Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2000, Side 1
19
s
Erfið staða hjá
Skagamönnum
Aðalfundur Knattspyrnufélags
Akraness var haldinn í gærkvöldi.
Samþykkt var að skipa þriggja manna
nefnd sem í sitja þeir Haraldur
Sturlaugsson, Gylfi Þórðarson og Gísli
Gíslason og verður hlutverk nefndarinnar
að fara yfír rekstur félagsins og fjármál og
á hún að skila tillögum fyrir
framhaldsaðalfund sem haldinn verður í
lok janúar.
Smári Guðjónsson formaður sagði að
staða félagsins væri mjög erfið, meðal
annars vegna minni tekna frá
Evrópukeppni og íslandsmóti og svo væri
það orðið allt of algengt að leikmenn færu
á milli félaga án greiðslu.
1 máli Andrésar Ólafssonar, gjaldkera
félagsins, kom fram að samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri félagsins væru
tekjur áætlaðar verða um 45 m.kr.,
rekstrargjöld fyrir utan fjármagnsgjöld 53
milljónir og fjármagnsgjöld væru um 4
m.kr., því væri tapið um 12 milljónir
króna. Fjármagnskostnaður félagsins er
að sliga félagið, hann er svipaður og allar
tekjur félagsins frá þátttöku í
Evrópukeppni.
Eignir félagsins í dag eru áætlaðar um
52 milljónir og skuldir um 60 milljónir og
því er eigið fé félagsins orðið neikvætt
um 8 m.kr. Meðal skulda félagsins eru
eftirstöðvar stúkubyggingar, 14
milljónir kr„ og stór skuld við
Búnaðarbanka íslands. -DVÓ
Signý styrkir Stúdínur
Körfuknattleikskonan Signý
Hermannsdóttir, sem nú stundar nám og
körfubolta með Cameron-háskólanum í
Bandaríkjunum, mun leika með kvennaliði
ÍS í úrslitum Kjörisbikarsins um helgina.
Signý er leikmaður ÍS og hefur verið
það síðan 1996 en fór til náms erlendis um
síðustu áramót. Hún kemur til með að
styrkja lið ÍS mjög mikið um helgina.
Signý hefur leikið átta leiki með
Cameron í ár og skorað 11 stig að
meðaltali á aðeins 20,5 mínútum. Signý
hefur auk þess tekið 4,6 fráköst og hitt úr
58,3% skota sinna en hún er stigahæsti
leikmaður liðsins þrátt fyrir að hafa verið
aðeins tvisvar sinnum í byrjunarliðinu.
-ÓÓJ
- fremst meöal jafningja á frábæru ári hjá fötluðum íþróttamönnum
Það var mikið um dýrðir á Hótel
Sögu í gær þegar íþróttasamband
fatlaðra útnefndi íþróttamann og
íþróttakonu ársins 2000.
Sundfólk stal senunni í gær því
sundkappinn Bjarki Birgisson var
valinn íþróttamaður ársins og sund-
konan Kristín Rós Hákonardóttir
var valin íþróttakona ársins. Þetta
er í sjötta skiptið sem Kristín Rós
verður þessa heiðurs aðnjótandi.
Fern verölaun
Mikið var um að vera hjá fótluð-
um íþróttamönnum á árinu en há-
punkturinn var Ólympíumótið sem
fram fór í Sydney í október síðast-
liðinn. Þar fór Kristín Rós Hákonar-
dóttir, 27 ára gömul sundkona úr
íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík,
hamförum og krækti sér í fjögur
verðlaun, tvenn gullverðlaun og
tvenn bronsverðlaun auk þess sem
hún setti eitt heimsmet, i 100 metra
skriðsundi, og tvö Ólympíumet.
Þetta var fjórða Ólympíumót
Kristínar en hún vann einnig fern
verðlaun á Ólympíumóti fatlaðra í
Atlanta árið 1996. Kristín Rós vann
einnig fern gullverðlaun á Opna
Norðurlandamótinu i Greve í
Danmörku og á Opna breska
meistaramótinu í ShefField á
Englandi.
Eitt heimsmet
Bjarki, sem er aðeins átján ára
gamall og æfir með íþróttafélagi
fatlaðra í Reykjavik, tók þátt i sínu
fyrsta Ólympíumóti. Hann keppti í
einni grein í Sydney, 100 metra
bringusundi, og endaði í sjöunda
sæti. Bjarki setti eitt heimsmet á ár-
inu, í 200 metra bringusundi á
Sundmeistaramóti íslands 16. júlí
síðastliðinn. -ósk
Anna Lena Björnsdóttir fékk Guö-
rúnarbikarinn fyrir frábær störf í
þágu fatlaðra íþróttamanna.
Anna Lena heiðrud
íþróttasamband fatlaðra veitti í
fyrsta skipti Guðrúnarbikarinn í
gær. Sá bikar, sem gefinn er af Öss-
uri Aðalsteinssyni til minningar
um eiginkonu hans, Guðrúnu Páls-
dóttur, er veittur konu sem stjóm
íþróttasambands fatlaðra telur að
hafi unnið fórnfúst starf í þágu fatl-
aðra. Að þessu sinni var það Anna
Lena Bjömsdóttir, íþróttakennari
úr Reykjanesbæ, sem hlotnaðist
þessi heiöur. Anna Lena, sem hefur
þjálfað hjá íþróttafélaginu Nes í
Reykjanesbæ i fjölmörg ár auk þess
að starfa sem íþróttakennari í Bjöl-
brautaskóla Suðumesja, hefur unn-
ið frábært starf og meðal annars
komið á tengslum meðal nemenda í
fjölbrautaskólanum og fatlaðs
íþróttafólks í Reykjanesbæ.
Blómlegt starf er í íþróttafélaginu
Nes og hafa stjórnendur félagins
verið einstaklega duglegir við að
virkja sjálfboðaliða til að vinna með
fótluðu krökkunum. -ósk
Yndislegt ár
Hin frábæra sundkona Kristín Rós Hákonardóttir var glöð í bragði eft-
ir útnefhinguna. „Þetta ár er er búið aö vera stórkostlegt og ánægjulegt
að enda árið með þessum titli. Ég fórnaði miklu fyrir Ólympíumótið, tók
mér meðal annars frí frá námi til þess að koma sem best undirbúin und-
ir Ólympíumótið og það var gaman að uppskera fern verðlaun eftir alla
vinnuna sem ég var búin að leggja á mig. Mér gekk vel í mótum fyrir
Ólympíumótið og fann þá að ég átti góða möguleika í Sydney,“ sagði
þessi mikla íþróttamanneskja sem ætlar að taka sér kærkomna hvíld áð-
ur en hún ákveður hvort hún heldur áfram að keppa. -ósk
Mikil upplifun
Sundmaðurinn Bjarki.Birgisson, sem er aðeins 18 ára gamall, var val-
inn íþróttamaður fatlaðra í fyrsta sinn. „Það er frábært að fá þennan tit-
il en hápunktur ársins er samt sem áður Ólympíumótið í Sydney. Það
var stórkostlegt og mikil upplifun að standa á bakkanum og bíða eftir
startinu í fyrsta sundinu. Ég var svo stressaður fyrir sundið að ég svitn-
aði allur og þurfti að fara í róandi nálastunguaðferð. Árið er búið að vera
einstakt og ég ætla að nota tækifærið og þakka þjálfurum mínum fyrir
allt sem þær hafa gert fyrir mig. Þær eiga mjög stóran þátt í góðu ári,“
sagði Bjarki Birgisson, íþróttamaður ársins hjá fótluöum. -ósk