk Bjarnadóttir voru
stigahæstar hjá ÍR/Breiðabliki
með 12 stig hvor en Steinunn Dúa
Jónsdóttir skoraði níu stig auk 10
frákasta og 4 stoðsendinga. Gunn-
ur tók einnig tíu fráköst og það á
aðeins 15 mínútum.
Hjá Hrunamönnum var Freyja
Sigurjónsdóttir með sex stig og
Hrund Harðardóttir með 4 stig en
Ösp Jóhannesdóttir tók 11 frá-
köst.
Um helgina tryggði b-lið Kefla-
víkur sér sætið i átta liða úrslit-
unum með 44-56 sigri á Tindastóli
á Sauðárkróki. Sex lið sátu hjá og
eru því einnig komin áfram en
það eru lið Keflavíkur, KR, ÍS,
KFÍ, Grindavíkur og Hauka.
-ÓÓJ
Átta liða úrslit SS-bikars karla í
handbolta fara fram í kvöld og þá
kemur í ljós hvaða fjögur lið tryggja
sér þátttökurétt í undanúrslitum
keppninnar sem fara fram eftir ára-
mót.
Sterkasta sóknin og
sterkasta vörnin
Stórleikur kvöldsins er viðureign
Fram og Hauka i Safamýri. Liðin
skipa tvö efstu sætin í Nissandeild-
inni og hafa aðeins tapað þremur
leikjum samtals í vetur.
Haukar unnu deildarleik liðanna á
sama stað fyrr í vetur en álagið er
mikið á Hafnarfjarðarliðinu þessa
dagann sem er nú í miðri fimm leikja
törn á aðeins 14 dögum og nær hún
yfir þrjár keppnir.
Þetta er einvígi sterkasta sóknar-
liðsins og sterkasta varnarliðsins i
deildinni, því Haukar hafa skorað
flest mörk (30,4) en Framarar fengið
fæst á sig (22,3) það sem af er vetri.
Leikurinn hefst klukkan átta í
íþróttahúsi Framara í Safamýri.
Verður þriðja framlengingin?
Einhverjum gæti dottið í hug að
spá framlengingu í leik Stjörnunnar
og Aftureldingar í Garðabæ en báðir
leikir liðanna í vetur hafa endað í
framlengingu. Afturelding hefur þar
haft betur í báðum leikjum og getur
því fullkomnað þrennuna með sigri í
kvöld og hefnt um leið fyrir síðasta
vetur þegar Stjarnan vann báða inn-
byrðis leiki liðanna í deildinni og sló
það út úr bikarnum. Liðin eru að
mætast í annað sinn á fjórum dögum
og í þriðja sinn á þremur mánuðum
og ættu því að vera farin að þekkja
vel inn á hvort annað.
ÍR á góðu róli
Önnur lið, sem eru ekki að hittast
í fyrsta sinn í vetur, eru lið HK og ÍR
sem mætast i Digranesi í annað sinn
á fjórum dögum. lR hefur unnið HK í
báðum deildarleikjum vetrarins og
eru Breiðhyltingar á góðu róli þessa
dagana en liöið hefur unnið sex af
síðustu átta leikjum í deild og bikar.
HK tók smákipp um daginn og
vann tvo leiki í röð en að öðru leyti
hefur þetta verið vandræðavetur í
handboltanum í Kópavogi þar sem
aðeins tveir af 24 leikjum hafa unnist
hjá HK og Breiðabliki. HK hefur
reyndar staðið sig vel í bikarnum
undanfarin timabil og ætlar sér ör-
ugglega að komast i undanúrslitin í
þriðja sinn á fjórum árum.
Valsbanar mætast
Selfyssingar fá Gróttu/KR í heim-
sókn á Selfossi en bæði lið hafa afrek-
að það að vinna Valsmenn á undan-
fómum hálfum mánuði. Selfyssingar,
sem eru í 2. deild, slógu Hlíðarenda-
liðið svo óvænt út úr síðustu umferð
með þriggja marka mun, 29-26, en
Grótta/KR vann Val, 21-17, um síð-
ustu helgi. Liðin léku þrjá æsispenn-
andi leiki i 2. deild i fyrra og aðeins
munaði fjórum mörkum á liðunum i
þessum leikjum, þó svo að Grótta/KR
hefði unnið báða leikina á Selfossi.
-ÓÓJ