Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Page 3
g f n i Flestir spyrja sig að því einhvern tímann á lífsleiðinni hver þessí Guðrún Bjarnadóttir sé. Yfirleitt er Guðrún þessi dóttir Bjarna á hæðinni fyrir ofan eða læknaritari á Borgarspítalanum. Það sem færri vita er að stelpan með sérstaka andlitið sem þeir eru alltaf að sjá í sjónvarpinu og blöðunum og jafnvel á hvíta tjaldinu, sú stelpa er líka Guðrún, dóttir Bjarna. Guðrún hefur unnið sér það til frægðar að leika í litlu stórmyndinni 101 Reykjavík, lék þar stelpugreyið sem varð vottur að rofnum samfórum í eigin partii en lét svo huggast af strokum og ljúfmælgi aðalpersónunn- ar Hlyns. Nú síðast lék hún í einum af flmm þáttum Villiljóss, Mömmu- klúbbnum. Þess á milli spókaði hún sig fyrir framan myndavélar auglýs- ingagerðarmanna. Guðrún fjarlægir augasteinana úr skólabókunum og segir aðeins frá sjáifri sér. Hún er að læra undir síðbúin jólaprófin í Kvennaskólanum og viðurkennir að vinkonuhópurinn hafi verið fullötull á djamminu meðan á verkfalli fram- haldsskólakennara stóð. Fékk tækifærið upp í hendurnar Hvernig kom þaö til að þú lékst í 101 Reykjavík? „Ég var að vinna i sjoppu á Grund- arstígnum og þangað kom Baltasar oft og sumir leikaranna með honum. Svo fékk ég allt í einu hringingu frá umboðsskrifstofunni Casting og var beðin um að koma í prufu sem ég fór i og fékk hlutverk," segir hún með mjög svo afslappaðri rödd sinni. Og hvernig var aö leika á móti öll- um þessum frœgu leikurum, fékkstu ekki minnimáttarkennd? „Jú, reyndar, en ég reyndi bara að hlusta á það sem leikararnir sögðu mér um það á hverju leikurinn bygg- ist. Þetta var rosalega undarlegt fyrst. Ég hef haft áhuga á leiklist síðan ég var lítil og skrýtið að fá svona tæki- færi upp í hendurnar, ef svo mætti segja,“ viðurkennir Guðrún, en sín fyrstu skref á sviði steig hún í upp- færslu nemenda Kvennó. litiö þitt, fmnuröu ekkert fyrir frœgö- inni? „Nei, ég tek lítið eftir henni. Ég fæ kannski einhverjar spumingar um myndirnar og fólk horfir meira á mig, en þetta er jú lítið land.“ Guðrún útskrifast í vor en er ekki alveg viss um hvað tekur við að lok- inni útskriftarferð til Krítar. „Mig langar til að reyna að komast í leik- listamám hér heima og ef ég kemst ekki inn þá langar mig að ferðast, kannnski vinna fyrir Rauða kross- inn. Guðfún Bjarnadóttir hitti Battasar úti i sjoppu og bauðst i kjölfariö hlutverk i 101 Reykjavík. En Villiljósshlutverkiö, fékkstu þaö vegna frammistööunnar í 101 Reykjavík? „Nja, það var aftur hringt í mig og ég fengin í prufu. Mér gekk mjög illa í henni því ég var svo taugatrekkt. Þess vegna var ég mjög hissa á að komast i aðra prufu og fá hlutverkið," svarar hún samviskusamlega. Guðrún segir auðveldara að gleyma myndavél- inni sem rúllar við upptökur á myndum en fólkinu sem fylgist með í prufum. Minni áhugi á auglýsing- um Hvernig er svo aö sjá sjálfa sig á hvíta tjaldinu? „Rosalega skemmtilegt og skrýtið. Þegar ég sá Villiljós hló ég miklu meira en aðrir í salnum af því að ég tengdi sumt við eitthvað sem gerðist í tökunum." Ertu oröin rík á þessu? „Reyndar ekki. Ég fæ nú miklu meira fyrir að leika í auglýsingunum, en áhuginn er ekki jafnmikill á þvi.“ En nú hljóta margir aö þekkja and- Gaman að sjá sig ' íta tialdinu Hinir árlegu framadagar há- skólans verða haldnir í næstu viku í Háskóla- bíói. Þar geta nemendur á há- skólastigi mætt og kynnt sér starfsemi ýmissa íslenskra fyrir- tækja með von um framtíðarstarf en oft verður handagangur í öskjunni þegar góð störf eru í boði. i i ........ ..........I „Þetta er mjög sniðugt því þarna geta nemendur fengið upplýsingar um öll helstu fyrirtæki landsins á einum stað. Það eru 38 fyrirtæki uma sem taka þátt i ár en þau hafa aidrei verið fleiri. Á síðasta ári fluttu framadagarnir úr Þjóðarbók- hlöðunni og yfir í Háskólabíó þannig að það er mjög mikil eftir- spum eftir að fá að vera með,“ seg- ir Amar Bjömsson, markaðsstjóri framadaga. Stór og þekkt fyrirtæki Framadagar er árleg uppákoma hjá islenskum nemendum á há- skólastigi. Það var árið 1995 sem þeir voru fyrst settir af stað að er- lendri fyrirmynd. Þetta eru at- vinnulífsdagar háskóla á íslandi þar sem stúdentum gefst kostur á að kynnast íslenskum fyrirtækjum og starfsemi þeirra. „Þetta eru allt stór og þekkt fyrirtæki sem eru með. Þama verða meðal annars helstu fjármálafyrirtækin, Lands- bankinn, Búnaðarbankinn, EJS, Tæknival, íslensk erfðagreining, DELTA og svo má lengi telja.“ Hefur oft komið fyrir aö fólk kom- ist í draumastarfiö eftir framadag- ana? „Já, það er erfitt að segja hve oft það kemur fyrir en ég veit að það hefur gerst að fólk hefur komist í mjög góð framtíðar- störf í gegnum þetta.“ Slegist um nemendur Framadagamir byrja 30. janú- ar með fyrirlestri og næstu tvo daga verða fleiri fyrirlestrar bæði í Háskólabíói og Odda. Svo koma fyrirtækin 2. febrúar og setja upp kynningarbása og verður hægt að koma í leit góðri vinnu milli klukk- an 10 og 16.30. Veröur slegist um góöa nemendur? „Það er aldrei að vita,“ segir Arnar. „Fyrirtækin verða með umsóknir á staðnum sem fólk getur fyllt út. Svo taka þeir þá í við- tal sem þeim líst vel á. Fyrirtækin gera nátt- úrlega sitt besta til að höföa til þeirra nem- enda sem þeir vilja krækja í.“ Egill Andri Bollason: Hinn íslenski James Hetfield? Barði og Henrik: Tilgangslaus sjónvarpsþáttur Dr. Gunni: Allir vilja verða öryrkjar Kvikmyndagerðarmaðurinn Toffi: Islensk nýbylgja í heimildarmyndum Jennifer Lopez: í vandræð- um með rassinn Hljómsveitin Metallica: Hvað gerist eftir Jason? íslenskir trommuleikarar: Þöglu týp- urnar aftast á sviðinu Islenskur HlV-sjúklingur: Skuggi yfir fjölskyldunni I# £ • v 1 ? 1 0 Cast Awav frumsvnd Forqarður heivitis snvr aftur Nornin er enn i skéainum Gafst uop á Lisiaháskóianum f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndina tók Hari af Toffa i?y"foiiiM4itií* í i i i 26. janúar 200;1 f Ókus fÉíMifir MÉM i í U -i-#

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.