Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Síða 13
13 Ævintýraheimur kvikmyndanna hefur löngum heillað og þeir eru fleiri en tölu verður á komið sem eiga sér drauma um hlutdeild í ævintýrinu. En vinna við kvik- myndir er alls ekki jafn heillandi og það sem birtist okkur á hvíta tjaldinu, það fá íbúar ótilgreinds þorps á írlandi að reyna á eigin skinni í leikriti Marie Jones, Með fulla vasa af grjóti. Það er ekki einungis að goðum lik- ar stjömumar blikni viö persónuleg kynni heldur verður þessi dásamlegi blekkingar- heimur hjóm eitt í samanburði við dramatík raunveruleikans. Það þýðir samt ekki að þeir Charlie og Jake, sem eru aðalpersónur verksins, gerist fráhverfir kvikmyndum því þegar leikritinu lýkur em þeir komnir með hugmynd að kvikmyndahandriti sem bygg- ist á atburðum sem þeir upplifa á meðan á tökum stendur. Harla ólíklegt er að sú hug- mynd verði að veruleika og kemur út á eitt því það sem skiptir máli er að þessi sameig- inlega lífsreynsla hefur þroskað þá félaga og gefið þeim skarpari skilning á lifmu. Sagan sem okkur er sögð í leikritinu er hugljúf og sorgleg og stundum má litlu muna að væmnin nái yfirhöndinni. Sem betur fer tekst höfundinum að halda sig réttu megin við strikið og er fyrst og fremst gráglettnum húmomum fyrir að þakka. En það sem ger- ir verkið athyglisvert er að það er skrifað fyrir tvo leikara sem hvor um sig fer með sjö hlutverk. Fyrir utan að leika þá Jake og Charlie þurfa leikaramir að túlka kven- menn, gamalmenni og börn, svo fátt eitt sé nefnt. Eftir að hafa horft á Hilmi Snæ Guðnason og Stefán Karl Stefánsson túlka þetta fjöl- Leíklist breytta persónugallerí af fádæma snilld er erfltt að sjá aðra leikara fyrir sér í hlutverk- unum. Hilmir Snær er löngu búinn að sanna að hann er einn af okkar fjölhæfustu leikur- um og þó Stefán Karl sé tiltölulega nýútskrif- aður hefur hann þegar sýnt að hann er með efnilegri nýliðum i leikarastétt. Hæfileikar hans njóta sín hvað best í gamanleik og frammistaða hans í Með fulla vasa af grjóti olli svo sannarlega ekki vonbrigðum. Það þyrfti lengra mál en hér kemst fyrir til að gera grein fyrir blæbrigðaríkri túlkun þeirra félaga á öllum þessum karakterum og Djass ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001 DV Menning Gamansöm sorgarsaga Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir Gleðilegt ár og öld Menningarsíða DV óskar lesendum sínum gleðilegs og gæfuríks árs og vonar umsjónar- maður innilega að 21. öldin verði öll stilltari og menningarlegri en sú síðasta. Við hlutum vissulega margar menningarlegar nýjungar á öldinni sem leið sem hafa gert meðal annars alla bókagerð auðveldari, og við reynum að gleyma því að alltof margar voru þær aukaaf- urð við þróun vopna og annarra tækja til hernaðar. Stjómmál, hemaður og hamfar- ir einkenna líka helstu tímaviðmiðan- ir 20. aldar, stríðin - fyrri og seinni heimsstyrjöld, Kóreustríðið, Ví- etnamstríðið - full- veldi, eldgos, kreppa, lýðveldisstofnun, ný- sköpunarstjórn, vinstri stjórn, við- reisn. Myndi ásýnd liðinnar aldar ekki mild- ast ef við tækjum upp nýjar tímaviðmiðanir og reyndum að festa þær í sessi? 20. öldin skiptist nokkurn veginn í þrennt eftir því hvaða fjölmiðlar voru sterkastir. Fyrsta þriðjunginn mætti þá kenna við dag- blöðin, annan þriðjunginn við útvarpið og þann síðsta við sjónvarpið. Enn hægara væri að grípa til bókmenntanna. í stað þess til dæmis að tala um fyrristríðsárin gætum við talað um ár Borgarættcirinnar sem einmitt kom út á íslensku á árunum 1915-18. Og í stað þess að kenna árið 1918 við Kötlugos eða spænsku veikina væri það árið sem Söngvar forumannsins komu út! Drýgsta viðmiðunin lengi vel eru bækur Halldórs Laxness. Við gætum til dæmis talað um „áratug stóru bókanna" (Sölku Völku, Sjálfstæðs fólks, Heimsljóss) í stað þess að tala um kreppuárin. Og í stað þess að kenna miðbik fimmta áratugarins við stríðslok eða lýðveldisstofnun má miða við útgáfu íslands- klukkunnar (1943-46). Eftirstríðsárin sem líka eru kennd við kalt stríð væri miklu fallegra að kenna við hinar miklu menningarstofnanir sem þá voru sett- ar á fót og hafa síðan verið kjölfestur í ís- lensku menningarlífi eins og Þjóðleikhúsið og Sinfóníuhljómsveit íslands. Ekki síður mætti kenna það tímabil við atómskáldskap. Sjöunda áratuginn mætti þá kenna við „þrenninguna", Thor, Guðberg og Svövu! „Var það ekki á þrenningarárunum sem Gylfi Þ. var menntamálaráðherra?" gæti þá maður spurt mann... Ég sakna ekki þess sem var ég trúi ekki á fegurö fortíöarinnar en átraumanna minnist ég rrieö trega nú þegar kólnar og dimmir og bilið vex milli þess sem er og þess sem átti aö verða. DV-MYND PJETUR Statistarnir taka að dansa írskan dans í brúökaupinu í kvlkmyndinni Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson í tveimur af fjórtán hlutverkum sínum. því látið nægja að segja að þeir hafi báðir brillerað í þessari vel heppnuðu uppfærslu. Elín Edda Árnadóttir á heiðurinn af ágætri útfærslu leikmyndar sem er í senn einföld og táknræn. Ian McElhinney leik- stýrir verkinu og leynir sér ekki að hann þekkir það afar vel enda búinn að setja það upp víða. Hann hefur valið þá farsælu leið að gera sem minnst úr öllum ytra búnaði sem verður til þess að leikaramir fá að njóta sín til hins ýtrasta. Hilmir Snær og Stefán Karl bregðast honum ekki; þeir eiga stórleik i þessari sýningu sem á eflaust eftir að vera lengi á fjölum Þjóðleikhússins. Halldóra Friðjónsdóttir Þjóðleikhúsiö sýnir á Smíðaverkstæöinu: Með fulla vasa af grjóti eftir Marie Jones. Þýðlng:_Guöni Kol- beinsson. Lýsing: Ásmundur Karlsson. Útfærsla leik- myndar og búnlnga: Elín Edda Árnadóttir. Aðstoðar- leikstjóri: Björn Gunnlaugsson. Leikstjðri: lan McEI- hinney. Ásgeir, Marsalis, Kristjana og Sunna á degi jazzins Rithöfundaverðlaun Hin árlega viður- kenning var veitt úr Rithöfundasjóði Rík- isútvarpsins á gaml- ársdag og hlutu að þessu sinni heiður- inn Ingibjörg Har- aldsdóttir, ljóðskáld og þýðandi, og Þor- valdur Þorsteinsson, myndlistarmaður og rithöfundur. Á Þor- valdi mátti raunar skilja að viðurkenningin markaði þau tímamót í lífi hans að hann neyddist nú til að líta á sig sem Rithöfund með stóru R-i eftir aö hafa fram að þessu daðrað við ritlistina í skjóli myndlistarinnar. Hann þakkaði foreldrum sínum afar fallega fyrir að hafa hvort á sinn hátt stuðlað að rit- listarþroska hans, móðirin með því að hafa fyrir honum mergjað tungutak - og mikið af því! Og föðurnum fyrir að hafa þagað og hlustað. Ingibjörg fylltist fortíðarþrá á þessum tímamótum og rifjaði upp í sínu þakkará- varpi hlutdeild gömlu Gufunnar í uppeldi sínu. Þetta gefur tilefni til að birta hér eitt af eftir- minnilegustu ljóðum Ingibjargar - um leið og þeim Þorvaldi er óskað innilega til hamingju með heið- urinn. Ljóðið heitir „Nostalgía" og er úr ljóðabókinni Nú eru aðrir tímar (1989): Fimmtudagurinn milli jóla og nýárs verður að telj- ast einn mesti jazzdagur ársins 2000. Um kvöldið lét Ríkisútvarpið loks verða af því að leika upptöku frá hinum frægu tónleikum Lincoln Center Jazz Orchestra sem tileinkaðir voru Louis Armstrong á af- mælisdegi hans þann 4. júlí. Sama kvöld bauð Múlinn upp á tónleika gítarleikarans Ásgeirs Ásgeirssonar á efri hæð Kaffi Reykjavíkur. Þeir sem gátu slitið sig frá Lönu Kolbrúnu og Wynton Marsalis í útvarpinu fengu því tón- leika með einum efnilegusta gítarleikara okk- ar, ef þeir komust þá upp á efri hæðina. Á neðri hæðinni voru nefnilega þær stöllur Kristjana Stefánsdóttir og Sunna Gunnlaugs- dóttir með tónleika! Sem sagt: óvenjulega mikið úrval jazztónlistar í boði - og allt svo að segja á sama tíma. Tónleikar Kristjönu og Sunnu hófust með leik tríós Sunnu Gunnlaugsdóttur. Sunna lék eigið lag, „Good StuiT‘, sem gaf góðar vonir en var samt lítið annað en upphitun fyrir tríóið þegar upp var staðið. Kristjana Stefáns- dóttir bættist í hópinn í næsta lagi, „All of you“. Þetta er lag sem margir nota sem mæli- kvarða á jazzpíanista eftir að Garland fór á kostum í hljóðritun með Miles Davis. En nú er öldin önnur. Sunna kláraði sig með prýði, þó ekki hefði hún þá „dínamík" sem lagið býður upp á. Hollenski bassaleikarinn Joris Teepe sýndi góð tilþrif. ! „Sometimes I’m Happy" náði tríóið og söngvarinn góðum byr sem entist þeim út tónleikana. Kristjana „skattaði fjóra" á móti trommuleikaranum Scott McLemore og bassaleikarinn Teepe fór á kostum. McLemore er nettur trommari sem hefur all- góða tækni en virtist ekki vera nægilega vel heima í mörgum af þeim lögum sem boðið var upp á. Jafnvel jólasöngurinn „Jingle Bells“, þar sem McLemore var einleikari, var nokkuð losaraleg- ur. Það var aug- ljóst að ekki hafði gefist mik- iU tími til samæf- inga fyrir þessa tón- leika. í heild- ina séð var lagaval Kristjönu kunnuglegt. Being in Love“, DV-MYND INGÓ Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur og Kristjana Stefánsdóttir Sunna snýr við okkur baki á myndinni en á milli stúlknanna eru trommarinn Scott McLemore og hinn næmi bassaleikari, Teepe. Á litiu myndinni sjáum viö framan í Sunnu. „Love for Sale“, „Almost Like Love“ og „Once I Had a Secret gamlir kunningjar afgreiddir á hefð- bundinn hátt. Þeim tókst þó einstaklega vel upp í „Daydream" eftir Bmy Strayhorn. Kristjana sannaði hér í eitt skipti fyrir öll að hún er efnilegasta jazzsöngkona okkar. Hún hefur sýnt mikla framför undanfarin ár, sér- staklega i „skattinu". Tónleikamir voru í heildina séð prýðilegir. Þeir skiptust ósjálfrátt í tvennt, annars vegar jazzlög og hins vegar sönglög eftir Kaldalóns og Sunnu Gunnlaugsdóttur. Frumflutningur fjórmenninganna á sönglögum Sunnu við þrjú ljóð Tómasar Guðmundssonar, „Lestin mikla", „Frá liðnu vori“ og „Fagra veröld", sýndu góða tilfmningu Sunnu fyrir skáldinu góða og Kristjana söng lögin mjög fallega. Enn kom bassaleikarinn Teepe á óvart. Ákaf- lega næmur og fallegur bassaleikur bar af. Lag Kaldalóns við jólakvæði sr. Einars í Eydölum, „Nóttin var sú ágæt ein“, var án nokkurs vafa besti flutningur tónleikanna. Kristjana og Sunna náðu ákaflega vel saman, falleg útsetning og hljómasetning naut sín vel og stjama kvöldsins, Joris Teepe, lék fallegan emleik. Að lokum örfá orð um umgjörð tónleik- anna. Það var mjög til vansa hve tónlistar- mennimir sýndu áheyrendum sínum lítið til- lit. Tónleikamir hófust rúmlega tuttugu mín- útum of seint, hljómburðartæki voru illa stillt fyrir söngvarann, hluti prógrammsins var illa æfður, kynningar voru óundirbúnar og fóru því oft á tíðum fyrir ofan garð og neð- an. Ólafur Stephensen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.