Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2001, Blaðsíða 12
Hver dagurá sér sína sögu og sitt afmælisharn. Því er alltaf hægt að finna ástæðu eða átyllu til að djamma og halda upp á hvern dag á árinu. Nú styttist í mánaðamót og höfum við því tekið saman merka atburði í aprílmánuði sem má fagna og halda upp á. Ástæður oci ir til að C£kK 1. apríl: Trampe stiftamtmaöur birti auglýsingu á þessum degi 1807 um brunavarnir í Reykjavík. Þar stóð meðal annars að bannað væri að reykja pípu innanhúss og einnig úti í nánd við eldfim efni. Því má fagna með því að fá sér bjór og sígó eða bjór og pípu. 2. apríl: Á þessum degi árið 1928 fékk Jóhanna Magnúsdóttir lyfsölu- leyfi fyrst íslenskra kvenna. Er því ekki tilvalið að skreppa i næsta ap- ótek og kaupa eitthverja áfenga og góða hóstasaft? 3. apríl: Grínarinn Eddie Murphy á fertugsafmæli í dag. Höld- um upp á það með því að fá okkur svartan rússa. 4. apríl: Kanar sendu geimferj- una Challenger af stað á þessum degi 1983. Fjórir geimfarar voru inn- anborðs og komust þeir allir heilir heim til eiginkvenna og barna og þess vegna er þetta mikill gleðidag- ur. 5. apríl: Lyftum glösum yfir því að þennan dag árið 1968 var hægri umferð samþykkt á Alþingi. 6. apríl: Lengsti þorskur sem vitað er um af íslandsmiðum, 181 sentí- metri, veiddist á línu í Miðnessjó 1941. Þessu má fagna á Skippernum þar sem hinn gamli sjóari Stebbi ræður ríkjum. Hann viðurkennir þessa staðreynd eflaust sem ágætis- ástæðu til að detta í’ða. 7. apríl: Meistari Megas verð- ur hvorki meira né minna en 56 ára í dag. „Ég drekk og drekk uns þorrinn er mér allur kraftur," sagði skáldið og við gerum það sama og smælum þar til við ælum framan í heim- inn. 8. apríl: Verslunin Bónus var opnuð fyrir akkúrat tíu árum og þar með gátu íslendingar keypt ódýrt í matinn og sparað nóg til að kaupa sér eina flösku líka. 9. apríl: Klámkóng- urinn og V i a g r a - bryðjarinn H u g h Hefner á 75 ára afmæli í dag. Þá verður kátt í höllinni hjá gamalmenninu og kærustunum sjö. 10. apríl: Á þessum degi fyrir 27 árum voru lög staðfest um kaup- staðarréttindi fyrir Grindavík, Bol- ungarvík, Eskifjörð og Dalvík. Um að gera að gera sér dagamun og kíkja í einhvern þess- arra kaupstaða að fagna með íbúun- um. 11. apríl: Þennan dag árið 1970 hófst minkarækt að nýju hér á landi þegar 900 læður komu með flugvél frá nágrönnum okkar í Noregi og fóru i minkabú í Kjalamesi. 12. apríl: Á skírdag snæddi Jesú á sínum tima síðustu kvöld- máltíðina með læri- sveinum sínum. Til að halda upp á þetta er tilvalið að fara á einhvem góðan veit- ingastað og háma í sig eins og þetta sé i síðasta sinn sem þú færð að borða. Það var nú einu sinni frelsarinn sem breytti vatni í vín forðum og því er ekkert ókristilegt við það að svolgra í sig áfengi. 13. apríl: Það var á þess- um degi 1565 sem Danakon- ungur staðfesti löggjöf um Stóradóm sem fjall- aði um brot í siðferðis- málum. Þessi löggjöf gerði það verk um að okkur var óheimilt að leggjast með skyld- mennum. Föstudag- urinn langi hittir akkúrat á þennan dag sem þýðir frí frá vinnu og skóla og því ekkert annað hægt að gera en að 18. apríl: A þessum degi 1872 herjuðu jarðskjálftar og ollu stórtjóni á Húsavík. Til að halda upp á þennan at- burð verður að fá sér eitt- hvað nógu sterkt að drekka sem hristir inn- yflin. til blanda sér i glas og kíkja út á líf- ið, og jafnvel h ö s 1 a frænku eða frænda. 14. april: Þessi dagur er mjög merkur þar sem Leifstöð (þjóðarstolt okkar) var vígð árið 1987. Til að halda upp á þennan mikilvæga atburð má skella sér til Keflavíkur en sá bær er þekktur fyrir mikið sukk. Það er wm. Jesús Kristur frelsari. Ragnar Stefánsson jarðskjálfta- fræðingur. Þeir eru búnir að finna út hvemig Jesús Kristur leit út og hann er ekkert líkur öllum altaristöflunum sem íslenskir söfnuðir hafa glápt á í svefndrukkn- um messum. Jesús Kristur er bara alveg eins og Ragnar „skjálfti" Stefánsson jarðskjálftafræðingur. Og einhvern veginn kemur það manni ekkert á óvart. Báðir eru þeir til vinstri í pólitik, skeggjaðir og í spámannabransanum. Þegar Kristur fór um árið lofaði hann að koma aftur. Alla tíð siðan hafa kristnir beðið óþreyjufullir úti í glugga eftir komu hans en ekkert gerst. Eftir uppljóstranir breskra vísindamanna um útlit Krists má með nokkrum rökum halda því fram að við höfum beöið við rangan glugga. Kristur var bara í vinnu á Veðurstofunni. alltaf jafn- gaman að skemmta sér með Kön- um, klappstýrum og öðrum Kefl- víkingum. 15. apríl: I dag er páskadagur og því tilval- ið að skola páskaeggið niður með alkóhóli á meðan rýnt er í máls- h æ t t i . Einnig á V i g d í s Finnbogadóttir afmæli í dag en kella er 71 árs. 16. apríl: Annar í páskum hefur lengi verið mikill djammdagur hjá íslendingum. Þessi dagur er einnig merkur vegna þess að árið 1954 voru landssamtök alkóhólista AA- samtökin stofnuð, skál fyrir því. 17. apríl: Skallapopparinn sikáti, Eyjólfur Kristjánsson, heldur upp á fertugsafmælið sitt í dag. 19. apríl: I dag er sumardagur- inn fyrsti en ef það er ekki full- n æ g j a n d i ástæða til að fara út á lífið má nefna að fermingar- böm í Akur- eyrarkirkju klædd- u s t hvít- u m kyrtl- u m þennan dag árið 1954 en það hafði ekki verið til siðs hér á landi. Um að gera að fá sér blóð Krists í tilefni þess. 20. apríl: í dag er 51 ár síðan Þjóðleikhúsið var vígt með frumsýn- ingu á Nýársnóttinni eftir Indriða Ein- arsson. Til að halda upp á þetta afmæli er sniðugt að kíkja í Leik- húskjallarann og reyna að fá afslátt á barnum út á þess- ar upplýsingar. 21. apríl: Sagt er í Set- bergsannál að snjókoma hafi verið svo mikil þennan dag árið 1648 að snjór var í mitti á sléttlendi. Slæmt veður hefur aldrei verið nein fyrir- staða þegar Islendingar ætla að skemmta sér en við mælum með því að fólk klæði sig almennilega ef ske kynni að þetta endurtaki sig. Það er örugglega ekki gott að vera í nælonsokkabuxum með snjó upp að mitti. 22. apríl: Nákvæmlega 84 ár eru liðin síðan guðfræðipró- fessorinn Jón Helgason var vígður biskup. Hann gegndi því embætti i 21 ár og skrif- aði meðal ann- ars Árbæk- 23. apríl: Það er aftur k o m i n n föstudagur og ekki nóg með það heldur er líka dagur bókarinnar haldinn hátíðlegur að því ógleymdu að Hall- dór Laxness hefði orðið 99 ára gam- alll í dag hefði hann verið á lífi. Persónan Jón Marteinsson í Is- landsklukkunni segir að maður skuli ekki trúa ófullum íslendingi, þannig að ef maður vill láta taka mark á sér verður áfengismagnið í blóðinu að vera yfir 2 prómíl. 24. apríl: , ..... Það var á þess- um degi 1914 sem dauða- dómur var kveðinn upp í síðasta sinn á íslandi. Kon- an sem dæmd hafði verið til dauða slapp þó við refs- inguna þar .......... sem dómnum • var breytt í lífstiðarfangelsi. Þetta minnir mann á að nýta hvern dag til fulls og djamma eins og maður myndi deyja á morgun. 25. apríl: I dag eru tíu ár síðan bifreið var ekið í fyrsta sinn á Hvannadalshnjúk á Öræfajökli. 26. apríl: Á þessum degi árið 1944 fannst gamall öskuhaugur þeg- ar verið var að grafa við Tjamar- götu í Reykjavík. Þar fundust bein úr svínum, geirfugli og fleiri dýr- um og veltu menn fyrir sér hvort þarna væri öskuhaugur Ingólfs Amarsonar. Nú er aftur verið að grafa á þessu svæði og sumir binda vonir við að vínkjallari kappans komist í leitirnar. 27. apríl: Unnur Steins fyrirsæta er 38 ára í dag en hún hefur verið í módelbransan- um í um 20 ár. Módel eru mjög fyndið fólk og tilvalið að kíkja út á lífið að hitta nokk- ur svoleiðis. 28. aprll: Upp hófust slagsmál og læti árið 1237 að Bæ í Borgarfirði. Um þrjátíu manns féllu í valinn í þessum blóðuga barðdaga sem kall- ast Bæjarbardagi. Til að minnast þess verða allir að drekka og vera glaðir og jafnvel fara í slag ef stemning er fyrir því. 29. apríl: Þau Michelle Pfeiffer og Dani- el Day-Lewis eiga bæði 44 ára afmæli í dag. 30. apríl: Árið 1701 var prjónles íslendinga ákvarðað með konungs- bréfi. Ákveðið var að sokkar skyldu vera ein- litir, ein dönsk alin á lengd og víðir eftir því. Til að halda upp á þetta er tilvalið að klæðast sokkum af þessu tagi og kíkja út á líflð. 12 f Ó k U S 30. mars 2001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.