Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Qupperneq 10
Það er nog að gerast hjá Jennifer Lopez þessa dagana. Nýjasta myndin hennar, Wedding Planner, verður frumsýnd vestanhafs í lok mánaðarins og önnur sólóplatan hennar J.Lo kom út í vikunni. Trausti #Júlíusson hlustaði á plötuna og kíkti á feril Jennifer sem einmitt tók sæti Britney Spears sem kynþokka fyllsta kona heims á árlegum lista breska blaðsins FHM nýlega. ára, hún var kosin konan með flottasta rassinn fyrir nokkrum árum og alla tíð síðan hefur boss- inn fengið óskipta fjölmiölaathygli og umfjöllun, Jennifer til nokkurr- ar mæðu. Nú síðast viöurkenndi hún samt að hún ætti í sífellt meiri erfiðleikum með að hemja útþenslu afturendans. Hún er líka sífellt í fréttunum sem kærasta Bad Boy rappstjörnunnar Puff Daddy, ekki síst þegar þau skötuhjúin voru handtekin eftir skotbardaga á næt- urklúbbi á Manhattan í desember ‘99. Jennifer var sleppt án ákæru 14 timum eftir handtökuna en rétt- arhöldin yfir Puff Daddy standa einmitt yfir þessa dagana í New York. Hann er ákærður fyrir að bera ólögleg vopn og fyrir mútur. Þær sögur hafa reyndar gengið undanfarið að Jennifer væri um það bil að sparka Puffy, en sé það rétt þá er það a.m.k. ekki neitt sem parið vill að spyijist út, því Jenni- fer gaf Puffy nýlega 40 þúsund doll- ara demantshring til að staðfesta sambandið og veita honum móralskan stuðning í réttarhöldun- um. Þau hafa líka tilkynnt að gift- ing standi fyrir dyrum og að hætti Madonnu á hún að fara fram í Bretlandi. 10 búningsherbergi, takk Það vakti mikla athygli í Bret- landi fyrir skemmstu þegar Jenni- fer mætti í Top of the Pops til að mæma tvö lög. Top of the Pops er yfirleitt tekinn upp með lifandi hljóöfæraleik og söng og hefur nokkra sérstöðu að því leyti, en þegar stærstu nöfnin eiga í hlut er stundum svindlað og mæm leyft. Það er ekki nóg með að Jennifer hafl fengið leyfi til að mæma, held- ur setti hún nokkur önnur skil- yrði. Hún heimtaði tíu búningsher- bergi fyrir sig og sextíu manna fylgdarliö sem m.a. innihélt þrjá meistarakokka sem hún tók með sér frá Bandaríkjunum. Herbergin áttu öll aö vera skreytt með hvítum blúndum og hvítu brönugrasi og Jennifer Lopez vakti athygli í Bretlandi fyrir skemmstu fyrir aö setja fram mestu prímadonnukröfur sem sést hafa í 37 ára sögu Top of the Pops-þáttar- ins. Hún segist stefna á aö giftast Puff Daddy á næstunni þrátt fyrir orðróm um aö hún ætli aö sparka honum. Lagið Love Don’t Cost a Thing meö Jennifer Lopez hefur fengið ** mikla spilun í útvarpi og á popp- sjónvarpsstöðvunum að undan- fomu. Lagið er tekið af nýju plöt- unni hennar sem var að koma í verslanir. Jennifer Lopez er fædd í Bronx, New York 24. júlí 1970. Hún er af suður-amerískum uppruna, foreldrar hennar eru Púertóríkan- ar. Hún hóf ferilinn með þvi að leika í söngleikjum, sem sameinaöi tvö helstu áhugamál hennar, leik og söng. Hún vakti fyrst athygli sem leikkona þegar hún lék 16 ára i kvikmyndinni My Little Girl. Síð- an tók við tímabil þar sem hún vann mest í sjónvarpi og kom líka fram í myndböndum, þ. á m. með Janet Jackson og framtíö- arunnustanum Puff Daffy. KvikmyndaferUlinn fór af stað fyrir alvöru þegar hún lék í mynd- inni Money Train með Woody Harrelson og Wesley Snipes árið 1995. í kjölfarið komu myndir eins og Jack (með Robin Williams) og Anaconda (með Ice Cube og Eric Stoltz). Hún er samt sennilega þekktust fyrir hlutverk sitt sem Selena í samnefndri mynd frá 1997 þar sem hún lék söngkonuna sem var ein helsta stjarna suður-amer- ískrar tónlistar vestra, en féll fyrir hendi morðingja. Hún fékk líka góða dóma fyrir hlutverkið í Out of Sight og í fyrra lék hún svo í mynd- inni The Cell. Söngferillinn og Puff Daday Árið 1999 ákvað Jennifer að ein- beita sér að söngferlinum. Fyrsta smáskífan hennar, If You Had My Love, sló í gegn bæði i Bandaríkj- unum og Evrópu. Fyrsta stóra plat- an hennar, On The 6, (sem heitir eftir línu 6 í neðanjarðarlestarkerfi New York-borgar, en þá línu tók hún niöur á Manhattan þegar hún var lltil stelpa í Bronx) og smáskíf- an Waiting for Tonight sem fylgdi í kjölfarið seldust líka mjög vel og sýndu að hún var liðtæk söngkona ekki síður en leikkona. Síðan hefur Jennifer verið mikið í sviðsljósinu. Hana prýðir senni- lega frægasti afturhluti síðustu hönnuðimir 11 sem hún tók með sér innréttuðu þau með hvítum húsgögnum og hvítu silki. Allt þurfti að vera nákvæmlega eins og hún vildi, niður í smæstu smáat- riði. Mörgum þótti þessar kröfur, sem eru þær ýktustu í 37 ára sögu Top of the Pops, vera fullmiklar fyrir upptöku á sjö mínútna efni, en þetta virkar greinilega því að smáskífan Love Don’t Cost a Thing fór beint í fyrsta sæti breska list- ans. Talsmönnum TOTP þótti rétt að taka fram að Jennifer sjálf hefði borgað herlegheitin en ekki BBC. Salsapopp og r&b Nýja platan er sambland af r&b og latin-poppi, hröðum lögum og ballöðum. Hún er unnin af sömu upptökustjórunum og unnu á On The 6. Cory Rooney á heiðurinn af flestum lögunum en auk hans eru menn eins og Ric Wake og r&b meistarinn Rodney „Darkchild“ Jerkins með puttana á tökkunum. Svo á Puffy sjálfur líka heiðurinn af tveimur lögum. Jennifer verður víst seint kennd við nýjungar eða frumlegheit i tónlistinni, en fyrir þá sem vilja poppið sitt létt og leik- andi þá er J.Lo full af vel gerðum smellum sem sjálfsagt eiga eftir að glymja í eyrum útvarpshlustenda um víða veröld á næstu mánuðum. Hvort sem ykkur líkar betur eða verr. plötudómur s / Ymsir flytjendur - Ovæntir bólfélagar /Motorlab 1 ★★★ s / Ymsir flytjendur - Ovæntir bólfélagar /Motorlab 2 ★★★* Hvað gerist ef maður blandar saman kakói og sinnepi? Óvæntir bólfélagar er nafniö á uppákomum sem haldnar hafa veriö á vegum Tilraunaeldhússins síöustu tvö ár. Á síðasta ári voru þessi kvöld styrkt af Reykjavík menningarborg 2000 og hald- in einu sinni í mánuði. Hugmyndin á bak viö kvöldin er, eins og kunnugt er, aö leiða saman ólíka listamenn og fá þá til þess aö starfa saman eina kvöldstund. Þannig leiddu á síðasta ári saman krafta sína t.d. Magn- ús Pálsson myndlistarmaöur og hljómsveitin Stilluppsteypa, orgelkvartettinn Apparat og með- limir úr Radíóamatörafélaginu, Megas og Gjörn- ingaklúbburinn, Múm og Sjón, Dr. Gunni og Guö- bergur Bergsson, svo nokkur dæmi séu tekin, auk þess sem tónlistarmönnum úr ólíkum áttum var stefnt saman til aö vinna ákveðin verkefni. ^ Sem dæmi um þaö má nefna spunaverk Hispurs- ” lausa sextettsins og Helvítis gítarsynfóníuna. Árangurinn af þessu samstarfi var misáhuga- verður. Sumt gaf af sér skemmtilega hluti sem án þessa inngrips hefðu sennilegast aldrei oröiö til en annað virkaði ekki eins vel. Útkomuna af nokkrum af þessum kvöldum má heyra á tveimur nýútkomnum geisladiskum, Motorlab 1 (þessi rauði) og Motorlab 2 (þessi græni), sem hvor um sig inniheldur efni frá nokkrum stefnumóta liöins árs. Fyrri diskurinn byrjar á hálftíma broti af stefnu- móti Magnúsar Pálssonar og Stilluppsteypu sem í heild sinni varöi á þriöja tíma. Ég get ekki dæmt um upplifunina í Iðnó þegar verkiö var fiutt (það var umdeilt!) en á disknum reynir þetta dálítið á þolinmæðina. Hljóöinnrásir Stilluppsteypu eru að sönnu mjóg tilkomumiklar og sándin flott en les- inn texti Magnúsar heyrist illa og heildin gerir sig ekki alveg. Næsta stykki, sem er samstarf kammersveitarinnar Caput, Hilmars Jenssonar, Úlfars Haraldssonar og Jóhanns Jóhannssonar, er líka þokkalegt en nær ekki alveg aö halda at- hyglinni. Seinni hluti disksins er að mínu mati mun betri. Ruslahauga-dýrð Hispurslausa sextettsins er gott dæmi um flottan spuna. Þar er leikiö á hljóð- færi, búin til úr iðnaðardóti, og útkoman er eftir því: mögnuð tónlist sem minnir á köflum helst á vélsmiðju á háannatíma. Sömuleiðis er gemsa- synfónían Telefónía, sem á plötunni er stjórnaö af Curver, flott. Telefónían var fastur liður á Til- raunaeldhúskvöldunum. Hún var þannig fram- kvæmd að ákveðið símanúmer var auglýst í saln- um, gemsaglaðir gestir hringdu í það og skildu eftir skilaboð. Skilaboðin voru svo tekin inn í tölvu og spiluð í hátölurum í salnum og þar voru svo hljóðnemar sem tóku upp úr hátölurunum þannig að úr varð stöðugur endurhljómur. Telefónían tókst misvel en hér skilar samstarf þeirra Andrews McKenzie (sem bjó til forritið), Jóa í Lhooq og Bibba Curver flottri útkomu. Seinni diskurinn hefst á söngleiknum Kisu eftir Sjón og Múm, sem var fluttur af Múm, Völu Þórs- dóttur leikkonu og Ásu Júníusdóttur söngkonu ásamt strengjasveit. Eins og við var að búast af Múmurum er tónlistin flott og hún skilar sér enn betur á diskinum en í Kaffileikhúsinu á sínum tíma. Orgelkvartettinn Apparat er svo næstur ásamt TF3IRA sem eru meðlimir í Radióamatörafélag- inu, undir stjórn Ingarafns Steinarssonar mynd- listarmanns. Þetta eru þrjú ágætis verk, rólyndis- legt orgelpopp með skemmtilegum hljóöeffekt- um. Big Band Brútal klárar svo Motorlab 2 með þrem- ur noise-verkum sem voru framin undir splatter- teiknimyndum Hugleiks Dagssonar. Ofbeldi teiknimyndanna er sett í hljóðbúning og kemur vel út, sérstaklega í fyrsta stykkinu, Á heildina litið eru þessir diskar góð og vel þeg- in heimild um Óvænta bólfélaga ársins 2000. Út- koman er kannski ekki alltaf eins óvænt og mað- ur hefði vonast eftir en samt má finna mjög flotta hluti inn á milli á báðum þessum plötum. Trausti Júlíusson „Á heildina litíð eru þess- ir diskar góð og vel þegin heimild um Óvænta bólfé- laga ársins 2000. Útkoman er kannski ekki alltaf eins óvænt og maður hefði von- ast eftir en samt má finna mjög flotta hluti inn á milli á báðum þessum plötum.“ 10 f Ó k U S 26. janúar 2001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.