Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2001, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2001, Qupperneq 11
Aðdáendur Nick Cave and the Bad Seeds hafa nú beðið í ein fjögur ár eftir nýju efni frá meisturunum. Sú bið er brátt á enda því á mánudag kemur út ellefta breiðskífa hljómsveitarinnar. Frosti Logason hlustaði á gripinn og skoðaði sögu sveitarinnar: Aldrei aftur skulum við sundrast Snemma í byrjun nlunda áratug- arins hóf ástralska pönksveitin The Birthday Party, meö Nick Cave í broddi fylkingar, innreið sína í bresku stórborgina London og vakti á sér umtalsverða athygli fyrir mjög líflega sviðsframkomu og leik- ræna tilburði söngvarans, Nick Cave, sem þótti hálfgeðsjúkur að sjá, allavega við fyrstu sýn. Hljóm- sveitin skildi eftir sig nokkrar upp- tökur en lifði ekki lengur en til árs- ins 1983 og fóru meðlimir þá hver í sína áttina. Þegar Birthday Party lagði upp laupana varð Nick eirðar- laus og ákvað að setjast að í Berlín þar sem hann síðan kynntist Blixa nokkrum Bargeld, en hann var meðlimur í athyglisverðri hljóm- sveit sem kallaði sig Einstiirzende Neubauten. Saman stofnuðu þeir hljómsveitina The Bad Seeds og ákvað Nick að kalla til nokkra gamla félaga til að fylla i lausar stöður en til þess voru fengnir þeir Mick Harvey, sem hafði verið með Nick í hljómsveitinni Birthday Par- ty, og Barry Adamson. Fyrsta plata hljómsveitarinnar varð From Her Etemity sem innihélt skemmtilega útgáfu af gamla Elvis-smellinum In the Ghetto og sannaði það að Nick hafði engu gleymt þegar kom að leikrænum tilþrifum í söng sínum. Ári seinna kom út The Firstborn Is Dead en það var ekki fyrr en árið 1986 sem Nick Cave and the Bad Seeds fengu almennilega athygli en þá fór platan Kicking Against the Pricks í toppsætið á óháða breska plötulistanum. Sú plata innihélt einungis lög eftir aðra tónlistamenn en útsetningar Nicks og félaga sátu eftir í hlustendum og sköpuðu hljómsveitinni nafn í bransanum. Óhugnanlegar smásösögur Platan Your Funeral, My Trial kom út sama ár og hún virkaði bet- ur en fyrri verk sveitarinnar þar sem meira var lagt i alla vinnslu á plötunni, s.s. upptökur og hljóð- blöndun. Á þessum tíma var Nick líka farinn að semja lögin sín í formi smásagna, sem hafa upp frá því verið sérstaða söngvarans, og lögin The Mercy Seat og Oh Deanna eru gott dæmi um það hvernig ógn- vekjandi frásagnir fléttast vel inn í lög hans. Árið 1988 voru lögin orðin enn þróaðri og með vandaðri laga- byggingu og meiri melódium í söng Nick Cave sendi hljómsveitin frá sér meistarastykkið Tender Prey. The Good Son var svo gefin úr árið 1990 og þá gaf strengjasveit hljóm- sveitinni nýjan hljóm sem blandað- ist vel við ballöðumar sem voru núna orðnar Nick Cave svo hug- leiknar. Árið ‘92 kom platan Henry¥s Dream út og á eftir henni fylgdu útgáfur á tónleikaupptökum sveitarinar og framlagi þeirra í kvikmyndina Faraway, So Close, eftir kvikmyndamógúlinn Wenders. Árið 1994 var ókyrrðartímabil i einkalífi Nick Cave en engu að síð- ur gaf hann þá út eitt af sínum bestu verkum, plötuna Let Love in, sem hlaut einróma lof gagn- rýnenda. Núna var Nick orðinn að stórstjömu en næsta plata gerði hann súperstjömu því The Murder Ballads varð að alþjóðlegri metsölu- plötu. Þar fékk hann til sín nokkra gesti en á meðal þeirra voru þær Kylie Minouge og P.J. Harvey, sem báðar sungu dúett með meistaran- um, og urðu lögin sem þau sungu saman til þess að Nick Cave and the Bad Seeds urðu þekktari en nokkru sinni fyrr. Árið 1997 kom svo út platan The Boatmans Call sem margir segja vera bestu plötu Nicks Cave. Eins og kraumandi eldfjair Á mánudaginn kemur svo loks út ellefta breiðskífa hans, No More Shall We Part, en þá eru liðin fjög- ur ár frá síðustu útgáfu og það telja margir dágóðan tima. Ástæðu þess sagði hann vera þá að eftir síðustu plötu hefði hann fengið nokkurs konar viðbjóð á því sem hann var að gera og hætti því að semja um hríð. Þegar hann aftur á móti fékk áhugann á ný kom hann tvíefldur til baka og efnið bara vall út úr honum eins og úr kraumandi eld- fjalli. Öll lögin á nýju plötunni voru tekin upp á skrifstofu hans í Englandi þar sem hann sat við skrifborð og vann að lögunum eins og endurskoðandi vinnur að skatt- skýrslunum, frá 9 til 5 á daginn. Platan var tekin upp á tveimur vik- um í bítlastúdíóinu Abbey Road, en þar kann Nick vel við sig og þakk- ar ekki síst andrúmsloftinu þar góða útkomu plötunnar. Þar bætt- ust lika öll hin hljóðfærin við en meðlimir The Bad Seeds búa aliir hver á sínum staðnum á jörðinni og höfðu ekki einu sinni heyrt nýju lögin fyrr en þeir mættu í stúdióið og hlustuðu á Nick spila þau á pí- anóið. Fyrsti singullinn af plötunni er lagið As I Sat Sadly Beside Her, en það er lag um hann sjálfan, konu hans og heimspekilegar samræður þeirra um hvað lífið er yndislegt. Fallegt, ekki satt? p1ötudómar hvaðf fyrir hvernf skemmtileqar staöreyncfi r niöurstaöa ★★★★ Flytjandi: MatlTIOS piatan: A Chance to Cut Is a Chance to Cure Útgefandi: Matador/Hljómalind Lengd: 46:23 mín. Þetta er þriöja plata bandaríska dúós- ins Matmos frá San Francisco. Þaö spilar tilraunakennda raftónlist og er þekkt fyrir að sampla ólíkleg hljóð sem þaö notar í tónlistina. Á nýju plötunni eru þaö m.a. hljóö sem myndast viö fitusog, hljóörituö á læknastofu í Kali- forníu (alveg sattl). Þó að þeir Matmos-félagar noti óhefö- bundnar aðferöir við gerö tónlistarinn- ar þá er þessi plata samt merkilega aðgengileg og næstum því poppuð, enda nota þeir líka hefðbundin hljóö- færi eins og gftara og trommur. Platan ætti aö höfða til þeirra sem hafa áhuga á óvenjulegri og framsækinni popptónlist. Matmos, þeir MC Schmidt og Drew Daniel, eru á meöal samstarfsmanna Bjarkar á nýju þlötunni hennar sem væntanleg er síösumars. Þeir munu líka vera hluti af hljómsveitinni sem spilar meö Björk á tónleikaferöalaginu sem hún fer á í kjölfariö. Þessi plata sannar aö það er heilmik- iö að gerast í tilraunageiranum í Bandaríkjunum ogekki bara í Chicago! Þetta er mjög fjölbreytt plata, hún inni- heldur allt frá poppi út í teknó og til- raunakennda raftónlist. Mjög lífleg og skemmtleg plata sem kemur á óvart aftur og aftur... trausti júlíusson ★ ★★★ Fiytjandi: Big Dumb Face piatan: Duke Lion Fights The Terror Útgefandi: Geffen/Skífan Lengd: 51:23 Wes Borland, gítarleikari hljómsveitar- innar Limp Bizkit, er hér með eins kon- ar sólóverkefni en hann semur, útset- ur og pródúserar þessa þlötu alfariö sjálfur. Tónlistin sjálf er alger snilld en hún spannar allt frá kántrý-rokkabillý upp í argasti dauðarokk. Þetta er svona trommuheilarokk sem gæti ver- ið blanda af Mortician, Piledriver og Agli Sæbjörnssyni. Aðdáendur framúrstefnu og nýrra hug- myndina veröa ekki sviknir af þessu. Þessi hljómsveit er eflaust eitt stórt grin í huga Wes Borlands en stað- reyndin er sú aö Limp Bizkit fölnar í samanburði viö lagasmíðarnar sem hér er aö finna. Ég efast um að hinir venjulegu Limp-aödáendur hafi gaman af þessu. Borland stofnaði þetta band meö nokkrum félögum sínum á Flórida fyrir mörgum árum en þurfti aö setja hug- myndina í salt þegar Limþ Bizkit meik- aöi þaö. Hann tók svo upp þráðinn á síöasta ári og tók upp plötuna sjálfur á tónleikaferöalagi lina kexins. Þessi gripur sýnir þaö aö Wes Borland er án nokkurs vafa mesti snillingurinn í Limp Bizkit. Þetta er bæði bráðfyndin ogí alla staði mjög skemmtileg plata. Hún er líka bara helvíti vel tekin upp með góöu sándi og kraftmiklum lögum. Þá standa dauöarokkslögin sérstaklega vel upp úr en þau eru vel! anda þess efnis sem Relapse Records í BNA sér- hæfa sig !. Big Dumb Face tekur Limp Bizkit i rassgatiö! Frosti Logason ★★★★ Rytjandi: YmSÍr piatan: Putting the Morr in Morrissey Útgefandi: Morr/12 Tónar Lengd: 138:46 mín (2 diskar) Morr Music er útgáfa sem sérhæfir sig í mjúkri raftónlist. Hún er rekin af Thomas Morr og hefur aösetur í Berlín. Þessi plata er safn af efni með listamönnum hjá Morr og öörum víða að sem leika tónlist sem fellur aö stefnu útgáfunnar. Á fyrri disknum eru upprunalegar útgáfur en remix á þeim seinni. Rest lögin á þessu safni eru mjúk og melódísk raftónlist meö léttu yfir- bragöi og ættu að falla vel í kramiö t.d. hjá Múm-aðdáendum. Aö stærst- um hluta er þetta er róandi og nær- andi tónlist í bakgrunninn en einstaka lög eru samt haröari og truflaöri, t.d. Schneider tm remixið af laginu „II y a le UV". Þaö kemur engum á óvart sem heyrt hefur þessa plötu aö Morr Music sé viö þaö aö gefa út plötu meö Múm. Þaö verður plata meö endurunnum Múm-lögum og kemur út í sumar. Á meðal þeirra sem remixa Múm eru Isan, Arovane, B. Reischmann, Pho- nem og Styrofoam en þeir eiga allir efni á plötunni. Þetta er mjög flott safn sem víkur ekki svo auðveldlega úr spilaranum þegar maður hefur á annaö borð ánetjast. Þetta er mikil stemningartónlist, yfir- leitt hæg og einföld. Rest lögin eru góö en í sérstölu uppáhaldi hjá mér eru lögin meö The Notwist, Isan, Tied & Tickled Trio og Kandis. Afbragö. trausti júlíusson ★★★ Rytjandi: Manic Street Preachers piatan: Know Your Enemy Útgefandi: Epic/Skífan Lengd: 75:32 Sjötta breiðskífa velsku rokkaranna f Manic Street Preachers. Þessi hljóm- sveit hefur á undaförnum áratug krossaö úr hráu pönk rokki yfir f há- gæöa popp én gerir nú ágætis tilraun til að hrista af sér söluvæna popp- stimpilin. Útkoman úr þeirri tilraun er þessi þlata sem hljómar hrárri heldur en sföustu tvær plötur þeirra. Manics-aðdáendur ættu náttúrulega . aö hafa gaman af þessu en þessi plata gæti passað betur handa fyrri aödáendum þeirra sem dýrkuðu hljóm- sveitina fyrir „This Is My Truth Tell Me Yours" -plötuna en hún kom út '98 og gerði hljómsveitina aö einni stærstu hljómsveit Bretlands. Know Your Enemy var að mestu leyti samin á sólarströndum Spánar fyrir hálfu ööru ári. Það þýöir þó ekki að sólin skíni hér í gegn því lögin eru frek- ar þunglynd og textarnir neikvæöir. Óvinurinn, sem titili plötunnar ýjar aö. er víst sá karakter sem hljómsveitn var orðin aö samkvæmt bassaleikara sveitarinnar, Nicky Wire. Know Your Enemy er plata sem tekur sér tíma i að læðast aftan að manni og gripur mann svo föstum tökum. Þarna heyrast allar hliöarnar á hljómsveitinni sem eru fiölmargar og spanna allt frá poppi yfir i rokk og jafnvel yfir i diskó. Umfram allt eru þetta vel samin lög en samt sem áöur er hljómurinn frekar lo- fi sem er ekki alveg að minu skapi. Frosti Logason 30. mars 2001 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.