Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2001, Side 3
16
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001
17
Sport
Sport
Stig Keflavíkur: Brooke Schwartz 22 (8 stolnir, 7 fráköst), Kristín Blön-
dal 19, Birna Valgarðsdóttir 7, Erla Þorsteinsdóttir 4 (8 fráköst, 5 varin),
Marín Rós Karlsdóttir 2, Thédóra Káradóttir 2.
Stig KR: Heather Corby 25 (16 fráköst, 9 varin, 5 stolnir), Hildur Sigurö-
ardóttir, 12 (8 fráköst, 8 stoðsendingar), Helga Þorvaldsdóttir 12 (5
stoðsendingar), Guðbjörg Norðfjörð 8 (öll í fyrsta leikhluta), Sigrún
Skarphéðinsdóttir 8, Kristin Björk Jónsdóttir 6, Gréta María Grétarsdótt-
ir 6 (8 fráköst), Hanna B. Kjartansdóttir 4 (6 stoðs. á 18 mínútum), Guö-
rún Arna Sigurðardóttir 4, Bima Eiríksdóttir 2.
Samvin/nif&v*
Landsýn q
Keflavík-KR 56-87 (25-50) I
Davíð og Golíat
- segir Viggó Sigurðsson um styrkleikamuninn á liðunum
_.(! EPSON
y OEILDiHI
Staðan fyrír lokaumferðina
Njarövík 21 16 5 1969-1695 32
Tindastóll 21 15 6 1868-1779 30
Keflavík 21 15 6 1938-1755 30
KR 21 15 6 1869-1724 30
Haukar 21 12 9 1736-1661 24
Hamar 21 12 9 1780-1791 24
Grindavik 21 10 11 1834-1799 20
Skallagr. 21 10 11 1719-1862 20
ÍR 21 8 13 1706-1848 16
Þór Ak. 21 6 15 1799-1950 12
KFÍ 21 4 17 1805-1992 8
Valur 21 3 18 1640-1807 6
l.DEILD KVENNA
Staðan fyrir siðustu 3 leikina
KR 16 12 4 1077-865 24
Keflavík 14 10 4 ■944-804 20
KFÍ 14 9 5 864-787 18
ÍS 15 6 9 846-865 12
Grindavik 15 0 15 731-1141 0
Haukar fengu ekki óska-
mótherja þegar dregið var í gær í
undanúrslit EHF-keppninnar í
hanknattleik. Haukar lentu á móti
ríkjandi EHF-meisturunum, króat-
íska liðinu Metkovic Jambo, og
ljóst að um gífurlega sterkt lið er
að ræða. Viggó Sigurðsson, þjálf-
ari Hauka, sagði eftir leikinn gegn
Sporting um helgina að drauma-
mótherjamir væru spænska liðið
Bidasoa en því miður varð honum
ekki að ósk sinni.
Ekki hjálpfúsir
„Nei, því miður. Við hefðum
ekki getað fengið erfiðari andstæð-
inga en þetta króatíska lið. Þeir
eru með gífurlega sterkan heima-
völl eins og úrslitin í keppninni til
þessa sýna. Ég hefði frekar viljað
mæta Magdeburg þó liðin séu
sjálfsagt svipuð að styrkleika. Við
vitum lítið um liðið annað en það
að það eru fimm króatískir lands-
liðsmenn í liðinu og við munum
fara strax í það að verða okkur úti
um einhverjar upplýsingar um lið-
ið. Það getur reyndar orðið erfitt
þar sem lið frá þessum hluta Evr-
ópu eru ekki hjálpleg og við þurf-
um aö öllum líkindum að verða okk-
ur úti um þessar upplýsingar eftir
krókaleiðum," sagði Viggó Sigurðs-
son, þjálfari Hauka, í samtali við
DV-Sport stuttu eftir að dregið hafði
verið í gær.
Styrkleikamunur
„Það má líkja þessum viðureignum
okkar við Metkovic Jambo við bar-
áttu Davíös og Golíats. Á pappírun-
um eru þeir með miklu sterkara lið
og þurfum að eiga tvo undraverða
leiki til þess að eiga möguleika gegn
þeim. Það þarf allt að hjálpast að,
frábær spilamennska og stuöningur
áhorfenda," sagöi Viggó.
Fínt aö spila heima fyrst
„Það er ekki verra fyrir okkur að
spila heimaleikinn fyrst. Ef við hefð-
um átt hann eftir og komið heim
með stórtap á bakinu er hætt við því
að áhuginn og mætingin hefði orðið
dræm. Við getum fyllt Ásvelli í fyrri
leiknum og reynt að búa okkur til
nægilega gott forskot fyrir seinni
leikinn," sagði Viggó Sigurðsson,
þjálfari Hauka, eftir að dregið hafði
verið í undanúrslit EHF-
keppninnar.
-ósk
Bland i poka
Ipswich hefur fest kaup á bakverði
Sunderland, Chris Makin, fyrir um 180
miiljónir króna (1,4 milljónir punda) en
liðin eiga i baráttu um meistaradeildar-
sæti fyrir næstu leiktíð. Makin hefur átt
fast sæti í liði Sunderland síðan liðið
kom upp í úrvalsdeildina fyrir síðustu
leiktíö. Peter Reid, framkvæmdastjóri
Sunderiand, brást skjótt við og hefur
fengiö Frakkann Patrice Carteron að
láni frá St. Etienne en hann leikur sömu
stöðu og Makin.
Heimsmeistaramótió í vióavangs-
hlapi, sem fyrirhugað var i Dublin dag-
ana 23. og 24. mars næstkomandi, hefur
verið flutt til Brussel vegna ótta um að
gin- og klaufaveiki geti borist
frá Bretlandseyjum.
Fabien Barthez, markvörð-
ur Manchester United, mun
sleppa við frekari refsingu af
háífu enska knattspyrnusam-
bandsins vegna atviks i leik
gegn Leeds um helgina.
Barthez sparkaði þá í Ian
Harte, leikmann Leeds, og
dæmdi Graham Barber víta-
spyrnu og sýndi Barthez gula
spjaldið. Venjan er að þegar dómari sér
slík atvik og refsar viðkomandi er ekki
Fabien Barthez.
aöhafst meira í málinu.
Aganefnd KSÍ kom saman til fundar í
gær og úrskurðaði Arnór Guójohnsen,
þjálfara Stjörnunnar, í tveggja leikja
bann vegna brottvísunar í deildabikar-
keppni KSÍ 3. mars síðastliðinn. Stjarn-
an fékk einnig 5.000 króna sekt vegna
brottvísunar Amórs.
Birgir Leifur Hafþórsson tekur þátt í
móti á aðalmótaröð Evrópu um
þarnæstu helgi, Madeira Island Open í
Santo da Serra í Portúgal. Birgir Leifur
dvelur í Alicante á Spáni um þessar
mundir, en mun halda til Madeira nk.
mánudag og búa sig undir mótið, sem
verður það fyrsta sem hann tekur þátt í
á þessu ári.
Birgir Leifur átti kost á að leika á
Quatar Masters, sem hefst á
fimmtudag, en það þótti ekki
góður kostur þar sem hann var
boðaður með skömmum fyrir-
vara og undirbúningur yrði
þess vegna aldrei nægur. Þar
aö auki höfðu Birgir Leifur og
þjálfari hans, landsliðsþjálfar-
inn Staffan Johansson, ekki
gert ráð fyrir því móti í keppn-
isáætlun Skagamannsins.
VandrϚagemlingurinn Rod
Strickland, sem var leystur undan
samningi við Washington Wizards í síð-
ustu viku, er genginn til liðs viö
Portland Trailblazers. Strickland, sem
þykir frábær leikstjómandi þegar sá
gállinn er á honum, mun koma til með
að styrkja lið Portland mikið fyrir loka-
átökin í NBA-deildinni.
í gcer var dregió i heimsbikarkeppni
félagslióa sem fram fer á Spáni 28. júlí
til 12. ágúst. Alls mæta tólf lið til leiks
og er þeim raðað í þrjá fjögurra liða
riöla.
A-riðill: Boca Juniors (Argentinu),
Deportivo La Coruna (Spáni), Wollon-
gong Wolves (Ástralíu), Zamalek (Eg-
yptalandi).
B-riðiIl: Palmeiras (Brasilíu), CD
Olimpia (Hondúras), Galatasaray (Tyrk-
landi), Al-Hilal (Saudi Arabiu).
C-ríðill: Real Madrid (Spáni), Jubiio
Iwata (Japan), Accra Hearts of Oak
(Gana), Los Angeles Galaxy (Bandarikj-
unum).
Efsta lió ítölsku 1. deildarinn-
ar AS Roma hetúr fest kaup á
framherjanum unga Antonio
Cassano frá Bari fyrir um 20
milljónir punda. Cassano, sem
er 18 ára gamall, hefur verið
undir smásjánni hjá Manchest-
er United, Parma, AC Milan og
Juventus en Roma stal drengn-
um fyrir fkaman neftð á þessum
stórliðum. Fabio Capello, þjálf-
ari AS Roma, er gifurlega hrfinn af
Antonio
Cassano.
Cassano og segir að hann eigi eftir að
veröa stórt nafn í knattspymuheimin-
um þegar fram líða stundir.
Sögusagnir eru nú uppi um þaö að
argentínski sóknarmaðurinn Claudio
Caniggia sé á leið til Rangers frá
Dundee. Dick Advocaat, stjóri Rangers,
hefur síöur en svo dregið úr þessum
sögusögnum. Framtíð sóknarmannanna
Rod Wallace og Billy Dodds hjá Rangers
er óráðin enn og Hollendingurinn Mich-
ael Mois mun verða frá í nokkurn tíma
vegna meiðsla. Advocaat segist þurfa að
ráða fram úr málum með þessa sóknar-
menn áður en nokkuð verði gert í sam-
bandi við Caniggia en hann segist vissu-
lega geta óskað þess að hafa svo góðan
sóknarmann í liðinu.
iþróttamálaráöherra Finnlands, Suvi
Linden, hefur hvatt forráðamenn
fmnska skíöasambandsins til
að segja af sér eftir hneykslis-
málið í Lahti á dögunum þeg-
ar í ljós koma að helmingur
finnska skíðagöngulandsliðs-
ins hafði neytt ólöglegra lyfja.
Linden sagði aö á meðan þess-
ir menn sem bæru ábyrgð á
sambandinu væru við völd
myndi sambandið ekki fá eina
einustu krónu frá ríkinu.
, „Sambandið hefur ekki stuðn-
ing ríksstjómarinnar," sagði
Linden. -ósk/HRM
Vancouver vann Portland
Charlotte-Minnesota .......89-95
Wesley 21, Davis 17 (9 stoös.), Mashbum 16,
Brown 10 (10 frák.) - K. Gamett 22 (13
frák.), Szczerbiak 16, Brandon 13, Billups
13.
New York-Indiana...........97-83
Sprewell 16, Jackson 15, Caamby 12 (10
frák.) - Best 18, Rose 16, Miller 14.
Chicago-Cleveland..........87-74
Fizer 17, Artest 14, Brand 14 (12 frák.),
Miller 13 - Harpring 16, Mihm 13, Miller 12.
Denver-Phoenix ............82-93
Pack 22, McCloud 17, Lenard 15 - Gugliotta
25, Marion 22 (9 frák.), Delk 10.
Sacramento-Toronto.........98-91
Webber 19 (13 frák.), Christie 19, Williams
19, Daivac 17 (17 frák.), Stojakovic 10 -
Carter 25 (9 frák.9, A. Davis 25 (9 frák.). A.
Williams 17.
Portland-Vancouver.......97-105
Pippen 15, Stoudamire 15, Weils 15, Smith
14 - Abdur-Rahim 26 (8 frák.), Dickerson 20,
Bibby 14 (10 stoðs.), Swift 12.
Seattle-San Antonio......73-101
Payton 28, Ewing 8, S. Williams 8 - Duncan
22 (9 frák.), Robinson 19 (9 frák.).
Golden State-LA Lakers . . . 85-97
Blaylock 25, Jamison 21, Sura 8 (10 frák.),
Dampier 8 - Bryant 29, O’Nela 26 (17 frák.),
Grant 15, Fox 12, Shaw 11. -ósk
Hamarinn
- of þungur fyrir slaka Þórsara
Þórsarar enduðu sinn síöasta
heimaleik meö hræðilegri frammi-
stööu. Þetta var án vafa lélegasti
leikur sem Þór hefur spilað á
heimavelli sínum í ár. Hamars-
menn áttu ekki í erfiðleikum með
Þórsara og undir lokin voru þeir
farnir að reyna hinar ýmsu kúnst-
ir sem heppnuðust margar hverjar.
Leikurinn var mjög jafn fyrstu
tvo leikhlutana og var alls óvist
hvort liðið mundi fara með sigur af
hólmi. Þriðji leikhlutinn var algjör-
lega andlaus af hálfu Þórsara.
Hamarsmenn sýndu góða takta og
voru þeir Pétur Ingvarsson og
Chris Dade fremstir.
Gunnlaugur fór á kostum
í fjórða leikhluta fór Gunnlaugur
Erlendsson á kostum og skoraði 12
stig í þeim leikhluta. Víta- og
þriggja stiga nýting Þórsara var
hörmuleg. Þórsarar áttu 15 þriggja
stiga tilraunir en aðeins eitt skot
hitti mark. Hamarsmönnum aftur
á móti tókst að koma niður átta
þriggja stiga skotum.
Rýr uppskera
Þetta tímabil hefur gengið illa
hjá Þórsurum en þeir byrjuðu
tímabilið með þvi að vinna fyrstu
íjóra leikina en hafa aðeins unnið
tvo leiki eftir það. Þeir eiga einn
leik eftir í deildinni, á móti Val, en
það er eini leikurinn sem skiptir
nákvæmlega engu máli fyrir hvort
lið. Fyrir tímabilið stefndu menn
hátt þar á bæ en uppskeran hefur
veriö heldur rýr á þessum vetri.
Góöur vetur
Hamarsmenn aftur á móti halda
sér í sjötta sæti með sigrinum og
eru öruggir í úrslitakeppnina. Þeir
hafa komið mjög á óvart í vetur og
eiga eflaust eftir að gera góða hluti
í úrslitakeppninni. Þeir eiga mögu-
leika á fimmta sætinu ef þeir sigra
Skallagrím á fimmtudaginn.
-JJ
Þór A.-Hamar 86-108
6-3, 8-9, 19-19, 23-23, (23-27), 32-32,
38-34, 42-36, 44-42, (48-46), 51-52,
53-54, 55-64, 61-68, 66-74, (68-78),
72-81, 76-89, 84-99, 84-108, 86-108.
Stig Þórs: Maurice Spillers 30, Haf-
steinn Lúðvíksson 15, Óðinn Ásgeirs-
son 13, Einar Örn Aðalsteinsson 9,
Hermann Daði Hermannsson 7,
Magnús Helgason 5, Einar Hólm Dav-
iðsson 4, Þórarinn Jóhannsson 3.
Stig Hamars: Chris Dade 27, Pétur
Ingvarsson 19, Svavar Páil Pálsson
18, Skarphéðinn Ingason 17, Gunn-
laugur Erlendsson 14, Óli Sigurjón
Bardal 6, Lárus Jónsson 5, Sigurður
Einar Guöjónsson 2.
Fráköst: Þór 38 (14 í sókn, 24 í vörn,
Maurice 18), Hamar 21 (7 í sókn, 14 í
vörn, Gunnlaugur 6).
Stoósendingar: Þór 18 (Maurice 6),
Hamar 9 (Pétur 3).
Stolnir boltar: Þór 12 (Maurice 8),
Hamar 17 (Óli 5).
Tapaðir boltar: Þór 21, Hamar 11.
Varin skot: Þór 1 (Maurice), Hamar
0.
3ja stiga: Þór 15/1, Hamar 17/8.
Víti: Þór 22/13, Hamar 26/20.
Dómarar (1-10): Rögnvaldur
Hreiðarsson og Björgvin Rúnarsson,
7.
Gϗi leiks (1-10): 5.
Áhorfendur: 100.
Maöur leiksins: Pétur
Ingvarsson, Hamri.
Táknræn myncf fyrlr'v
leik Keflavíkur og
KR fgær. KR-stúlk-
an Guörún Arpa. .
Siguröardóttir skref-
inu á undan þremur
Keflavíkurstúlkum
sem geta aöi
horft á hana bæia
fleiri KR-stigum í
sarpinn.
DV-mynd C /
Barist u m
Bunce
Che Bunce gæti veriö á leiö til KR.
£ # MEISTARADEILDIN
C-riðill
Lyon-Bayern Múnchen ......3-0
1-0 Sidney Govou (13.), 2-0 Sidney
Govou (20.), 3-0 Pierre Laigle (71.).
Arsenal-Spartak Moskva .... 1-0
1-0 Thierry Henry (82.).
B. Múnchen 5 3 11 7-5 10
Arsenal 5 2 2 1 6-7 8
Lyon 5 2 1 2 7-3 7
S. Moskva 5 1 0 4 4-9 3
D-riðiU
Real Madrid-Leeds..........3-2
0-1 Alan Smith (6.), 1-1 Raul Gonzalez
(7.), 2-1 Luis Figo (41.), 2-2 Mark
Viduka (54.), 3-2 Raul Gonzalez (60.).
Lazio-Anderlecht..........2-1
1-0 Claudio Lopez (40.), 1-1 Alin Stoica
(49.), 2-1 Roberto Baronio (77.).
R. Madrid ,5410 14-7 13
Leeds 53029-7 9
Lazio 5 113 6-8 4
Anderlecht 5 1 0 4 5-12 3
í kvöld mætast í A-riðli Sturm Graz og
Valencia annars vegar og Panathinai-
kos og Manchester United hins vegar. í
B-riðli mætast Galatasaray og AC Milan
í Tyrklandi og Deportivo og Paris St.
Germain á Spáni. -ósk
- KR, sem skoraði 87 stig í 31 stigs sigri í Keflavík, hampaði titlinum og setti stigamet í leiðinni
KR-stúlkur tryggðu sér deildarmeist-
aratitilinn í kvennakörfu þriðja árið í röð
með því að vinna sannfærandi 31 stigs
sigur á Keflavík, 56-87, í Keflavík i gær.
Aldrei hafa Keflavíkurstúlkur fengið
jafnmörg stig á sig í deildarleik í Keflavík
og frábær annar fjórðungur KR-liðsins
fer örugglega á stall sem besti fjórðung-
ur sem hefur verið spilaður af kvennaliði
hér á landi.
Eftir jafnan leik I fyrsta fjórðungi fóru
KR-stelpur á flug í öðrum og eftir það
áttu heimastúlkur aldrei möguleika. KR
vann 2. leikhluta, 30-9. Leikmenn liðsins
hittu þá úr 12 af 17 skotum (70,6%), tóku
13 af 15 fráköstum i boði (87%) og þving-
uðu Keflavíkurliðið til að tapa 9 boltum á
þessum 12 mínútum en Keflavíkurliðið
náði aðeins 14 skotum á körfuna í þess-
um fjórðungi og þar af rötuðu aðeins þrjú
þeirra rétta leið (21%).
Það var hvergi veikan blett að frnna
hjá vesturbæjarstúlkum í gær. Heather
Corby átti enn einn stórleikinn, Hildur
Sigurðardóttir lék mjög vel sem fyrr,
Hanna Kjartansdóttir og Sigrún Skarp-
héðinsdóttir komu með sterka innkomu
af bekknum, Gréta María Grétarsdóttir
og Guðbjörg Norðfjörð unnu vel fyrir lið-
in eins og oft áður og Helga Þorvaldsdótt-
ir spilaði einn sinn besta leik í vetur.
Corby ríkti í teigunum
Líkt og í bikarúrslitaleiknum rikti He-
ather Corby yfir báðum vítateigum i gær.
Auk þess að skora 25 stig og nýta 64%
skota sinna, tók hún 16 fráköst, stal fimm
boltum og varði 9 skot og hélt fjórum
kraftframherjum og miðherjum Keflavík-
urliðsins í fjórum stigum samtals og að-
eins 10% skotnýtingu (þeir hittu úr 2 af
20 skotum). Þar á meðal var Erla Þor-
steinsdóttir, sem náði aðeins fimm skot-
um á körfuna, þar af aðeins þremur inni
í teig og tvö af þeim voru varin.
Hildur Sigurðardóttir hefúr blómstrað
í leikstjórnandahlutverkinu með tilkomu
Heathers í miðherjastöðuna en Hildur
hefur í þessum hórum leikjum með Cor-
by skorað 15,8 stig, tekið 7,8 fráköst og
gefið 6 stoðsendingar að meðaltali. Hildur
gaf meðal annars sjö stoðsendingar i
fyrri hálfleik í gær, auk fimm frákasta og
átta stiga, en minna bar á henni eftir hlé.
Hanna B. Kjartansdóttir og Kristín
Björk Jónsdóttir eru að stíga upp úr veik-
indum og spiluðu lítið hlutverk í gær (38
mínútur og 10 stig samtals) en um leið og
þær komast aftur á fulla ferð er erfitt að
sjá eitthvert lið eiga möguleika í þetta
geysisterka KR-lið þar sem sjö leikmenn
skoruðu sex stig eða meira í gær.
Keflavíkurliðið átti ekki möguleika í
KR í gær. Kristinn Óskarsson, þjálfari
liðsins, kvartaði mikið yfir dómgæslunni
í leiknum en heföi frekar átt að líta í eig-
in barm. Keflavíkurstúlkur spiluðu ekki
bara fast heldur voru hreinlega grófar og
mörg ljót og óþörf bolabrögð voru ljóður
á leik liðsins i gær.
Viljinn, getan og leikgleðin var KR
megin og það voru ekki dómararnir sem
eyðilögðu daginn fyrir Keflvikingum.
Brooke Schwartz reyndi það sem hún
gat en hafði ekki úthald í að bera liðið
uppi í 40 mínútur en fékk þó góðan stuðn-
ing frá fyrirliðanum, Kristínu Blöndal,
eftir hlé. Kristín gerði 13 af 19 stigum sín-
um í seinni hálfleik, þar af 11 í þriðja
leikhluta, þar sem hún setti þrjár þriggja
stiga körfur í röð. Aðrir leikmenn liðsins
áttu dapran dag, liðið nýtti aðeins 31%
skota sinna'og tapaði 20 boltum.
Leikinn dæmdu Jón Bender og Rúnar
B. Gíslason og voru ekki öfúndsverðir að
dæma þennan erfiða leik, ekki síst fyrir
þær sakir að þeir höfðu félaga sinn,
dómarann Kristin Óskarsson, á bakinu
allan leikinn.
-ÓÓJ
Nýsjálenski vamarmaðurinn Che
Bunce, sem lék með Breiðabliki árin
1997-1999, mun að öllum líkindum
leika hér á landi í sumar. Tvö lið
berjast nú um Bunce sem var einn af
albestu vamarmönnum Landssúna-
deildarinnar áriö 1999. Þessi lið eru
hans gamla félag, Breiðablik, og ís-
landsmeistarar KR. Bunce, sem hef-
ur undanfarin ár leikið með lands-
liði Nýja-Sjálands, hefur gefið frá sér
landsliðssætið í bili og opnar það
dyrnar fyrir þessi félög að kasta sér
í slaginn um kappann.
Blikar þekkja Bunce ekki af
neinu öðru en góðu og hann yrði
væntanlega mikill liðsstyrkur fyrir
þá í Sfmadeildinni. Hannes Hauks-
son, formaður knattspyrnudeildar
Breiðabliks, sagði í samtali við DV-
Sport að viðræður við Bunce væru
á byrjunarstigi en það væri ljóst að
þeir hefðu mikinn áhuga á að fá
hann í Kópavoginn.
„Við vitum allt um getu hans sem
knattspyrnumanns og teljum að
hann geti styrkt okkur fyrir átök
sumarsins. Við munum hins vegar
ekki taka hann ef hann hverfur f
mánuð á miðju sumri eins og
síðast," sagði Hannes Hauksson.
KR-inga vantar varnarmann eftir
að einn af þeirra lykilmönnum,
Bjarni Þorsteinsson, var seldur til
Molde. Forráðamenn KR vildu ekk-
ert tjá sig um málið en samkvæmt
heimildum DV-Sport eru viðræður
komnar langt á veg og menn í vest-
urbænum bjartsýnir á að landa
Bunce, sem myndi gera íslands-
meistarana óárennilega fyrir átökin
í sumar. -ósk
Thierry Henry fagnaði marki sínu gegn Spartak Moskvu innilega. Reuters
Thierry Henry
- bjargaði Arsenal enn einu sinni
Franski sóknarmaöurinn Thi-
erry Henry kom Arsenal til bjarg-
ar gegn Spartak Moskvu á High-
bury í gærkvöldi þegar hann skor-
aði sigurmark leiksins með skalla
á 82. mínútu. Þetta er ekki í fyrsta
skiptið í vetur sem þessi snjalli
leikmaður skorar mikilvægt mark
fyrir Arsenal, sem hefur eins stigs
forystu á Lyon fyrir síðustu um-
ferðina.
Stórsigur Lyon
Franska liðið Lyon kom heldur
betur á óvart á heimavelli sínum
þegar liðið tók Bayem Múnchen í
kennslustund, 3-0. Sidney Govou,
sem vanalega er ekki i byrjunar-
liði Lyon, kom inn í liðið í staö
Steve Marlet og stal senunni. Hann
skoraöi tvö fyrstu mörk leiksins
fyrir Lyon og sá til þess að þessi
leikur varð aldrei spennandi.
Raul skoraöi tvö
Raul Gonzalez skoraði tvö mörk,
þar á meðal sigurmarkið eftir
klukkutíma leik, þegar Real Ma-
drid bar sigurorð af Leeds, 3-2. Þar
með tryggði Real Madrid sér sigur
í D-riðli, jafnvel þótt ein umferð sé
eftir.
í hinum leiknum vann Lazio sig-
ur á Anderlecht, 2-1, í þýðingar-
lausum leik.
-ósk