Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Síða 10
Það er nog að gerast hjá Jennifer Lopez þessa dagana. Nýjasta myndin hennar, Wedding Planner,
verður frumsýnd vestanhafs í lok mánaðarins og önnur sólóplatan hennar J.Lo kom út í vikunni. Trausti
#Júlíusson hlustaði á plötuna og kíkti á feril Jennifer sem einmitt tók sæti Britney Spears sem kynþokka
fyllsta kona heims á árlegum lista breska blaðsins FHM nýlega.
ára, hún var kosin konan með
flottasta rassinn fyrir nokkrum
árum og alla tíð síðan hefur boss-
inn fengið óskipta fjölmiölaathygli
og umfjöllun, Jennifer til nokkurr-
ar mæðu. Nú síðast viöurkenndi
hún samt að hún ætti í sífellt meiri
erfiðleikum með að hemja útþenslu
afturendans. Hún er líka sífellt í
fréttunum sem kærasta Bad Boy
rappstjörnunnar Puff Daddy, ekki
síst þegar þau skötuhjúin voru
handtekin eftir skotbardaga á næt-
urklúbbi á Manhattan í desember
‘99. Jennifer var sleppt án ákæru
14 timum eftir handtökuna en rétt-
arhöldin yfir Puff Daddy standa
einmitt yfir þessa dagana í New
York. Hann er ákærður fyrir að
bera ólögleg vopn og fyrir mútur.
Þær sögur hafa reyndar gengið
undanfarið að Jennifer væri um
það bil að sparka Puffy, en sé það
rétt þá er það a.m.k. ekki neitt sem
parið vill að spyijist út, því Jenni-
fer gaf Puffy nýlega 40 þúsund doll-
ara demantshring til að staðfesta
sambandið og veita honum
móralskan stuðning í réttarhöldun-
um. Þau hafa líka tilkynnt að gift-
ing standi fyrir dyrum og að hætti
Madonnu á hún að fara fram í
Bretlandi.
10 búningsherbergi, takk
Það vakti mikla athygli í Bret-
landi fyrir skemmstu þegar Jenni-
fer mætti í Top of the Pops til að
mæma tvö lög. Top of the Pops er
yfirleitt tekinn upp með lifandi
hljóöfæraleik og söng og hefur
nokkra sérstöðu að því leyti, en
þegar stærstu nöfnin eiga í hlut er
stundum svindlað og mæm leyft.
Það er ekki nóg með að Jennifer
hafl fengið leyfi til að mæma, held-
ur setti hún nokkur önnur skil-
yrði. Hún heimtaði tíu búningsher-
bergi fyrir sig og sextíu manna
fylgdarliö sem m.a. innihélt þrjá
meistarakokka sem hún tók með
sér frá Bandaríkjunum. Herbergin
áttu öll aö vera skreytt með hvítum
blúndum og hvítu brönugrasi og
Jennifer Lopez vakti athygli í Bretlandi fyrir skemmstu fyrir aö setja fram
mestu prímadonnukröfur sem sést hafa í 37 ára sögu Top of the Pops-þáttar-
ins. Hún segist stefna á aö giftast Puff Daddy á næstunni þrátt fyrir orðróm
um aö hún ætli aö sparka honum.
Lagið Love Don’t Cost a Thing
meö Jennifer Lopez hefur fengið
** mikla spilun í útvarpi og á popp-
sjónvarpsstöðvunum að undan-
fomu. Lagið er tekið af nýju plöt-
unni hennar sem var að koma í
verslanir. Jennifer Lopez er fædd í
Bronx, New York 24. júlí 1970. Hún
er af suður-amerískum uppruna,
foreldrar hennar eru Púertóríkan-
ar. Hún hóf ferilinn með þvi að
leika í söngleikjum, sem sameinaöi
tvö helstu áhugamál hennar, leik
og söng. Hún vakti fyrst athygli
sem leikkona þegar hún lék 16 ára
i kvikmyndinni My Little Girl. Síð-
an tók við tímabil þar sem hún
vann mest í sjónvarpi og kom líka
fram í myndböndum, þ. á m. með
Janet Jackson og framtíö-
arunnustanum Puff Daffy.
KvikmyndaferUlinn fór af stað
fyrir alvöru þegar hún lék í mynd-
inni Money Train með Woody
Harrelson og Wesley Snipes árið
1995. í kjölfarið komu myndir eins
og Jack (með Robin Williams) og
Anaconda (með Ice Cube og Eric
Stoltz). Hún er samt sennilega
þekktust fyrir hlutverk sitt sem
Selena í samnefndri mynd frá 1997
þar sem hún lék söngkonuna sem
var ein helsta stjarna suður-amer-
ískrar tónlistar vestra, en féll fyrir
hendi morðingja. Hún fékk líka
góða dóma fyrir hlutverkið í Out of
Sight og í fyrra lék hún svo í mynd-
inni The Cell.
Söngferillinn og Puff
Daday
Árið 1999 ákvað Jennifer að ein-
beita sér að söngferlinum. Fyrsta
smáskífan hennar, If You Had My
Love, sló í gegn bæði i Bandaríkj-
unum og Evrópu. Fyrsta stóra plat-
an hennar, On The 6, (sem heitir
eftir línu 6 í neðanjarðarlestarkerfi
New York-borgar, en þá línu tók
hún niöur á Manhattan þegar hún
var lltil stelpa í Bronx) og smáskíf-
an Waiting for Tonight sem fylgdi í
kjölfarið seldust líka mjög vel og
sýndu að hún var liðtæk söngkona
ekki síður en leikkona.
Síðan hefur Jennifer verið mikið
í sviðsljósinu. Hana prýðir senni-
lega frægasti afturhluti síðustu
hönnuðimir 11 sem hún tók með
sér innréttuðu þau með hvítum
húsgögnum og hvítu silki. Allt
þurfti að vera nákvæmlega eins og
hún vildi, niður í smæstu smáat-
riði. Mörgum þótti þessar kröfur,
sem eru þær ýktustu í 37 ára sögu
Top of the Pops, vera fullmiklar
fyrir upptöku á sjö mínútna efni,
en þetta virkar greinilega því að
smáskífan Love Don’t Cost a Thing
fór beint í fyrsta sæti breska list-
ans. Talsmönnum TOTP þótti rétt
að taka fram að Jennifer sjálf hefði
borgað herlegheitin en ekki BBC.
Salsapopp og r&b
Nýja platan er sambland af r&b
og latin-poppi, hröðum lögum og
ballöðum. Hún er unnin af sömu
upptökustjórunum og unnu á On
The 6. Cory Rooney á heiðurinn af
flestum lögunum en auk hans eru
menn eins og Ric Wake og r&b
meistarinn Rodney „Darkchild“
Jerkins með puttana á tökkunum.
Svo á Puffy sjálfur líka heiðurinn
af tveimur lögum. Jennifer verður
víst seint kennd við nýjungar eða
frumlegheit i tónlistinni, en fyrir
þá sem vilja poppið sitt létt og leik-
andi þá er J.Lo full af vel gerðum
smellum sem sjálfsagt eiga eftir að
glymja í eyrum útvarpshlustenda
um víða veröld á næstu mánuðum.
Hvort sem ykkur líkar betur eða
verr.
plötudómur
s /
Ymsir flytjendur - Ovæntir bólfélagar /Motorlab 1 ★★★
s /
Ymsir flytjendur - Ovæntir bólfélagar /Motorlab 2 ★★★*
Hvað gerist ef maður blandar saman kakói og sinnepi?
Óvæntir bólfélagar er nafniö á uppákomum sem
haldnar hafa veriö á vegum Tilraunaeldhússins
síöustu tvö ár. Á síðasta ári voru þessi kvöld
styrkt af Reykjavík menningarborg 2000 og hald-
in einu sinni í mánuði.
Hugmyndin á bak viö kvöldin er, eins og kunnugt
er, aö leiða saman ólíka listamenn og fá þá til
þess aö starfa saman eina kvöldstund. Þannig
leiddu á síðasta ári saman krafta sína t.d. Magn-
ús Pálsson myndlistarmaöur og hljómsveitin
Stilluppsteypa, orgelkvartettinn Apparat og með-
limir úr Radíóamatörafélaginu, Megas og Gjörn-
ingaklúbburinn, Múm og Sjón, Dr. Gunni og Guö-
bergur Bergsson, svo nokkur dæmi séu tekin,
auk þess sem tónlistarmönnum úr ólíkum áttum
var stefnt saman til aö vinna ákveðin verkefni.
^ Sem dæmi um þaö má nefna spunaverk Hispurs-
” lausa sextettsins og Helvítis gítarsynfóníuna.
Árangurinn af þessu samstarfi var misáhuga-
verður. Sumt gaf af sér skemmtilega hluti sem
án þessa inngrips hefðu sennilegast aldrei oröiö
til en annað virkaði ekki eins vel.
Útkomuna af nokkrum af þessum kvöldum má
heyra á tveimur nýútkomnum geisladiskum,
Motorlab 1 (þessi rauði) og Motorlab 2 (þessi
græni), sem hvor um sig inniheldur efni frá
nokkrum stefnumóta liöins árs.
Fyrri diskurinn byrjar á hálftíma broti af stefnu-
móti Magnúsar Pálssonar og Stilluppsteypu sem
í heild sinni varöi á þriöja tíma. Ég get ekki dæmt
um upplifunina í Iðnó þegar verkiö var fiutt (það
var umdeilt!) en á disknum reynir þetta dálítið á
þolinmæðina. Hljóöinnrásir Stilluppsteypu eru að
sönnu mjóg tilkomumiklar og sándin flott en les-
inn texti Magnúsar heyrist illa og heildin gerir sig
ekki alveg. Næsta stykki, sem er samstarf
kammersveitarinnar Caput, Hilmars Jenssonar,
Úlfars Haraldssonar og Jóhanns Jóhannssonar,
er líka þokkalegt en nær ekki alveg aö halda at-
hyglinni.
Seinni hluti disksins er að mínu mati mun betri.
Ruslahauga-dýrð Hispurslausa sextettsins er
gott dæmi um flottan spuna. Þar er leikiö á hljóð-
færi, búin til úr iðnaðardóti, og útkoman er eftir
því: mögnuð tónlist sem minnir á köflum helst á
vélsmiðju á háannatíma. Sömuleiðis er gemsa-
synfónían Telefónía, sem á plötunni er stjórnaö
af Curver, flott. Telefónían var fastur liður á Til-
raunaeldhúskvöldunum. Hún var þannig fram-
kvæmd að ákveðið símanúmer var auglýst í saln-
um, gemsaglaðir gestir hringdu í það og skildu
eftir skilaboð. Skilaboðin voru svo tekin inn í
tölvu og spiluð í hátölurum í salnum og þar voru
svo hljóðnemar sem tóku upp úr hátölurunum
þannig að úr varð stöðugur endurhljómur.
Telefónían tókst misvel en hér skilar samstarf
þeirra Andrews McKenzie (sem bjó til forritið),
Jóa í Lhooq og Bibba Curver flottri útkomu.
Seinni diskurinn hefst á söngleiknum Kisu eftir
Sjón og Múm, sem var fluttur af Múm, Völu Þórs-
dóttur leikkonu og Ásu Júníusdóttur söngkonu
ásamt strengjasveit. Eins og við var að búast af
Múmurum er tónlistin flott og hún skilar sér enn
betur á diskinum en í Kaffileikhúsinu á sínum
tíma.
Orgelkvartettinn Apparat er svo næstur ásamt
TF3IRA sem eru meðlimir í Radióamatörafélag-
inu, undir stjórn Ingarafns Steinarssonar mynd-
listarmanns. Þetta eru þrjú ágætis verk, rólyndis-
legt orgelpopp með skemmtilegum hljóöeffekt-
um.
Big Band Brútal klárar svo Motorlab 2 með þrem-
ur noise-verkum sem voru framin undir splatter-
teiknimyndum Hugleiks Dagssonar. Ofbeldi
teiknimyndanna er sett í hljóðbúning og kemur
vel út, sérstaklega í fyrsta stykkinu,
Á heildina litið eru þessir diskar góð og vel þeg-
in heimild um Óvænta bólfélaga ársins 2000. Út-
koman er kannski ekki alltaf eins óvænt og mað-
ur hefði vonast eftir en samt má finna mjög flotta
hluti inn á milli á báðum þessum plötum.
Trausti Júlíusson
„Á heildina litíð eru þess-
ir diskar góð og vel þegin
heimild um Óvænta bólfé-
laga ársins 2000. Útkoman
er kannski ekki alltaf eins
óvænt og maður hefði von-
ast eftir en samt má finna
mjög flotta hluti inn á
milli á báðum þessum
plötum.“
10
f Ó k U S 26. janúar 2001